Morgunblaðið - 21.09.2017, Side 44
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2017
Morgunblaðið/Golli
Tómas H. Heiðar Stjórnar málstofu
um vinnu við nýjan samning.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Á vettvangi Sameinuðu þjóðanna er
nú unnið að gerð nýs samnings undir
hafréttarsamningi S.þ. um verndun
og sjálfbæra nýtingu líffræðilegs fjöl-
breytileika hafsins utan lögsögu ríkja
(BBNJ). Gert er ráð fyrir að gild-
issvið samningsins verði mjög rúmt
og að hann muni hugsanlega ná til
alls lífs á úthafinu og á alþjóðlega
hafsbotnssvæðinu.
Tveir ríkjahópar eru
helstu formælendur
Ekki liggur enn fyrir hvort og þá
að hvaða leyti hinn nýi samningur
muni fjalla um fiskveiðar en árið 1995
var gerður sérstakur samningur um
það efni, úthafsveiðisamningur S.þ.
Nýr samningur, ef samkomulag
tekst, mun ekki koma í stað hafrétt-
arsamningsins eða einstakra hluta
hans, heldur koma til viðbótar. Um
yrði að ræða svokallaðan fram-
kvæmdarsamning en úthafsveiði-
samningurinn er einmitt slíkur samn-
ingur.
Á morgun, föstudaginn 22. sept-
ember, frá kl. 12-13.30 heldur Haf-
réttarstofnun Íslands málstofu um
þennan nýja samning í fyrirlestrarsal
Þjóðminjasafnsins við Suðurgötu.
Þar flytja erindi þeir Tómas H. Heið-
ar, forstöðumaður Hafréttarstofn-
unar, Matthías G. Pálsson, lögfræð-
ingur í utanríkisráðuneytinu og
formaður sendinefndar Íslands á
fundum undirbúningsefndar um
BBNJ, og Stefán Ásmundsson, skrif-
stofustjóri í atvinnuvega- og nýsköp-
unarráðuneytinu.
Þeir fjalla um hvað felst í BBNJ,
stöðu málsins og áherslur Íslands, og
loks um tengsl fiskveiða við þennan
nýja samning. Tómas H. Heiðar
stjórnar málstofunni.
Samkvæmt upplýsingum frá Tóm-
asi hafa tveir hópar ríkja verið helstu
formælendur nýs samnings en af
ólíkum ástæðum. Annars vegar
leggja ESB og nokkur ríki áherslu á
að auka verndun líffræðilegs fjöl-
breytileika á úthafinu, m.a. með
stofnun verndarsvæða og umhverf-
ismati. Hins vegar vilja þróunarríki
tryggja aðgang að erfðaauðlindum á
alþjóðlega hafsbotnssvæðinu, sem er
sameiginleg arfleifð mannkyns, og
skiptingu hagnaðar af nýtingu þeirra.
Til umfjöllunar
á allsherjarþinginu
„Á hinum djúpa hafsbotni, þar sem
sólarljóss nýtur ekki við, þrífast ör-
verur sem verða til við efnatillífun við
mikinn hita og þrýsting, og eru erfða-
efni þeirra eftirsótt til lyfjafram-
leiðslu og annars iðnaðar og því verð-
mæt. Ekki var almennt vitað um
tilvist lífvera á alþjóðlega hafsbotns-
svæðinu þegar hafréttarsamning-
urinn var gerður á sínum tíma.
Allsherjarþing S.þ. hóf umfjöllun
um málið árið 2004. Árið 2015 ákvað
þingið að gerður skyldi alþjóðasamn-
ingur um þetta efni undir hafrétt-
arsamningnum. Undanfarin tvö ár
hefur undirbúningsnefnd fundað í því
skyni að ná samkomulagi um texta-
þætti og lauk hún störfum í júlí í sum-
ar. Í haust mun allsherjarþingið
væntanlega taka ákvörðun um al-
þjóðaráðstefnu þar sem samninga-
viðræður um hinn nýja samning
munu fara fram,“ segir Tómas, sem
kosinn var í Alþjóðlega hafrétt-
ardóminn árið 2014.
Unnið er að
nýjum samningi
um hafréttarmál
Gæti náð til alls
lífs á úthafinu og á
alþjóðlega hafs-
botnssvæðinu
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Miklar breytingar hafa orðið á
skipakosti Eskju á Eskifirði á einu
ári. Fjárfest hefur verið í nýrri skip-
um, sem nú eru öll á makrílveiðum í
síldarsmugunni norðaustur af land-
inu. Nöfn skipanna eru gamalkunn
úr útgerðarsögu Eskifjarðar og hafa
mikla þýðingu í sögu bæjarfélagsins.
Um leið eru þau nátengd aðaleig-
endum fjölskyldufyrirtækisins
Eskju, þeim Björk Aðalsteinsdóttur
og Þorsteini Kristjánssyni.
Libas, Qavak og Charisma
Í lok ágúst í fyrra gekk Eskja frá
kaupum á norska uppsjáv-
arveiðiskipinu Libas, sem var eitt af
stærstu fiskiskipum norska flotans,
94 metrar að lengd og tæpir 18
metrar á breidd. Skipið fékk nafnið
Aðalsteinn Jónsson SU 11, en eldra
frystiskip með sama nafni var selt til
grænlenska útgerðarfyrirtækisins
Arctic Prime Fisheries, sem aftur
seldi það til Rússlands. Útgerðarfyr-
irtækið Brim hf. er hluthafi í græn-
lenska fyrirtækinu.
Upp í kaupin á Aðalsteini Jóns-
syni gekk grænlenska uppsjáv-
arskipið Qavak GR 21 og fékk það
nafnið Guðrún Þorkelsdóttir SU
211. Það er rúmlega 60 metra langt,
smíðað 1999 í Noregi.
Í sumar keypti Eskja síðan upp-
sjávarskipið Charisma frá Hjalt-
landseyjum, en það er byggt í Nor-
egi 2003 og er 70,7 metrar á lengd.
Skipið fékk nafnið Jón Kjartansson
SU 111, en eldra skip með sama
nafni er til sölu.
Daði Þorsteinsson Kristjánssonar
er skipstjóri á Aðalsteini Jónssyni,
Grétar Rögnvarsson er skipstjóri á
Jóni Kjartanssyni og Hjálmar
Ingvason er með Guðrúnu Þorkels-
dóttur. Skipin afla öll hráefnis fyrir
nýtt uppsjávarfrystihús Eskju á
Eskifirði sem tekið var í notkun í
nóvember á síðasta ári. Stjórn-
arformaður Eskju er Erna Þor-
steinsdóttir.
Bjartsýni og áræði
Svo aftur sé vikið að nöfnum skip-
anna þá hóf Aðalsteinn Jónsson
snemma störf við útgerð og eign-
aðist fyrst hlut í bát árið 1946. Árið
1960 tók hann við stjórn Hraðfrysti-
húss Eskifjarðar og var forstjóri
fram til ársins 2000. Foreldrar hans
voru Jón Kjartansson póstur og
Guðrún Þorkelsdóttir húsfreyja og
áttu þau saman sex börn. Aðalsteinn
var þeirra næstyngstur. Nöfn skip-
anna þriggja eru því sótt til Að-
alsteins, Jóns og Guðrúnar.
Í minningapunktum um Aðalstein
segir að rekstur fyrirtækisins hafi
einkennst af bjartsýni og áræði
Aðalsteins, sem snemma fékk við-
urnefnið Alli ríki. Fyrirtækið var
jafnan stærsti vinnuveitandi í
byggðarlaginu.
Í lok sjötta áratugarins eignaðist
félagið sitt fyrsta skip, Hólmanes,
sem var 130 tonna stálbátur smíð-
aður í Noregi, og var gert út á línu-
og netaveiðar, svo og á síldveiðar. Á
árunum 1962-1970 eignaðist félagið
nokkur skip af stærðinni 150-260
tonn, sem gerð voru út á línu- og
netaveiðar, síldveiðar og togveiðar.
Loðnan kemur til sögunnar
Í sérstöku félagi bræðranna Að-
alsteins og Kristins Jónssonar, sem
lengi var stjórnarformaður Hrað-
frystihúss Eskifjarðar, voru gerð út
skipin Jón Kjartansson og Guðrún
Þorkelsdóttir og voru bæði mikil
aflaskip, ekki síst á síld.
1967-1968 hvarf síldin af Íslands-
miðum, en nokkrum árum síðar hóf-
ust veiðar á loðnu til bræðslu. Eftir
því sem þær veiðar jukust var talið
nauðsynlegt að fyrirtækið eignaðist
skip til hráefnisöflunar og árið 1978
keypti félagið 780 tonna skip er fékk
nafnið Jón Kjartansson SU-111,
skipstjóri Þorsteinn Kristjánsson.
1982 keypti félagið annað skip, 360
tonn, er fékk nafnið Guðrún Þorkels-
dóttir SU-211. Hætt var að gera það
skip út 2003.
Eftir því sem árin liðu urðu breyt-
ingar í útgerð og áherslum og skipa-
kosti sömuleiðis. Aukin áhersla var
lögð á vinnslu á loðnu, síld og öðrum
uppsjávartegundum. Nýtt uppsjáv-
arskip kom til Eskifjarðar 2006 og
fékk nafnið Aðalsteinn Jónsson. Þá
var hins vegar ekki að finna Guð-
rúnu Þorkelsdóttur í flota Eskfirð-
inga, en það breyttist aftur í sumar.
Alli ríki og foreldrar hans hafa því
öll verið á sjó síðustu vikurnar.
Auk uppsjávarskipanna hefur
Eskja frá 2010 gert út línubátinn
Hafdísi SU 220.
Alli ríki og
foreldrar hans
Uppsjávarskip Eskju endurnýjuð á einu ári Nöfnin sótt
í fjölskyldu aðaleigenda Á makríl í síldarsmugunni
Ljósmynd/Eskja
Til heimahafnar Nýr Jón Kjartansson SU 111 kemur til hafnar á Eskifirði í sumar. Í baksýn má sjá í gamla Jón
Kjartansson og Aðalstein Jónsson. Uppsjávarskip Eskju hafa verið endurnýjuð og nýtt frystihús tekið í notkun.
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratuga
reynsla
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum