Morgunblaðið - 21.09.2017, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 21.09.2017, Blaðsíða 61
ÍSLENDINGAR 61 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2017 vinnslu. Lengst af hefur hún þó starfað við leikskólann Laut í Grindavík, eða í rúm 35 ár og var þar leikskólastjóri þar frá 2008. Albína sat í kjararáði Félags íslenskra leik- skólakennara og í félagsmálaráði Grindavíkurbæjar um árabil. Áhugamál Albínu hafa einkum snúist um fjölskylduna og þá ekki síst yngstu meðlimina: „Við hjónin vorum mjög dugleg að ferðast með börnin um landið þegar þau voru yngri, fórum hringinn, stundum á hverju sumri og lágum þá oft í tjaldi eða í tjaldvögnum. En nú eigum við sumarbústað á Þingvöllum sem fjöl- skyldan notar óspart. Ég verð einnig að minnast á saumaklúbbinn minn, Lykkjuna í Grindavík, sem hefur verið starfandi í hálfa öld. Við erum kjarnakonur sem höfum farið saman í morgun- göngu hvern einasta morgun frá 2014, klukkan 9.30 á sumrin og klukkan 10 á veturna, hvernig sem viðrar, og göngum í einn til einn og hálfan tíma í senn. En við tökum þó frí um helgar.“ Fjölskylda Albína giftist Sigurði Magnúsi Ágústssyni, f. 13.6. 1948, fyrrverandi aðstoðaryfirlögregluþjóni. Hann er sonur Sveinbjörns Ágústs Sigurðs- sonar, skipstjóra og útgerðarmanns í Grindavík, og Matthildar Sigurð- ardóttur húsmóður frá Hraunteigi í Grindavík. Börn Albínu og Sigurðar eru: 1) Guðrún Sigurðardóttir, f. 1.4. 1968, leikskólastjóri við leikskólann Kærabæ á Kirkjubæjarklaustri, bú- sett á Mörk á Kirkjubæjarklaustri en sambýlismaður hennar er Hjalti Þór Júlíusson, bóndi á Mörk, Kirkju- bæjarklaustri og er sonur Guðrúnar Sigurður Magnús Árnason, f. 1989, en eiginkona hans er Valgerður Jennýjardóttir og börn þeirra Matt- hildur Yrsa, f. 2012, og Jökull Karl, f. 2015, og fósturdóttir Emma Lív Þórisdóttir f. 2004, en dóttir Hjalta og fósturdóttir Guðrúnar er Unnur Helga f. 1993; 2) Sveinbjörn Ágúst Sigurðsson, f. 12.7. 1970, rafmagns- tæknifræðingur, búsettur í Dan- mörku en kona hans er Guðný Hlíð- kvist Bjarnadóttir og eru börn þeirra Auðunn Hlíðkvist, f. 1996, en unnusta hans er Laura Topp Meyer, Sigurður Maron Hlíðkvist, f. 1998, og Hákon Hlíðkvist, f. 2008, og 3) Unndór, f. 11.2. 1976, grunnskóla- kennari í Grindavík en sambýliskona hans er Birna Ýr Skúladóttir og eru börn þeirra Hugrún Kara f. 2010, og Róbert Daði, f. 2015. Systkini Albínu eru: Gerður Unn- dórsdóttir húsmóðir, Þórdís Unn- dórsdóttir, gjaldkeri hjá Hornsteini, Jón Egill Unndórsson verkfræð- ingur, Símon Reynir Unndórsson, rafmagnstæknifræðingur hjá VSÓ verkfræðistofu. Foreldrar Albínu: Unndór Jóns- son, f. 5.6. 1910, d. 11.2. 1973, fulltrúi Pósts og síma og síðar fulltrúi hjá Rikisendurskoðun, og k.h., Guðrún Símonardóttir, f. 10.9. 1914, hús- móðir og verslunarmaður. Albína Unndórsdóttir Guðrún Einarsdóttir húsfr. á Urriðafossi Gísli Guðmundsson b. á Urriðafossi í Flóa, systursonur Einars, langafa Gests alþm. á Hæli Kristgerður Eyrún Gísladóttir húsfr. á Stokkseyri Guðrún Símonardóttir verslunarm. í Rvík Símon Jónsson sjóm. og verkam. á Stokkseyri Ólöf Ingibjörg Símonardóttir húsfr. á Eystri-Móhúsum Jón Jónsson b. á Eystri-Móhúsum og form. á Stokkseyri Skúli Hall- dórsson tónskáld Jón Egill Unndórsson fyrrv. glímukóngur Símon Reynir Unndórsson fyrrv. hand- boltakempa Gerður Unn- dórsdóttir húsfr. Þórdís Unn- dórsdóttir gjaldkeri hjá Hásteini, áður hjá Björgun Þorbergur Ólafs- son verslunarm. áAkureyri Unnar Vilhjálmsson íþróttakennari á Akureyri Gísli Símonarson lögfræðingur í Rvík Magnús Skúlason arkitekt Rúnar Vilhjálmsson prófessor við HÍ Rakel Þorbergsdóttir fréttastj. á RÚV Einar Vilhjálmsson líffræðingur, þjálfari og fyrrv. afreks- maður í spjótkasti Ólafur J. Símonarson lögregluþjónn í Rvík Guðrún Árný Guðmunds- dóttir húsfr. í Rvík Unnur Skúla- dóttir fiski- fræðingur Matthías Viðar Sæmundsson prófessor við HÍ Halldór Georg Stefánsson læknir í Rvík Pétur Jónsson forstj. Péturs og Valdimars Valdimar Jónsson forstjóri Péturs og Valdimars Ragnheiður Sæmundsson fyrrv. bæjarstj. á Siglufirði Dýrleif Jónsdóttir fyrrv. starfsm. Gefjun áAkureyri Sigmar Vilhjálms- son forstj. Keilu- hallarinnar Guðmundur Kristinn Gíslason b. á Hurðarbaki í Villingaholtshreppi Guðmundur Sæmundsson prófessor við HÍ Dýrleif Rósa Randversdóttir húsfr. á Svertingsstöðum Þorlákur Pétur Hallgrímsson b. á Svertings- stöðum Albína Pétursdóttir húsfr. á Hallgilsstöðum Jón Stefánsson Melstað b. á Hallgilsstöðum í Hörgárdal Margrét Ingibjörg Eggertsdóttir húsfr. á Svertings- stöðum Stefán Jónasson b. á Svertingsstöðum og vegaverkstj. á Akureyri Úr frændgarði Albínu Unndórsdóttur Unndór Jónsson endurskoðandi í fjármálar.n. í Rvík Axel Kristjánsson, vélfræð-ingur og forstjóri Rafha,fæddist í Reykjavík 21.9. 1908. Hann var sonur Kristjáns Hálfdans Jörgens Kristjánssonar, múrara í Reykjavík, og k.h., Guð- rúnar Ólafsdóttur húsfreyju. Axel lauk prófum frá Iðnskólanum í Reykjavík og iðnnámi í Vélsmiðj- unni Hamri hf. 1928, vélstjóraprófi frá Vélskólanum í Reykjavík 1930 og prófi frá Köbenhavns Maskin- Teknikum1934. Axel stundaði verk- fræðistörf hjá Marinens Flyvevæ- sen, A.S. Atlas og Orlogsværftet í Kaupmannahöfn 1934-37, var eft- irlitsmaður flugvéla 1937-49 og var alla tíð mikill áhugamaður um flug, ráðunautur Fiskimálanefndar 1937- 50 og framkvæmdastjóri Raftækja- verksmiðjunnar hf. í Hafnarfirði frá 1939 og til dauðadags. Þá var hann tvívegis framkvæmdastjóri BÚH skamma hríð, aðaleigandi og stjórn- arformaður útgáfufyrirtækisins Hilmis hf., sat í Raforkumálastjórn, í stjórn Hafskips, í stjórn Iðn- lánasjóðs, Félags íslenskra iðnrek- enda og í bankaráði Iðnaðarbank- ans, var formaður Tæknifræð- ingafélags Íslands og sat í undir- búningsnefnd vegna stofnunar Tækniskóla Íslands. Axel var fjölhæfur athafnamaður og án efa í hópi merkustu brautryðj- enda í tækni- og iðnsögu þjóðarinnar á tuttugustu öld. Rafa-eldavélarnar, sem fyrirtæki hans framleiddi, voru á hverju heimili um áratuga skeið og þóttu bera af erlendum vélum. Axel var hár vexti og mynd- arlegur, glaðsinna og hressilegur í viðmóti en nokkuð seintekinn. Hann var í raun stórbrotin per- sóna, vandur að virðingu sinni, mikill vinur vina sinna en harður í horn að taka ef honum fannst á sig hallað. Axel var alla tíð jafnaðarmaður og mikils metinn ráðgjafi í þeirra her- búðum en sóttist ekki eftir pólitísk- um metorðum. Þá var hann frammá- maður í íþróttamálum Hafnfirðinga og hlaut heiðursmerki KSÍ. Axel lést 4.6. 1979. Merkir Íslendingar Axel Krist- jánsson 100 ára Hólmfríður Sölvadóttir 95 ára Kristín Ingvarsdóttir Ólöf Hannesdóttir 85 ára Bjarni Sæmundsson Erna Petrea Þórarinsdóttir Helga M. Guðmundsdóttir Sigrid L. Thordarson Sigurbjörg Njálsdóttir 80 ára Halldóra Hilmarsdóttir Sigfús Gunnarsson Sólveig G.B. Jóhannsdóttir Sævar Hannesson 75 ára Anna Dam Ingólfsson Erna Nielsen Hulda Sigríður Vidal Karl Egill Steingrímsson Kristín Kristensen Margrét Kristjánsdóttir Ragnar Friðriksson Ragnar K. Guðmundsson 70 ára Albína Unndórsdóttir Gunnar Karl Guðjónsson Hrafnhildur Magnúsdóttir Ingibjörg Sigursteinsdóttir Ólöf S. Eysteinsdóttir Stefanía Jónasdóttir Stefán H. Finnbogason Vignir Reynir Albertsson 60 ára Agnar Logi Axelsson Ása Kristín Jónsdóttir Guðbjörg Linda Rafnsdóttir Gunnhildur Arnardóttir Pálína Reynisdóttir Sigurlína Rósa Helgadóttir Örn Sturluson 50 ára Anna Snjólaug Arnardóttir Ása Guðmundardóttir Björgvin Þórisson Erna Joensen Creed Herdís Tómasdóttir John Rohmann Marcher Ryszard Masiejczyk Sigurður Sveinn Antonsson Valgerður B. Gunnarsdóttir Valur Karlsson Vilmundína Kristjánsdóttir Ylja Björk Linnet Þorstína H. Kristjánsdóttir 40 ára Anna-Karin Eriksson Arnfinnur Teitur Ottesen Arnheiður R. Ásgeirsdóttir Birgir Örn Einarsson Cherry Lind Meguines Daniel Marciniak Geda Cinciute Ólafur Marteinsson Paola Cardenas Sigríður Oddný Hrólfsdóttir Steinar Þorbjörnsson 30 ára Arnbjörg Jóhannsdóttir Ásthildur K. Björnsdóttir Björn Þór Hallgrímsson Davíð Sigurgeirsson Gedas Poskus Jón Trausti Sverrisson Laura Orsini Ribeiro Franca Lizbeth Flores Cruz Matús Siry Márton Lazáry Olga Bettý Antonsdóttir Ryan Michael Ruth Sigurður Eiður Indriðason Thelma Kristín Snorradóttir Þorsteinn Máni Bessason Til hamingju með daginn 30 ára Davíð ólst upp í Reykjavík, býr í Hafn- arfirði, er gítarleikari, út- setjari og kórstjórnandi. Maki: Jóhanna Guðrún Jónsdóttir, f. 1990, söng- kona. Dóttir: Margrét Lilja, f. 2015. Foreldrar: Anna Lilja Val- geirsdóttir, f. 1965, heilsu- meistari, og Sigurgeir Sigmundsson, f. 1958, tónlistarmaður og við- skiptafræðingur. Davíð Sigurgeirsson 30 ára Arnbjörg býr í Kópavogi, lauk MSc-prófi í samskiptum og er verk- efnastjóri á ferðaskrif- stofu. Maki: Daði Rafn Skúla- son, f.1982, heilsunudd- ari. Börn: Arey Lilja, f. 2010, og Barki Rafn, f. 2016. Foreldrar: Birna Jóns- dóttir, f. 1950, læknir, og Jóhann Rúnar Björg- vinsson, f. 1951, hagfræð- ingur. Arnbjörg Jóhannsdóttir 40 ára Arnheiður ólst fyrst upp í miðbæ Reykja- víkur og síðan Garðabæ á unglingsárunum, býr í Reykjavík og hefur starf- að hjá CCP síðastliðin fimm ár. Maki: Þórir Baldursson, f. 1979, starfsmaður hjá Össuri ehf. Börn: Vera Ísafold, f. 2011, og Flóki, f. 2015. Foreldrar: Steinunn Geirsdóttir, f. 1952, og Ás- geir Heiðar, f. 1951. Arnheiður Rós Ásgeirsdóttir Suðurhrauni 4210 Garðabæ | Furuvellir 3 600 Akureyri | Sími 575 8000 | samhentir.is Heildarlausnir í umbúðum og öðrum rekstrarvörum fyrir sjó- og landvinnslu ◆ KASSAR ◆ ÖSKJUR ◆ ARKIR ◆ POKAR ◆ FILMUR ◆ VETLINGAR ◆ HANSKAR ◆ SKÓR ◆ STÍGVÉL ◆ HNÍFAR ◆ BRÝNI ◆ BAKKAR ◆ EINNOTA VÖRUR ◆ HREINGERNINGAVÖRUR Allt á einum stað
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.