Morgunblaðið - 21.09.2017, Síða 63
DÆGRADVÖL 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2017
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Minniháttar árekstur getur leitt til
margskonar erfiðleika ef þú tekur ekki strax
af skarið og leysir málið. Þú átt fullt í fangi
með að fylgjast með tækninýjungum.
20. apríl - 20. maí
Naut Að reyna að standast freistingu er
stundum erfitt en ekki alltaf. Vertu hrein-
skilin/n, það borgar sig alltaf. Vinur er eitt-
hvað daufur í dálkinn.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú þarft að hafa það á hreinu að
enginn misskilji skilaboð þín því þá gætu af-
leiðingarnar orðið skelfilegar. Deildu skyldu-
störfum þínum með öðrum ef það hægt.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Brennt barn forðast eldinn. Það á við
um þig eftir síðasta ævintýri sem þú tókst
þátt í. Þú ert þrátt fyrir allt með hjartað á
réttum stað.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Gættu þess að vera ekki of́yfirþyrmandi
eða áhugasamur um eitthvað sem þig langar
til þess að gera í dag. Að staðna er það sem
þú óttast mest.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það væri ekki ónýtt að geta tekið sér
smá frí til þess að hlaða batteríið fyrir svart-
asta skammdegið. Þú hefur yfirleitt of margt
á þinni könnu. Reyndu að fækka skylduverk-
efnum.
23. sept. - 22. okt.
Vog Haltu þínu striki ótrauð/ur þótt þér finn-
ist erfitt að starfa undir eftirliti annarra. Með
stuðningi og hvatningu getur fólk náð langt.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Undanfarin ferðalög og mennt-
un hafa búið þig undir framgang í starfi sem
verður á næstu tveimur árum. Nú er komið
að því að sinna vandamálum og leiða þau til
lykta.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Atburðir dagsins eru fyllilega til
marks um innri baráttu þína. Mundu bara að
lofa ekki upp í ermina á þér, heldur vertu
heiðarleg/ur við alla.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú einbeitir þér að heimili og fjöl-
skyldu í dag. Fljótlega gerist eitthvað óvænt
sem færir þig nær ástinni – því dásamlega
fyrirbæri.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Einhvers konar ringulreið leggst
yfir umhverfi þitt í dag og þú átt fullt í fangi
með að hafa þitt á hreinu. Taktu það ekki
óstinnt upp þótt svör við spurningum láti
stundum bíða eftir sér.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú getur aðeins sjálfum þér um kennt
ef verkefnin eru að vaxa þér yfir höfuð. Út-
helltu ekki hjarta þínu yfir ókunnuga.
Víkverja skilst að bókin 1984 eftirGeorge Orwell sé nú aftur orðin
vinsæl hér á Íslandi. Þær vinsældir
má víst rekja til uppsetningar á leik-
riti byggðu á bókinni. Víkverji veit
varla hvort hann leggur í að sjá leik-
ritið, þar sem umrædd bók er líklega
uppáhaldsskáldverkið hans.
x x x
Það er nefnilega oft sagt um kvik-myndir sem byggðar eru á bók-
um, að fólki hafi fundist bókin betri.
Víkverji hefur raunar sjaldnast ver-
ið á þeim buxunum sjálfur, en hann
skilur samt hugsunina sem liggur að
baki. Engin kvikmynd, sama hversu
mikið er lagt í gerð hennar, getur
jafnast á við þá hugarheima sem
ímyndunaraflið býr til við lestur
bókarinnar. Víkverja grunar að það
sama eigi við um leikverk á sviði, all-
tént skemmti hann sér ekki vel síð-
ast þegar hann sá uppfærslu á 1984.
x x x
Raunar hefur bókin haft ýmis áhrifá Víkverja, allt frá því að hann
las hana fyrst í upphafi þessarar ald-
ar. Eitt sinn vann Víkverji til dæmis
í bingói hótelgistingu úti á landi í
einu ágætu sveitarfélagi. Þegar
þangað var komið fékk Víkverji út-
hlutað herbergi 101. Fyrir þá sem
ekki hafa lesið bókina þá er það her-
bergi staðurinn þar sem allar verstu
martraðir manns leynast. Víkverji
vill nú ekki ganga svo langt í lýs-
ingum sínum á því ágæta hótelher-
bergi, en óneitanlega var hann nokk-
uð smeykur þegar lykillinn snerist í
skránni. Martröðina sem leyndist
innandyra var síðan hægt að lagfæra
á einfaldan hátt með því að færa
rúmin saman.
x x x
Þá getur Víkverji einnig sagt aðhann hafi komið inn í „sann-
leiksráðuneytið“, en Orwell byggði
lýsingu sína á því á húsi einu í Lund-
únum, sem nefnist Senate House. Sú
bygging lítur raunar út eins og
draumabygging verðandi einræð-
isherra, og má geta þess að Oswald
Mosley, leiðtogi breskra fasista, ætl-
aði sér að nota húsið sem stjórnstöð
sína, þegar þeir tækju völdin af lög-
lega kjörnum stjórnvöldum. Vel val-
ið hjá Orwell sumsé. vikverji@mbl.is
Víkverji
Enginn er heilagur sem Drottinn, eng-
inn er til nema þú, enginn er klettur
sem Guð vor.
(I Sam. 2:2)
www.gilbert.is
KLASSÍSK ÍSLENSK ÚRLÍKA FYRIR DÖMURNAR
Benedikt Jóhannsson yrkir áBoðnarmiði:
Hún raunir geymdi í súrsarpi
og sjaldan lenti’í þrákarpi.
Hún fátt eitt sagði
að fyrra bragði,
en á Íslandsmet í andvarpi.
Allt var í góðu gengi þegar Helgi
R. Einarsson hlustaði á Benedikt
Jóhannesson flytja fjárlagaræðuna:
Fjármála-Bensi hinn bratti
er býsna klókur í snatti.
Málunum bjargað
ef búfénu’ er fargað
og bætt við svo örlitlum skatti.
Og „kjarasamningar nálgast“:
Að þumbast er þjóðlegur bransi
og þykjast, sem miðill í transi
og hér tíðkast það
hjá húskörlum að
eftir höfðinu limirnir dansi.
En skjótt skipast veður í lofti og
nú verða kosningar í næsta mánuði.
Jósefína Meulengracht Dietrich er
vel með á nótunum á Boðnarmiði:
Minnsta flokksins meginstefnu mjálma
ég um
rómi býsna reffilegum:
Ég galdra mun, svo gefist öllum góður
slatti,
pening upp úr pípuhatti.
„Það er haust,“ segir Pétur Stef-
ánsson á Leirnum:
Vex nú haustsins vindagnauð,
visna blóm og hníga.
Lauf af trjánum detta dauð
og dreifast um göngustíga.
Ingólfur Óma grípur boltann á
lofti:
Haustið er að hefja spjöll
hvellt í vindum gnauðar.
Blómin visin eru öll
og allar flugur dauðar.
Og Pétur slær botninn í kveð-
skapinn:
Vorfuglar allir virðist mér
vera burtu farnir.
en nóg af flugum eftir er,
einkum geitungarnir.
Ólafur á Hellulandi segir frá því,
að þegar Friðrik Sigfússon frá Pitta-
gerði var á 18. ári reri hann vestur
við Ísafjarðardjúp. Þá hafði verið
nokkur faraldur að einkennilegum
slysum eða sjálfsmorðum. Morgun
einn sá Friðrik mann einn ganga
fram af bryggju. Þá kvað hann:
Lán þótt höfum lítið vér
og leið sé töf í heimi
taka gröf að sjálfum sér
sýnist öfugstreymi.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af súrsarpi, pípuhatti
og dauðum flugum
„VIÐ HÆKKUM EKKI RÓMINN
– VIÐ LYFTUM AUGABRÚN.“
„ÞÚ GETUR SJÁLFUM ÞÉR UM KENNT AÐ
HAFA EKKI KEYPT KATTAMAT.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar þið getið horft
spennt fram á veg og
sleppt því að horfa til
baka.
VERÐUR LÍFIÐ EITTHVAÐ
BETRA EN ÞETTA, GRETTIR?
ÉG VONA
ÞAÐ
EINS
GOTT
Ó, NÚ ERT ÞÚ BYRJUÐ
AÐ ÝKJA!!
ÞESSI VINDBELGUR ER
ALLTAF AÐ ÝKJA!
HELGA, EINN DAGINN MUN ÉG
KAUPA HANDA ÞÉR KASTALA
FULLAN AF ÞJÓNUM!
MAMMA, HRÓLFUR ER
BARA MENNSKUR!
REIÐI-
STJÓRNUN
FYRIR
LENGRA
KOMNA