Morgunblaðið - 21.09.2017, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 21.09.2017, Blaðsíða 52
52 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2017 Á L E I Ð T I L Ú T L A N D A OPTICAL STUDIO FRÍHÖFN LEIFSSTÖÐ Verslaðu á hagstæðara verði í okkar fullbúnu gleraugnaverslun á fríhafnarsvæðinu í Leifsstöð Ábyrgðar- og þjónustuaðilar: Optical Studio Smáralind, s. 528 8500 Optical Studio Keflavík, s. 4213811 Með öllum margskiptum glerjum fylgir annað par FRÍTT með í sama styrkleika Guðdómleg gúllassúpa 1,2 kíló smáttskorið nautagúllas 2 msk smjör 5-6 laukar, skornir í tvennt og svo í sneiðar 1½ rautt chilialdin saxað (ath. því minna sem aldinið er, því sterkara er það), 3 tsk paprikuduft 3 tsk timían 4 tsk kummín 3 krukkur tómat-passata 6 msk tómatpúrra 3 msk hunang 2½ l vatn 5-6 teningar nautakraftur 3 vænar bökunarkartöflur, skornar í teninga 1½ sæt kartafla, skorin í teninga 4 dl rjómi salt og pipar eftir smekk jafnvel ögn af chilipipar (þurrkuðum) Til að toppa með: Fersk steinselja sýrður rjómi Aðferð: Byrjið á að skera gúllasið í litla bita. Þerrið kjötið vel og kryddið með salti og pipar. Hitið stóran pott (steypujárn er snilld) við fremur háan hita og bræðið smjörið. Brúnið kjötið án þess að gegnsteikja það og setjið svo til hliðar. Lækkið hitann og steikið laukinn í 10-15 mínútur, þannig að hann mýkist og breyti um lit. Bætið kjöt- inu aftur út í ásamt chili og kryddi og steikið aðeins áfram. Setjið tómatpúrruna saman við ásamt krafti, tómötum, hunangi og vatni og hleypið suðunni upp. Flysj- ið kartöflurnar á meðan suðan er að koma upp og bætið þeim svo út í. Látið súpuna sjóða í 30 mínútur. Lækkið þá hitann, bætið rjómanum út í og smakkið til með salti og pip- ar. Það er best að stappa kartöflurn- ar í súpunni með kartöflustappara, þannig að hún þykki súpuna þótt einhverjir bitar verði eftir. Látið súpuna malla við vægan hita undir loki í 2-4 tíma. Því lengur því betra. Berið fram með sýrðum rjóma og steinselju. tobba@mbl.is Upphaflega er þessi súpa frá Dröfn Vilhjálmsdóttur matarbloggara á Eldhúsperlum en móðir mín hefur breytt henni nokkuð og stækkað uppskriftina enda er súpan bara betri daginn eftir en því miður er sjaldnast afgangur þegar stórfjölskyldan mætir í mat. Morgunblaðið/Tobba Marinós Guðdómleg gúllassúpa sem enginn gleymir nokkurn tíma! Lítið fyrir augað Súpan er kannski ekki sérstaklega fal- leg en ekki láta blekkjast. Hún er mögnuð! 1 pakki Mexíkósúpa frá Toro 200 g rjómaostur 700 ml vatn 1 heill eldaður kjúklingur rifinn niður 1 dós hakkaðir tómatar 1 dl góðar maísbaunir (helst frosnar) kóríander sýrður rjómi nachos Setjið vatn í pott og látið suðuna koma upp. Lækkið undir vatninu og hrærið innihald pakk- ans saman við. Látið suðuna koma aftur upp og lækkið undir og setjið tómata og rjómaost saman við. Látið malla í fimm mínútur. Þá fara maís og kjúk- lingur út í og látið malla í aðrar 10-15 mínútur. Það má vel setja chilikrydd ef fólk vill hafa súp- una sterkari. Berið fram með fersku kórían- der, nachos og sýrðum rjóma og segið engum að þetta sé pakka- matur! Aldrei. tobba@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Svindlað í eldhúsinu Þorbjörg Marinósdóttir og Þóra Sigurðardóttir stýra Svindlað í saumaklúbb. Mexíkósúpa á mettíma Þessi ákaflega góða súpa er úr nýjasta vefþætti Svindlað í saumaklúbb sem finna má á matarvef mbl.is en nýr þáttur er frumsýndur á fimmtudög- um. Þættirnir ganga út á lekkerar leiðir til að töfra fram magnaða rétti með aðkeyptri aðstoð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.