Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2018, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2018, Side 14
16 06. april 2018fréttir K jaraviðræður íslenskra ljósmæðra og ríkisins hafa staðið yfir í eitt og hálft ár og enn sér ekki fyrir endann á þeim. Á sama tíma fer álagið á fæðingar- deildum síst minnkandi og er ástandið í stéttinni talið vera grafalvarlegt. Ófáir Íslendingar hafa tjáð sig á samfélagsmiðlum undanfarnar vikur og lýst yfir stuðningi sínum við íslenskar ljósmæður enda er óhætt að fullyrða að meirihluti einstak- linga hafi eða muni nýta þjón- ustu þeirra einhvern tímann á lífsleiðinni. Sömuleiðis hafa fjölmargar ljósmæður tjáð sig á samfélagsmiðlum og flestall- ar frásagnirnar eru á sömu leið: Þær elska vinnuna sína en hafa einfaldlega ekki efni á að starfa við fagið. Víst er að enginn dagur er eins í starfi ljósmóðurinnar. DV leitaði til nokkurra íslenskra ljósmæðra og fékk þær til að deila eftirminnilegum sögum úr starfinu. „Þessi laun verða aldrei frá mér tekin“ Ella Björg Rögnvaldsdóttir útskrifaðist úr námi sem ljós- móðir árið 2017 og hefur síðan þá starfað bæði á fæðingarvakt LSH og meðgöngu- og sængur- legudeild LSH. Hún sagði starfi sínu upp á dögunum. „Að liggja inni á spítala á meðgöngu, pínulítið týndur í tilverunni, svona eins og stopp í tíma á biðstofu er örugglega eitt af því erfiðara sem maður getur gert um ævina. Ég man eftir einni yndislegri konu sem ég sinnti sem var í þeirri stöðu. Hún var kvíðin og hrædd, stressuð vegna þess sem var á næsta leiti og tárin flóðu í stríðum straumum. Það var svo gott að finna hvað stuttur tími sem maður gat gefið sér til að setjast niður og spjalla, ræða áhyggjur hennar, mæta þeim með rökum og faglegum upp- lýsingum gat gert mikið gagn og hjálpað mikið í erfiðum aðstæð- um. Svo kom að því að konan fæddi, fæðingin gekk vel og hún kom aftur niður á meðgöngu- og sængurlegudeild. Að fá kon- una aftur í hendurnar, brosandi, ánægða og stolta af sjálfri sér var yndislegt. Það var svo gott að heyra hana segja að það sem við spjölluðum um, það sem við ræddum okkar á milli og sú þekking sem ég gat deilt með henni nýttist henni í þessu erf- iða verkefni sem hún hafði svo glæsilega komist í gegnum.“ „Eitt af þeim erfiðari verkefn- um sem ég hef tekist á við í mínu starfi“ Hildur Sólveig Ragnarsdótt- ir útskrifaðist 1998 sem hjúkr- unarfræðingur og sem ljós- móðir árið 2013. Hún starfar á Fæðingarvaktinni og hefur gert það meira og minna frá útskrift. „Þetta eru ekki alltaf gleði- stundir. Ég man eins og það hafi gerst í gær þegar mér var falið að sinna konu sem var að ganga í gegnum andvana fæðingu. Þetta var eitthvað sem ég hafði kviðið fyrir og held ég að flestar ljósmæður geri það. Hvernig átti ég að vera? Hvað átti ég að segja? Hvað átti ég ekki að segja? Mér fannst þetta mjög erfitt og krefjandi verkefni. Ég áttaði mig svo á því að það eina sem mað- ur getur gert í þessum aðstæð- um er að vera til staðar og sýna virðingu. Barnsfæðingar eru yf- irleitt gleðistundir og eiga að vera það. En því miður er það ekki alltaf svo og er þetta hluti af því að vera ljósmóðir. Ljósmæð- ur sinna konum og fjölskyldum bæði í gleði og sorg. Ég sinnti svo fjölskyldunni áfram í heimaþjónustu sem mér fannst einnig mjög erfitt. Hvernig sinnir maður konu og fjölskyldu þegar þau fara heim með ekkert barn? Þetta er eitt af þeim erfiðari verkefnum sem ég hef tekist á við í mínu starfi. Það eina sem maður getur gert er að vera til staðar og hlusta og styðja fólk í gegnum þessa erf- iðu lífsreynslu.“ „Ég vissi að hún grét þegar ég sá ekki til“ Kristín Theodóra Nielsen út- skrifaðist úr hjúkrunarfræði árið 1979 og lauk síðan ljós- móðurnámi árið 1982. Hún hef- ur því starfað við fagið í hátt í fjóra áratugi. „Ég hef starfað alfarið við heimaþjónustu eftir fæðingu í 18 ár. Hér er ein lítil dæmisaga úr mínum hversdagsleika. Ég var beðin að taka að mér konu sem hafði eignast sitt annað barn deginum áður. Það kom í ljós að þessi kona hafði erfiða brjóstagjafarsögu, svo erfiða að hún hafði kviðið fyrir fyrstu dögunum eftir fæðingu seinna barnsins síns alla meðgönguna. Þegar ég kom til hennar í fyrsta skipti skynjaði ég mikinn van- mátt gagnvart komandi dögum og því sem þeim myndi fylgja og í raun allt vegna fyrri reynslu konunnar. Í upphafi gekk brösuglega, hún var mjög áhyggjufull og fyrri reynsla sat verulega í henni og hafði mikil áhrif á andlega líð- an þessa fyrstu daga sem ein- kenndist af kvíða og ótta við að mistakast. Ég vissi að hún grét þegar ég sá ekki til og leið ekki vel. Því var það yndislegt að sjá og finna hvernig sjálfstraust henn- ar jókst með hverjum degin- um sem gekk betur og að lokum að skila af sér konu og barni þar sem takmarkinu er náð sem eru, þó sorglegt sé, í raun laun starfs- ins. Það er fátt meira gefandi en að finna þá þekkingu sem maður hefur aflað sér í gegnum krefjandi nám og áralanga reynslu skila sér í auknu sjálfstrausti og betri líð- an skjólstæðinga sinna. Þannig er ljósmæðrastarfið eflandi ferli bæði fyrir þær fjölskyldur sem við sinnum og þá ljósmóður sem starfinu sinnir í hvert skipti.“ „Gleðistundirnar fylgja okkur heim úr vinnunni en það gera þær erfiðu líka“ Heiða B. Jóhannsdóttir: „Sem ljósmóðurnemi í verknámi á meðgöngu- og sængurlegu- deild sinnti ég ófrískri konu sem er mér mjög nákomin. Á seinni hluta meðgöngunn- ar kom í ljós að barnið hennar væri með hjartagalla og þyrfti að öllum líkindum að fara fljótlega eftir fæðingu til útlanda í að- gerð. Ég var á vakt daginn sem ákveðið var að taka barnið út með keisaraskurði þar sem ekki var talinn ávinningur lengur fyr- ir barnið að vera í móðurkviði. Ég var fyrir tilviljun látin hafa umsjón með henni ásamt leið- beinandi ljósmóður. Við undir- bjuggum konuna fyrir keisar- ann og fórum með hana upp á skurðstofu. Aðgerðin gekk vel en far- ið var strax með barnið yfir á vökudeildina og fylgdi faðir- inn barninu. Konan lá því ein eftir á skurðarborðinu í miðri skurðaðgerð, logandi hrædd um barnið sitt og án mannsins síns. Ég settist hjá konunni, hélt í hönd hennar og hughreysti hana meðan á aðgerðinni stóð. Ég sinnti fólkinu í sængurlegu daginn eftir fæðinguna og var einnig með þeim daginn sem þau fóru til útlanda með litla hjartagullið sitt í aðgerð aðeins hálfri viku eftir fæðingu. Þetta var mér mjög erfiður tími og felldi ég ófá tár þessa daga og fyrstu dagana eftir að þau voru farin út. Það má deila um hvort maður eigi að sinna svo ná- komnum einstaklingum í jafn krítísku ástandi og þarna var, en við erum sammála um það, ég og móðir barnsins, að við hefðum ekki vilja hafa það neitt öðruvísi. Í flestum tilfellum sinna ljósmæður fólki á þeirra mestu gleðistundum en við sinnum líka fólki á sinni verstu stundu. Gleði stundirnar fylgja okkur heim úr vinnunni en það gera þær erfiðu líka. Við erum mannlegar og hjarta okkar svo innilega með því fólki sem við sinnum.“ Kúkasprengja um allt gólf Ásta Dan Ingibergsdóttir: „Ljós- móðurstarfið getur komið skemmtilega á óvart. Ég var einu sinni í heimaþjónustuvitjun hjá nýbökuðum foreldrum og að- alviðfangsefni dagsins var að leiðbeina þeim með fyrsta bað- ið. Við undirbjuggum balann í sameiningu á stofuborðinu og síðan fór pabbinn með barnið inn í svefnherbergi til að klæða það úr. Þegar hann gekk til baka með stúlkuna í fanginu skilaði hún stórri kúkasprengju, sem fór um allt gólf, yfir pabbann, og krafturinn var svo mikill að það skvettist upp á veggina! Við hlógum dátt að uppátæki barnsins og fórum að þrífa upp það mesta. En litla krúttið var ekki búið heldur pissaði yfir mig alla á meðan foreldrarnir voru enn að skúra gólfið. Við gleym- um þessum baðdegi seint “ n „Hvernig sinnir maður Konu og fjölsKyldu þegar þau fara Heim með eKKert barn?“ „gleðistund- irnar fylgja okkur heim úr vinnunni en það gera þær erfiðu líka“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.