Morgunblaðið - 21.09.2017, Page 48
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2017
Ellen Ragnarsdóttir
ellen@mbl.is
Hildur mælir með því að konur
flytji búferlum þegar þær eru barns-
hafandi enda hafi hreiðurgerðar-
tilfinningin fleytt skötuhjúunum
langt, en sonur þeirra kom í heiminn
fyrir nokkrum dögum.
„Við erum Keflvíkingar, en við
höfðum búið í Reykjavík í 10 ár. Við
fluttum síðan aftur til Keflavíkur
fyrir rúmi ári þegar við eignuðumst
fyrsta barnið okkar. Segja má að við
höfum í rauninni verið að flýja hús-
næðismarkaðinn í Reykjavík,“ segir
Hildur Hlíf, en lítið þurfti að gera
fyrir íbúðina þegar skötuhjúin fluttu
inn.
„Sú sem bjó hér áður var búin að
taka íbúðina í gegn, skipta um gólf-
efni og annað. Við höfum síðan dúll-
að okkur við að mála svolítið, finna
réttu húsgögnin og gera þau upp.
Mér finnst það voðalega gaman.
Þegar við fluttum inn voru allir
veggir gráir, sem mér finnst vera
fallegur bakgrunnslitur og virka vel
á móti litagleðinni minni. Við mál-
uðum síðan veggina inni í barna-
herbergjum í skærum litum. Ég
dútlaði mér líka við að mála skápana
og fleira smáræði til að poppa þetta
upp,“ segir Hildur Hlíf, en hvað er
það við sterka liti sem heillar hana?
„Skærir litir hafa svo góð áhrif á
mig. Ég klæði mig þannig, lita hárið
á mér þannig og er þeirrar skoðunar
að skemmtilegir litir næri sálina. Ég
held hreinlega að allir skærir litir
heilli mig jafn mikið,“ játar Hildur
og bætir við að eiginmaður hennar
sé blessunarlega sama sinnis.
„Maðurinn minn deilir sömu lita-
gleði og ég. Börnin hafa nú ekki vit á
þessu strax, en ég grínast oft með að
þau muni fara í uppreisn og ein-
göngu klæðast svörtum fötum á ung-
lingsárunum. En þá fá þau það
bara,“ bætir hún við og skellir upp
úr.
Þegar Hildur Hlíf er spurð hvort
hún geti hugsað sér að búa á míní-
malísku heimili, innréttuðu með
svart-hvítum mublum og skraut-
munum, neitar hún staðfastlega.
„Eftir að ég byrjaði að búa hef ég
aldrei búið á þannig heimili. Mér
finnst voða skemmtilegt að fylgja
tískustraumum upp að vissu marki,
en svo verður maður að hafa sinn
persónulega stíl með. Maður verður
að þora að vera maður sjálfur í hús-
gagnavali og litavali og ekki vera
hræddur við að fá ógeð á einhverju.
Það er nefnilega alltaf hægt að
breyta seinna meir.“
Ljósmyndir/Hildur Hlíf
Litrík fjölskylda
Hildur Hlíf, Elías
Örn eiginmaður
hennar og Stein-
unn dóttir þeirra.
Maður verður að
þora að vera
maður sjálfur
Kötturinn Penný læt-
ur sér fátt um finnast,
en kvartar þó ekki yfir
litadýrðinni.
Hildur Hlíf Hilmarsdóttir býr ásamt eiginmanni
sínum og tveimur börnum í litríkri íbúð í miðbæ
Keflavíkur. Fjölskyldan flutti inn í byrjun sum-
ars og hefur komið sér furðu vel fyrir á skömm-
um tíma.
Ljósmynd/Hildur Hlíf
Litskrúð Baðherbergið er ekki
undanskilið litadýrðinni.
Húsfreyjan hefur málað hitt
og þetta á heimilinu. Þar á
meðal skáp- og innihurðir.
Hildur dundaði sér við að mála vegg-
ina í barnaherbergjunum skömmu
áður en sonurinn kom í heiminn.
Tíska &
förðun
Fylgir Morgunblaðinu
föstudaginn 6. október
Í Tísku og förðun verður fjallað um
tískuna haust / vetur 2017 í förðun,
snyrtingu og fatnaði, fylgihlutum auk
umhirðu húðarinnar, dekur og fleira
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til kl. 16 mánudaginn 2. október
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
SÉRBLAÐ
–– Meira fyrir lesendur