Morgunblaðið - 21.09.2017, Blaðsíða 76

Morgunblaðið - 21.09.2017, Blaðsíða 76
FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 264. DAGUR ÁRSINS 2017 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 581 KR. ÁSKRIFT 6.307 KR. HELGARÁSKRIFT 3.938 KR. PDF Á MBL.IS 5.594 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.594 KR. 1. Bátsverjar vistaðir í fangaklefa 2. Augun eins og krækiber 3. Ýtti Melaniu Trump út af sviðinu 4. „Ég vona að hún sé látin“ »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Kvikmyndaleikstjórinn Ágúst Guð- mundsson heldur erindi um kvik- mynd sína Land og syni í dag kl. 12 í Veröld, stofu 108, í Háskóla Íslands. Mun hann fjalla um gerð og viðtökur kvikmyndarinnar og er fyrirlesturinn hluti af nýrri fyrirlestraröð kvik- myndafræðideildar HÍ sem nefnist Ís- lensk kvikmyndaklassík. Í henni verð- ur mikilvægum brautryðjendum íslenskrar kvikmyndagerðar og at- hyglisverðum samtímaleikstjórum boðið í heimsókn til að ræða um til- urð, framleiðslu og viðtökur tiltek- innar kvikmyndar eftir sig. Hádegis- fyrirlestrar verða haldnir einu sinni í mánuði og eru þeir öllum opnir. Hvert erindi verður um 30 mínútur að lengd og að því loknu verður boðið upp á umræður. Í Landi og sonum er fjallað um umskiptin sem áttu sér stað þeg- ar búferlaflutningar úr sveit í borg breyttu ásýnd þjóðarinnar og lifn- aðarháttum. Ágúst heldur erindi um Land og syni  Anna Sigríður Helgadóttir sópran og Lilja Eggertsdóttir píanóleikari halda tónleika í dag kl. 12 í Fríkirkjunni í Reykjavík. Þær munu flytja þekkta stand- arda eftir Cole Porter, Jeremy Kern og Kurt Weil. Má af einstökum lögum nefna „Sept- ember song“, „The way you look tonight“ og „Night and day“. Flytja lög Porters, Kerns og Weils Á föstudag Suðlæg átt, 5-10 m/s. Víða bjartviðri norðan- og norð- austanlands, annars væta á köflum. Hiti 7-13 stig. Á laugardag Út- lit fyrir austanhvassviðri eða storm með rigningu víða um land, SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austlæg átt, 5-10 m/s, með vætu á köflum um landið sunnanvert, en víða bjartviðri norðantil. Hiti 6 til 13 stig. VEÐUR Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur verður á ferð og flugi á næstunni eins og hún hefur verið megnið af árinu. Ólafía er nú í þrjátíu tíma ferðalagi frá Þýskalandi til Nýja-Sjálands og mun vera með í móti þar í landi í næstu viku. Í framhaldinu er staðfest að Ólafía verður alla vega með í tveimur mótum í Asíu og þau gætu raunar orðið þrjú. »1 Ólafía á leið til Nýja-Sjálands „Við hófum fyrsta tímabilið 15 sam- an, auk tveggja útlendinga, sem er rosalega þunnskipaður hópur, og fengum æfingatíma frá hálf- ellefu til hálftólf á kvöldin, þann lélegasta sem völ var á,“ segir fráfarandi formaður UMFK Esju, Íslands- meistara í íshokkíi. Morgunblaðið fjallar ítarlega um þetta þriggja ára félag í dag. »2 Næstum því hættir en urðu meistarar í staðinn „Hjá stærstu körfuboltaþjóðunum er svo mikil saga og hefð fyrir íþrótt- inni. Þekkinguna sem þar er fyrir hendi er ekki að finna á Íslandi. Ein- hvers staðar þarf þróunin að byrja og nú er eitthvað að gerast hjá okkur,“ sagði Jón Arnór Stefánsson m.a. þeg- ar Morgunblaðið ræddi við hann um hvernig Ísland gæti komist nær bestu liðum Evrópu að getu. »4 Sambærileg þekking ekki til staðar á Íslandi ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is „Við hittumst fyrir tilviljun á Slipper Room í New York í sumar, en það er kabarettstaður sem blandar saman m.a. dragi, burlesque og sirkus- atriðum. Við vorum bókaðar til að vera með atriði sama kvöldið,“ segir Margrét Erla Maack burlesque- dansari í samtali við Morgunblaðið um það þegar hún rakst óvænt á dragdrottninguna Gógó Starr við að skemmta. „Við komumst að því að atriðin okkar spila mjög vel saman, þegar við erum tvær að sýna þá er skemmtileg fjölbreytni. Gógó Starr getur bæði verið dragdrottning og gert svokallað „boy-lesque“, sem er þá karlmaður með brjóstadúska o.þ.h. Við sögðum því í hálfkæringi, „ættum við ekki að fara saman í Evrópuferðalag næsta sumar?““ Dragdrottning Íslands Sigurður Heimir Guðjónsson er dragdrottningin Gógó Starr og ber titilinn „dragdrottning Íslands“. „Ég stunda drag af því að að mér finnst það innilega töfrandi leið til að koma fram, tjá sig og skemmta áhorf- endum,“ segir Sigurður Heimir. Hann kveðst vera sá eini sem stundar boy-lesque eða jafnvel „drag-lesque“ á Íslandi. Margréti Erlu og Sigurði Heimi leist svo vel á Evrópuferð- arhugmyndina að þau ákváðu að safna fyrir henni á söfnunarsíð- unni Karolina Fund, en í gær- morgun var verkefnið 88% fjár- magnað í gegnum síðuna. „Flestir sem styrkja ferðalagið eru að kaupa miða á farvel- sýningu í vor, þar sem við ætlum að sýna það sem við verðum að ferðast með,“ segir Margrét. Hún segir þau nú þegar vera komin með tvær bókanir fyrir næsta sumar. „Við erum með atriði sem koma eins og púsl inn í aðrar sýn- ingar, sem eru fastir liðir fyrir fasta- kúnna. Því þarf ekki að auglýsa okk- ur sérstaklega. Markmiðin með ferðinni eru m.a. að sýna fólki erlend- is á hvaða stað þessi jaðarmenning er hérlendis. Við viljum sýna fram á að það sé til burlesque- og dragsena á Íslandi. Eins að búa til tengslanet og fá erlenda listamenn til að koma til Íslands. Við erum að sækja okkur þekkingu og hugmyndir fyrir nám- skeið sem við höldum á Íslandi, t.d. um það hvernig á að halda svona sýn- ingar,“ segir Margrét Erla. Í kvöld verða þau með skemmtun á Gauknum til að ljúka söfnuninni en vinkonur þeirra, dragdrottningarnar Bibi Bioux, Ginger Biscuit, Lolla Matt, Deff Starr, Jenny Purr og Wonda Starr, verða þeim þar einnig til halds og trausts við að skemmta. Drottningar saman í víking  Flytja út ís- lenska burlesque- og dragmenningu Ljósmynd/Leifur Wilberg Burlesque Margrét Erla Maack er dansari og skemmtir fáklædd fullorðnum áhorfendum. „Burlesque eru lítil, stutt grínatriði fyrir fullorðið fólk, þar sem oft er farið úr fötunum,“ segir Margrét Erla, en um drag seg- ir hún að það sé leikur með kyngervi og ýkjur tengdar því. Hún segir að RuPaul, bandarísk dragdrottning, hafi lýst dragi þannig: „Við fæðumst nakin og allt annað er drag“. „Þetta er mjög skemmtilegt, maður er að leika sér með sína kynvitund og sína útgeislun. Það er svo gaman að gera þetta og vera öruggur í eigin líkama, sama hvernig líkama maður er með. T.d. í boy-lesque, að nota bara þann líkama sem maður er með jafnvel þó að brjóstin og mjaðmirnar vanti,“ segir Sigurður Heimir, sem finnst gaman að brjóta upp list- formið og hlakkar til að skemmta fólki. Að vera öruggur í eigin skinni HVAÐ ER DRAG OG BURLESQUE? Gógó Starr, dragdrottning Íslands.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.