Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2018, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2018, Side 22
24 6. apríl 2018fréttir n Miklir og sárir verkir við blæðingar n Verkir við egglos n Meltingartruflanir og/eða sársauki við hægðalosun n Sársauki við þvaglát n Sársauki við kynlíf n Síþreyta Ófrjósemi Um 30–40% kvenna með endómetríósu glíma á einhverjum tíma- punkti við van- eða ófrjósemi en flestar þeirra ná þó að eignast barn með hjálp tækninnar. Aðrar kjósa svo ættleiðingu sem leið til að verða foreldri. Því miður er engin lækning til við endómetríósu. Sjúk- dómurinn getur einnig hamlað verulega þátttöku í starfi, námi, fjöl- skylduviðburðum og öðru félagslífi og ekki er óalgengt að konur með endómetríósu einangrist félagslega á einhverjum tímapunkti í sínum veikindum. Í samfélagi þar sem gjarnan er talið „eðlilegt“ að stúlkur og konur fái slæma tíðaverki, getur verið erfitt að gera sig trúanlegan. Um samtökin Samtök um endómetríósu hafa starfað frá 2006. Samtökin halda úti heimasíðu, Facebook-síðu og lokuðum spjall- og fræðsluhópi félags- kvenna samtakanna á Facebook. Samtökin má einnig finna á ýmsum öðrum samfélagsmiðlum. Vika endómetríósu: Laugardagur 7. apríl–föstudagsins 13. apríl. Á þeim tíma verður Landspítalinn við Hringbraut lýstur gulum lit endó- metríósu. væri botnlanginn og hann þurfti að bera mig út í bíl vegna verkja. Þegar við mættum upp á bráða- móttökuna var ég látin liggja frammi á biðstofu í kuðung, sár- kvalin  og hágrátandi. Það þarf mikið til þess að ég kveinki mér, enda er sársaukaþröskuldurinn orðinn nokkuð hár eftir alla þessa verki í gegnum tíðina, en þarna var mér allri lokið.“ Lá sárkvalin á biðstofu bráða- móttökunnar Eyrún lá á biðstofu bráðamóttök- unnar í nokkra klukkutíma áður en loks var hugað að henni. „Læknarnir voru á sömu skoðun og við til að byrja með, að um botnlangakast væri að ræða. Þeir náðu í sónartæki til þess að skoða hann frekar. Á þeim tíma- punkti var ég orðin alveg viss um að svo væri ekki. Þegar þeir áttuðu sig á að þetta var ekki botnlanginn var mér engu að síður neitað um að ræða við kvensjúkdóma- lækni  eða að fara yfir á kvenna- deildina. Ég var síðan sprautuð niður með morfíni og sofnaði að lokum.“ Eyrúnu var haldið á bráðamót- töku yfir nótt. Snemma morgun- inn eftir birtist nýr læknir sem taldi hana í nægilega góðu standi til að fara heim. „Mér var gefið meira morfín og var svo send heim stuttu síðar. Ég missti fjóra daga úr vinnu þegar þetta gerðist og eftir að ég var send heim fékk ég engin verkjalyf. Mér var ráðlagt að kaupa paratabs eða íbúfen og svo var ég hvött til þess að harka af mér, að það væri eðli- legt fyrir konur að fá túrverki,“ segir Eyrún. Í dag er staðan sú að þessi lyf virka ekkert á hana enda hefur hún byggt upp mikið þol í gegnum tíðina. Mikilvægt að fá göngudeild fyrir konur með endómetríósu Eyrún telur mikilvægt að komið verði á laggirnar göngudeild fyr- ir konur þar sem þær geti fengið rétta greiningu, meðhöndlun og eftirfylgni. „Þar ættu að vera fjölhæfir sérfræðingar sem vita nákvæm- lega hvað þetta er og hvernig á að bregðast við – hvernig á að verkja- stilla konur og fleira. Ef þessi göngudeild hefði verið til fyrir ára- tug þá hefði ég fengið greininguna fyrr.“ Greining Eyrúnar kom ekki fyrr en hún og kærasti hennar höfðu reynt að eignast barn í rúmlega heilt ár án árangurs. „Þetta hefur mikil áhrif á and- legu hliðina og ég hef þjáðst af miklum kvíða vegna þessa. Ég var alltaf hjá hinum og þessum sér- fræðingum sem gátu ekkert fyrir mig gert,“ segir Eyrún. Eyðilögð að fá alltaf neikvætt próf Í dag eru Eyrún og kærasti henn- ar í  í frjósemisferli. Engin niður- greiðsla er á slíkum aðgerðum á Íslandi en Eyrún ræddi þetta ferli við lækni sem hún leitaði til í Dan- mörku á sínum tíma. „Hann sagði að frjósemisað- gerðir þar væru fríar þar sem all- ir eiga rétt á því að eignast barn og að konur með viðurkennd- an  krónískan  sjúkdóm eigi rétt á niðurgreiðslu. Það er virkilega ósanngjarnt að sumir séu að reyna og reyna en ekkert gerist á með- an aðrir verða óléttir bara á einni nóttu.“ Eyrún og kærasti hennar hafa nú verið að safna fyrir því að geta farið í frjósemisferli í  nokkurn tíma. „Ég var orðin alveg eyðilögð að fá alltaf neikvætt próf. Þótt maður sé ekki alltaf að hugsa um þetta þá er þetta alltaf í undirmeðvitund- inni. Þetta er virkilega erfitt og ég þekki konur sem hafa farið jafnvel 10–11 sinnum í frjósemisaðgerð án þess að verða óléttar. Maður upplifir þetta sem mikið óréttlæti en ég reyni að líta á þetta sem ver- kefni sem ég þarf að ganga í gegn- um. Þetta gerist ef að þetta gerist.“ Reynslusaga Karitasar Bjarka- dóttur Karitas Bjarkadóttir byrjaði á blæðingum þegar hún var einung- is tíu ára gömul og síðan þá hefur hún alltaf þjáðst af miklum túr- verkjum. „Ég man eftir fyrsta verkjakastinu mínu þegar ég var ellefu ára gömul og gisti heima hjá ömmu minni og afa. Mér var svo illt að mér var heitt og kalt til skiptis. Þurfti að hafa tvær sæng- ur yfir mér og beina viftunni í áttina að mér. Ég gat varla stað- ið í  fæturna  fyrir svima og verkj- um og ældi svo í kjölfarið. Það var í fyrsta skiptið sem ég ældi vegna verkjanna,“ segir Karitas sem fékk nýlega klíníska greiningu á sjúk- dómnum endómetríósa. Bíður þess að fá að fara í kvið- arholsspeglun „Þetta hafa alltaf verið mjög slæmir verkir og í haust fór ég að finna fyrir þeim jafnvel þótt ég væri ekki á blæðingum. Mér fannst það eitthvað gruggugt og ákvað að kíkja til læknis. Hann vissi ekk- ert hvað var að mér og sendi mig í blóðprufu sem ég fékk aldrei neitt út úr. Það var lítið sem hægt var að gera fyrir mig á heilsugæslunni þannig að ég ákvað að panta mér tíma hjá  kvensjúkdómalækni. Ég greindi honum frá einkennunum og hann greindi mig klínískt. Ég tikka í öll boxin en ég á eftir að fara í svokallaða kviðarholsspeglun.“ Karitas er einnig með aft- ursveigt leg sem gerir það að verk- um að endómetríósan getur verið staðsett  annars staðar en algengt er. „Það sást því ekki neitt í óm- skoðuninni þannig að ég er ekki búin að fá formlega greiningu og ég er núna að reyna að fá það í gegn að fá að fara í aðgerðina. Læknirinn minn vill prófa allt fyrst en ég vil helst bara fá að fara í að- gerðina. Ég er því bara að vinna í því að reyna að fá þetta í gegn.“ Mætir í skólann og grætur vegna verkja Karitas segist ekki átta sig á því hvað valdi því að læknarnir vilji bíða. „Ég get svo sem skilið að þeir vilji prófa allt en það er samt bara alltaf betra að fá þetta staðfest. Í rauninni eru þeir að tefja þetta af því að ég er svo ung. Það er búið að setja mig á pilluna endalaust en það virkar bara ekki neitt.“ Endómetríósan  hefur haft gíf- urleg áhrif á líf Karitasar sem hefur þurft að sleppa því að mæta í skól- ann sökum hennar. „Ég hef þurft að taka veikinda- daga af því að ég kemst ekki fram úr vegna verkja. Það hefur oft liðið yfir mig og ég hef margoft ælt vegna verkjanna. Jafnvel þótt ég sé ekki einu sinni á blæðingum þá er ég rúmföst. Ég er svolítill harð- jaxl og reyni að harka af mér nema ég bókstaflega komist ekki fram úr. Ég mæti frekar í skólann og græt úti í horni. Ég er núna að leita að verkjalyfjum sem virka fyrir mig þar sem íbúfen og  naproxen  eru hætt að virka.“ Karitas hafði áður lesið sig til um endómetríósu  þegar hún var yngri og grunaði hana jafnvel að um þennan sjúkdóm væri að ræða en fékk sig þó aldrei til þess að fara til læknis. „Ég hugsaði bara einhvern veg- inn að það fengju allir túrverki og ég væri bara óheppin að fá svona slæma. En síðustu ár hefur um- ræðan aukist mikið og allt efni um þetta er orðið aðgengilegra. Allt sem ég fann á sínum tíma var á ensku og því var erfitt fyrir mig að skilja almennilega læknisfræðileg heiti á öðru tungumáli.“ n   Einkenni endómetríósu og birtingarmynd: Eyrún Telma

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.