Morgunblaðið - 21.09.2017, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 21.09.2017, Blaðsíða 35
FRÉTTIR 35Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2017 Faxaflóahafnir sf. hafa fyrstar hafna á Íslandi fengið vottun fyrir umhverfisstjórnunarkerfi sitt í samræmi við alþjóðaumhverf- isstaðalinn ISO 14001. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu fyrirtæk- isins. Kjarni staðalsins er að vinna að stöðugum umbótum til að reyna að draga úr umhverfislegum áhrifum. Erna Kristjánsdóttir, markaðs- og gæðastjóri Faxaflóahafna, segir að vottunin sé mikil viðurkenning á heildstæðri umhverfisstefnu Faxa- flóahafna sf. og veiti fyrirtækinu ákveðinn gæðastimpil. Erna segir að starfsmenn fyrir- tæksins séu afar stoltir af því að vera fyrst íslenskra hafna til að fá þessa alþjóðlegu vottun. Sé það í samræmi við þá stefnu fyrirtæk- isins að vera í fararbroddi í þessum málaflokki. Með vottuninni sýni fyrirtækið ábyrgð á því að minnka umhverfisáhrif starfseminnar með því til dæmis að nýta auðlindir skynsamlega, stuðla að minnkun á útblæstri og minnka umfang sorps en farga því á ábyrgan hátt. „Þannig má með öguðum og mark- vissum vinnubrögðum lágmarka áhrif á umhverfið að því leyti sem því verður við komið,“ segir Erna. sisi@mbl.is Fengu vott- un fyrstar hafna hér Morgunblaðið/Hanna Höfnin Mikil áhersla er lögð á að lágmarka áhrif á umhverfið. Borgarráð hefur samþykkt að aug- lýsa til leigu húsnæði á Langholts- vegi 70, Sunnutorgi. Fram kemur í greinargerð skrif- stofu eigna og atvinnuþróunar að Reykjavíkurborg eigi umrætt hús- næði en þar hefur verið rekin sjoppa í nær 60 ár. Húsnæðið sé hannað líkt og stórt strætisvagna- skýli enda verið staðsett við biðstöð strætisvagna. Núverandi leigutaki sagði upp leigusamningi og stendur húsið nú ónotað. Sem kunnugt er hafa sjoppur átt undir högg að sækja að undanförnu. Óskað var eftir heimild borgarráðs til að aug- lýsa eftir hugmyndum að starfsemi. Síðan verði skipuð dómnefnd til að fara yfir þær hugmyndir sem ber- ast. „Sunnutorg er eitt furðulegasta hús í borginni og er staðsett á Langholtsvegi 70,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri í vikuleg- um pósti sínum síðasta föstudag. „Borgin á húsið en það er teiknað af Sigvalda Thordarson en þar hef- ur verið hálfgerð vegasjoppa í mörg ár. Húsið er umdeilt og ekki allir hrifnir af því. Þess vegna var ákveðið að auglýsa eftir góðum hugmyndum fyrir starfsemi i húsið og útlit þess, þarna gæti verið kaffi- hús, veitingastaður eða eitthvað annað sem getur búið til góðan anda í þessu góða hverfi og þessari fallegu en löngu götu,“ segir borg- arstjóri. Húsið verður sýnt áhugasömum þriðjudaginn 26. sept. kl. 15-16. Nánari upplýsingar má finna á reykjavik.is/leiga. sisi@mbl.is Borgin vill leigja Sunnutorg Ljósmynd/Reykjavíkurborg Sunnutorg Sjoppan sem var í húsinu hætti starfsemi fyrir fáeinum vikum.  Sjoppan er hætt  Óskað var eftir góðum hugmyndum Embætti sókn- arprests í Pat- reksfjarðar- prestakalli, Vestfjarða- prófastsdæmi, var auglýst laust til um- sóknar hinn 17. ágúst sl. Tveir umsækjendur voru um embættið, sr. Elín Salóme Guðmundsdóttir og Kristján Arason guðfræðingur. Umsóknarfrestur um embættið rann út 15. september sl. Biskup Ís- lands skipar í það frá 1. nóvember nk. til fimm ára. Umsóknir fara til umfjöllunar matsnefndar um hæfni til prestsembættis og að fenginni niðurstöðu hennar fjallar kjörnefnd prestakallsins um umsóknirnar. Kjörnefnd kýs að því búnu milli um- sækjendanna og skipar biskup þann umsækjanda sem hlýtur löglega kosningu. sisi@mbl.is Tveir sækja um Patreksfjörð Patreksfjarðarkirkja Settumarkþitt á Reykjavík framtíðarinnar Skráðu þig í rýnihóp fyrir Vogabyggð 1, Gelgjutanga Fasteignaþróunarfélagið Festir ehf. býður áhugafólki um borgarskipulag til rýnifundar um Vogabyggð 1 í Reykjavík. Tilgangur fundarins er að stofna til samtals sem getur haft áhrif á uppbyggingu Vogabyggðar 1. Hollenska arkitektastofan Jvantspijker og danska stofan Rakel Karls ApS. munu kynna forhönnun að tveimur byggingum í upphafi fundar og í kjölfarið verður kallað eftir sjónarmiðum fundargesta. Fjöldi þátttakenda takmarkast af fjölda útgefinna gjafabréfa Skráning fer fram á vefsíðu MMR á slóðinni survey.mmr.is/festir Við hvetjum alla áhugasama til að skrá sig Rýnihópavinnan fer fram á íslensku þann 26. september kl. 17:15 til 20:00 Léttar veitingar verða í boði og gjafabréf að upphæð 10.000 kr. fyrir hvern þátttakanda
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.