Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2018, Blaðsíða 49

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2018, Blaðsíða 49
sakamál 516. apríl 2018 1 kúla í höfuðið batt enda á ævi kínverska raðmorðingj-ans Huang Yong, 26. desember 2003. Hann var sakaður um að nauðga og myrða 17 unglingsdrengjum á árun- um 2001–2003. Fórnarlömb sín fann hann á net-kaffihúsum, leikjasölum og víðar. Grunur lék á að Huang hefði myrt mun fleiri. 800 punda viðvik Lögreglan komst að því að Mike nokkur Harmsworth hafði sést með Willmot síðasta kvöld ævi hans. Ekki var tvínónað við hlutina og Harmsworth var ákærður fyrir morð. Harmsworth hugnaðist greini­ lega ekki að sitja einn uppi með ákæru og viðurkenndi að Phoebe Brady hefði greitt honum 800 sterlingspund fyrir að drösla Will­ mot heim í hjónabandssæluna. Aftaka vegna ótryggðar Harmsworth hafði gert það sam­ viskulega, svo samviskulega að Willmot var meðvitundar­ laus þegar hann endaði í ranni nornarinnar. Willmot skyldi ekki flýja á ný og var gert það ljóst með barsmíðum þar til hann var liðið lík. Þegar Phoebe var handtekin, ásamt dóttur sinni, Verren, sagði hún að Eric Willmot hefði verið tekinn af lífi vegna ótryggðar hans gagnvart söfnuðinum.  Phoebe, Verren og Harmsworth fengu lífstíðardóm í júlí 1980. n Satan Málverk Hans Memlings frá 1485. Fimmhyrnd stjarna Sigil of Baphomet; var í hugum fólks sterklega tengd satanisma. Svæfði konur og Svívirti stað við ströndina. Allar báru kon­ urnar að þær hefðu síðan misst meðvitund og vaknað mislöngu síðar í íbúð karlmanns, aumar og veikburða. Samkvæmt frásögn kvennanna hafði karlmaðurinn notað mismunandi nöfn; Kazu, Yuji eða Koji. Þær höfðu allar tilkynnt þetta til lögreglunnar en greinilega talað fyrir daufum eyrum því hún hafðist ekki að. Í september, 2000, dró til tíð­ inda þegar fleiri konur báru Obara þeim sökum að hann hefði nauðg­ að þeim og hann var handtekinn í október. Óhugnanlegt blæti Lögreglan komst heldur betur í feitt þegar hún kannaði híbýli hans nánar. Upp úr krafsinu komu 4.000–5.000 klámmyndbönd og deginum ljósara að Obara var ekki allur þar sem hann var séður. Þegar þar var komið sögu taldi lögreglan ekki ólíklegt að Obara hefði nauðgað allt að 400 kon­ um. Hann neytti eiturlyfja sér til afþreyingar og var að sögn með hvítar konur á heilanum, auk þess sem uppáhaldsblæti hans fólst í því að misnota meðvitundar­ lausar konur. Á meðal myndbandanna sem lögreglan fann voru yfir 200 þar sem sjá mátti Obara á vettvangi þar sem hann svívirti konur. Stundum var hann með grímu og stundum ekki, en aldrei lék vafi á um hvern ræddi. Einnig hélt hann eins konar dagbók þar sem sjá mátti tilvísan­ ir í „sigra“ hans. Sum fórnarlamba hans voru „aðeins nýt til kyn­ lífs“ og því þurfti að leita hefnda – „hefnda gagnvart veröldinni“. Síðan svæfði hann konurnar með klóróformi. Líkamsleifar Lucie finnast Á meðal yfir 100 vestrænna kvenna sem sjá mátti á mynd­ böndunum var áströlsk, 21 árs kona, Carita Ridgeway. Hún hafði dáið á spítala árið 1992 eftir að hafa komið þangað í fylgd karl­ manns. Talið var víst að þar hefði Obara verið á ferðinni, enda fann lögreglan kvittun fyrir innskrán­ ingu Ridgeway á spítalann í einni íbúð Obaras. Einnig fundust kvittanir fyrir keðjusög og skóflu. Á heimili Obara fund­ ust hár úr Lucie Blackman, en ekki svo mikið sem einn blóð­ dropi. Sundurlimaðar líkamsleif­ ar hennar fundust loks 10. janú­ ar, 2001, niðurgrafnar í laug í helli á ströndinni við Miura, í aðeins nokkurra metra fjarlægð frá heim­ ili Obaras. Líkið hafði verið sagað í átta hluta og skellt í steypu. Ekki reyndist unnt að úrskurða dánar­ orsök. Manndráp og nauðganir Joji Obara var að lokum ákærður fyrir að hafa byrlað Lucie Black­ man ólyfjan, nauðgað henni og síðan myrt. Að auki var hann ákærður fyrir að hafa nauðga sex öðrum konum og eitt manndráp í tilviki Caritu Ridgeway. Hvað dauða Caritu áhrærði byggði saksóknari mál sitt á niður­ stöðum krufningar sem sýndu leifar af klóróformi í líkama henn­ ar auk þess sem pappírsslóð sýndi að Obara hafði komið með hana á spítalann þar sem hún síðar dó. Í nauðgunarákærunum nægði að vísa í yfirþyrmandi sönnunar­ gögn sem var að finna í klám­ myndasafni Obaras. Áfrýjun hafnað Ekki var með áþreifanlegum hætti hægt að tengja Obara við morðið á Lucie Blackman, sem er kald­ hæðnislegt í ljósi þess að hvarf hennar varð þess valdandi að Jojo Obara var loks gripinn. Enginn hefur verið sakfelldur fyrir morðið á henni. Obara var dæmdur til lífstíðar­ fangelsis 24. apríl 2007. Í desem­ ber árið 2010 sótti Obara um lausn á skilorði en Hæstiréttur Japan synjaði áfrýjuninni og staðfesti enn frekar lífstíðardóm yfir hon­ um. n Carita Ridgeway Kom í fylgd Obaras á sjúkra hús, en varð ekki lífs auðið. Lucie Blackman Líkamsleifar hennar fundust um síðir, niðursteyptar. „Stundum var hann með grímu og stundum ekki, en aldrei lék vafi á um hvern ræddi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.