Morgunblaðið - 21.09.2017, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 21.09.2017, Blaðsíða 60
60 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2017 Ég er að hugsa um að taka mér frí í tilefni dagsins og skreppaupp til fjalla á mótorhjólinu mínu,“ segir Björgvin Þórissondýralæknir, sem á 50 ára afmæli í dag. „Síðan verð ég í faðmi fjölskyldunnar í kvöld.“ Eiginkona Björgvins er Ragna Björk Emils- dóttir, yfirflugfreyja hjá WOW air, en þau eiga samtals 7 börn en börn Björgvins eru Óðinn, Þórunn og Steinunn og svo er fóstursonurinn Alfreð Logi Ásgeirsson enn á heimilinu. Björgvin rekur dýralæknaþjónustuna Drösul og sérhæfir sig í hest- um. „Ég er hestamaður og það æxlaðist þannig að ég fór í að sjá ein- göngu um hesta, en áður var ég að vinna hjá Dýraspítalanum í Garða- bæ og var að sinna hundum og köttum og fleiru.“ Aðspurður segir Björgvin enga sérfræðiþekkingu þurfa til að sinna sérstaklega íslenska hestinum. „Ég lærði við Dýralæknaháskólann í Hannover og hef farið töluvert erlendis til að viðhalda þekkingu og að sækja mér meiri menntun. Íslenski hesturinn er harðgerðari en mörg önnur hestakyn og kvartar síður. Erlendum dýralæknum finnst oft erfitt að eiga við íslenska hestinn því hann bítur á jaxlinn áður en hann kvartar og er þá orðinn veikari en menn gera sér grein fyrir.“ Fyrir utan hestamennsku og mótorhjól stundar Björgvin mikið veiðar. „Ég er með veiðihund, tíkina Blökk, og fer með hana á rjúpu, gæs og endur. Hún er hérna hjá mér í vinnunni alla daga.“ Ljósmynd/Pétur Alan Guðmundsson Vinirnir Björgvin og Blökk eftir vel heppnað veiðipróf. Íslenski hesturinn kvartar síður Björgvin Þórisson er fimmtugur í dag A lbína fæddist í Reykja- vík 21.9. 1947 og ólst þar upp á Hagameln- um: „Pabbi og Friðjón Stephensen, sem var með efnalaugina Hjálp, byggðu Hagamel 23-25, fyrst kjallarann og seldu hann síðan, þá hæðina og seldu hana og loks byggðu þeir aðra hæð og ris þar sem fjölskyldan flutti inn. Þá var nú Vesturbærinn töluvert öðruvísi en hann er í dag. Hagamel- urinn var syðsta íbúðagatan á Mel- unum og íbúðabyggð á Högunum nánast engin. Melaskólinn var ný- kominn svo það var stutt í skólann fyrir mig, en engin Hótel Saga, ekk- ert Háskólabíó, ekkert hús hjá Raunvísindastofnun Háskólans, enginn Hagaskóli og engin Nes- kirkja. Hún var ekki vígð fyrr en 1957. Suður af Hagamelnum var því samfelld víðátta alveg niður á Ægi- síðu og við sáum út á Skerjafjörðinn. Það var því rúmt um okkur krakk- ana og maður lék sér úti, frír og frjáls, allan daginn. Einu sinni stakk ég af þegar ég var tveggja ára og var komin niður á Ægisíðu. Þar hitti ég Ásgeir Ás- geirsson sem skömmu síðar varð forseti. Hann spurði mig hvar ég ætti heima og ég kunni skil á því. Gerður systir hafði kennt ér að vera gangandi merkimiði. Ég sagðist því eiga heima á Hagamel 25, í Reykja- vík, á Íslandi, í heiminum – og Ás- geir kom mér heim.“ Albína var í Melaskóla, lauk gagn- fræðaprófi frá Hagaskóla, stundaði nám við Húsmæðraskóla Suður- lands á Laugarvatni 1965-66, stund- aði síðan nám við Fósturskóla Ís- lands og lauk þaðan prófum 1992. Auk húsmóðurstarfa hefur Albína stundað verslunarstörf og fisk- Albína Unndórsdóttir, fyrrv. leikskólakennari – 70 ára Næstum því öll fjölskyldan Frá vinstri: Sigurður Maron, Hákon, Sveinbjörn, afmælisbarnið, Auðunn, Sigurður Magnús, Guðrún með Matthildi Yrsu, Unndór með Hugrúnu Köru og loks Sigurður, eiginmaður Albínu. Leggur lykkju á leið sína með Lykkjunni Hjónin Albína og eiginmaður, Sig- urður Magnús Ágústsson, fyrrv. að- stoðaryfirlögregluþjónn. Þær Birta Ísgerður Þorsteinsdóttir, Kristín Magnúsdóttir og Rut Haraldsdóttir héldu tombólu og söfnuðu 7.849 kr. og gáfu Rauða krossinum að gjöf. Hlutavelta Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is SOUS VIDE TÆKI OG LOFTTÆMINGARVÉL Verð 10.354 m.vsk Verð 19.980 m.vsk
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.