Morgunblaðið - 21.09.2017, Qupperneq 73
MENNING 73
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2017
Óhætt er að segja að skáld-sagan 1984 eftir GeorgeOrwell sé ein áhrifamestabók 20. aldar. Sú myrka
framtíðarsýn sem þar er dregin upp
hefur sett mark sitt á síðari tíma
dystópíur og nægir í því samhengi að
nefna Sögu þernunnar eftir Margaret
Atwood sem slegið hefur eftirminni-
lega í gegn í nýrri aðlögun fyrir sjón-
varpsskjáinn. Hvort sem fólk hefur
lesið 1984 eða ekki kannast flestallir
við hugtök á borð við Stóra bróður,
sem fylgst getur með öllu, og her-
bergi 101, þar sem einstaklingsins
bíður það sem hann óttast mest.
Þótt Orwell hafi skrifað bókina í
skugga seinni heimsstyrjaldar og vísi
t.d. í hreinsanir Kommúnistaflokks-
ins undir stjórn Jósefs Stalín í lýsingu
sinni á því hvernig þegnum er eytt úr
öllum opinberum skjölum og heim-
ildum talar skáldsagan til samtímans
með skuggalegum hætti. Það sést
best á því að henni skaut upp á met-
sölulista netbókaverslunarinnar
Amazon í upphafi árs í kjölfar þess að
Kellyanne Conway, ráðgjafi Donalds
Trump Bandaríkjaforseta, fór að tala
um öðruvísi staðreyndir eða sannlíki
(e. alternative facts). Sjálfur hefur
Trump ráðist harkalega á fjölmiðla
og sakað þá um að flytja falsfréttir (e.
fake news), sem er velþekkt bragð
stjórnvalda.
Leyndarhyggja og stýring á upp-
lýsingum er mikilvægt stjórntæki
veikra valdhafa sem þora ekki að
mæta almenningi á jafnræðis-
grundvelli með rökum og samtali
heldur sitja í fílabeinsturni og reyna
að telja þegnum trú um að „fáfræði
[sé] styrkur“. Í krafti upplýsinga-
skorts er einnig auðveldara að stýra
almenningi með ótta við sameigin-
legan óvin. Í slíkum heimi er ekkert
pláss fyrir gagnrýna hugsun,
mennsku, samkennd eða ást, enda
enginn hættulegri valdinu en sá eða
sú sem elskar því þá hefur viðkom-
andi eitthvað til að berjast fyrir.
Þrátt fyrir að verkið hafi verið
skrifað fyrir tæpum 70 árum talar
það með ískyggilegum hætti beint til
nútímans. Sú skynjun er undirstrikuð
í klókri leikgerð Roberts Ickes og
Duncans Macmillans þar sem tíminn
er leystur upp og fortíð, nútíð og
framtíð renna saman með áhrifarík-
um hætti, en í heimi verksins fyrir-
finnst ekkert nema viðstöðulaus sam-
tími. Þegar Winston Smith
(Þorvaldur Davíð Kristjánsson),
starfsmaður sannleiksráðuneytis
Eyjaálfu, í upphafi leiks hefur dag-
bókarskrif sín fyrir hina ófæddu er
hann sjálfur ekki einu sinni viss um
hvaða ár er og getur heldur ekki
svarað þeirri endurteknu spurningu
hvar eða hver hann haldi að hann sé.
Senur eru endurteknar með smá-
vægilegum breytingum eða færri
þátttakendum sem fær Winston til að
efast um eigin skynjun og geðheilsu.
En hver myndi ekki missa raunveru-
leikaskynið í heimi þar sem fylgst er
með borgurum allan sólarhringinn,
börnum er innrætt að njósna um for-
eldra sína í anda starfsaðferða Stasi,
yfirvöld breyta upplýsingum og stað-
reyndum eftir eigin geðþótta sem
krefst þess aftur að íbúar tileinki sér
tvíhugsun, þ.e. getuna til að sam-
ræma tvær mótsagnakenndar kenn-
ingar og leyfa þeim báðum að vera
réttar í senn. Undir stjórn Stóra
bróður eru tveir plús tveir þannig
ekki alltaf fjórir, heldur stundum
fimm, stundum þrír og stundum allt
þetta í einu, á sama hátt og „strax“ er
teygjanlegt hugtak.
Heimurinn breytist þegar Winston
kynnist Júlíu (Þuríður Blær Jóhann-
esdóttir), starfssystur sinni úr ráðu-
neytinu. Á yfirborðinu virðist hún
hlýðinn borgari, enda gengur hún
með skarlatsrauðan mittislinda til að
sýna Flokknum, sem öllu ræður í al-
ræðisríkinu Eyjaálfu, hollustu sína.
Þegar í ljós kemur að Júlía hefur
jafnmikinn ímugust á stjórnvöldum
og Winston taka þau upp ástar-
samband, enda felst pólitískur gjörn-
ingur í því að elskast í heimi þar sem
fullnæging er bönnuð. Elskendurnir
hittast á laun í bakherbergi forn-
munaverslunar Charrington (Jóhann
Sigurðarson), en herbergið er eitt
fárra þar sem engan eftirlitsskjá
Flokksins er að finna. Þau komast í
kynni við O’Brien (Valur Freyr
Einarsson), starfsbróður sinn úr
ráðuneytinu, sem tengir þau við and-
spyrnuhreyfinguna Bræðralagið. Áð-
ur en yfir lýkur lenda Winston og
Júlía hins vegar í klóm hugsana-
lögreglunnar og enda á að svíkja
ástina til að bjarga sér frá alvarlegum
limlestingum en missa í staðinn lífs-
neistann.
Sýningin, í leikstjórn Bergs Þórs
Ingólfssonar og ágætri þýðingu
Eiríks Arnar Norðdahl, byrjar af
miklum krafti eftir að dróni hefur
flogið yfir sviðið og áhorfendur verið
minntir á að Stóri bróðir fylgist með
öllu. Ágeng lýsing, hljóðmynd og
myndbönd eru nýtt með haganlegum
hætti til að skapa viðeigandi
andrúmsloft eftirlitssamfélagsins þar
sem snjallsíminn er notaður til að
skrásetja allt og tjá reiði. Hin undir-
liggjandi ógn hvarf hins vegar að
nokkru þegar tækni eftirlitsins var að
mestu lögð til hliðar um miðbik
verksins og hléið sleit stemninguna
óþarflega mikið í sundur. Sennilega
hefði það styrkt uppbyggingu sýning-
arinnar að sleppa hléinu og þétta at-
burðarásina á köflum.
Leikhópurinn stendur sig með
mikilli prýði og samleikurinn er góð-
ur. Þorvaldur Davíð Kristjánsson er
einstaklega sympatískur Winston.
Hann fær tækifæri til að fara allan til-
finningaskalann, frá reiði til örvænt-
ingar með viðkomu í voninni meðan
ástin blífur og skilar hlutverkinu af
miklu öryggi. Pyntingasenan í her-
bergi 101 í ástamálaráðuneytinu und-
ir forystu O’Briens er óhuggulega vel
útfærð og Valur Freyr Einarsson
sannfærandi sem fulltrúi hins mis-
kunnarlausa valds.
Þuríður Blær Jóhannesdóttir fær
úr minni efnivið að moða en gerir sér
þó góðan mat úr hlutverki ungu
stúlkunnar sem þráir byltingu, en er
frá höfundarins hendi smættuð niður
í kyn sitt þegar hún er sökuð um að
vera „bara uppreisnarmaður frá mitti
og niður úr“. Hannes Óli Ágústsson
er skemmtilegur í hlutverki Parsons,
vinnufélaga Winstons, sem er stoltur
af uppeldi ungrar dóttur sinnar
(Erlen Isabella Einarsdóttir) þótt
fórnarkostnaðurinn sé mikill. Erlen
Isabella sýnir frábæra takta í hlut-
verki dóttur Parsons-hjónanna og
hefur fallega nærveru í hlutverki
systur Winstons. Haraldur Ari Stef-
ánsson er spaugsamur í hlutverki
Symes, vinnufélaga Winstons, og
óhuggulega kaldur í hlutverki aðstoð-
armanns O’Briens. Þórunn Arna
Kristjánsdóttir á fallega innkomu
sem syngjandi öreigakona og er ör-
væntingin uppmáluð sem móðir Win-
stons annars vegar og frú Parsons
hins vegar. Jóhann Sigurðarson
rammar frásögnina vel inn í hlutverki
gestgjafans og fornmunasalans.
Leikmynd Sigríðar Sunnu Reynis-
dóttur er snjöll í einfaldleika sínum.
Fjöldinn allur af gráum tröppum sem
brotnar eru upp með misstórum pöll-
um kallast sterklega á við grafíkverk
hollenska listamannsins M.C. Escher
sem með meistaralegum hætti nýtti
sér óvenjuleg sjónarhorn og sjón-
skekkju til að fanga ómögulega hluti.
Sá ómöguleiki kallast sterklega á við
kröfu Flokksins um tvíhugsun og
markvissa útvötnun á tungumálinu
með þróun Nýmáls eða Nýsproks
sem gerir hugsanaglæpi sjálfkrafa
ógerlega. Tröppurnar mynda völund-
arhús þar sem persónur geta auð-
veldlega týnst í martraðarkenndum
heimi verksins. Búningarnir þjóna
sýningunni einnig afar vel.
Uppfærsla Borgarleikhússins á
1984 er áhrifamikið innleg inn í sam-
tímann. Umfjöllunarefnið er drunga-
legt, en myndirnar sem dregnar eru
upp lifa lengi með áhorfendum. Og
boðskapurinn er skýr: Við þurfum að
líta nógu lengi upp frá skjánum til að
taka eftir því sem á sér stað í kring-
um okkur og þora, líkt og leikstjórinn
sjálfur, að hafa hátt þegar okkur mis-
býður.
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
Þar sem ást-
inni er úthýst
Borgarleikhúsið
1984 bbbbn
Eftir George Orwell. Leikgerð: Robert
Icke og Duncan Macmillan. Íslensk þýð-
ing: Eiríkur Örn Norðdahl. Leikstjórn:
Bergur Þór Ingólfsson. Leikmynd: Sig-
ríður Sunna Reynisdóttir. Búningar:
Sigríður Sunna Reynisdóttir og Elísabet
Alma Svendsen. Lýsing og myndband:
Björn Bergsteinn Guðmundsson og Ingi
Bekk. Tónlist og hljóð: Garðar Borgþórs-
son. Leikgervi: Margrét Benediktsdóttir.
Leikarar: Þorvaldur Davíð Kristjánsson,
Þuríður Blær Jóhannesdóttir, Jóhann
Sigurðarson, Valur Freyr Einarsson,
Hannes Óli Ágústsson, Þórunn Arna
Kristjánsdóttir, Haraldur Ari Stefánsson
og Erlen Isabella Einarsdóttir. Frumsýn-
ing á Nýja sviði Borgarleikhússins
föstudaginn 15. september 2017.
SILJA BJÖRK
HULDUDÓTTIR
LEIKLIST
Innlegg „Uppfærsla Borgarleikhússins á
1984 er áhrifamikið innleg inn í samtímann.“
TUDOR rafgeymar
TUDOR TUDOR
Er fjórhjólið tilbúið fyrir
fyrir fjallaferðina?
Bíldshöfða 12 • 110 Rvk • 577 1515 • skorri.is
Mikið úrval - Traust og fagleg þjónusta
Veldu
öruggt
start með
TUDOR
NÝTT NÝTT,
Lithium rafgeymar fyrir mótorhjól
Miðasala og nánari upplýsingar
5%
SÝND KL. 6
SÝND KL. 10.20 SÝND KL. 6, 8, 10.50