Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2018, Blaðsíða 35
Flutningar 06. april 2018 KYNNINGARBLAÐ
EM Sendir er lítil sendibílaþjón-usta sem sérhæfir sig í að veita fjölbreytta og persónulega
þjónustu bæði einstaklingum og litlum
fyrirtækjum. EM Sendir reynist mörg-
um ómetanleg hjálparhella, vinnur verk
sem aðrir taka ekki að sér og kemur oft
til bjargar við aðstæður þegar fólk veit
hreinlega ekki hvert á að snúa sér, til
dæmis varðandi úrgang og sorp sem
ekki er veitt móttaka á hefðbundnum
endurvinnslustöðvum, og við margvís-
legar aðrar aðstæður.
EM Sendir er í eigu þeirra Einars
Margeirs Kristinssonar og tengdaföður
hans, Hafþórs Harðarsonar, en þeir
hafa yfir að ráða tveimur meðalstór-
um sendibílum. Bílarnir henta í minni
búslóðarflutninga hjá pörum eða
einstaklingum en auk þess veita þeir fé-
lagar alls konar þjónustu, aka með sorp,
skutlast með vörur fyrir fyrirtæki og
sinna jafnvel tiltekt, til dæmis í bílskúr-
um og ruslageymslum.
„Varðandi búslóðaflutninga þá
hentar okkar þjónusta best til dæmis
stúdentum, þeim sem eru að flytja að
heiman frá sér í fyrsta skipti og jafnvel
þeim sem eru að flytja á síðasta heimil-
ið sitt, þ.e. dvalarheimili,“ segir Einar.
Mikil þörf fyrir svona þjónustu
„Fólk er oft hissa á hvað við veitum
mikla þjónustu. Þegar allt er á hvolfi
í bílskúrnum þínum getum við komið,
farið með ruslið og gengið frá því. Það
sama gildir um ruslið í garðinum og
svo framvegis. Oft erum við ruslakarlar
fyrir það sem hin almenna sorphirða
tekur ekki. Við erum oft fengnir í alls
konar sérkennileg verkefni sem fólk situr
uppi með. Gott dæmi er iðnaðarrusl
sem verður eftir þegar fólk hefur farið í
gegnum breytingar á húsnæði og það
veit ekkert hvar það getur losað sig við
slíkan úrgang. Stundum eru þetta stórir
steypuklumpar sem vega hundruð kílóa.
Þá mætir maður bara með mannskap
og burðarbönd og leysir málið.“
Viðskiptavinahópur EM Sendis er
mjög fjölbreyttur og ljóst er að mikil þörf
er fyrir þessa þjónustu: „Þetta er bara
öll flóran en fyrst og fremst er venjulegt
fólk sem þarf á þessari þjónustu að
halda, persónulegri þjónustu varðandi
verkefni sem það getur ekki leyst sjálft.
Fólk sem á bara fjölskyldubíl eða jafnvel
engan bíl, þarf að taka til í geymslunni
sinni og hefur oft engin tök á að losa
sig við ruslið. Þarna komum við inn og
leysum vandann. Eða þegar eldra fólk
klippir tréð í garðinum sínum. Hver á að
fara með greinarnar á Sorpu ef þetta
er ekki tekið? Það hentar ekki öllum að
setja þetta í skottið á bílnum sínum.“
Þjónusta við veitingahús
Eins og áður kom fram vinnur EM
Sendir töluvert fyrir fyrirtæki, sér-
staklega við smærri vörusendingar á
morgnana fyrir til dæmis heildsölur. En
þeir félagar vinna einnig fyrir veitinga-
staði: „Ég hef bakgrunn úr hótel- og
veitingarekstri og sú reynsla meðal
annars gerir okkur kleift að þjónusta
veitingastaði. Við losum þessa aðila við
ruslið sem þeir hafa ekki hugmynd um
hvert á að fara með. Eða ef afgangsolí-
an er ekki hirt reglulega af efnamót-
tökunni þá vitum við hvert á að fara
með hana. Það sama gildir um
endurvinnslugler og ýmsar aðrar
ruslaferðir þar sem sorphirðan
tekur af einhverjum ástæðum
ekki við, en við vitum hvert á að
fara með þetta efni. Við vitum
líka hvort það kostar að farga
hlutum og hvað það kostar.“
Þess má geta að þeir Einar
og Hafþór aka líka fyrir Nýju
Sendibílastöðina og þess vegna
eru bílar þeirra merktir henni.
Nýja Sendibílastöðin virkar eins og
bílaleigustöðin fyrir utan að bíl-
stjórarnir eiga hlut í henni.
Þeir sem vilja nýta sér þjónustu EM
Sendis eða fá frekari upplýsingar geta
sent skilaboð inni á Facebook-síðunni
www.facebook.com/EMSendir/ en
einnig má hringja í síma 696-0420 eða
896-6283.
EM SENdir:
Persónulega og hjálpsama
sendibílaþjónustan
Dæmi um úrgang sem EM Sendir
losar viðskiptavini sína við