Morgunblaðið - 21.09.2017, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 21.09.2017, Blaðsíða 32
32 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2017 „Vissulega er ekki jafn algengt að hitta íslenskumæl- andi fólk á slóðum okkar í Íslendingabyggðum í Norður- Ameríku nú og var þegar ég kom þangað fyrst fyrir bráðum fjörutíu árum. Það gerist samt ótrúlega oft,“ segir Jónas Þór sagnfræðingur. Í leiðangri á vegum Bændaferða um Íslendingaslóðir í Norður-Dakota í Bandaríkjunum og Manitoba-ríki í Kan- dada í ágúst var Jónas fararstjóri en hann hefur á síð- ustu tuttugu árum farið fyrir tugum ferða Íslendinga um þessar slóðir. „Samanlagt eru þetta um 5.000 manns sem ég hef farið með til Kan- ada á síðustu tveimur áratugum. Þetta eru allskonar hópar, til dæmis kennarahópar, rótarýklúbbar og ófáir kórarnir. Í hefðbundnum, opnum ferðum Bændaferða er áberandi að fólk af Norður- og Austurlandi, hvað- an flestir íslensku vesturfaranna voru, sækir í slíkar ferðir. Fólk vill þá vita hvað varð um ættmenni sem vestur fóru, fjölskylduhagi og fleira,“ segir Jónas Þór. Ættmennin sem vestur fóru FARARSTJÓRI Á ÍSLENDINGASLÓÐUM Í TUTTUGU ÁR Jónas Þór SVIÐSLJÓS Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Nokkru fyrir norðan Winnipeg sem er höfuðborgin í Manitoba-ríki Kan- ada djarfaði fyrir nýju landi. Við vorum á víðfeðmri sléttu óendan- leikans og gróskuríkra akra og það vakti eftirtekt í hópnum að sjá ís- lensk bæjarnöfnin, eitt af öðru. Þótt 140 ár séu síðan fyrstu Íslending- arnir námu land á þessum slóðum halda afkomendur þess fólks, marg- ir gjarnan í sjötta og sjöunda lið, vel í ræturnar og hefðir að heiman. Nýja Ísland heitir staðurinn, þangað sem á bilinu 15 til 20 þúsund Íslend- ingar fluttu frá 1874 til 1914. Eðli- legri viðkomu samkvæmt eru því margir tugir þúsunda Kanada- manna af íslensku bergi brotnir – en hve margir veit enginn. Möðruvellir, Drangey og Framnes Landnámssvæðið í Nýja Íslandi skiptist í fjórar byggðir sem kennd- ar voru við Víðirnes, Árnes, Fljót og Mikley. Síðastnefnda byggðin er svolítið sér á parti, eins og segir síð- ar í þessari grein, en hinar ná yfir hinar rennisléttu breiður sem eru hundruð ferkílómetra að flatarmáli. Af því svæði má tiltaka staðarheiti á borð við Húsavík, Sigluvík, Möðru- velli, Miklavík, Drangey og Fram- nes. Mörg eiga þessi nöfn sér til- svörun á Norður- og Austurlandi en þaðan voru flestir vesturfaranna á sínum tíma. Á þessum slóðum er líka til Hnausabyggð, Geysir og Árborg. Síðarnefndi staðurinn er þorp hvar er lítið byggðarsafn, hvar komið hef- ur verið fyrir nokkrum húsum sem eru lík þeim sem íslenskir landnem- ar á þessum slóðum reistu sér. Kona af íslenskum ættum, Patt Eyjolfs- son, stofnaði þetta safn í kringum árið 2000 og hefur unnið að upp- byggingu þess síðan. Má þar auk hefðbundinna íbúðar- húsa sjá til dæmis kirkju sem Úkra- ínumenn sem voru landnemar á þessum slóðum um líkt leyti og Ís- lendingar reistu. Er bygging sú í stíl arkitektúrs rétttrúnaðarkirkjunnar, sem allsráðandi er í austurvegi. Í gegnum Árborgarþorp fellur læna sem svo liðast þvert um slétt- una og er nokkuð voldugt vatnsfall við útfallið í Winnipeg-vatni nærri bænum Riverton. Fjölmargir íbúa þar hafa tengingar við Ísland og frumbyggjarnir kölluðu ána einfald- lega Íslendingafljót og hefur sú nafngift haldist fram á þennan dag. Gimli er höfuðstaður Nokkru sunnan við Riverton er Gimli, 6.000 manna bær, sem er um 80 kílómetra fyrir norðan Winnipeg- borg. Segja má að Gimli sé eins- konar höfuðstaður Nýja-Íslands. Og helsta hátíð fólks á þessum slóðum er Íslendingadagurinn sem er jafn- an fyrsta mánudaginn í ágúst. Um 30-40 þúsund manns sækja hátíðina að jafnaði og sú var einmitt raunin í ár. Margir íbúar í Gimli eru ís- lenskumælandi að nokkru, bæði slæðingur af fólki sem flutt hefur vestur á síðari árum og svo afkom- endur íslenskra frumbyggja á svæð- inu. „Vesturfararnir lögðu kapp á að segja börunum sínum frá Íslandi, þetta var þeirra eina leið til að tengja þau við land og þjóð. Þannig fengu þau að kynnast landinu þar sem rætur þeirra lágu. Frásagn- irnar lifðu síðan með hverri kynslóð- inni eftir annarri og þannig hefur grundvöllur fyrir Íslendingadeg- inum haldist,“ segir Jónas Þór, far- arstjóri og sagnfræðingur. Hann vekur jafnframt athygli á því að svæðið norðan við Winnipeg, þar sem fjölmargir íslenskir veturfarar settu sig niður, sé enn í dag í dag- legu tali fólks vítt og breitt um Norður-Ameríku tengt Íslandi. Það sé eftirtektarvert því Úkraínumenn, Norðmenn og Þjóðverjar og fleiri hafi sett sig þar niður. Fjárlög og útilegumenn Í Drangey í Árdalsbyggð búa þau Einar Vigfússon og Rósalind kona hans. Þeir sem fara fyrir íslenskum hópum um þessar slóðir ganga að gestrisni þeirra vísri og á síðast- liðnum tuttugu árum hafa þau hjón tekið á móti þúsundum Íslendinga á heimili sínu. Drangeyjarhjónin, sem eru um áttrætt, hafa eftirlátið syni sínum búskapinn en huga þess í stað að eigin hugðarefnum. Einar býður fólki í smiðju sína hvar hann tálgar út fugla og fleira fínirí og í stofunni spilar Rósalind á píanóið eftir Fjár- Gengið að gestrisni vísri  Nýja Ísland á sléttum Kanada  Frásagnir lifa  Íslendingadagur og ættjarðarlög  Tugir þúsunda Kan- adamanna af íslensku bergi brotnir Morgunblaðið/Sigurður Bogi Gestgjafi Rósalind Vigfúsdóttir hefur tekið á móti þúsundum Íslendinga á undanförnum árum. Við þau tilefni sest hún gjarnan við hljóðfæri og spilar íslenskt fínirí eftir hinum frægu Fjárlögum sem Eymundsson gaf út forðum tíð. Íslandsbyggð Mikley var eitt landnámsvæða Íslendinga við Winnipegvatn. Þakkað er fyrir komuna á svæði, sem nú er fólkvangurinn Hecla park . Þjóðhagi Einar Vigfússon Drangeyingur í Árdalsbyggð sker út fugla í smiðju sinni og sýnir hér góðum gestum að heiman kúnstverk sitt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.