Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2018, Blaðsíða 31
fólk - viðtal 3306. april 2018
vinsældum og til dæmis Síðan
skein sól og Sálin hans Jóns míns
en við áttum mjög traustan aðdá-
endahóp. Gildran var hljómsveit
Mosfellsbæjar næstum öll þessi
ár.“
Reynduð þið að „meika það“
erlendis?
„Já. Við tókum upp tvö lög á ensku
í Bretlandi árið 1985 og fengum
samning við útgáfufyrirtæki þar
í landi. Síðan fengum við senda
vínylplötu með lögunum en þá
gufaði þetta fyrirtæki upp og við
heyrðum aldrei meira frá þeim.
En vegna samningsins komumst
við í fyrsta skipti á forsíðu DV.“
Gildran hætti árið 2012 eftir að
tveir meðlimir sveitarinnar sneru
sér að öðrum verkefnum. Karl
segir það hafa verið mjög erfitt
tímabil fyrir hann. „Ég hafði það
hlutverk að vera talsmaður sveit-
arinnar og hún var mér nánast
allt. Mitt líf snerist að miklu leyti
um þessa hljómsveit í 30 ár. Þetta
hefur kannski farið meira fyr-
ir brjóstið á mér en hinum strák-
unum, þetta truflaði mig mikið og
ég var lengi að sætta mig við það.
Mér fannst hljómsveitin eiga svo
mikið inni og hún naut að því sem
virtist ákveðinnar virðingar.“
Í seinni tíð hafa tvær mos-
fellskar hljómsveitir náð heims-
frægð, Sigur Rós og Kaleo. Karl
segir að hann eigi nú töluvert í
Kaleo og tónlistarlegu uppeldi
þeirra. Ólafur, sonur Karls, og
meðlimir Kaleo eru vinir frá barn-
æsku. „Á heimili okkar í Álafoss-
kvosinni var fyrirtaks aðstaða til
að spila tónlist og þeir voru þarna
eins og gráir kettir.“
En tónlistin var aldrei aðalstarf
Karls. Hann er menntaður bók-
bindari og starfaði við það í sex
ár. Um tíma rak hann snókerstof-
una Kjuðann í Mosfellsbæ og
síðar meir veitingastaðinn Ála-
foss föt best. Þann stað stofnaði
Karl með bróður sínum og eigin-
konum þeirra í einu af gömlu og
niðurníddu húsum Álafossverk-
smiðjunnar sem þau gerðu upp.
„Þar var bar og góð tónleikaað-
staða þar sem margir listamenn
komu fram í gegnum tíðina. Þetta
var æðislegur tími.“
Skorinn samstundis eftir
krabbameinsgreiningu
Árið 2003, þegar Karl var 39
ára gamall, veiktist hann alvar-
lega. Hann fór að finna fyrir verkj-
um í brjóstum og pung en kippti
sér ekki mikið upp við það til að
byrja með þar sem þeir voru alltaf
tímabundnir. Þetta gekk svona í
nokkra mánuði og verkirnir fóru
að ágerast, urðu verri og verri í
hvert skipti sem þeir komu. Þann
2. maí fór Karl ásamt eiginkonu
og syni á tónleika með bítlinum
Paul McCartney í Parken í Kaup-
mannahöfn og á leiðinni var
hann orðinn algerlega viðþols-
laus. Hann hafði miklar áhyggj-
ur af því að verkirnir myndu
skemma fyrir honum upplifunina
en þeir rénuðu meðan á tónleik-
unum stóð. „Ég gleymdi meira að
segja að drekka bjórinn sem ég
hafði keypt.
Þegar ég kom til baka versnaði
þetta og versnaði. Ég sá að þetta
gekk ekki lengur og pantaði tíma
hjá sérfræðilækni. Ég veit nú að
ég beið allt of lengi því að ef karl-
menn fá svona verki, sérstak-
lega ef þeir leiða upp í brjóst, eiga
þeir að láta athuga þetta strax. En
mig grunaði aldrei að þetta væri
krabbamein.“
Biðlistinn var langur hjá sér-
fræðingnum en Karl náði að
koma sér að strax eftir krókaleið-
um. Hann þoldi einfaldlega
ekki við lengur. Eftir skoðun sér-
fræðingsins var hann sendur strax
í myndatöku hjá Domus Medica
og þaðan samdægurs á Landspít-
alann og skorinn upp morguninn
eftir þar sem eistað með illkynja
krabbameinsæxlinu var fjarlægt.
„Þegar þetta ferli hófst upplifði
ég mína verstu vanlíðan því þá
gerði ég mér grein fyrir að eitthvað
mjög alvarlegt væri í gangi. Ég
var orðinn mjög lasinn og komin
óregla á blóðið. Sigurður Björns-
son, yfirlæknir á krabbameins-
deildinni, sagði mér hins vegar
að hann ætlaði að lækna mig og
ég á honum mikið að þakka fyr-
ir hvernig hann aðstoðaði mig á
allan hátt. Ég var ofsahræddur og
þetta var lífshættulegt. Ég upp-
lifði ekki þennan mikla ótta nema
á þessum sólarhring en þá tók ég
allan pakkann út og hélt að lífið
væri bara búið.“
Eftir aðgerðina ræddi Sigurð-
ur við Karl og eftir það samtal var
Karl aldrei í neinum vafa um ann-
að en að þetta myndi fara á besta
veg. Í nokkur ár fór hann í reglu-
bundnar skoðanir og var loks út-
skrifaður árið 2008 og er mjög
þakklátur því faglega starfi sem
Sigurður og aðrir á krabbameins-
deildinni sinntu.
Breytti þetta þér að einhverju
leyti?
„Ég neita því ekki að eftir að mað-
ur veikist svona alvarlega þá
dettur maður stundum í að hugsa
það versta þegar maður finnur
aðeins til einhvers staðar í líkam-
anum. Þetta var mikið áfall fyrir
mann á besta aldri og ég er aðeins
hræddari eftir.“
„Þegar þetta ferli hófst upp-
lifði ég mína verstu vanlíðan því
þá gerði ég mér grein fyrir að eitt-
hvað mjög alvarlegt væri í gangi“
Fordæmalaust samstarf
Árið 2002 stofnaði Karl bæjar-
blaðið Mosfelling og ritstýrði því
fyrstu þrjú árin. Skrifaði hann þá
viðtöl og fréttir af því sem var að
gerast í bænum. En þegar sú hug-
mynd kom upp að hann myndi
bjóða sig fram til bæjarstjórn-
ar ákvað hann að segja skilið við
blaðið vegna hagsmunaárekstra.
Hann þurfti þó að hugsa sig vel
um því að blaðið gekk vel.
Hvað rak þig út í stjórnmálin?
„Það var leitað til mín eins og
menn segja,“ segir Karl kíminn.
„Ég var búinn að vera áberandi í
bæjarfélaginu, vegna blaðaútgáf-
unnar og tónlistarinnar. Ég þekkti
alla og margir þekktu mig. Faðir
minn og elsti bróðir höfðu báð-
ir setið í hreppsnefndinni í gamla
daga og fólk vissi nokkurn veginn
hvorum megin línunnar ég var í
pólitíkinni.“
Karl leiddi lista Vinstri grænna
í sveitarstjórnarkosningunum
árið 2006 og keyrði á þeim málum
sem hann brann fyrir, umhverfis-
málum og menningarmálum.
Flokkurinn náði manni inn með
tæplega tólf prósent atkvæða og
vann því óvæntan og góðan sigur.
Eftir kosningarnar fundaði Karl
með fulltrúum Samfylkingar-
innar og Framsóknarflokksins
með það að markmiði að mynda
meirihluta. En þær viðræður fóru
út um þúfur vegna þess að hin-
ir flokkarnir gátu ekki komið sér
saman um bæjarstjóraefni. Þá
höfðu Sjálfstæðismenn samband
við Karl og hófu viðræður um for-
dæmalaust tveggja flokka sam-
starf.
„Ég stóð frammi fyrir þessari
spurningu og tók þá ákvörðun
um að slá til. Ég þekkti vel fólkið
í Sjálfstæðisflokknum og var ekki
í nokkrum vafa um að við gæt-
um unnið saman. Enda hefur það
komið á daginn og þetta er senni-
lega elsta meirihlutasamstarf á
landinu í dag.“ Samstarf Sjálf-
stæðismanna og Vinstri grænna
er nú á sínu þriðja óslitna kjör-
tímabili. Karl var fulltrúi Vinstri
grænna í átta ár og sat sem forseti
bæjarstjórnar.
Upphrópanir og einelt
Hvernig gekk þetta?
„Samstarfið við Sjálfstæðismenn
gekk alltaf vel. En það varð allt
gjörsamlega vitlaust í bænum
fyrstu árin. Þetta var að vissu leyti
skemmtilegur og lærdómsríkur
tími en það komu upp mál sem
settu mjög ljótan blett á. En sam-
skipti mín við Sjálfstæðismenn
og bæjarstjórana Ragnheiði Rík-
harðsdóttur og Harald Sverrisson
voru alltaf góð. Gagnrýnin, sem
birtist meðal annars í harkaleg-
um skrifum í bæjarblaðinu, var
óvægin og beindist nær alfarið að
mér. Aðallega frá Samfylkingar-
og Framsóknarmönnum. Alls
konar fólk fyllti fundarherbergi
bæjarstjórnar á fyrstu fundunum
sem ég stýrði, tók myndir, fliss-
aði og jafnvel hló. Það fór aldrei á
milli mála að leikurinn var gerður
til að setja mig úr jafnvægi. Þetta
var einelti og ekkert annað.“
Hvernig tóku flokkssystkini þín
á landsvísu í samstarfið við Sjálf-
stæðisflokkinn?
„Ég fékk mjög mikinn stuðning
frá þingmönnum kjördæmisins,
Ögmundi Jónassyni og Guðfríði
Lilju Grétarsdóttur, að ógleymd-
um Ólafi Gunnarssyni sem var
allan tímann mín hægri hönd.
Hins vegar féllu þó nokkrir Vinstri
grænir í þá gryfju að halda að ég
væri að gera einhvern skandal
þarna í Mosó, aðallega vegna
umhverfissamtaka sem kölluðu
sig Varmársamtökin en voru í
grunninn pólitísk og forsvars-
menn þeirra í minnihlutaflokk-
unum.“
Árin 2006 og 2007 voru miklar
deilur í Mosfellsbæ vegna lagn-
ingar Helgafellsbrautar um Ála-
fosskvos að íbúðahverfi og Varm-
ársamtökin börðust hatrammlega
gegn deiliskipulagi bæjarins.
Vildu þau að svæðið við Varmá
yrði skipulagt með menningu,
útivist og umhverfismál í huga.
„Þessi hópur var mjög fyrir-
ferðarmikill í umræðunni og taldi
mig hafa svikið málstað Vinstri
grænna. Ég samþykkti þennan
veg en með miklum breyting-
um og hann var smærri í snið-
Kalli Tomm, Karl Tómasson söngvari,
tónlistarmaður, Gildran