Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2018, Blaðsíða 37
Flutningar 06. april 2018 KYNNINGARBLAÐ
Ég byrjaði með einn bíl, árið 2016 voru þetta 2–3 bílar en síðan þá hefur þetta aukist stöðugt, í
dag erum við með fimm bíla og það
eru tveir nýir á leiðinni fyrir sumarið,“
segir Stefán Þór Jónsson, bílstjóri og
eigandi flutningafyrirtækisins Á ferð
og flugi. Starfsemin hefur dafnað
jafnt og þétt undanfarin misseri en
þegar fyrirtækið var stofnað í mars
árið 2015 var bara einn flutningabíll í
eigu þess.
„Við erum aðallega í vöruflutning-
um, keyrum fyrir Samskip, Eimskip og
Vörumiðlun. Við sjáum líka um allan
áætlunarakstur með vörur á Mývatn
frá Akureyri, fyrir bæði Eimskip og
Samskip. Þetta eru mikið matvörur,
byggingarvörur og síðan ýmislegt
fleira,“ segir Stefán, en bílstjórar fyrir-
tækisins fara einnig oft milli Akureyrar
og Seyðisfjarðar í tengslum við ferðir
ferjunnar Norrænu.
Elti ástina til Akureyrar
Stefán Þór Jónsson er Reykvíkingur
en flutti til Akureyrar fyrir tveimur
árum, tók með sér eitthvað af verk-
efnum sem hann var með í Reykja-
vík og síðan hefur starfsemin bara
vaxið: „Ég byrjaði með flutningabíl í
Reykjavík en kærastan mín er héðan,
hún vildi flytja norður og ég sló til og
ákvað að sjá hvort ég fengi eitthvað
að gera hér. Ég tók með mér hluta
af vinnunni norður, Smyrilline-verk-
efnin fyrir norðan og svo var ég alltaf
að keyra fyrir Samskip og Eimskip í
Reykjavík líka, ég sagði þeim að ég
væri að flytja mig norður og það var
ekkert mál.“
Bílstjórarnir hjá fyrirtækinu eru
nú orðnir samtals fimm. Stefán Þór
Jónsson og unnusta hans, Sigríður
Þorsteinsdóttir, keyra bæði hjá fyr-
irtækinu en auk þeirra eru þrír aðrir
bílstjórar í fullu starfi.
„Við höfum bara stækkað stig af
stigi í samræmi við verkefnastöðuna
hverju sinni. Síðasta sumar vorum
við í raun með of fáa bíla þannig að
við erum að bæta við bílum núna
til að anna örugglega verkefn-
um komandi sumars,“ segir
Stefán.
Eins og komið hefur
fram hér keyrir Á ferð og
flugi mikið fyrir stór og
þekkt flutningafyrirtæki
en Stefán hefur áhuga
á samstarfi við fleiri
aðila:
„Við erum bara
verktaki og keyrum
fyrir hvern sem er,“ segir
Stefán en þeir sem hafa
áhuga á að nýta sér flutn-
ingaþjónustu hans geta hringt
í síma 789-1060, sent tölvupóst
á netfangið stebbij@gmail.com eða
haft samband í gegnum Facebook-
síðuna https://www.facebook.com/
aferdogflugi/
Á FERð og Flugi:
Stækkandi flutningafyrirtæki
á landsbyggðinni
FlutNiNguR.iS:
Traustur félagi í flutningum
Flutningur.is er gróin sendibíla-stöð sem hefur veitt trausta þjónustu í þrjá áratugi og hefur
yfir að
ráða afar fjölbreyttum bílaflota
fyrir hin ýmsu verkefni. Auk þess er
stöðin með öll nauðsynleg
léttitæki sem þörf er á við flutn-
inga, hvort sem er á búslóðum eða
við vöruflutninga.
Stöðin býður upp á allar stærðir
sendibíla sem henta bæði í lítil og stór
verkefni. Bílstjórarnir eru
reynslumiklir og færir og leggja sig
fram um að veita góða þjónustu. Þeir
sem standa í
búslóðaflutningum geta treyst því
að búslóðin sé flutt hratt en af var-
kárni á milli staða.
Vöruflutningar
Flutningur.is sér um að losa gáma
hjá skipafélögum og koma vörunni til
fyrirtækja og einstaklinga.
Hægt er að flytja tvo gáma í einu
og losa þá við húsdyr fyrirtækja og
einstaklinga fyrir mjög hagstætt
verð. Flutningur.is hefur yfir að
ráða góðum gámalyftum og ýmsum
öðrum hjálparbúnaði
við flutninga og fylgist vel með
nýjungum og þróun tækjabúnaðar á
þessu sviði.
Ef þú þarft að flytja eitthvað, stórt
eða lítið, búslóð, vörur eða eitthvað
annað, þá er Flutningur.is
líklega mjög heppilegur kostur fyrir
þig. Nánari upplýsingar eru á vefsíð-
unni flutningur.is og í síma 575-3000.
Nokkur góð ráð varðandi flutninga
frá Flutningi.is:
1. Sankaðu að þér sterkum kössum í
nokkrum stærðum. Einnig er gott að
hafa eftirfarandi við höndina þegar
pakkað er: kúluplast, dagblöð, skæri,
sterkt límband og góðan merkipenna.
2. Pakkaðu þungum hlutum, eins og
bókum, í minni kassa svo þeir verði
ekki of þungir. Í stærri kössum skulu
þyngri hlutir vera neðst og þeir léttari
efst. Pakkið hverjum hlut í dagblöð
eða kúluplast ef þeir eru viðkvæmir.
Ef of rúmt er um hluti í kassanum,
fylltu þá upp í hann með dagblöðum
eða öðru slíku.
3. Pakkaðu öllu því sem á að fara
í sama herbergi í sama kassa og
merktu hann herberginu. taktu fyrir
eitt herbergi í einu, pakkaðu fyrst
litlum munum til að koma þeim frá.
Merktu utan á kassann hvað er í
honum.
4. Pakkaðu og merktu sérstaklega
þá kassa sem opna á fyrst af öllum
þegar komið er á áfangastað. Í kass-
anum eiga að vera ómissandi hlutir
sem notaðir voru fram á síðasta dag,
líkt og uppþvottalögur, klósettpappír,
plastdiskar og hnífapör og ýmislegt
það sem fjölskyldan þarf að nota
áður en hægt er að taka upp úr öllum
kössunum.
5. Þegar stærri hlutir eru teknir í
sundur, líkt og borð, hillur og skápar,
er gott að geyma verkfæri í einum vel
merktum poka eða kassa til að auð-
velda samsetningu á nýja staðnum.
Skrúfum er gott að tylla og jafnvel
líma aftur í þau göt sem þær eiga að
vera í.
6. Settu allan rafeindabúnað eins og
fjarstýringar, millistykki og straum-
breyta á einn stað.
7. Staflaðu kössunum þegar búið er
að loka þeim. gott er að nýta eitt her-
bergi undir kassana, þannig er hægt
að klára að þrífa hinn hluta hússins.