Morgunblaðið - 21.09.2017, Síða 25
FRÉTTIR 25Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2017
upplifað að vera greind með geð-
sjúkdóm segir hún það hafa verið
reiðarslag. „Þetta sló mig. Ég vildi
ekki viðurkenna þetta til að byrja
með. Stundum skammaðist ég mín.
Núna er viðhorf mitt annað, ég veit
að þetta er eins og hver annar
sjúkdómur og ég þarf að finna leið-
ir til að lifa með því. Mér finnst
mér hafa tekist ágætlega til við
það.“
Hrefna segist stundum finna fyr-
ir fordómum. „Sumir virðast ekki
líta á þetta sem sjúkdóm, heldur
eitthvað sem ég geti hrist af mér
eða losnað við með því að fara út að
ganga. Aðrir halda að ég sé á ör-
orkubótum vegna þess að ég nenni
ekki að vinna. Eins og það sé eitt-
hvað sérstaklega eftirsóknarvert
að vera ekki á vinnumarkaði. Það
geta allir orðið öryrkjar, því miður
er það bara þannig. Svo eru margir
sem þora ekki að spyrja mig út í
sjúkdóminn, vita ekki hvernig þeir
eiga að koma orðum að þessu.“
Þurfti að hætta í boltanum
Eftir greininguna reyndi Hrefna
hvað hún gat að halda áfram í fót-
boltanum, bæði að spila og þjálfa.
„En ég varð að hætta 2009, ég var
orðin það veik. Síðan reyndi ég af
og til og spilaði síðast 2012. Ég
datt ekki bara út úr íþróttinni
sjálfri, heldur líka út úr fé-
lagsskapnum og öllu sem var í
kring. Það var erfitt.“
Hrefna á tvær dætur, sú yngri er
fimm ára, sú eldri er 11 ára og býr
hjá föður sínum. Að auki á hún tvö
stjúpbörn og eitt stjúpömmubarn.
Þegar Hrefna veiktist fyrst tóku
foreldrar hennar eldri dóttur henn-
ar að sér um tíma og þegar Hrefna
og núverandi eiginmaður hennar
fluttu til Danmerkur varð úr að
hún myndi búa hjá föður sínum.
Hrefna segir dóttur sína vel með-
vitaða um veikindi móður sinnar,
en hún hafi ekki rætt sjúkdóminn
við hana í smáatriðum. „Ég er ekki
viss um að hún myndi átta sig á í
hverju þetta felst. En sá tími mun
koma að ég ræði þetta við hana.“
Hefur oft farið í afneitun
Ertu reið eða ósátt? Spyrðu ein-
hvern tímann: Hvers vegna ég?
„Ég gerði meira af því áður. En
það sem mér finnst mest læknandi
og hefur hjálpað mér einna mest
er að hlæja. Veistu, það þýðir ekki
að taka þetta of alvarlega, ekki
frekar en nokkuð annað. Ef ég
gerði það, þá liði mér alltaf illa.“
Hefurðu einhvern tímann farið í
afneitun? „Já, oft. Oft og mörgum
sinnum. En það er best að horfast í
augu við þetta. Það sem ég hef
alltaf gert, alla tíð frá því ég veikt-
ist, er að ég hef reynt að fá alla þá
aðstoð sem er í boði. Ég hef ein-
blínt á að gera allt sem ég get til
að fá lækningu og líða betur. Að
veikjast hefur haft gríðarlega mikil
áhrif á líf mitt. Það sem mig lang-
aði til að gera varð ekki að veru-
leika. Það er fyrst núna, níu árum
eftir að ég veiktist fyrst, sem ég sé
fram á að fara að fást við það sem
mig langaði til að gera þá. Ég
myndi t.d. treysta mér til að fara
að þjálfa og ég væri tilbúin að
miðla af reynslu minni varðandi
það að lifa með geðsjúkdómi. Það
þarf að opna umræðuna enn frek-
ar.“
Vill miðla af reynslu sinni
Geturðu ennþá eitthvað í fót-
bolta? „Já og nei. Ég spila með liði
hér í bænum þar sem ég bý. Þar
eru nokkrir ellismellir eins og ég,
sumar eru talsvert yngri, en ég
kann nú samt hitt og þetta sem
þær kunna ekki,“ svarar Hrefna
hlæjandi. „En ég bý að allri þess-
ari reynslu og ég er bjartsýn á að
ég finni leið til að koma henni á
framfæri og hjálpa öðrum. Það er
það sem mig dreymir um að geta
gert.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bikarnum hampað Hrefna, sem var fyrirliði KR, tók á móti bikarnum eftir
að KR sigraði lið Vals 4-0 í úrslitaleik deildarbikarkeppni KSÍ árið 2008.
Hrefna lék tíu A-landsleiki árin 2000-2005 og skoraði samtals þrjú mörk
í þeim. Því til viðbótar spilaði hún sex leiki í EM í knattspyrnu og skoraði
þar samtals fimm mörk. Hún spilaði líka fjölda leikja með U-21 árs, U-19
ára og U-17 ára landsliðum.
Lengst af lék Hrefna með KR og lék sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir
félagið aðeins 15 ára gömul. Hún spilaði einnig með ÍBV, Breiðabliki,
Þrótti Reykjavík og Aftureldingu og skoraði samtals 179 mörk í 220 leikj-
um. Á farsælum ferli sínum fékk Hrefna ýmsar viðurkenningar. M.a. var
hún valin nýliði ársins í bandaríska kvennaháskólafótboltanum þegar hún
var við háskólanám í Montgomery í Alabamaríki og var líka valin nýliði
ársins hér heima árið 1996. Hún var markahæst á U-21 móti Norð-
urlandaþjóða eitt árið og fékk gullskóinn árið 2003 fyrir að skora flest
mörk og það var ekki ómerkari maður en franska knattspyrnugoðsögnin
Michel Platini sem afhenti henni hann.
Farsæll fótboltaferill Hrefnu
VERÐLAUN, VIÐURKENNINGAR OG MARKAMET
Gullskórinn Hrefna skoraði 21 mark í Landsbankadeild kvenna 2003 og fékk
gullskóinn. Knattspyrnugoðsögnin Michel Platini afhenti henni viðurkenninguna.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Við flytjum snilligáfu til þeirra sem rækta hana
16
-2
68
8
–
H
VÍ
TA
H
Ú
SI
Ð
/S
ÍA
VIÐ KOMUM ÞVÍ TIL SKILA