Morgunblaðið - 21.09.2017, Síða 42

Morgunblaðið - 21.09.2017, Síða 42
42 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2017 Lífskjör aldraðra og öryrkja, sem eingöngu hafa tekjur frá al- mannatryggingum, eru óviðunandi. Það er engin leið að lifa af þessum lífeyri. Hann er svo lágur. Eldri borgari í sambúð eða hjónabandi hefur 197 þúsund krónur á mán- uði eftir skatt. Þetta er ekki prentvilla. Upp- hæðin er ekki hærri en þetta. Þessi upphæð dugar ekki fyrir nauðsyn- legustu útgjöldum enda langt undir neysluviðmiði velferðarráðuneyt- isins og meðaltalsútgjöldum ein- staklinga og heimila samkvæmt neyslukönnun Hagstofunnar. Það undarlega við þessar tölur er það, að þær eru tiltölulega nýjar eða frá síð- ustu áramótum. En þá voru sett ný lög um almannatryggingar eftir 10 ára undirbúningsstarf. Og niður- staðan fyrir aldraða og öryrkja var sú, sem skýrt er frá í upphafi þess- arar greinar. Hvers vegna? Hver er skýringin á því, að stjórnvöld halda lífeyri aldraðra og öryrkja svona niðri? Ekki hafa fengist svör við því. Áttu að vera viðbót við TR Kjör aldraðra sem hafa lélegan líf- eyrissjóð eru lítið betri. Algengt er að verkafólk og iðnmenntað fólk hafi 100 þúsund kr. úr lífeyrissjóði á mánuði. Þeir, sem eru betur settir í þessum hópi eru ef til vill með 150- 200 þúsund úr lífeyrissjóði á mánuði. En sjóðfélagar í þessum lífeyr- issjóðum sæta miklum skerðingum hjá almannatryggingum. M.ö.o.: Sá sem hefur lífeyri úr lífeyrissjóði má sæta því að lífeyrir hans hjá al- mannatryggingum sé skertur veru- lega. Útkoman er svipuð og að farið sé beint inn í lífeyrissjóðina og líf- eyrir þar skertur. Þegar lífeyrissjóð- irnir voru stofnaðir var því lýst yfir, að lífeyrissjóðirnir yrðu viðbót við almannatryggingar. Á það hafa eldri borgarar, sjóðfélagar, treyst. En við þetta hefur ekki verið staðið. Dæmi er um, að eldri borgari, sem aldrei hefur greitt neitt í lífeyrissjóð, hafi fengið jafnmikið frá al- mannatryggingum og sá sem alla tíð hefur greitt í lífeyrissjóð. Það er vegna skerðinganna. Skerðingin verði af- numin Byggst hefur upp mikil óánægja með lífeyrissjóðina síðustu árin. Ef ríki og alþingi koma ekki til móts við sjófélaga getur illa farið. Ég tel að stefna eigi að því að skerðing lífeyris sjóðfélaga hjá TR vegna lífeyr- issjóða verði afnumin. Það má gera í áföngum. En það verður að afnema skerðinguna. Síðan þarf líka að greiða sjóðfélögum til baka það sem tekið hefur verið af þeim síðustu ár og áratugi. Miðað við forsöguna tel ég, að það haf verið ólögmætt að skerða lífeyrisgreiðslur eldri borg- ara (sjóðfélaga) jafnmikið og gert hefur verið undanfarna áratugi.Það verður því að endurgreiða eldri borgurum þessar fjárhæðir. – Það skiptir engu máli þó endurgreiðslan verði kostnaðarsöm fyrir ríkið. Áður hefur ríkið sparað sér mikla fjár- muni með því að stunda umræddar skerðingar. Nú er komið að skulda- dögum hjá ríkinu. Ríkið endurgreiði öldruðum allar eldri skerðingar Eftir Björgvin Guðmundsson Björgvin Guðmundsson » Tel ég það hafa verið ólögmætt að skerða lífeyrisgreiðslur eldri borgara (sjóðfélaga) jafnmikið og gert hefur verið undanfarnin ár. Höfundur er fyrrverandi borgarfulltrúi. vennig@btnet.is Undanfarnar vikur hef ég fylgst með stoltum framhalds- skólanemum stíga sín fyrstu skref inn í full- orðinsárin. Halda af stað þessa valfrjálsu götu menntunar, and- litin lýsa af eftirvænt- ingu og stolti. Stolti yfir að hafa loksins val, val um skóla- göngu. Ég sé þau á leið til og frá skóla, sé þau í smáum og stórum hópum svo geislandi glöð. Þau eru svo lánsöm að búa á landi þar sem tryggt er með lögum að allt unga fólkið okkar hefur rétt til skóla- göngu í framhaldsskóla frá 16 til 18 ára aldurs, þ.e. í tvo vetur burtséð frá námsárangri, stöðu eða náms- getu. „Það er eitthvað svo „fullorð- ins“ að vera komin í framhalds- skóla,“ sagði ung stúlka við mig um daginn, ég tók brosandi undir það. Þessir sömu einstaklingar fylltu fréttaveituna mína á facebook í vor með útskriftarmyndum eftir tíu ára skyldunám í grunnskólum landsins, fram undan spennandi tímar með margvíslegum námstækifærum. Ég fylgdist á sama tíma með vini mínum sem átti þetta allt sameigin- legt með jafnöldrum sínum. Ég gladdist yfir útskriftarmyndinni þar sem hann stóð glaður við hlið bekkjarfélaga sinna. Ég skoðaði myndir úr útskriftarferð bekkjarins til Vestmannaeyja. Gleði og til- hlökkun á hverju andliti, já og stolt yfir að hafa lokið þessum stóra áfanga sem skyldunámið er. Bekkj- arfélagarnir höfðu fengið að sækja kynningu í þeim framhaldsskólum sem hugur þeirra stóð til og buðu upp á námsleiðir sem hentuðu þeim. Spennandi framtíðin lá við fætur þeirra. Eða hvað? Vinur minn fékk synjun um skólavist. Hvergi á höfuðborg- arsvæðinu finnst pláss fyrir hann í framhaldsskóla. Ástæðan er sögð vera plássleysi. Hann fæddist á Íslandi, hann er 16 ára, hann hefur sl. 10 ár mætt í grunn- skólann sinn, stundvís, sjaldan veikur og lagði sig allan fram í þeim verkefnum sem lögð voru fyrir hann. Hvernig má það vera að hann fái hvergi skólavist kann einhver að spyrja. Það er þó réttur hans samkvæmt 32. gr. VI. kafla í lög- um nr. 92, lögum um framhaldsskóla. Fyrsta málsgrein hljóðar svo: „Innritun, réttur til náms Þeir sem lokið hafa grunnskóla- námi, hafa hlotið jafngilda undir- stöðumenntun eða hafa náð 16 ára aldri eiga rétt á að hefja nám í framhaldsskóla. Þeir sem rétt eiga á að hefja nám í framhaldsskóla samkvæmt málsgrein þessari eiga jafnframt rétt á því að stunda nám í framhaldsskóla til 18 ára aldurs, sbr. ákvæði 2. gr. og 33. gr. Vinur minn heitir Óskar Gíslason og er með fötlun. Hann fékk ungur að árum greininguna dæmigerð ein- hverfa. Hann hefur nú setið heima í fjórar vikur og skilur að sjálfsögðu ekki hvers vegna hann fær ekki að sækja framhaldsskóla eins og aðrir. Óskar hefur ekki hátt, hann krefst ekki svara, hann fer ekki í fjölmiðla með málið, hann hringir ekki í ráðuneyti menntamála til að krefj- ast þess að réttindi hans séu virt og að farið sé að lögum, Óskar er ekki fær um það sökum fötlunar sinnar. Við sem stöndum honum næst þurf- um að aðstoða hann. Við þurfum að krefjast þess að lög og réttindi séu ekki brotin. Systir hans hefur talað máli hans, komið fram í fjölmiðlum og vakið máls á þessu mannrétt- indabroti. Faðir hans hefur sent tölvupósta, krafist svara og leitað leiða til að fá hlut hans réttan. Fólkið sem aðstoðar hann í daglegu lífi hefur einnig leitað svara og tjáð sig í fjölmiðlum. Enn situr þó vinur minn heima og er engu nær um það hvers vegna hann fær ekki að sækja skóla eins og aðrir. Ég, fyrir hönd þessa dýrmæta vinar míns, er bæði sár og reið. Tíminn líður hratt og það eru einungis þessi tvö ár sem hann hefur til að sækja fram- haldsskóla samkv. lögum. Lög eru margbrotin, ekki ein- göngu áðurnefnd lög um framhalds- skóla, heldur einnig lög nr. 59, lög um málefni fatlaðs fólks. Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks er brotinn. Ísland undirritaði samninginn hinn 30. mars 2007 og fullgilti hann 23. september 2016, sbr. þings- ályktun nr. 61 sem samþykkt var á 145. löggjafarþingi. Markmið samningsins er að efla, verja og tryggja full og jöfn mann- réttindi og grundvallarfrelsi fyrir allt fatlað fólk til jafns við aðra. „Hvar eru réttindi vinar míns? Hvers vegna eru þau ekki virt?“ Ég skora hér með á Kristján Þór Júlíusson menntamálaráðherra sem og skólameistara þeirra framhalds- skóla sem bjóða upp á sértækar námsbrautir fyrir nemendur með fötlun að svara þessum spurningum mínum og síðast en ekki síst; bjóða Óskar velkominn í framhaldsskóla hið allra fyrsta. Eru ungmenni með fötlun minna virði en ófötluð ungmenni? Eftir Ástu Sigríði H. Knútsdóttur »Hann hefur nú setið heima í fjórar vikur og skilur að sjálfsögðu ekki hvers vegna hann fær ekki að sækja fram- haldsskóla eins og aðrir. Ásta Knútsdóttir Höfundur er þroskaþjálfi. haukstein@gmail.com Með auknum straumi ferðamanna til Íslands ætti að vera gullið tækifæri til að hafa íslenskar afurðir á boðstólum alls staðar. Ferða- menn koma ekki að- eins til að skoða Gull- foss og Geysi – þeir vilja kaupa íslenskar lopapeysur, borða ís- lenskan mat og fá mynd af fólkinu sem býr á eyju úti í ballarhafi. En er raunin sú? Jú, það er ekki hægt að loka Gull- fossi eða íslenskri náttúru, en það er hægt að útiloka íslenskar hefð- ir. Þar eru ullarvörur fremstar í flokki sem gæðavara unnin af ís- lenskum konum. Það er svipað og að fara til Tyrklands og kaupa teppi sem ekki er innflutt frá Kína, það er tilfinningin fyrir fólk- inu sem hefur í aldir unnið þessa vöru – þetta er arfur þjóðar. Ís- lensk fyrirtæki mörg vilja kaupa lopapeysur frá Kína. Það er hægt að fá svo margfaldan hagnað af því. Íslenskir framleiðendur sem ekki geta eða vilja selja sína vöru sjálfir loka sínum fyrirtækjum. Ef bændur ætla að taka því að landið verði lagt í eyði þá verður auðvit- að engin ull til að vinna úr, engin íslenskt lambskinn, ekkert ís- lenskt kjöt. Íslenskt kjöt er nefni- lega, ásamt fiski, það besta sem erlendir ferðalangar fá. Þeir eru ekki komnir hing- að til að borða ham- borgara og erlent nautakjöt – þeir geta fengið það heima hjá sér. Það er með öllu óskiljanlegt að vit- firrtir ráðamenn skuli geta kollsteypt heilli þjóð og þjóðarhefðum. Hér er þjóð sem hefur þraukað gegn- um margt, en endilega látum flóttamenn taka við stjórninni. Út- lendir ferðamenn eru ekki að koma til að sjá þá, þeir eru alls staðar. Íslendingar eru þjóð – ennþá – en við stefnum í að verða þjóðarbrot og missa okkar karakt- er. Ég hef ekkert á móti erlendu fólki enda er það oft mann- eskjulegra en mínir elskulegu landar. En hér er fólksfjölgun of ör fyrir smátt samfélag. Er ekki ástæða til að hlúa að íslenskri framleiðslu? Eftir Erlu Mögnu Alexandersdóttur Erla Magna Alexandersdóttir »Margfaldur ferða- mannastraumur ætti að kalla á aukna sölu á íslenskum afurðum. Höfundur er fatahönnuður, leður-, ullar- og snyrtifræðingur og spámiðill. erla.magna@gmail.com Skútuvogi 1c 104 Reykjavík Sími 550 8500 Fax 550 8510 www.vv.is Fenix PD35Tactical Edition vasaljósið fer vel í hendi og vasa. Tilvalið fyrir veiðimenn, útivistarfólk og þá sem sinna öryggisvörslu. Endursöluaðili: Iðnaðarlausnir ehf. | Hlíðasmári 9 | 201 Kópavogur | Sími 577 22 33 Ljósstyrkur: 1000 lumens Drægni: 200 m Lengd: 137 mm Þvermál: 25,4 mm Þyngd: 89 g (fyrir utan rafhlöðu) Vatnshelt: IPX-8

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.