Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2018, Side 54
56 fólk 6. apríl 2018
MANITOU MLT 625-75 H
Nett
fjölnotatæki
Pétur O. Nikulásson ehf. • Melabraut 23, Hafnarfjörður • Símar: 552 2650 / 552 0110 • pon@pon.is
6.800.000 kr. + VSK
Uppfinningar sem urðu
til fyrir hreina tilviljun
U
ppfinningamenn og frum
kvöðlar vinna oft og tíðum
óeigingjarnt starf í þeim
tilgangi að gera líf okk
ar allra aðeins bærilegra. Sumir
eyða mörgum árum ævi sinnar í
að þróa leiðir til að láta hugmyndir
sínar verða að veruleika á meðan
aðrar uppfinningar verða til fyrir
hreina tilviljun. Vissirðu til dæmis
að franski rennilásinn, stinningar
lyfið Viagra og Corn Flakes
morgun kornið urðu til fyrir tilvilj
un? Business Insider tók saman
lista yfir nokkrar slíkar uppfinn
ingar.
Örbylgjuofninn
Árið 1946 var maður að nafni Percy Spencer, bandarískur verkfræðingur, að vinna að
ratsjárverkefni fyrir fyrirtæki að nafni Raytheon Corporation. Til að gera langa sögu
stutta var hann með súkkulaði í vasanum á tilraunastofu fyrirtækisins og byrjaði
súkkulaðið skyndilega að bráðna. Athugun hans leiddi í ljós að súkkulaðið bráðnaði
vegna hita frá útvarpslampa á tilraunastofunni. Spencer, sem var eðlis- og verkfræðing-
ur að mennt, áttaði sig á því að hitinn kæmi frá örbylgjum. Segja má að Spencer hafi
því verið upphafsmaður örbylgjuofnsins sem finna má á flestum heimilum nú til dags.
Tæknin þróaðist mikið upp úr miðri 20. öldinni sem er kannski eins gott. Þannig var fyrsti
örbylgjuofninn rúm 300 kíló.
Röntgentækið
Árið 1895 var eðlisfræðingurinn Wilhelm Roentgen á rannsóknarstofu sinni þar sem
hann vann að rannsóknum á rafmagni og ýmsu því tengdu. Kvöld eitt vann hann við
rannsóknir á rafeindalampa og eins og fram kemur á Vísindavefnum prófaði hann að
hylja lampann með ljósþéttum pappír. Þegar hann hleypti straumi á lampann kom
ljósbjarmi frá efni á öðrum stað í herberginu. Þegar hann setti svo aðra hönd sína fyrir
geislann sá hann beinin í höndinni. Geislann nefndi hann X sem er oftar en ekki notað
yfir óþekktar breytur í stærðfræði. Þaðan kemur enska nafnið X-Ray. Geislinn var síðan
nefndur í höfuðið á Roentgen.
Franski rennilásinn
Árið 1941 var svissneski verkfræðingurinn Ge-
orge de Mestral á göngu í Ölpunum. Þegar hann kom heim
úr göngunni sá hann að nálar úr jurtinni króklappa sátu
fastar í fötum hans. Eins og sönnum verkfræðingi sæmir
vakti þetta athygli Mestral og þegar hann fór að skoða
þetta nánar sá hann að á nálunum voru litlar krækjur sem
gerðu að verkum að þær festust. Mestral þróaði sína eigin
útfærslu á þessu og í kjölfarið varð til það sem í daglegu
tali kallast riflás eða franskur rennilás.
Play-doh leirinn
Flestir foreldrar þekkja eflaust hinn litríka Play-doh leir sem flestum
börnum finnst gaman að leika sér með. Staðreyndin er sú að Play-
doh leirinn varð til fyrir hreina tilviljun, hann átti að minnsta kosti
aldrei að verða leikfang. Á fjórða áratug liðinnar aldar ráku bræðurn-
ir Noah og Cleo McVicker sápufyrirtæki og ein af aukaafurðum fram-
leiðslunnar var leir sem bræðurnir töldu að hægt væri að nota sem
eins konar hreinsiefni. Leirinn gat drukkið í sig sót sem oftar en ekki
settist á veggi, sérstaklega hjá þeim sem hituðu heimili sín með því
að brenna kol. Síðar kom á markað veggfóður sem hægt var að þrífa
með vatni og þá minnkaði eftirspurnin eftir leirnum. Það var í raun þá
sem hjólin fóru að snúast. Bræðurnir, með aðstoð leikskólakennara
að nafni Kay Zufall, bættu litarefnum við leirinn sem varð vinsælt
leikfang í leikskólum. Kay fann svo nafn á leirinn, Play-doh, sem er enn
meðal þeirra leikfanga sem börn sækja einna mest í.
Viagra
Það þekkja eflaust allir stinningarlyfið Viagra sem kom á markað skömmu fyrir aldamót.
Áður en lyfið var markaðssett sem lyf fyrir karla með stinningarvandamál var tilgangur
þess allt annar. Virka efnið í Viagra heitir Sildenafil og lyfjarisinn Pfizer, sem framleiðir Vi-
agra, kynnti það fyrst til sögunnar sem hjartalyf. Í klínískum rannsóknum kom í ljós að
gagnsemi þess við hjartavandamálum var lítil en þeir sem tóku þátt í rannsóknum, karl-
ar þá eingöngu, tóku eftir undarlegri aukaverkun. Þeir gátu viðhaldið stinningu lengur og
betur. Pfizer ákvað í kjölfarið að prófa lyfið á um fjögur þúsund körlum sem allir áttu við
stinningarvanda að stríða og viti menn! Þeir lýstu sömu áhrifum og því fór sem fór; lyfið
var markaðssett sem stinningarlyf og hefur komið milljónum karla að góðum notum.
Corn Flakes
Segja má að morgunkornið Corn Flakes (kornflex eins og við Íslendingar köllum það)
hafi orðið til vegna mistaka. Árið 1894 gerði maður að nafni John Kellog tilraunir með
hveiti. Hann starfaði sem læknir á Battle Creek Sanitarium ásamt bróður sínum, William,
og var markmið þeirra að koma skikk á mataræði sjúklinga. Dag einn settu þeir hveiti
ásamt ýmsu öðru í pott og hituðu það. Þeir hituðu það aðeins of mikið og komust að því
þegar þeir reyndu að fletja deigið út að það brotnaði í litlar flögur. Þeir ákváðu svo að hita
þessar flögur og komust þá að því að þær urðu stökkar og nokkuð bragðgóðar. Það sama
gerðist þegar þeir gerðu tilraunir með að elda korn. Uppskriftin var svo þróuð og varð að
því sem við köllum Corn Flakes í dag.
Spencer er maðurinn á
bak við örbylgjuofninn.