Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2018, Page 43

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2018, Page 43
06. april 2018 fréttir 45 Íslenskir safnarar og skondin söfn þeirra Flestir kannast því það úr eigin lífi að hafa safnað einhverju og oft þá sérstaklega í æsku. Í gegnum tíðina hefur verið vinsælt meðal krakka og unglinga að sanka að sér hinum ýmsu spjöldum, plastköll- um eða servíettum. Í flestum tilvikum minnkar áhuginn með aldrinum en hjá öðrum hefst áhuginn ekki fyrr en á fullorðinsaldur er komið. Við tókum nokkra skemmtilega safnara tali og spurðum hvað hefði valdið því að þetta vatt svona upp á sig og af hverju þeir safna þessu frekar en öðru. Á yfir 600 strumpa Arnhildur á heilmikið safn af Strumpatengdum hlutum Mest á hún af steyptu plastfígúrunum sem við Íslendingar þekkjum svo vel af páskaeggjunum Átta ára gömul fékk Arnildur Helgadóttir frá Akureyri Strumpa- hús og Strumpa frá frænda sín- um og kolféll fyrir þessum litlu bláu fígúrum. Síðan varð ekki aft- ur snúið og í dag á hún um 600 Strumpafígúrur í hinum ýmsu stærðum. Strumparnir eru upp- haflega belgískir, líkt og svo mikið af ástsælustu teiknimyndasögum heims. Árið 1974 var svo farið að steypa Strumpafígúrur eins og við þekkjum af páskaeggjunum okk- ar hérlendis og fólk um allan heim safnar þeim. Á hverju ári koma á markað nýjar týpur af Strumpum svo stöðugt er að bætast í safn Arn- hildar.  Fann fyrsta íslenska Andrésblaðið fyrir tilviljun Soffía Sólveig Halldórsdóttir í Hafnarfirði safnar Andrésblöðum og á flest blöðin frá 1998 en hvert einasta allavega frá árinu 2000. Hún ferðaðist mikið sem krakki og fékk þá eitt og eitt blað en byrjaði svo í áskrift árið 2000. En ólíkt flestum ákvað hún að halda áskriftinni áfram eftir á fullorðins- aldur var komið og ákvað að bæta Andrés-syrpunum líka í safnið. Í dag leggur hún mikinn metnað í að viðhalda safninu og geymir blöðin í plasti með spjöldum við bakið. Spjöldin eru sýruþolin svo blöðin gulni ekki. Hún fann meira að segja fyrsta blaðið sem gefið var út hérlendis fyrir algjöra tilviljun í Geisladiskabúð Valda og heldur einna mest upp á það eintak. Soff- íu finnst sögurnar þó hafa dalað í seinni tíð en uppáhaldshöfundur- inn hennar er Don Rosa.  Soffía Sólveig Halldórsdóttir safnar Andrésblöðum Fyrsta eintakið af Andrésblaði á íslensku Andrésblöð Byrjuðu að safna eftir að hafa fengið fimm salt- og piparstauka sett í jólagjöf Það mætti í raun segja að skemmtileg tilviljun hafi valdið því að Vordís Baldursdóttir og eigin- maður hennar, Guðmundur Helgi Helgason, hófu að safna salt- og piparstaukum. Jólin 1997 fengu hjónin heil fimm sett í jólagjöf en fyrir áttu þau nokkur. Þannig hófst safnið hægt og rólega og í dag eiga þau um 400 sett sem þau hafa ver- ið með til sýnis áður á gistiheim- ili sem þau ráku. Vinir og ættingj- ar eru duglegir að hjálpa þeim að bæta í safnið en þónokkrum sinnum hefur það gerst að þau fá staukasett sem þau eiga fyrir. Öll settin eru stök þótt nokkur séu í safninu í mismunandi litum. Vordís og Guðmundur Helgi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.