Morgunblaðið - 21.09.2017, Page 20

Morgunblaðið - 21.09.2017, Page 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2017 BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Unnsteinn Snorri Snorrason, fram- kvæmdastjóri Landssamtaka sauð- fjárbænda (LS), segir aukna sölu á lambakjöti síðustu mánuði „að sjálf- sögðu minnka fyrirséðan birgða- vanda eftir núverandi haustslátrun“. Tilefnið er 48% aukning í neyslu lambakjöts innanlands í ágúst (723 tonn) og 131% aukning útflutnings (225 tonn). „Síðustu ár hefur útflutn- ingur verið um 3.500 tonn. Á næsta ári er gert ráð fyrir að flutt verði út um 1.500 tonn á markaði sem borga viðunandi verð. Afgangurinn, eða um 2.000 tonn, er sá birgðavandi sem rætt er um. Sá vandi minnkar því úr u.þ.b. 2.000 tonnum í 1.800 tonn með góðri sölu í ágúst,“ segir Unnsteinn. Rætur markaðsbrestsins Unnsteinn segir útflutningsverð á lambakjöti hafa lækkað úr 660 kr/kg í fyrra í 450 kr/kg í ár. Miðað er við svo- nefnt fob-verð, verð vörunnar komið um borð í flutningsfar í útflutnings- landi. Þar sé að finna þann forsendu- brest sem orðið hafi í útflutningi á lambakjöti, sem aftur hafi leitt til þeirrar lækkunar á afurðaverði sem nú er orðin raunin. Hann segir að- spurður að lækkun afurðaverðs til bænda á lambakjöti úr 543 krónum í fyrra í 369 krónur fyrir sláturtíðina í ár hafi miklar afleiðingar. „Ef þetta verður raunin verður ekkert sauðfjárbú rekið með hagnaði fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta. Þetta er orðinn alltof stór biti. Það er ekki lengur borð fyrir báru,“ segir Unnsteinn Snorri. Það stefni að óbreyttu í gjaldþrot hjá mörgum sauðfjárbændum. Hann segir mikla óvissu um fram- haldið eftir aukafund LS í fyrradag. Þar hafi Þorgerður Katrín Gunnars- dóttir, fráfarandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, mætt og rætt málin í Bændahöllinni. Ljóst sé að áform fráfarandi ríkisstjórnar í mál- efnum sauðfjárbænda séu komin á ís. Því verði t.d. líklega ekki af fyrir- huguðum niðurskurði á fé í haust. Ályktaði fundurinn að bændum yrði bætt upp tekjuskerðing með sérstöku 650 milljóna króna framlagi, sem mið- aðist við innlögð kíló dilkakjöts árið 2017. Skilyrðið er að viðkomandi hafi fleiri en 100 vetrarfóðraðar kindur. Upphæðin samsvarar því framlagi sem fráfarandi ríkisstjórn hugðist verja til að hvetja til niðurskurðar á fé (4.000 króna uppbót á kind sem kemur til slátrunar), álagsgreiðslna vegna kjaraskerðingar og álagsgreiðslna tengdra búsetu. Vandinn ekki verið leystur Spurður hvort bætt birgðastaða kalli á endurskoðun á afurðaverði til bænda segir Unnsteinn Snorri var- hugavert að draga þá ályktun, þótt hún hjálpi verulega til. Vandamálið sé fjarri því að vera leyst. Verð til bænda hafi einmitt lækkað svo afurðastöðvar geti flutt út þá framleiðslu sem verður til nú í haust. Unnsteinn Snorri segir hins vegar ekki loku fyrir það skotið að bændur fái greitt uppbótarverð á verðskrá haustsins ef skilaverð fyrir útflutning verði betra en nú horfir við. Fyrir því séu þó engar tryggingar. Hann rifjar upp að 1. október í fyrrahaust hafi birgðir af kindakjöti verið um 7.500 tonn, eða 700 tonnum meiri en árið áður. „Það var því verk- efni ársins 2017 að takast á við þá stöðu. Það var farið í aðgerðir til að efla útflutning sem skiluðu okkur lík- lega um 700 tonnum í útflutning sem annars hefði ekki orðið. Áhrif af þess- um aðgerðum sjást meðal annars á því að við vorum með sterkan útflutn- ing í ágúst.“ Vandinn var fyrirséður Að sögn Unnsteins telja afurða- stöðvarnar æskilegt að birgðir af lambakjöti séu 600-800 tonn fyrir upphaf sláturtíðar. Til samanburðar hafi birgðirnar farið niður í 600 tonn árið 2012. Þau mörk fari nærri skorti á sumum vöruliðum, enda sé mánað- arneyslan um 500-600 tonn. Birgðirn- ar séu nú um 1.100 tonn af lambakjöti og muni aukast í 6.500-7.500 tonn eftir núverandi sláturtíð, sem sé svipað og eftir sláturtíðina 2016. Unnsteinn Snorri segir að í janúar sl. hafi afurðastöðvarnar séð fyrir þann vanda sem nú blasir við í út- flutningi eftir sláturtíðina í haust. „Lækkandi verð á heimsmarkaði og styrking krónunnar hefur unnið gegn okkur. Því fóru Bændasamtökin og Landssamtök sauðfjárbænda þeg- ar í mars að ræða við ríkisvaldið um aðgerðir til að forða því að verðhrun yrði á skilaverði til bænda.“ Rætt um sveiflujöfnun Bændur hafi lagt til tvær mögu- legar leiðir til að takast á við þennan vanda. Annars vegar sveiflujöfnun á birgðum, sem er útfærsla á útflutn- ingsskyldu. Með sveiflujöfnun sé hægt að takast á við markaðsbrest með því annars vegar að skylda bændur til að flytja út kjöt og hins vegar með því að ríkið kaupi vöruna af markaði. Hvort tveggja skapi jafn- vægi í framboði og eftirspurn. Unnsteinn Snorri rifjar svo upp að slík verkfæri séu fyrir hendi í ná- grannalöndum. Evrópusambandið hafi til dæmis gripið inn í mjólkur- markaðinn í ESB fyrir tveimur árum með því að kaupa upp mjólkurduft. Það hafi varnað frekara verðhruni og fjöldagjaldþrotum. Skv. tölum Hagstofu Íslands hefur verð á lambakjöti, sem er nýtt eða frosið, hækkað um rúm 25% frá 2008. Sú niðurstaða er fengin áður en verð- lækkanir fyrir sláturtíðina komu til framkvæmda. Til dæmis hefur lands- meðaltalið á afurðaverði á lambakjöti til bænda lækkað um rúm 33% milli ára. Vegna forsendubrests í útflutn- ingi og þ.a.l. offramboðs er hætta á frekari verðlækkunum innanlands. Greiða 20% meira en aðrir Haft var eftir Steinþóri Skúlasyni, forstjóra SS, í Morgunblaðinu á fimmtudag að birgðastaða á lamba- kjöti væri betri en óttast var. Stór þáttur í því væri útflutningur um 800 tonna frá því í vor, þegar samstilltu markaðsátaki var ýtt úr vör. Steinþór segir SS greiða um 20% hærra skilaverð til bænda í ár en aðr- ar afurðastöðvar séu yfirborganir og staðgreiðsla talin með. „Lækkun birgða er mjög jákvæð en hún breytir ekki grundvallar- ástæðu þess að verð hefur lækkað. Að öðru jöfnu er ekki við því að búast að SS auki verðmuninn sem fyrir er og hækki verð umfram það sem nú er,“ segir Steinþór og nefnir til saman- burðar að SS hafi greitt 5-7% meira en aðrar afurðastöðvar í fyrra. „Það þarf að flytja út um 35% af lambakjötsframleiðslunni í landinu og verðið erlendis er miklu lægra en inn- anlands. Þetta hefur ekkert breyst. Þessir kraftar halda verðinu niðri.“ Steinþór segir aðspurður að „mjög há birgðastaða hefði keyrt verðið enn frekar niður“. Verðfallið sé þegar orðið gríðarlegt. Allt að 50% verðlækkun Samkvæmt tölum frá SS og út- reikningum blaðsins hefur meðalverð sem SS greiðir fyrir kindakjöt lækkað um tæp 24% milli ára að raunverði, eða úr 534 krónum í 406 krónur á verðlagi nú. Þá má nefna að verðið var 608 krónur árið 2014, eða um 50% hærra en nú. Spurður hver ætla megi að birgðastaðan verði eftir sláturtíð segir Steinþór að lauslega áætlað verði hún um 9.700 tonn í byrjun nóv- ember. Samkvæmt upplýsingum frá Landssamtökum sauðfjárbænda lækkaði útflutningsverð á lambakjöti úr 660 krónum kílóið í fyrra í 450 krónur í ár, eða um 32%. Steinþór segir varhugavert að draga of miklar ályktanir út frá slík- um tölum. Fluttar séu út mismunandi afurðir af kindakjöti, með og án beins. Til dæmis sé flutt út mikið af slögum, sem séu á lægra verði en heilir skrokkar. Þá sé mikið flutt út af fram- pörtum og lærum. Þurrkaði upp eigið fé Steinþór segir afurðastöðvarnar hafa hagrætt mikið. „Það hefur gert þeim kleift að borga bændum meira en varan hækkaði á markaði. Síðan kom að því að afurðastöðvarnar borg- uðu meira en markaðurinn gaf. Þá fóru þær að klára sitt eigið fé. Það var að gerast á afurðaárinu sem lauk í ágúst. Nú er komin mikil verðlækkun. Við eigum eftir að sjá mál þróast en mikilvægt er að draga úr framleiðslu til að verð hækki á ný til bænda.“ Bændurnir þyrftu að fá uppbót  Landssamtök sauðfjárbænda álykta að bændur verði að fá hækkun á afurðaverði  Óvissa eftir stjórnarslit  Forstjóri SS segir afurðastöðvar hafa tapað eigin fé á að borga meira en markaður leyfði Morgunblaðið/Sigurður Bogi Offramleiðsla Lögmál framboðs og eftirspurnar hafa þrýst niður verði á lambakjöti. Útlit er fyrir enn frekari verðlækkanir á næstunni. Afurðaverð á kinda- kjöti hjáSStil bænda 2002 til 2017 Meðalverð sem SS hefur greitt fyrir kindakjöt hvert ár Á verð- lagi nú* 2002 229,5 458 2003 192,7 376 2004 215,2 407 2005 293,6 534 2006 302,2 515 2007 313,1 508 2008 363,7 525 2009 397,4 512 2010 401,4 491 2011 488,8 575 2012 541,1 605 2013 561,4 604 2014 577,1 608 2015 562,2 583 2016 534 545 2017 406 406 Breyting á raunverði frá 2008 -22,6% frá 2016 -25,5% *Miðað við breytingu á vísitölu neysluverðs. Reiknað er út frá meðaltali ársins og vísitölunni í ágúst sl. Heimildir: Sláturfélag Suðurlands, SS. 600 500 400 406 608 2002 2005 2008 2011 2014 2017 kr./kg* Afurðaverðá lamba- kjöti hjáLStil bænda 2008 til 2017 LS – landsmeðaltal afurðaverðs fyrir lambakjöt Á verð- lagi nú* 2008 380 548 2009 400 515 2010 421 515 2011 502 590 2012 550 615 2013 594 639 2014 600 633 2015 604 627 2016 543 554 2017 369 369 Breyting á raunverði frá 2008 -32,7% frá 2016 -33,4% *Miðað við breytingu á vísitölu neysluverðs. Reiknað er út frá meðaltali ársins og vísitölunni í ágúst sl. Heimild: Landssamtök sauðfjárbænda. Heimild: Vísitala neysluverðs, undirliður. 600 500 400 369 639 2008 2011 2014 2017 2008 2011 2014 2017 kr./kg* 130 100 Vísitala neysluverðs frá 2008 Lambakjöt, nýtt eða frosið 125,3 99,3 Steinþór Skúlason Unnsteinn Snorri Snorrason Birgðir af lambakjöti á Íslandi Kg Heimild: Matvælastofnun 8.000.000 7.000.000 6.000.000 5.000.000 4.000.000 3.000.000 2.000.000 1.000.000 0 desember nóvember október september ágúst júlíjúní maí apríl mars febrúar janúar 2012 2013 2014 2015 2016 2017 LAUGAVEGI 24 - 101 REYKJAVÍK SÍMI: 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - 600 AKUREYRI SÍMI: 462 4646 GENUINE SINCE 1937

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.