Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2018, Síða 36
Flutningar 06. april 2018KYNNINGARBLAÐ
Vöruflutningar, búslóða-
flutningar og aðstöðubílar
fyrir kvikmyndabransann
Ég er valkostur við stóru skipafé-lögin, Eimskip og Samskip, um búslóðaflutninga milli Íslands
og Skandinavíu og vöruflutninga og
búslóðaflutninga innanlands. Stund-
um er ég ódýrari, stundum ekki, það
fer allt eftir eðli verkefnanna hverju
sinni. Hér er engin yfirbygging og
þjónustan er hurð í hurð, það eru
engin vöruhús, lyftarar eða starfsfólk
á milli, sem sagt engir milliliðir, heldur
flyt ég vöruna eða búslóðina upp að
dyrum í flestum tilfellum.“
Þetta segir Jón Tómas Ásmunds-
son sem rekur flutningaþjónustu
undir heitinu Vöruflutningar.is. Hann
hefur starfað við vöruflutninga frá
árinu 1993 og kveður þar mest
að reglulegum vöruflutningum og
búslóðaflutningum milli Reykjavíkur
og Akureyrar einu sinni til tvisvar í
viku.
Búslóðaflutningar milli Íslands og
hinna Norðurlandanna
En síðustu ár hafa búslóðaflutningar
milli Íslands og hinna Norðurland-
anna verið mjög fyrirferðarmiklir. Jón
segist raunar líka hafa flutt búslóð-
ir til Spánar og er hann opinn fyrir
flutningum hvert sem er, en langmest
kveður að Skandinavíu-flutningun-
um. Flutningabílunum er þá ekið til
Seyðisfjarðar þar sem þeir fara um
borð í Norrænu. Túrinn tekur allt í allt
tvær vikur. „Þessar ferðir eru á u.þ.b.
sjö vikna fresti. Ég fer næst út 2. maí,
það er enn laust pláss í þá ferð en
ég er fullbókaður heim. Ég búinn að
bóka 28. júní út aftur og auk þess 16.
ágúst, 3. október og 21. nóvember,“
segir Jón Tómas.
Jón Tómas segir marga veigra
sér við að nýta sér þjónustu hans
þar sem þeir finni meira öryggi í því
að skipta við þekkt fyrirtæki eins
og Eimskip og Samskip. Reynslan
og orðsporið vinni hins vegar alltaf
með honum og þeir sem hafi einu
sinni átt viðskipti við hann mæli nær
alltaf með honum við aðra. Einfald-
ur rekstur og engin yfirbygging gera
honum kleift að bjóða oft mun betra
verð en stóru flutningafélögin.
„Ég er með þrjá flutningabíla í eigin
eigu en ég kalla alltaf til mína sam-
starfsaðila fyrir stærri verkefni. Ég er í
samstarfi við nokkra félaga sem sinna
vöruflutningum eins og ég en ég er sá
eini sem er í búslóðaflutningum milli
Íslands og hinna Norðurlandanna.
En ég get einfaldlega tekið það með
mér sem hentar hverju sinni og ef ég
er búinn að fylla mína bíla hef ég ein-
faldlega samband við félagana.“
Aðstöðubílar fyrir kvikmyndabrans-
ann
Jón Tómas og fyrirtæki hans er nú
tengt upptökum á framhaldi hinnar
geysivinsælu þáttaraðar Ófærðar.
„Ég hef verið tengdur kvikmynda-
bransanum í um 18 ár en lengst af
snerist það eingöngu um flutning á
bílum fyrir auglýsingamyndatökur.
Núna er ég farinn að færa mig út í
aðstöðubíla. Ég get skaffað hillubíla,
hvort sem það er venjulegur sendi-
bíll eða þriggja öxla aldrifsbíll; ég get
skaffað búningadeild eða bíl sem er
bara með speglum og borðum fyrir
förðun og þess háttar; ég get skaffað
skrifstofubíl, klósett, búningaaðstöðu,
kaffistofu,“ segir Jón Tómas sem hef-
ur yfir alls átta bílum að ráða en bíll
frá honum hýsir núna búningadeild
kvikmyndatökuliðs Ófærðar:
„Þetta er búningadeild á hjólum.
Búningahönnuðurinn getur þá verið
með alla búninga í bílnum ásamt
vinnu- og viðgerðaraðstöðu. Fólk
getur skipt þarna um föt, mátað og
svo framvegis – allt í bílnum.“
Nánari upplýsingar um þjónustuna
veitir Jón Tómas í síma 896-2063 en
einnig er áhugavert að skoða heima-
síðuna voruflutningar.is og Facebook-
hópinn Jón Tómas Flutningar- Ísland
Noregur- Noregur Ísland, til að fá
upplýsingar um þjónustuna.