Morgunblaðið - 21.09.2017, Síða 25

Morgunblaðið - 21.09.2017, Síða 25
FRÉTTIR 25Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2017 upplifað að vera greind með geð- sjúkdóm segir hún það hafa verið reiðarslag. „Þetta sló mig. Ég vildi ekki viðurkenna þetta til að byrja með. Stundum skammaðist ég mín. Núna er viðhorf mitt annað, ég veit að þetta er eins og hver annar sjúkdómur og ég þarf að finna leið- ir til að lifa með því. Mér finnst mér hafa tekist ágætlega til við það.“ Hrefna segist stundum finna fyr- ir fordómum. „Sumir virðast ekki líta á þetta sem sjúkdóm, heldur eitthvað sem ég geti hrist af mér eða losnað við með því að fara út að ganga. Aðrir halda að ég sé á ör- orkubótum vegna þess að ég nenni ekki að vinna. Eins og það sé eitt- hvað sérstaklega eftirsóknarvert að vera ekki á vinnumarkaði. Það geta allir orðið öryrkjar, því miður er það bara þannig. Svo eru margir sem þora ekki að spyrja mig út í sjúkdóminn, vita ekki hvernig þeir eiga að koma orðum að þessu.“ Þurfti að hætta í boltanum Eftir greininguna reyndi Hrefna hvað hún gat að halda áfram í fót- boltanum, bæði að spila og þjálfa. „En ég varð að hætta 2009, ég var orðin það veik. Síðan reyndi ég af og til og spilaði síðast 2012. Ég datt ekki bara út úr íþróttinni sjálfri, heldur líka út úr fé- lagsskapnum og öllu sem var í kring. Það var erfitt.“ Hrefna á tvær dætur, sú yngri er fimm ára, sú eldri er 11 ára og býr hjá föður sínum. Að auki á hún tvö stjúpbörn og eitt stjúpömmubarn. Þegar Hrefna veiktist fyrst tóku foreldrar hennar eldri dóttur henn- ar að sér um tíma og þegar Hrefna og núverandi eiginmaður hennar fluttu til Danmerkur varð úr að hún myndi búa hjá föður sínum. Hrefna segir dóttur sína vel með- vitaða um veikindi móður sinnar, en hún hafi ekki rætt sjúkdóminn við hana í smáatriðum. „Ég er ekki viss um að hún myndi átta sig á í hverju þetta felst. En sá tími mun koma að ég ræði þetta við hana.“ Hefur oft farið í afneitun Ertu reið eða ósátt? Spyrðu ein- hvern tímann: Hvers vegna ég? „Ég gerði meira af því áður. En það sem mér finnst mest læknandi og hefur hjálpað mér einna mest er að hlæja. Veistu, það þýðir ekki að taka þetta of alvarlega, ekki frekar en nokkuð annað. Ef ég gerði það, þá liði mér alltaf illa.“ Hefurðu einhvern tímann farið í afneitun? „Já, oft. Oft og mörgum sinnum. En það er best að horfast í augu við þetta. Það sem ég hef alltaf gert, alla tíð frá því ég veikt- ist, er að ég hef reynt að fá alla þá aðstoð sem er í boði. Ég hef ein- blínt á að gera allt sem ég get til að fá lækningu og líða betur. Að veikjast hefur haft gríðarlega mikil áhrif á líf mitt. Það sem mig lang- aði til að gera varð ekki að veru- leika. Það er fyrst núna, níu árum eftir að ég veiktist fyrst, sem ég sé fram á að fara að fást við það sem mig langaði til að gera þá. Ég myndi t.d. treysta mér til að fara að þjálfa og ég væri tilbúin að miðla af reynslu minni varðandi það að lifa með geðsjúkdómi. Það þarf að opna umræðuna enn frek- ar.“ Vill miðla af reynslu sinni Geturðu ennþá eitthvað í fót- bolta? „Já og nei. Ég spila með liði hér í bænum þar sem ég bý. Þar eru nokkrir ellismellir eins og ég, sumar eru talsvert yngri, en ég kann nú samt hitt og þetta sem þær kunna ekki,“ svarar Hrefna hlæjandi. „En ég bý að allri þess- ari reynslu og ég er bjartsýn á að ég finni leið til að koma henni á framfæri og hjálpa öðrum. Það er það sem mig dreymir um að geta gert.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Bikarnum hampað Hrefna, sem var fyrirliði KR, tók á móti bikarnum eftir að KR sigraði lið Vals 4-0 í úrslitaleik deildarbikarkeppni KSÍ árið 2008. Hrefna lék tíu A-landsleiki árin 2000-2005 og skoraði samtals þrjú mörk í þeim. Því til viðbótar spilaði hún sex leiki í EM í knattspyrnu og skoraði þar samtals fimm mörk. Hún spilaði líka fjölda leikja með U-21 árs, U-19 ára og U-17 ára landsliðum. Lengst af lék Hrefna með KR og lék sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir félagið aðeins 15 ára gömul. Hún spilaði einnig með ÍBV, Breiðabliki, Þrótti Reykjavík og Aftureldingu og skoraði samtals 179 mörk í 220 leikj- um. Á farsælum ferli sínum fékk Hrefna ýmsar viðurkenningar. M.a. var hún valin nýliði ársins í bandaríska kvennaháskólafótboltanum þegar hún var við háskólanám í Montgomery í Alabamaríki og var líka valin nýliði ársins hér heima árið 1996. Hún var markahæst á U-21 móti Norð- urlandaþjóða eitt árið og fékk gullskóinn árið 2003 fyrir að skora flest mörk og það var ekki ómerkari maður en franska knattspyrnugoðsögnin Michel Platini sem afhenti henni hann. Farsæll fótboltaferill Hrefnu VERÐLAUN, VIÐURKENNINGAR OG MARKAMET Gullskórinn Hrefna skoraði 21 mark í Landsbankadeild kvenna 2003 og fékk gullskóinn. Knattspyrnugoðsögnin Michel Platini afhenti henni viðurkenninguna. Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Við flytjum snilligáfu til þeirra sem rækta hana 16 -2 68 8 – H VÍ TA H Ú SI Ð /S ÍA VIÐ KOMUM ÞVÍ TIL SKILA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.