Morgunblaðið - 21.09.2017, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 21.09.2017, Blaðsíða 55
MINNINGAR 55 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2017 ✝ Emma LífÓlafsdóttir fæddist 17. sept- ember 2012 á Landspítalanum við Hringbraut. Hún lést á Barna- spítalanum 11. september 2017. Foreldrar Emmu Lífar eru Ólafur Tage Bjarnason, f. 15. apríl 1982, og Svanhildur Jónsdóttir, f. 28. ágúst 1985. Systur Emmu Lífar eru Hanna Elísa, f. 12. febrúar 2009, og Bjarney Rún, f. 9. janúar 2017. For- eldrar Ólafs Tage eru Bjarni Ole- sen, f. 7. júní 1955, og Jóhanna Guðjónsdóttir, f. 19. ágúst 1951. Foreldrar Svan- hildar eru Jón Rúnar Bjarnason, f. 9. ágúst 1955, og Jóhanna Björnsdóttir, f. 11. ágúst 1955. Emma Líf bjó ásamt fjöl- skyldu á Selfossi. Útför Emmu Lífar fer fram frá Selfosskirkju í dag, 21. september 2017, klukkan 14. Elsku Emma Líf, þú ákvaðst að baráttunni væri lokið, veikindin voru orðin þér of þungbær. Frá fyrstu kynnum var ljóst að saman biði okkar barátta vegna fötlunar þinnar. Í ljós kom að fötlun þín var CP auk annarra veikinda. Það rann upp fyrir okkur að þú yrðir okkar skilgreining á hvað líf- ið getur boðið upp á. Lífið er ekki svart og hvítt, það er sambland af mörgu. Flestir upplifa gleði og erfiðleika. Við vildum skíra þig með millinafnið Líf, var það okkur táknrænt þar sem við vissum að líf þitt yrði erfitt en það yrði einnig gleðiríkt eins og hjá öðrum. Það var gefandi að fá að vera foreldrar þínir og systir, vegna þín kynntumst við mörgu góðu fólki sem snerti líf okkar með góðvild og hlýju. Bæði stofnanir og félaga- samtök eiga hrós skilið og verðum við ávallt þakklát fyrir þá þjón- ustu sem þér og okkur var veitt. Við erum heppin að eiga góða fjölskyldu og vini, öllum þótti svo vænt um þig. Stóra systir veitti þér ást, vináttu og félagsskap. Stóra systir var sterk og greiðvik- in. Hún þekkti þig vel og vissi bet- ur en flestir hvernig þér leið. Stóra systir á eftir að sakna þín mikið en hún veit að þú ert á góð- um stað. Litla systir var okkur öll- um mikil blessun og þótti þér barnahjal hennar mjög skemmti- legt. Þegar við rifjum upp líf þitt þá er ótrúlega margt sem hlýjar okk- ur um hjartarætur. Við minnumst þess hvað þér þótti gaman að tón- list, hvað hljóð frá börnum í leik gladdi þig, hvað það var gott að knúsa þig í lazyboy-stólnum, hvað krakkarnir á leikskólanum tóku vel á móti þér. Ein af okkar uppá- haldsminningum er þegar þú féllst fyrir laginu Jólahjól, það lá svo vel á þér og tilfinningin að sjá þig brosa og dilla þér yfir laginu aftur og aftur í klukkutíma er ólýsanleg. Það hefur oft verið sagt við okk- ur foreldrana að þú hafir verið send til okkar til að kenna okkur eitthvað; hvort sem þú varst send til okkar eða ekki varstu sem bet- ur fer okkar og er það alveg ljóst að þú hefur kennt okkur mikið. Líklega erum við ekki alveg búin að átta okkur á öllu en æðruleysi er eitt af því sem við höfum þurft að bæta okkur í. Æðruleysi er í okkar huga skilgreining á því hvernig maður tekst á við daglegt líf og stærri verkefni í sem bestu jafnvægi til að ná sem mestum ár- angri. Læra að sætta sig við það sem maður getur ekki breytt og vinna í því sem maður getur haft áhrif á. Elsku Emma Líf, þín vegferð var erfið og var það okkur ljóst að hún yrði líka styttri en það sem maður vonar fyrir börnin sín. Það var þó ekki fyrr en fyrir nokkrum mánuðum að við fórum að óttast að líf þitt yrði mun styttra en það sem við áttum von á. Litlu lungun þín voru orðin svo veik. Við erum svo sorgmædd að við getum ekki knúsað þig á hverjum degi, við er- um svo leið að þú getir ekki leikið við systur þínar, en við erum svo ánægð að þú finnir ekki lengur til. Þú ert fullkomin en líkami þinn var veikburða. Við trúum að hugur þinn og sál hafi fengið frið frá veikindum á öðrum stað. Við munum alltaf elska þig og heiðra minningu þína, elsku Emma Líf okkar. Pabbi, mamma, Hanna Elísa og Bjarney Rún. Elsku barnabarnið okkar, hún Emma Líf, er látin. Hvíl í friði. Emma Líf er flogin burt til æðri og betri heima allar stundir mun góður Guð í faðmi sínum geyma. Elsku Óli Tage, Svanhildur, Hanna Elísa og Bjarney Rún, Guð gefi ykkur styrk í þessari miklu sorg. Amma og afi í Lambhaganum, Jóhanna Guðjónsdóttir, Bjarni Olesen. Það var bjartur og fagur dagur, haustsólin skein og umhverfið baðað af litadýrð haustsins, eitt og eitt lauf féll af trjánum. Það var þennan dag sem elsku litla frænka mín Emma Líf Ólafsdóttir var kölluð á vit æðri máttarvalda á fimmta aldursári, hún átti aðeins sex daga í að verða fimm ára. Maður spyr sig margra spurninga en engin svör fást, það fæðast ekki allir eins í þennan heim. Það eru svo ótal mörg verkefni sem eru lögð fyrir okkur í lífinu. Við hjónin rifjuðum upp ferð okkar með fjölskyldu Hönnu og Jóns til Manchester á fótboltaleik, í ljós kom að laumufarþegi var meðferðis. Mánuðirnir liðu, svo fæddist laumufarþeginn okkar, lítil stúlka leit dagsins ljós. Þetta voru fyrstu kynni okkar af Emmu Líf. Frá fæðingu Emmu Lífar hafa stoltir foreldrar, Svanhildur og Óli Tage, setið með dóttur sína í fanginu og umvafið hana ást og kærleika. Hún þurfti mikla umönnun vegna fötlunar og veik- inda sinna. Það var stór en góð ákvörðun þegar fjölskyldan ákvað að flytja austur á Selfoss og settist að í Dranghólum 45. Á nýja fallega heimilinu leið Emmu Líf vel, hún fékk fallegt herbergi og elskaði að fara í heita pottinn, þar áttu hjónin góðar samverustundir með dætr- um sínum. Stóru fallegu augun hennar sögðu svo margt, það var yndislegt að sjá viðbrögð hennar þegar einhver kom í heimsókn. Hún hafði gaman af tónlist og naut þess að hlusta á iPad-inn sinn og stundum sungu ömmur hennar fyrir hana. Gott þótti henni að koma til Hönnu ömmu og afa Jóns og naut þess að vera í pössun hjá þeim. Einnig heimsótti hún þau í sumarbústaðinn í Úthlíð, nú síðast um verslunarmannahelgina kom hún þangað í stutta stund. Hún var svo lánsöm að hafa margt gott fagfólk í kringum sig, hvort heldur var á Lyngási, Jöt- unheimum, Rjóðrinu eða Barna- spítala Hringsins. Allir elskuðu hana og gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til að létta henni lífið. Við erum þakklát fyrir að hafa fengið að taka þátt í lífi hennar, þökkum allar góðu stundirnar, hlýja handtakið og yndisleg knús. Ó Jesú, bróðir besti og barnavinur mesti, æ, breið þú blessun þína á barnæskuna mína. (Páll Jónsson) Við fjölskyldan frá Skálholti biðjum góðan Guð að láta birtuna af minningum hennar lýsa í hjörtu sorgmæddrar fjölskyldu. Elsku Svanhildur, Ólafur Tage, Hanna Elísa, Bjarney Rún, Jó- hanna, Jón Rúnar, Jóhanna, Bjarni og fjölskyldur, langamma Maja og langafi Bjarni, við vottum ykkur innilega samúð og kveðjum Emmu Líf Ólafsdóttur með virð- ingu og þökk. Minningin lifir um litlu hetjuna okkar allra, langafi Bjössi tekur á móti henni með útbreiddan faðm- inn. Hvíl í friði. Kristín Björnsdóttir, Ólafur Sigurðsson. Elsku hjartans Emma Líf, það eru engin orð sem lýsa því hversu erfitt það er að kveðja þig. Svo gullfalleg og sterk stelpa sem við eigum öll eftir að sakna svo óend- anlega mikið. Gleðigjafinn okkar sem söng og dansaði um þegar tónlist heyrðist. Þú kenndir okkur að lífið er ekki sjálfgefið og að við eigum að njóta hverrar stundar. Minningarnar um þig varðveitum í hjörtum okkar þangað til við hitt- umst næst. Dvel ég í draumahöll og dagana lofa litlar mýs um löndin öll liggja nú og sofa Sígur ró á djúp og dal dýr til hvílu ganga einnig sofna skolli skal með skottið undir vanga. (Kristján frá Djúpalæk) Elsku Svanhildur, Óli, Hanna Elísa og Bjarney Rún, munið að það er ekki tími í himnaríki og þess vegna þarf Emma Líf ekki að bíða eftir ykkur. Elsa frænka. Er haustar að og sumri fer að halla, á himni lækkar flugið sólin bjarta. Í hugum okkar fölnuð laufin falla, við finnum öll svo þunga sorg í hjarta. Nú farin ert til fjarlægari heima, flogin upp til heillastjarna þinna. Þar fagrar sálir vaka, sofa og dreyma, og hugsa gjarnan heim til vina sinna. Þú gafst á báðar hendur ást og hlýju, hér dveljum við með minningunum björtum. Við óskum þess að fólk þitt finni að nýju, hamingju og frið í sínum hjörtum. (GHK) Elsku Óli Tage, Svanhildur, Hanna Elísa, Bjarney Rún og aðr- ir aðstandendur. Megi allar góðar vættir styrkja ykkur á þessum erfiðu tímum og um alla framtíð. Guðrún Hrafnhildur, Róbert, Aldís Elva, Hugrún Tinna, Ragna Fanney. Nú ertu horfinn í himnanna borg og hlýðir á englanna tal. Burtu er kvíði, sjúkdómur, sorg í sólbjörtum himnanna sal. (Ingibjörg Jónsdóttir) Elsku Emma Líf, við viljum þakka fyrir að hafa verið þess heiðurs aðnjótandi að fá að vera stuðningsfjölskyldan þín og fá að annast þig eina helgi í mánuði. Við nutum þess að vera saman, hafa þig í fanginu, hlusta á tónlist, gít- arspil og söng, það fannst þér skemmtilegast. Við kveðjum þig með sárum söknuði, þakklæti fyr- ir allar góðu stundirnar og þá ást sem þú gafst okkur. Hvíl í friði, elsku Emma Líf. Kristjana, Guðjón og börn. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta, þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margt að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti ekki um hríð, þá minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig) Í dag kveðjum við okkar ynd- islegu vinkonu, hana Emmu Líf. Á þessum árum sem hún var hjá okkur í leikskólanum Jötunheim- um sáum við hversu fallegt ljós hún var. Hún snart okkur öll á einn eða annan hátt og við munum að eilífu minnast hennar með hlý- hug í hjarta. Ef hún var ekki í leikskólanum var gjarnan spurt um hana og allir urðu ofsalega glaðir að sjá hana þegar hún kom í leikskólann og fögnuðu henni ákaft. Börnin kepptust við að fá að leika við hana eða spjalla og tóku henni sem jafn- ingja. Hún fékk ófár teikningarn- ar frá börnunum sem skreyttu veggi leikskólans. Margar minn- ingar streyma sem eru okkur sér- staklega kærar. Emma Líf hafði meðal annars mikla unun af því að heyra þegar önnur börn grétu í aðlögun og kættist hún ákaft yfir þessum hljóðum. Það er einnig vert að minnast á hversu fallegt og einlægt sam- bandið var milli Emmu Lífar, Ey- rúnar og Árnýjar. Það var einhver sérstök tenging sem engin orð fá lýst. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Kæru Ólafur, Svanhildur, Hanna Elísa og Bjarney Rún. Allir í Jötunheimum senda ykk- ur innilegar samúðarkveðjur. Júlíana Tyrfingsdóttir. Við vorum svo heppnar að fá að kynnast henni Emmu Líf okkar haustið 2013 þegar hún hóf leik- skólagöngu sína í Jötunheimum. Það voru forréttindi að fá að fylgja Emmu Líf þessi þrjú ár sem hún var hjá okkur í leikskólanum. Ótal minningar koma fram í hugann þegar við rifjum upp tímann okkar saman. Fyrst kemur upp í hugann hvað Emma Líf skemmti sér oft vel þegar hin börnin á deildinni áttu erfiðan dag og grétu, þá brosti hún og hló að hljóðunum. Eins þegar við vorum að syngja og hafa gaman, þá tók hún oft undir. Það voru ófáir dagarnir sem við fengum að knúsa Emmu Líf í stólnum okkar, syngja fyrir hana, spjalla og lesa sögur. Þessar dýr- mætu minningar geymum við í hjörtum okkar. Við söknum elsku Emmu Lífar ólýsanlega mikið, hún átti hug okkar og hjarta síð- astliðin þrjú ár og mun alltaf eiga stað í hjarta okkar. Kveðja til Emmu Lífar: Litla ljúfan leiðir skilja lítil hönd í lófa mér loka augum læt mig dreyma um litla stúlku í örmum mér (EBE) Elsku Svanhildur, Óli, Hanna Elísa og Bjarney Rún, hugur okk- ar er hjá ykkur á þessum erfiðu tímum. Árný Ilse og Eyrún Björk. Emma Líf Ólafsdóttir Okkar elskandi og trygga móðir, amma, langamma og langalangamma, VALGERÐUR EIÐSDÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Eiri í Grafarvogi mánudaginn 11. september. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn 22. september klukkan 13. Davíð Kristjánsson Sóley Sigdórsdóttir Hulda Ósk Ólafsdóttir Kristinn Ragnarsson Þorgrímur Ólafsson Sólveig Ólafsdóttir Birgir Ólafsson Ása Margrét Arnþórsdóttir Líney Björk Ívarsdóttir Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir, stjúpfaðir og afi, ERLENDUR GUÐMUNDSSON, fv. flugstjóri hjá Icelandair, Úthlíð 8, 105 Reykjavík, lést á heimili sínu fimmtudaginn 14. september eftir skammvinn veikindi. Jarðarförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 22. september klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Minningarsjóð líknardeildar og heimahlynningar Landspítalans. Ingunn Erna Stefánsdóttir Kristín Vala Erlendsdóttir Karl Thoroddsen Gunnlaugur P. Erlendsson Carsten Duvander Guðmundur Kr. Erlendsson Þóra H. Þorgeirsdóttir Stefán Árni Þorgeirsson Tristan E. Gribbin Halla Sólveig Þorgeirsdóttir Björn Gunnarsson Auður Rán Þorgeirsdóttir Hermann Karlsson barnabörn Okkar ástkæri SIGURÐUR JÓNAS MARINÓSSON lést á heimili sínu 13. september. Útför hans fer fram frá Kollafjarðarneskirkju laugardaginn 23. september klukkan 15. Blóm og kransar afþakkað en þeim sem vilja minnast Sigurðar er bent á Krabbameinsfélagið Sigurvon. Gróa Bjarnadóttir Jón Álfgeir Sigurðarson Víðir Álfgeir Sigurðarson Marinó Álfgeir Sigurðarson Sigurður Álfgeir Sigurðarson Fjóla Karen Sigurðardóttir og fjölskyldur Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, EINAR KRISTMUNDSSON, Grænuhlíð, lést á heimili sínu sunnudaginn 3. september. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Okkar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug. Dagný Ósk Guðmundsdóttir Ásmundur Óskar Einarsson Helgi Svanur Einarsson Gígja Hrund Símonardóttir Kristmundur S. Einarsson Íris Dröfn Árnadóttir Þórdís Eva Einarsdóttir og barnabörn Okkar ástkæri ÖRN GÍSLASON, Sólheimum, Bíldudal, lést föstudaginn 15. september. Útförin fer fram frá Bíldudalskirkju laugar- daginn 23. september klukkan 14. Þeim sem vilja minnast hans er bent á björgunarsveitina Kóp á Bíldudal, rnr. 0153-26-7844, kt. 581083-0259. Valgerður Jónasdóttir Gunnar Þórðarson Bríet Arnardóttir Smári Gestsson Sigríður Arnardóttir Guðm. Örvar Hallgrímsson Arna Margrét Arnardóttir Siggeir Guðnason barnabörn og barnabarnabarn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.