Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2018, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2018, Blaðsíða 50
52 lífsstíll 06. april 2018 R ósa Ásgeirsdóttir leikkona hefur verið hluti af Leik- hópnum Lottu í tíu ár. Á þeim tíma hefur hún skellt sér í hin ýmsu gervi og veitt börn- um  víðs vegar  um landið ómælda gleði. Rósa segir að börn séu frábærir áhorfendur sem geri leikurum al- veg ljóst ef þeim mislíkar eitthvað í sýningunni. „Börnin eru svo fyndin og þau spyrja okkur oft spurninga fyrir eða eftir sýningu sem ég á stundum í stökustu vandræðum með að svara og þarf því að vera fljót að hugsa,“ segir Rósa í viðtali við DV. Rósa er menntuð leikkona og hefur starfað við leiklist undanfar- in ár ásamt því að taka að sér að hanna og sauma ýmsa búninga. Eftir hlutverk Sandy í Grease var ekki aftur snúið „Ég lærði hönnun og textíl og tek stundum að mér slík verkefni. Ég ætlaði mér lengra í þeim bransa en þegar ég var í framhaldsskóla kviknaði leiklistaráhuginn og ég sótti um í leikfélaginu. Þar var mér kastað í hlutverk Sandy í Grease og þá var ekki aftur snúið. Ári seinna var ég komin í leikfélagsstjórn- ina og færði mig þaðan yfir í Frey- vangsleikhúsið, staðráðin í því að á sviði vildi ég vera.“ Rósa er ættuð frá Akureyri en fljótlega eftir stúdentspróf flutti hún til Reykjavíkur og árið 2008 lenti hún óvænt inn í Leikhópnum Lottu þar sem hún er enn þann dag í dag. „Við erum að klára Galdra- karlinn í  Oz  núna um helgina þar sem ég fer með hlutverk Dórótheu og  við tekur  ævintýrið um Gosa sem við setjum upp í sumar. Ég er einnig að stunda nám í skap- andi tónlistarmiðlun við Listahá- skóla Íslands og var að klára að semja nokkur lög fyrir Gosa núna í páskafríinu.“ Gaman að gleðja börn Rósa hefur alltaf verið mikið fyr- ir ævintýri og þykir gaman að fá að túlka ævintýrapersónur sem hana dreymdi um að vera þegar hún var barn. „Það er bæði gaman að fá að túlka ævintýrapersónur og fá að skapa alveg nýjar frá grunni eins og til dæmis Litli litur í Litalandi sem mun lifa á stafrænu formi allt mitt líf. Svo finnst mér svo gaman að gleðja börnin, sjá þau hlæja, sjá tár og fá þau hlaupandi til mín í fang- ið eftir sýningu til þess að fá knús frá ævintýrapersónunni. Það gef- ur mér svo mikið. Það er líka ann- að sem mér finnst æðislegt og það er að við förum út á landsbyggðina með sýningarnar og gefum þannig öllum sem vilja tækifæri til að sjá sýninguna. Það er aldrei of mikið í boði fyrir börnin,“ segir Rósa um sérstakan áhuga sinn á barnaleik- ritum. Hún viðurkennir þó að hún hafi einnig mikinn áhuga á því að líta í aðrar áttir í komandi framtíð. „Fullorðnir eru líka skemmti- legir áhorfendur og það gleður mig alltaf jafn mikið að heyra í fullorðna fólkinu hlæja og heyra að það sé að skemmta sér.“ Rósa segir samstarfið í leik- hópnum ganga mjög vel. „Við erum öll góðir vinir, höfum rifist og hlegið saman. Allt eins og eðlilegt er, þegar vinahópur vinnur og ferðast saman nánast allan sól- arhringinn í svona langan tíma.“ Alvarlegt bílslys setti strik í reikninginn Leikhópurinn lenti í bílslysi með alla leikmyndina á síðasta ári og var það mikið áfall fyrir hópinn. „Sem betur fer slapp leikhópur- inn ótrúlega vel og slysið hafði ekki áhrif á sýningarnar. Leikmyndin var að mestu sýningarhæf og þess- ar hetjur héldu sínu striki daginn eftir með tvær sýningar. En vissu- lega var þetta mikið álag á hópinn. Nýmerkti bíllinn var ónýtur, kerr- an óökuhæf og Austurlandstúr- inn að byrja daginn eftir. Þetta var mikið sjokk, spítalaheimsóknir og það þurfti að útvega nýjan bíl, nýja kerru, gjall í bílinn og ferja svo allt til Reykjavíkur.“ Aðspurð hvort það sé ekki erfitt að flakka um allt land með leikhús- ið með sér svarar Rósa neitandi. „Það er í raun auðveldara en fólk heldur. Leikmyndin okkar er alltaf hönnuð með kerruna í huga og svo bætast leikmunir við. Flókni og skemmtilegi parturinn er eiginlega svona fjórum dögum fyrir frum- sýningu þegar við förum að púsla allri heildinni saman inn í kerruna. Leikmyndin á sinn stað og svo þarf að koma leikmununum, búning- um og öðru tilfallandi fyrir. Í vetur byrjuðum við með vetrarverkefni sem felst í því að við setjum eldri sýningar okkar upp inni í leikhús- um víðs vegar um landið. Þá bætt- ust við ljós, standar og ýmislegt sem við höfum ekki verið að vinna með áður. Húsin eru misstór og við þurfum að aðlaga hverja sýningu að rýminu sem við fáum, setja upp ljósin og tilheyrandi, en það er bara skemmtilegt verkefni í hvert sinn.“ Börn stoppa hana á förnum vegi Rósa segir að algengt sé að börn þekki hana þegar þau mæti henni á förnum vegi og að henni þyki virki- lega vænt um það. „Það er alltaf rosalega krútt- legt. Eitt minnisvert sem ég lenti í um daginn var þegar ég var að ganga inn í  Ikea  og bíll er stöðv- aður fyrir framan mig á bílaplan- inu. Mamman, sem ég kannaðist ekki við, skrúfaði niður rúðurnar þar sem börnin hennar sátu aftur í og voru að hlusta á Galdrakarl- inn í  Oz. Mér þótti ótrúlega vænt um þetta augnablik, að fá að spjalla við börnin í aftursætinu á með- an röddin mín hljómaði í útvarp- inu og það hefur ekki verið síður eftirminnilegt fyrir þau. Svo lenti ég líka í því fyrir átta árum þegar ég var lasin úti í búð með maskara út á kinn í snakkdeildinni, þá kom lítið barn hlaupandi til mín og kall- aði: „Mamma, sjáðu ég fann Ösku- busku.“ Svo vildi það bara halda í hendina á mér.“ Rósa segist þykja virkilega vænt um Dórótheu í  Oz  en að henn- ar uppáhaldskarakter sé þó Letta lamb í Litlu gulu hænunni. „Letta er til alls vís, hún getur bullað endalaust og sagt brandara sem engin glóra er í.“ Vann Íslandsmeistarakeppni í limbó fótbrotin Rósa býr yfir ýmsum hæfileikum og auk þess að vera leikkona, bún- ingahönnuður og lagasmiður þá er hún einnig Íslandsmeistari í limbó. „Ég vann lim- bókeppni  sem haldin var á  Gra- pewine  music  awards. Keppnin fór fram á upphækkuðu sviði og þegar ég var að koma úr seinni um- ferðinni  reis ég upp frá  limbó- stönginni og áttaði mig ekki á því að sviðið endaði fyrr en mig minnti. Ég steig niður af sviðinu í einu stóru skrefi og endaði niðri á gólfinu. Mér brá mikið og varð hálf- vandræðaleg, fékk hláturskast og dofnaði öll upp. Ég gerði ráð fyrir því að það hefði verið sjokkið við að hafa dottið fyrir framan fullan sal af fólki en svo fann ég að það var sárt að stíga í fótinn.“ Rósa hélt fyrst að hún hefði mis- stigið sig illa, hélt keppninni áfram og vann hana. „Þá kom  sigurvíman  og ég rétt komst baksviðs og fór í skóna mína. Þegar ég kom aftur fram í sal fór fólk að ausa yfir mig hamingju- óskum og í gleðivímunni taldi ég að ég hefði í mesta lagi tognað. Ég er með mjög háan sársaukaþrösk- uld og ætlaði sko ekki að vera með neinn aumingjaskap á þessu glæsi- lega kvöldi. Það var ekki fyrr en morguninn eftir að ég gaf mig og fór upp á spítala og endaði í gifsi upp að hné og hækjum.“ Dóróthea gat fótbrotnað eins og hver annar Á þessum tíma var Rósa að sýna ein á sviði atriði með Dórótheu og þurfti hún að spinna sýninguna í kringum fótbrotið. „Það fór auðvitað ekkert  fram hjá krökkunum þegar ég gekk upp á svið á hækjum með gifs svo ég byrjaði bara á því að tala aðeins um það og svara spurningum. Þeim fannst það bara skemmtilegt og í stað þess að gera allt sem ég ætlaði að gera á gólfinu varð ég að sitja á stól sem var mjög krefjandi. Börnin sýndu þessu fullan skilning og auð- vitað gat Dóróthea fótbrotnað eins og hver annar.“ Fram undan  hjá Rósu er ævin- týri Gosa með Leikhópnum Lottu í sumar ásamt því að hanna bún- inga. „Eins og sannur bogmaður finnst mér erfitt að gera langtíma- plön en ég hef þó tekið ákvörðun um að taka mér  leikpásu  fram til haustsins 2019 að undanskil- inni jólatörninni og svo verður líf- ið vonandi bara jafn fjölbreytt og  skemmtilegt og það er í dag. Maður má ekki gleyma að njóta.“ Aníta Estíva Harðardóttir anita@pressan.is Rósa Ásgeirsdóttir/ Mynd: Sigtryggur Ari Rósa Ásgeirsdóttir elskar að skapa ævintýri fyrir börn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.