Morgunblaðið - 21.09.2017, Qupperneq 57

Morgunblaðið - 21.09.2017, Qupperneq 57
MINNINGAR 57 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2017 ✝ Kristján Er-lendur Har- aldsson fæddist í Sandgerði 12. maí 1936. Hann lést 5. september 2017 á Landspítalanum við Hringbraut. Foreldrar hans voru Ragnheiður S. Erlendsdóttir, f. 9 maí 1896, d. 16. janúar 1977, og Haraldur Kristjánsson, f. 1. ap- ril 1905, d. 23. júní 1980. Systkini Kristjáns voru tveir hálfbræður frá fyrra hjóna- bandi. Gunnar H. Valdimars- son, eiginkona Aðalheiður Björnsdóttir og áttu þau þrjú börn, Kolbrúnu, Valdimar og Gunnar Björn. Valdimar R. Valdimarsson, eiginkona Fann- ey Björnsdóttir og áttu þau þrjár dætur, Ragnheiði, Eygló og Hafdísi sem er látin. Al- systkini Kristjáns eru Marinella R., eiginmaður Jón Guðmunds- son sem er látinn og börn þeirra eru Haraldur, Guð- Takefusa og Felicia og Isak Wihlborg með Valgerði Dag- mar Jónsdóttur. Kristján bjó til ellefu ára ald- urs í Sandgerði en flutti svo til Reykjavíkur 1947. Kristján starfaði til sjós með föður sín- um á unglingsárum sem og við vinnu að uppbyggingu Ábyrgð- arverksmiðjurnar. Hann hóf múraranám 1957 en til 1996 vann hann sem múrari en hafði síðar aðrar stöður inn sam- bandsins, var meðal annars for- maður í nokkur ár, var for- stöðumaður lífeyrissjóðins og starfaði við mælingar. Síðustu 10 starfsárin starfaði Kristján sem forstöðumaður verka- mannabústaða í Kópavogi. Kristján var alla tíð virkur í Sjálfstæðisflokknum bæði í Kópavogi og á landsvísu. Hann var einnig meðlimur í Kiwanis og Frímúrarareglunni. Kristján var einn af forystumönnum í Múrarafélaginu þegar ákveðið var og keypt var orlofslandið Öndverðarnes í Grímsnesi og var virkur í uppbyggingu á því svæði. Kristján og Erla fluttust til Kópavogs 1958 og bjuggu þar meginhluta ævinnar. Útför Kristjáns fer fram frá Kópavogskirkju í dag, 21. sept- ember 2017, klukkan 11. mundur, Ragnheið- ur og Berglind. Þórður, eiginkona Halla S. Þorvalds- dóttir og börn þeirra, Þorvaldur, Helgi og Margrét. Guðmundur, eig- inkona Guðfinna Sigurðardóttir og börn þeirra, Sig- ríður, Bryndís, Ragnheiður og Íris Halla. Kristján giftist Erlu Hjart- ardóttur 26. nóvember 1955 og áttu þau fjögur börn. Sigrún sem átti Ragnar Orra og Erlu Heiðrúnu með Benedikt Bene- diktssyni, en Sigrún er látin. Haraldur sem átti Kristján, með Guðrúnu Valdimarsdóttur, og Davíð Örn með Kristínu Ingadóttur. Sveinbjörn sem átti Guðný Ósk og Guðrúnu Helgu með Önnu Vigdísi Gísladóttur og Dag Stein með Ragnhildi Ragnarsdóttur en Sveinbjörn er látinn. Kristján Ragnar sem átti Kristu Takefusa með Dóru Það er ólýsanlega erfitt að kveðja þig, afi minn. Ég er svo þakklátur fyrir all- ar góðu stundirnar sem við átt- um saman. Þakklátur fyrir öll samtölin okkar, þakklátur fyrir að hafa getað litið upp til þín, þakklátur fyrir að hafa átt þig að í allan þennan tíma. Að koma til ykkar ömmu í heim- sókn var alltaf gaman. Þú varst alltaf með sögurnar á færi- bandi, sem enduðu alltaf á því að þú hlóst hátt og innilega. Þú hafðir alltaf eitthvað skemmti- legt eða áhugavert til málanna að leggja. Alltaf að grínast og að hlæja. Líka þegar komið var á spítalann. Þó að þú værir máttvana og veikur varstu ennþá að grínast og hlæja. Mér þótti ótrúlega vænt um að þú sýndir mér að hvað þú varst stoltur af mér. Ég er líka stoltur af þér. Eftir allt það sem á hefur gengið í lífi þínu, gegnum allar hæðir og alla dali, þá varst þú alltaf þú. Það var alltaf hægt að líta til þín og líta upp til þín. Það er ólýsanlega erfitt að kveðja svo stóran kar- akter. Ég er þakklátur fyrir að hafa eytt svo miklum tíma með ykkur síðustu ár. Að hafa getað verið til staðar fyrir þig og ömmu er mér ómetanlegt. Einnig er ég þakklátur fyrir hvað þú hvattir mig alltaf áfram. Hvað þú sýndir öllu sem ég geri mikinn áhuga og varst alltaf að hvetja mig til dáða og segja mér reynslusögur af svip- uðum erindagjörðum sem þú hafðir aðhafst í gegnum lífið. Ég er glaður að þú hafir fengið að sjá Kristján Dór og sjá hann labba, og ég mun aldrei gleyma því hvað þú varst glaður að sjá hann. Þegar þú hringdir voru ein- göngu tvö ávörp, „Sæll höfð- ingi“ eða „Sæll nafni“. Ég heyri það ennþá fyrir mér. Ég heyri þig ennþá heilsa mér á slíkan hátt. Þannig heilsaðir þú mér í síðasta skiptið sem við töluðum saman. Aldrei hefði mér dottið í hug að það væri í síðasta skiptið sem við töluðum saman. Það var sárt að sjá þig þjást svona mikið en núna vitum við að þjáningunum er lokið. Ég finn engin orð nógu stór til að lýsa því hvernig mér líður að kveðja þig. Ég held að það séu ekki til nógu stór orð til þess. Ég veit að þú veist hvað þú skiptir mig miklu mál, ég veit að þú veist hvað ég sakna þín mikið. Nú kveð ég þig, höfðingi og nafni. Takk fyrir allt. Við sjáumst í eilífðinni. Kristján Haraldsson. Fallinn er frá kær bróðir, Kristján Erlendur Haraldsson. Við systkinin vorum sex, þar af tveir hálfbræður, Gunnar og Valdimar Valdimarssynir, frá fyrra hjónabandi, en faðir þeirra drukknaði þegar þeir voru barn- ungir. Móðir okkar, Ragnheiður Sigríður Erlendsdóttir frá Hlíð- arenda, giftist síðar Haraldi Kristjánssyni og eru börn þeirra fjögur; Marinella, Kristján, Þórður og Guðmundur. Kristján var fæddur í Sand- gerði og bjó þar til 11 ára aldurs en þá ákváðu foreldar okkar ár- ið 1947 að flytja til Reykjavíkur til að eiga kost á betri menntun fyrir börnin. Kristján lauk gagn- fræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Austurbæjar. Hann hóf síðan ungur að vinna, fyrst með föður okkar á sjó á sumrin en síðar við uppbyggingu Áburðarverk- smiðjunnar. Árið 1957 ákvað Kristján að hefja nám í múrverki og fór á samning hjá Magnúsi Baldvins- syni múrarameistara. Hann lauk náminu og starfaði við múrverk og flísalagnir í mörg ár. Kristján var mikill félagsmálamaður og var m.a. formaður Múrarafélags Reykjavíkur i nokkur ár. Um það leyti keyptu múrarar Önd- verðarnes í Grímsnesi, en þar byggði hann sér sumarbústað og stóð að uppbyggingu svæðisins ásamt góðum félögum. Kristján kynntist konu sinni, Erlu Hjartardóttir, ungur að aldri, en hún bjó hjá foreldrum sínum að Melabergi á Stafnesi en þau kynntust á 16. ári og úr varð gæfuríkt hjónaband. Þau eign- uðust fjögur börn, elst var Sig- rún en hún átti tvö börn og er hún látinn. Næstelstur er Har- aldur og á hann tvo syni og býr núna í Los Angeles. Næstyngst- ur var Sveinbjörn og hann átti tvær dætur og einn son. Hann er látinn. Yngstur er Kristján Ragnar, en hann á eina dóttur og býr hann í Stokkhólmi. Kristján og Erla komu sér upp íbúð í Kópavogi sem þau fengu afhenta fokhelda en þau hjálpuðust við að grafa út her- bergi í kjallaranum og luku við íbúðina á mjög skömmum tíma. Síðar byggðu þau á Kársnes- braut 45 í Kópavogi og bjuggu þar lengst af sínum búskap. Kristján var mikill félagsmála- maður og starfaði m.a. fyrir Sjálfstæðisflokkinn í hinum ýms- um nefndum og ráðum í gegnum tíðina, m.a. í Kópavogi. Þegar hann hætti í múrverkinu hóf hann störf hjá Múrarafélagi Reykjavíkur við mælingar og í hálfu starfi hjá Lífeyrissjóði múr- ara þar til hann lagði til að sjóð- urinn yrði sameinaður öðrum sjóði til að tryggja betri lífeyri fyrir sjóðsfélaga. Kristján og Erla ferðuðust mikið og eignuðust íbúð á Taí- landi. Voru þau oft þar í nokkra mánuði ár hvert í meira en einn áratug og nutu þess vel. Síðustu starfsárin sá hann um Verkamannabústaði Kópavogs en hætti þar vegna aldurs. Gott var að leita til Kristjáns með ýmsar úrlausnir, þar sem hann var vanur og góður samn- ingamaður, vel kynntur, vildi leysa vandamál annarra og hafði oft góða yfirsýn á málunum. Að lokum kveðjum við kæran bróður með söknuð í huga, því margs er að minnast á langri ævi. Við sendum Erlu, börnum, barnabörnum og barnabarna- börnum okkar innilegustu sam- úðarkveðjur og megi Guð blessa ykkur öll. Kær kveðja, Marinella, Þórður og Guðmundur. Öll höfum við okkar sérkenni. Öll mætum við heiminum á okk- ar eigin hátt. Þetta átti líka við um vin okkar Kristján Haralds- son, sem við erum nú að kveðja. Það sem einkenndi hann, um- fram annað, var hláturmildi hans. Hann mætti heiminum með sínum smitandi hlátri og gerði við það líf okkar hinna að- eins ljósara en ella. Japanirnir segja að líf okkar sé jafn langt, hvort sem við förum gegnum það hlæjandi eða grátandi, Kristján valdi hið fyrra, þótt ekki sé hægt að segja að lífið hafi ávallt hlegið við honum. Kristján Haraldsson var mik- ilvægur hluti af mótunarárum okkar, sem fjölskylduvinur. Það tók ekki ungar og óharðnaðar sálir okkar langan tíma að átta okkur á að hér var á ferðinni ráðagóður og trygglyndur mað- ur sem skirrðist aldrei við að hjálpa fólkinu í kringum sig. Manneskja sem gott var að hafa í sínu liði. Maðurinn sem við kynntumst var sterkur og stoltur fjöl- skyldufaðir og það var ávallt notalegt að vera með honum og Erlu á góðra vina fundi. Þau voru sannarlega glæsileg hjón og gáfu bæði glaðværð og yndi af sér. En lífið er ekki eintómur dans á rósum, nokkuð sem þau svo sannarlega hafa þurft að þola á eigin skinni. Þau hafa mátt sjá á eftir tveimur af börn- um sínum inn í eilífðina. Það er tregara en tárum taki að horfa upp á fólk sem maður ann þurfa að fara í gegnum ámóta táradal. Ekki bara einu sinni heldur tvisvar. Einasta sem maður get- ur gert er að reyna að standa við hlið þeirra í vanmætti sínum og samhryggjast. Reyna að hugga. Eitthvað sem aldrei er alveg nóg. Það er til merkis um hvurs- lags klettur Kristján var, hversu mikið var spunnið í þennan mann, að hann hefur ávallt tekið á öllum áföllunum með æðru- leysi og hetjulund. Með dyggum stuðningi elsku Erlu sinnar sér við hlið og með reistan makka, þótt hann væri að fara í gegnum ferli sem sjálfsagt hefði bugað minni menn. Það er vöntun á slíkum manneskjum. Hans kom- um við ávallt til með að sakna. Núna hefur Kristján fengið sína hvíld. Horfinn frá okkur inn í eilífðina. Eftir stöndum við með tár á hvarmi, söknuð og þakklæti í hjarta. Þakklæti fyrir að hafa fengið að ferðast með honum spottakorn í gegnum lífs- leiðina. Samtímis samhryggj- umst við elsku Erlu okkar, Halla og Kristjáni Ra, yfir að hafa misst enn einn hlekkinn úr fjölskyldukeðjunni. En það eru auðvitað barnabörnin sem misst hafa mest við að þurfa að sjá á eftir elskulegum afa sínum en sérstaklega hlýtur hugur okkar að dvelja hjá alnafna afa síns á þessari kveðjustund, en þeir stóðu alltaf saman í gegnum þykkt og þunnt. Hetjan okkar sem kemur til með að bera nafn hans með stolti um ókomin ár. Hann og langafabarnið Kristján Dór, sem nú fær ekki að kynn- ast langafa sínum sem skyldi. Hvíldu í friði, kæri vin, núna örugglega í faðmi Sigrúnar og Bjössa, sem við vitum að þú saknaðir svo sárt. Þínir vinir, Dúna og Barði. Kristján Erlendur Haraldsson ✝ Lúðvík Fa-hning Hansson fæddist í Reykjavík 17. maí 1940. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Skjóli 11. sept- ember 2017. Foreldrar hans voru Dórathea Fritzdóttir, sem kom frá Þýska- landi, og Hans And- es Þorsteinsson frá Vest- mannaeyjum. Lúðvík átti eina alsystur, Láru Margréti Hans- 1) Guðmundur Grétar, f. 13. september 1960, maki Anna K. Björnsdóttir. Börn hans eru a) Eva Björk, f. 1980, dóttir Sara Björk, f. 2009. b) Auður Mar- grét, f. 1986, maki Smári Þrast- arson, synir Jökull Þór, f. 2009, Sölvi Þór, f. 2014. c) Rafnar Máni, f. 1995. 2) Arnar Fahning, f. 31. maí 1964, maki Sigríður Sæmundsdóttir. Börn hans eru: a) Birna Fahning, f. 1986, maki Kristinn Finnbogason, dóttir Al- dís Berglind, f. 2009. b) Oddný Ragna Fahning, f. 1996, maki Jóhann Scott Sveinsson. c) Sæ- mundur Friðrik Fahning, f. 1999, d) Arndís Fjóla Fahning, f. 2002. 3) Dórathea Fahning, f. 29. apríl 1967, maki Óskar Björgvinsson. Sonur hennar er Hlynur Örn, f. 1985. Útförin fór fram í kyrrþey. dóttur, sem bjó lengst af í Ástralíu ásamt fjölskyldu, hún lést árið 2010. Systkini samfeðra eru: Sigurbergur, f. 1942, Valdís, f. 1945, Þorsteinn, f. 1948, Óskar, f. 1949, Elís, f. 1950, og Erla, f. 1952. Árið 1964 giftist Lúðvík Margréti Oddnýju Guðmundsdóttur, þau skildu. Þau tóku aftur saman 2001, saman eiga þau þrjú börn: Faðir minn er lagstur til hinstu hvílu og þar sem ég gat ekki fylgt honum síðustu skrefin langar mig til að minnast hans með nokkrum orðum. Ég á ekki margar minningar um pabba frá mínum yngri árum en þó standa nokkrar upp úr svo sem að eitt sinn sem oftar átti að rass- skella mig og vissi ég það, þannig að þegar hann kom heim var ég bú- inn að stinga kartöfludisknum und- ir buxurnar mínar. Þegar hann lagði mig svo á hné sér og lét högg- in dynja fór ég að hlæja og varð hann að sjálfsögðu öskuillur, reið- ari og reiðari með hverju höggi, því alltaf hló ég, þar til hann uppgötv- aði uppátækið og þá gat hann ekki annað en hlegið með mér. Það varð svo mitt lífstakmark að vinna karlinn í sjómanni og þegar ég var fimmtán ára tókst það loksins og þá lagði ég hann svo hart í borðið að úrið hans brotnaði (en að sjálfsögðu var aldrei var minnst á það meir). Eftir að ég varð eldri brölluð- um við mikið saman. Fórum sam- an í fullt af veiðiferðum, keyptum okkur bát saman og oft eftir vinnu fórum við út á flóa til að fiska í soðið. Fórum við einnig saman í nokkrar ár og áttum við þar okkar bestu stundir með stöng. Ein ferð stendur þó upp úr. Þá fórum við upp að Meðalfellsvatni sem svo oft og var hann búinn að tuða oft yfir því að hann þyrfti að kaupa sér vöðlur til að geta vaðið út í vatnið því það var svo grunnt við bakkann. Það sem karlinn gat nú tuðað. En til að ná laxinum, og svo að karlinn héldi nú kjafti, lánaði ég honum vöðlurnar mínar og óð hann út í mitt vatnið og ætlaði sko aldeilis að ná laxinum. Ekki liðu nema svona tíu mínútur, þegar stór og feitur lax stökk fyrir aftan hann. Eðlilega, sem og honum var vant, varð hann drullufúll og tuð- aði yfir því alla leiðina heim að lík- lega þyrfti hann ekki vöðlur eftir allt saman. Langar mig í lokin að þakka honum allar góðu stundirnar sem við áttum saman. Veiðiferðir, bíó- ferðir, allar stundirnar sem hann átti með barnabörnunum sínum, sérstaklega þessar stundir sem við áttum saman núna þegar við komum heim í ágúst, og meira að segja tuðið! Hans verður sárt saknað. Sérstakar þakkir fá einnig systir mín, sem sá allra mest um karlinn svona upp undir það síð- asta og sá um útförina; dætur mínar, sem aðstoðuðu hana í minn stað; og starfsmenn hjúkrunar- heimilisins Skjóls, fyrir umönnun og vinskap í hans garð, hann kunni mikið að meta það. Haltu nú til hinstu hvílu. Minn- ingin lifir. Arnar Fahning Lúðvíksson. Jæja, þá er víst komið að því. Tími til að kveðja. Elsku afi, í gegnum árin höfum við átt þó nokkrar skondnar minningar. Það þurfti ekkert endilega að vera merkilegt, en þó situr ým- islegt af því alltaf með mér. Ég gleymi því aldrei þegar þú varst í Rauðagerðinu, þótt ég hafi nú ekki verið há í loftinu, að ég var nýbúin að vera hjá ömmu, og hvíslaði hún því illkvittna prakk- arastriki að mér að þegar ég heilsaði þér ætti ég að vera viss um að muna það að koma orðinu „laukur“ fyrir, þarna fyrir aftan nafnið þitt. Að sjálfsögðu lét ég nú ekki segja mér það tvisvar, þó svo að mamma og pabbi væru viss um að ég væri búin að gleyma því. Og þegar þetta datt út úr mér get ég svarið að það hvítnaði aðeins yfir þeim. Þú heilsaðir mér líkt og venju- lega „hæ beibí“ en í staðinn fyrir að svara í sömu mynt svaraði ég þér hátt og snjallt „halló Lúlli laukur“. Ég get svo svarið það, það kom lykt með fýlusvipnum! En ég dó nú ekki ráðalaus og þrátt fyrir svipinn og nístandi þögnina sagði ég bara „hæ beibí“ og brosti svo út í eitt. Uppátæki gleymt. Það má líka minnast á öll þau skipti sem þú settir á Cartoon Network fyrir mig og sagðir mér sko nákvæmlega á hvaða þætti væri best að horfa. Á sumarbú- staðarferðina okkar þar sem þú hentir mér ofan í heita pottinn í öllum fötunum og allar heimsókn- irnar þar sem það mátti sko ekk- ert gera fyrr en ég var búin að fá að dansa fyrir þig og ömmu. En þegar ég varð eldri, og við vorum farin að ræða aðeins göf- ugri mál á milli okkar, þá er ekk- ert sem getur afsakað hvað sam- tölunum okkar fór fækkandi. Þegar amma féll frá og heilsu þinni fór að hraka var bara svo margt sem breyttist, ekki til hins betra, því miður, og ég kem alltaf til með að gráta það sáran. En afi, ég samgladdist þér samt þegar þú fékkst hvíldina loksins, þótt ég muni alltaf sakna þín. Að vita til þess að nú sitjirðu ekki fastur inni í herbergi inni á hjúkrunarheimili veitir mér vissa ró. Það komu og sóttu þig tvær stórglæsilegar konur sem hafa beðið eftir þér í sjö ár og núna loksins færðu að njóta eilífðarinn- ar með þeim. Það breytir því samt ekkert að þú ert afi minn, Lúlli afi minn, sem kenndi mér svo margt. Við sjáumst hinum megin þeg- ar þar að kemur. Þín „beibí“, Oddný. Lúðvík Fahning Hansson Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðju- degi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skila- frestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja við- hengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systk- ini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Undirskrift | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stutt- nefni undir greinunum. Minningargreinar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.