Morgunblaðið - 21.09.2017, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 21.09.2017, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2017 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Eftir þvísem dag-arnir líða kemur betur í ljós hve illa Björt framtíð hljóp á sig aðfaranótt síðastliðins föstu- dags þegar hún sendi í ofboði frá sér yfir- lýsingu um að hún væri hætt þátttöku í ríkisstjórnarsam- starfi. Þær ásakanir sem þá komu fram hafa reynst hald- lausar með öllu og ástæð- urnar fyrir brotthlaupinu í besta falli óljósar en í versta falli svívirðilegar rang- færslur. Til marks um þetta má hafa opinn fund stjórnskip- unar- og eftirlitsnefndar í vikunni þangað sem Sigríður Andersen dómsmálaráð- herra mætti til að svara fyrirspurnum nefndar- manna um málefni sem tengjast uppreist æru, en eftir því sem næst verður komist virðist næturfundur Bjartrar framtíðar fyrir tæpri viku hafa snúist um þau mál. Hið undarlega er að eftir öll stóryrðin og brotthvarfið úr ríkisstjórnarsamstarfinu gerðist ekkert á fyrrnefnd- um opnum fundi sem gat réttlætt atburðarás daganna á undan. Dómsmálaráðherra mætti til að svara spurn- ingum um mál sem átti að vera stórmál, en nefndar- menn, sem mættu vígreifir og byrjuðu fundinn á því furðuverki að kjósa sér nýj- an formann, höfðu ekkert til málanna að leggja og engar spurningar til ráðherrans sem talandi er um. Ráðherrann útskýrði mál- in ágætlega eina ferðina enn og vera má að það hafi gagnast einhverjum við- staddra sem ekki höfðu þeg- ar áttað sig á efnisatriðum. En fundurinn opni skilaði þó aðallega þeim árangri, ef svo má segja, að staðfesta að Björt framtíð hafði hlaupist frá ríkisstjórnarsamstarfi án nokkurs tilefnis og að við- hengið Viðreisn hafði elt endaleysuna með marg- víslegum stóryrðum án nokkurrar innistæðu. Allt er þetta mikið áhyggjuefni fyrir lands- menn sem nú standa frammi fyrir því að fara í gegnum kosningabaráttu í annað sinn á einu ári og í framhaldi af því stjórnar- myndun, sem gæti orðið ekki síður erfið en sú síðasta, og gætu eftir það setið uppi með veika, margflokka ríkis- stjórn sem hefði ekki burði til að sameinast um neitt nema lægsta sam- nefnarann. Hætt er við að þá verði lægsti samnefnarinn venju fremur lágur. Og reynsla kjósenda, sem einn- ig eru skattgreiðendur og notendur þjónustu hins opinbera, er sú að samnefn- arinn sé iðulega ekki mjög beysinn. Við þessar að- stæður eru allar líkur á að til verði ríkisstjórn sem hækk- ar álögur og sóar fé í fjöl- breytt og rándýr gæluverk- efni sem nauðsynleg eru talin til að halda mörgum og ólíkum flokkum og flokks- brotum saman við ríkis- stjórnarborðið. Því miður er það svo að áhrif þeirrar upplausnar sem Björt framtíð, Viðreisn og aðrir vinstriflokkar bjóða nú upp á eru þegar farin að koma í ljós. Fyrstu viðbrögð urðu á fjármálamörkuðum þar sem þátttakendur kipptu að sér höndum og verð lækkaði. En sú óvissa sem pólitísku upplausnar- ástandi fylgir sést víðar en á fjármálamörkuðum þó að auðveldast sé að mæla hana þar til að byrja með. Áhrifin koma líka fram í hefðbundn- um fyrirtækjarekstri með því að eftirspurn minnkar þegar fólk fer að halda fast- ar um budduna af ótta við hækkandi skatta og versn- andi hag. Og þessi minnk- andi eftirspurn verður til þess að það hægist á í at- vinnulífinu sem aftur veldur minni eftirspurn eftir starfs- fólki og minnkandi svigrúmi til að hækka laun. Þannig meðal annars hefur upp- lausnarástandið bein áhrif á afkomu heimilanna í land- inu. Það dettur engum í hug, sem fylgist með umræðum margra þeirra sem nú sitja á þingi, að þeir geri sér nokkra grein fyrir því að ábyrgðarleysi þeirra kunni að kosta almenning kjara- rýrnun. En vonandi áttar al- menningur sig á því að upp- lausnarstjórnmálin eru ekki ókeypis. Opni nefndarfund- urinn staðfesti að Björt framtíð hafði hlaupið illa á sig og að aðrir hlupu á eftir í óvitaskap} Upplausnin er ekki ókeypis Þ að eru erfiðir tímar framundan fyrir fólk eins og mig, sem hefur varla nokkurn áhuga á íslenskri pólitík. Ekki er liðið ár frá síðustu þingkosningum og núna á að end- urtaka leikinn með tilheyrandi karpi í öllum fjölmiðlum og endalausum rifrildum á Face- book. Síðan verða sveitarstjórnarkosningar haldnar strax næsta vor – ó mig auman! Mér leiðist líka Evróvisjón, og af svipuðum ástæðum: valkostirnir eru ósköp óáhugaverð- ir, boðið upp á fátt annað en ófrumlegar klisj- ur, drama, bjánaskap og miðjumoð. Lögin eru hvert öðru lík, fara inn um annað eyrað og út um hitt, og yfirleitt verður allur þorri fólks hundfúll með niðurstöðu atkvæðagreiðsl- unnar. En kannski er það sem þarf að almennileg- ur frambjóðandi stígi fram í sviðsljósið: hvenær fáum við smá ABBA í stjórnmálin? Hvar er Julio Iglesias? Hvar er Celine Dion? Hvar eru Stefán & Eyfi íslenskra stjórnmála? Ég myndi jafnvel gera mér Dönu Inter- national að góðu. Hvernig getur nokkur maður verið sérstaklega spenntur fyrir þeim flokkum sem eru í boði í dag? Auðvitað er smekkur fólks á flokka misjafn, rétt eins og smekkur fólks á tónlist. Þeir sem vilja heyra sama gamla raulið um aukin ríkisafskipti, fyrirgreiðslur og gjafir munu hafa úr um það bil tólf stjórnmálaflokkum að velja á kjörseðlinum í október. Við hin sem viljum há- marka frelsið og smækka ríkið eigum erfitt með að finna okkur flokk við hæfi. Eðlileg- ast væri fyrir hörðustu aðdáendur frjáls- hyggju að sitja heima eða skila auðu, þó margir láti tilleiðast að gefa Sjálfstæðis- flokki, Viðreisn eða Pírötum atkvæði sitt, því þótt þeim hugnist ekki bandið geðjast þeim að einhverjum bakraddarsöngvar- anum sem fær stundum að láta ögn í sér heyra. En það þarf meira en eina litla bakrödd í La det swinge. Eins og margir aðrir róttækir frjáls- hyggjumenn furða ég mig á því að alvöru frjálshyggjuframboð hafi ekki litið dagsins ljós. Ef íslenskum stjórnmálaflokkum er raðað á pólitíska kompásinn blasir við að stór skiki er óvaldaður frelsismegin á átta- vitanum. Ég get varla verið sá eini sem myndi glaður greiða atkvæði með alvöru „lokum-helvítis-búllunni-og- skellum-í-lás“ frjálshyggjuflokki. Kannski eru frambærilegustu anarkó-kapítalistarnir of uppteknir við að græða pening og njóta lífsins til að standa í því stappi að stofna flokk. Eða ef til vill eru þeir löngu fluttir úr landi, á einhvern yndislegan stað þar sem skattar eru lágir, regluverkið smátt og ríkið ekki að skipta sér af löstum og lífsstíl borgaranna. Við þá sem hafa fundið þetta draumaland segi ég eins og Charlotte Nilsson hér um árið: „Take me to your heaven, hold on to a dream“. ai@mbl.is Ásgeir Ingvarsson Pistill Þegar allir syngja sama lagið STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Guðni Einarsson gudni@mbl.is Sérstakt átak í skimun fyrirlifrarbólgu C stendur til22. september. Þeir semeru í aukinni áhættu að hafa smitast af sjúkdómnum eru hvattir til að fara í greiningarpróf sem má fá á öllum heilsugæslu- stöðvum. Auk þess er nú boðið upp á hraðgreiningarpróf á höfuðborg- arsvæðinu. Munnstrok eða blóð- dropi nægir í þeim tilvikum og fást niðurstöður á 20-40 mínútum. Hraðgreiningarprófin eru gerð á Landspítalanum, Göngudeild 10E við Hringbraut og Göngudeild A3 í Fossvogi og á Sjúkrahúsinu Vogi frá kl. 8-16. Einnig í bíl Rauða krossins, Frú Ragnheiði, kl. 18-21 og á opnu húsi hjá Samtökunum ’78, Suðurgötu 3, í dag kl. 17-21. Hrað- greiningarprófin eru fólki að kostn- aðarlausu meðan á átakinu stendur. Þeir sem eru í mestri áhættu að fá lifrarbólgu C eru þeir sem hafa sprautað sig með fíkniefnum í æð. Um 90% þeirra sem greinst hafa hér á landi eru úr þeim hópi. Einnig eru í aukinni áhættu þeir sem fengu blóðgjöf, storkuþætti eða ígrædd líffæri fyrir 1992, þeir sem eru með HIV, þeir sem eiga maka sem smitaður er af lifrarbólgu C og karlmenn sem hafa haft mök við aðra karlmenn. Um 600 manns hafa þegið lyfjameðferð gegn lifrarbólgu C frá því að opinbert þriggja ára átak hófst í ársbyrjun 2016. Að verkefn- inu vinna íslensk heilbrigðisyfirvöld og lyfjaframleiðandinn Gilead sem leggur til lyfin. Talið er að þegar hafi náðst til 70-80% þeirra sem eru smitaðir hér á landi. Um 95% þeirra sem luku meðferð á fyrsta ári átaksins læknuðust. Landspítalinn annast framkvæmd verkefnisins og aðalsamstarfsaðili hans er sjúkra- húsið Vogur. Sóttvarnalæknir hefur haft yfirumsjón með verkefninu. Greina þarf sjúkdóminn Sigurður Ólafsson, sérfræði- læknir og stjórnandi átaksins, sagði ekki tök á að bjóða upp á hraðgrein- ingarprófið annars staðar en á höfuðborgarsvæðinu að þessu sinni. Prófið er sérhæft og þarf að þjálfa starfsfólk til að gera það. Allar heilsugæslustöðvar geta hins vegar greint hvort fólk er smitað af lifrar- bólgu C með blóðprufu. Sjúkrahúsið Vogur hefur frá upphafi skimað sjúklinga, sem hafa notað vímuefni í æð, fyrir lifrar- bólgu C. Þeir eru stærsti áhættu- hópurinn. Talið er að menn fari nærri um heildarfjölda þeirra sem kunna að vera smitaðir hér á landi og að sá hópur sé um 800 manns. Áætlað er að allt að 20% hinna smit- uðu séu enn ógreind. Mikilvægt er að greina sem flesta sem smitast hafa af lifrabólgu C og bjóða þeim meðferð. Sjúkdómurinn er oft ein- kennalaus. „Fólk getur verið með þetta áratugum saman án þess að finna fyrir einkennum,“ sagði Sigurður. „Við höfum dæmi þess að fólk grein- ist fyrst þegar það er komið með skorpulifur og jafnvel lifrarbilun á lokastigi.“ Aðrir geta verið með ein- kenni eins og þreytu og úthaldsleysi án þess að gera sér grein fyrir því hvað valdi. Meðferðin gegn lifrarbólgu C fer fram á Landspítalanum og sjúkrahúsinu Vogi sem hef- ur meðhöndlað um þriðjung sjúklinganna sem hafa fengið meðferð. Ráðgert er að bjóða einnig upp á meðferð á Sjúkra- húsinu á Akureyri. Eins og meðferðin er núna er tekin ein tafla á dag í tólf vikur. Aukaverkanir eru engar eða vægar. Stórkostlegur árang- ur gegn lifrarbólgu C Morgunblaðið/Ásdís Lifrarbólga C Þeir sem sprautað hafa fíkniefnum í æð eru helsti áhættuhóp- urinn gagnvart því að smitast af þessum lúmska sjúkdómi. „Algerlega frábært“ eru orðin sem Valgerður Á. Rúnarsdóttir, yfirlæknir og forstjóri Sjúkra- hússins Vogs, notaði um ár- angurinn af meðferðinni sem nú er beitt gegn lifrarbólgu C. „Í fyrsta lagi er frábært að meðferðin bjóðist öllum. Í öðru lagi að meðferðin sé svona létt fyrir sjúklinginn og í þriðja lagi að 95% þeirra sem ljúka með- ferð læknast,“ sagði Valgerður. Hún sagði að árangur af lækn- ismeðferð gerðist ekki mikið betri. Eldri meðferðir gegn sjúkdómnum hafi verið erfiðar og ekki jafn árangursríkar. Valgerður sagði að flestir sjúklinganna hefðu smitast við að sprauta vímuefnum í æð. Sumir bara einu sinni en aðrir oftar. „Margir í þessum hópi telja sig ekki eiga neitt gott skilið. Þetta er því mjög þakklátt verk- efni,“ sagði Val- gerður. „Algerlega frábært“ ÁTAK GEGN LIFRARBÓLGU C Valgerður Á. Rúnarsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.