Morgunblaðið - 21.09.2017, Síða 66

Morgunblaðið - 21.09.2017, Síða 66
66 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2017 Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is GÓÐ HEYRN GLÆÐIR SAMSKIPTI! Með þeim heyrist talmál sérstaklega vel vegna þess að þau þekkja tal betur en önnur tæki. Tæknin sem þekkir tal Nýju ReSound LiNX 3D eru framúrskarandi heyrnartæki ReSound LiNX3 Árni Matthíasson arnim@mbl.is Það var síðdegis eina helgi í mars. Dewi Ayu reis úr gröf sinni tutt- ugu og einu ári eftir andlátið. Smaladrengur sem var að fá sér lúr við möndlutré vaknaði við læt- in, meig í stuttbuxurnar og æpti hástöfum, en kindur hans fjórar hlupu sitt á hvað milli steina og merktra grafa, líkt og tígrisdýri hefði verið sleppt á meðal þeirra. Fyrst heyrðist hljóð úr gamalli gröf, þar sem ómerktur legsteinn stóð hulinn í hnéháu grasi, en allir vissu að þar hvíldi Dewi Ayu. Hún lést fimmtíu og tveggja ára að aldri, en reis aftur upp þegar hún var búin að vera dáin í tuttugu og eitt ár, og þaðan í frá reyndist mönnum erfitt að reikna út aldur hennar. Svo hefst skáldsagan Fegurð er sár eftir indónesíska rithöfundinn Eka Kurniawan sem Forlagið gaf út nýverið í íslenskri þýðingu Ólafar Pétursdóttur. Í bókinni segir frá vændiskonunni Dewi Ayu og dætr- um hennar á umbrotatímum í sögu Indónesíu, en hún rís úr gröfinni til að hefna fyrir það sem dunið hefur yfir hana og afkomendur hennar, sifjaspell, morð, ofbeldi, nauðgun, geðveiki. Eka Kurniawan var gestur á bókmenntahátíð í Reykjavík. Eka Kurniawan fæddist í smá- þorpi á Java og ólst upp í öðrum bæ, Pangandaran. „Pangandaran er strandbær og lífið var mjög háð sjónum, örugglega áþekkt lífinu í ís- lenskum sjávarþorpum. Ég fór svo í háskóla í Yogyakarta og lærði heim- speki. Að því námi loknu flutti ég svo til Jakarta og hef búið þar síðan. Ég byrjaði að skrifa ellefu eða tólf ára gamall. Ég var ósköp venjulegur nemandi, miðlungsnemandi að öllu leyti og ekkert sérstaklega góður í íþróttum. Einn daginn las ég ljóð eftir skólakrakka í tímariti sem faðir minn hafði komið með heim og þar voru og ég sá það sem leið til þess að skara kannski aðeins fram úr og byrjaði að skrifa ljóð,“ segir hann og hlær. „Í framhaldi af því fór ég að skrifa sögur en ég ætlaði mér þó aldrei að verða rithöfundur. Það var ekki fyrr en ég var kominn í háskóla að ég fór að skrifa af alvöru.“ – Það er einmanaleg vinna og erf- ið að vera rithöfundur og svo er hún illa borguð. „Já, það er einmanalegt að vera rithöfundur, en í Indónesíu búa 250 milljónir. Það er því þröng á þingi og ég kann því vel að vera einn. Vissu- lega er líka illa borgað að vera rit- höfundur en það góða við það er að ég þarf ekki að treysta á aðra en sjálfan mig, get hagað tíma mínum eins og mér þykir best. Ef ég er svangur þarf ég að skrifa eitthvað sem hægt er að selja,“ segir hann og hlær við. Eins og sjá má í upphafi hefst Fegurð er sár með því að vændis- konan Dewi Ayu rís úr gröf sinni til að ljúka við ýmislegt. Hún er hol- lensk-indónesísk og saga hennar er saga Indónesíu undir hollenskri ný- lendustjórn, sem var eins grimmileg og allar nýlendustjórnir, síðar jap- anskri herstjórn og loks heima- gerðri harðstjórn. Sagan er snúin og fjölskrúðug, en Kurniawan segist ekki hafa lagst í miklar sögulegar rannsóknir til að byggja upp sögu- sviðið. „Ég var alæta á bækur þegar ég var í háskólanum og hafði mikinn áhuga á sagnfræði. Ég las líka mikið af þjóðsögum og sótti leikhús og fór á fyrirlestra. Það var þó fyrst og fremst mér til skemmtunar, ég sá það ekki fyrir að ég myndi nýta þessa þekkingu, en hún kom að góð- um notum.“ – Upphaf bókarinnar er óneit- anlega sláandi, eins og klippt út úr hryllingsmynd. „Þegar ég var táningur hafði ég mikið dálæti á hryllingssögum. Ég ætlaði líka að skrifa slíka sögu en með sögu Indónesíu í huga og mig langaði einnig að flétta inn í hana samfélagsgagnrýni. Hryllingssagan var svo sterk að hún átti fyrstu máls- greinina, en svo fór sagan af stað í aðrar áttir. Ég skipulagði skrifin ekkert, byrjaði bara að skrifa og svo leiddi hvað af öðru. Þegar ég var bú- inn með handritið skrifaði ég söguna aftur og svo aftur og aftur og smám saman varð hún að þeirri bók sem svo var gefin út.“ – Konur eru helstu fórnarlömb í bókinni, þeim er nauðgað, þær eru pyntaðar og þær eru drepnar. „Það vakti tvennt fyrir mér þegar ég byrjaði á bókinni. Í þeim grúa af sagnfræðiritum sem ég hef lesið er næstum alltaf verið að segja sögu karla, segja frá því við hvaða karla þeir börðust, hvað þeir gerðu eða hvað kom fyrir þá. Saga Indónesíu er saga indónesískra karla. Ég spurði sjálfan mig: Hvar eru kon- urnar? og fór að leita að þeim. Sög- urnar sem ég fann voru af konum sem voru í vonlausum aðstæðum, konum sem var nauðgað og konum sem þvingaðar voru í vændi af her- námsliði. Þær sögur eru sjaldan sagðar upphátt og mig langaði til að segja sögu um konur sem eru fórn- arlömb stríðs og ofbeldis. Hin ástæðan er að mig langaði að nota sögu Dewi Ayu til að segja sögu ljótu dótturinnar sem byggist á sögu móður minnar af nágranna hennar sem var ófrísk og langaði til að eign- ast fallegt barn. Eins og mamma rakti söguna bað þessi ófríska kona til guðanna um að barn hennar, sem hún var viss um að yrði drengur, yrði eins fallegt og Arjuna í Ma- habharata. Þegar barnið svo fæddist sagði fólk að vissulega væri það eins fallegt og Arjuna, en ekki Arjuna söguljóðsins, heldur Arjuna brúðu- leikhússins. Þessi saga var mér mjög eftir- minnileg og mig langaði því að nota hana en snúa henni svo að í stað þess að móðirin óski þess að barnið verði fallegt kjósi hún að það verði ljótt. Þar sem sagan snýst um móður þá hlaut aðalpersóna bókarinnar að verða kona.“ – Hvernig var bókinni tekið í Indónesíu? „Hún kom út þar 2002 á vegum lít- illar útgáfu og vakti enga sérstaka athygli. Eftir að hún kom út á ensku fór fólk að taka eftir henni og hún fór að seljast mun betur. Það er mik- il gróska í indónesískum bók- menntum, en þá aðallega meðal þeirra sem hafa áhuga á bók- menntum. Almenningur sýnir bók- um lítinn áhuga og lestur almennt er ekki útbreiddur. Það er helst að fólk lesi spennu- og ástarsögur, en hinn dæmigerði indónesíski lesandi er táningur sem les hryllingssögur.“ Dewi Ayu rís úr gröfinni  Verðlaunahöfundurinn Eka Kurniawan var gestur á Bókmenntahátíð í Reykjavík  Skáldsaga hans, Fegurð er sár, kom út á íslensku í tilefni af heimsókninni  Langaði að segja sögu um konur Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hryllingur Í Fegurð er sár langaði Eka Kurniawan að segja sögu af konum sem eru fórnarlömb stríðs og ofbeldis. Fyrsta sýning Myrkra, nýstofnaðs kvikmyndaklúbbs gallerísins Kling & Bang í Marshall-húsinu, verður haldin í kvöld kl. 21.15 á annarri hæð hússins en boðið verður upp á reglulegar kvikmyndasýningar á vegum klúbbsins í vetur á völdum heimildarmyndum og tilrauna- kenndum kvikmyndum eftir nokkra af áhugaverðustu kvik- myndagerðarmönnum samtímans og verða sýningarnar opnar al- menningi. Í kvöld verður sýnd kvik- myndin Two years at sea eftir Ben Rivers og stuttmyndin A subse- quent fulfillment of a pre-historic wish eftir Johannes Gierlinger. Að- gangur er ókeypis en tekið verður á móti frjálsum framlögum sem munu renna beint til leikstjóranna. Að kvöldinu standa Yrsa Roca Fannberg, Ragnheiður Gestsdóttir og Bryndís Hrönn Ragnarsdóttir. Á sjó Úr kvikmyndinni Two years at sea. Kvikmyndaklúbbur í Kling & Bang Hollenska prog-rock-hljómsveitin Focus er komin til landsins í annað sinn og heldur tónleika í kvöld á Hard Rock Café í Lækjargötu, ann- að kvöld á Græna hattinum á Akur- eyri og í Egilsbúð í Neskaupstað á laugardaginn. Hljómsveitin kom hingað til lands fyrir tveimur árum og lék þá á Græna hattinum. Focus er ein þekktasta hljómsveit Hol- lands, hefur gefið út 10 hljómplötur og vinnur nú að þeirri elleftu. Hressir Félagarnir í hollensku progg-rokksveitinni Focus. Focus heldur þrenna tónleika á Íslandi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.