Morgunblaðið - 21.09.2017, Page 1

Morgunblaðið - 21.09.2017, Page 1
F I M M T U D A G U R 2 1. S E P T E M B E R 2 0 1 7 Stofnað 1913  222. tölublað  105. árgangur  ÁST OG ÖRLÖG RÓMANTÍSKS RÆÐISMANNS NORÐUR OG NIÐUR MEÐ SIGUR RÓS FÓTBOLTA- BLAÐRAN SPRINGUR FJÖLBREYTT LISTAHÁTÍÐ 64 VIÐSKIPTAMOGGINNANDRÉ COURMONT 30 MJÚKA DEILDIN ÍSLENSK HÖNNUN SJÚKRAÞJÁLFARI AÐSTOÐAR SÆNGUR- FATNAÐUR SÆNGUROG KODDAR HEILSURÚM ALLARSTÆRÐIR FUSSENEGGER Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val á rúmdýnum. Í DAG 16-18 Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504 Baldur Guðmundsson Stefán E. Stefánsson Þýski bankinn Deutsche Bank féllst hinn 7. október í fyrra á að greiða Kaupþingi 400 milljónir evra í sátt sem gerði út um áralangar deilur milli aðilanna og laut að uppgjöri á kröfu sem Kaupþing taldi sig eiga á hendur bankanum. Þetta staðfesta gögn sem Morgunblaðið hefur nú undir höndum. Með þeim er staðfest að sam- komulagið, sem hafði verulega já- kvæð áhrif á fjárhagsstöðu Kaup- þings, var gert löngu áður en Seðlabanki Íslands seldi 6% hlut sinn í Kaupþingi. Seðlabankinn hafði hins vegar ekki vitneskju um sáttina en þegar ljóst var að hún væri orðin að veruleika hækkaði virði bréfa í Kaupþingi um tugi prósenta. Er talið að Seðlabankinn hafi orðið af 4 til 5 milljörðum vegna þessa. Heimildir Morgunblaðsins sýna einnig að Deutsche Bank hafi lagt mikla áherslu á að trúnaður yrði haldinn um samkomulagið við Kaupþing þar sem bankinn væri skráður á markað og „nýlega upp- lýst vandamál hans væru talin (m.a. af ESB og þýska ríkinu) leiða af sér kerfislæga áhættu gagnvart hag- kerfi Þýskalands, Evrópusam- bandsins og í raun heimsins alls“, líkt og það er orðað. Þá sé einnig viðurkennt að upphæðin sem um ræðir í samkomulaginu við Kaup- þing sé af slíkri stærðargráðu að mikilvægt sé að bankinn hafi fullt forræði á því á hvaða tíma samkomu- lagið yrði gert opinbert. Í sömu gögnum kemur fram að Deutsche Bank hafi m.a. gengið að sáttinni til að forðast neikvæða umræðu um bankann og stöðu hans. Seðlabankinn í myrkri  Gögn staðfesta að 7. október 2016 gerði Kaupþing sátt við Deutsche Bank  Virði Kaupþings jókst  SÍ seldi 6% hlut í Kaupþingi án vitneskju um sáttina MViðskiptaMogginn Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, gaf fjölmiðlamönnum langt nef þegar hann átti leið fram hjá hópi þeirra í gær. Spurður út í uppátækið sagði Logi að hann ætti erfitt með að skilja atganginn á stundum. „Ég hef fyrir nokkru gert mér grein fyrir að ég eldist hratt en ég skil þó ekki þörfina fyrir að mynda mig í bak og fyrir á 20 mínútna fresti. Ég breytist nú ekki það hratt.“ Atgangur fjölmiðla reynir stundum á Morgunblaðið/Eggert Logi Einarsson sló á létta strengi og gaf fjölmiðlamönnum langt nef á Alþingi  Náðst hefur samkomulag ASÍ, ríkisins og Reykjavíkur- borgar sem tryggir að þús- undir fé- lagsmanna ASÍ sem starfa hjá ríki og borg verði jafnsettir öðrum opinberum starfsmönnum hvað lífeyrisrétt- indin varðar. Önnur sveitarfélög tóku ekki þátt í samkomulaginu. Óvissa vegna ágreinings um til- greinda séreign hjá almennu lífeyr- issjóðunum hefur hins vegar stór- aukist eftir að ljóst varð að ekki kæmi fram frumvarp í haust vegna stjórnarslitanna. »6 & 10 Víðtækt samkomu- lag um lífeyrismál  „Sumir halda að þetta sé eitt- hvert ægilegt leyndarmál. En þetta er það ekki,“ segir Hrefna Huld Jó- hannesdóttir, fyrrverandi landsliðskona og atvinnumaður í knattspyrnu. Hún greindist með geðklofa árið 2008 þegar hún var 28 ára. Hún hefur þurft að læra að lifa með sjúkdóminum og með réttri lyfja- gjöf og góðri hjálp geðheilbrigð- iskerfisins er hún núna einkenna- laus að mestu. Í viðtali við Morgunblaðið segir Hrefna að hún hafi margoft farið í afneitun. „En það er best að horfast í augu við þetta.“ »24-25 „Best að horfast í augu við þetta“ Hrefna Huld Jóhannesdóttir  Allt að 95% þeirra 600 sem hófu meðferð gegn lifrarbólgu C á sl. ára hafi læknast. Opinbert átak gegn þessum sjúkdómi hófst í fyrra og talið er að nú þegar hafi náðst til allt að 80% þeirra sem smitast hafa. Átak í skimun fyrir sjúkdómnum stendur nú yfir og er fólk í áhættu- flokki hvatt til þess að fara í próf, á heilsugæslustöðvum, Landspítala eða annars staðar eftir atvikum. Valgerður Rúnarsdóttir, yfirlæknir á Vogi, er ánægð með átakið og ár- angurinn en þeir sem hafa sprautað sig með fíkniefnum eru í mestri áhættu fyrir lifrarbólgu C. »40 Hvatt til skimunar og árangur góður

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.