Morgunblaðið - 05.10.2017, Page 6

Morgunblaðið - 05.10.2017, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2017 Fararstjórar: Anna Sigríður Vernharðsdóttir & Steinunn H. Hannesdóttir Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK ÁgönguskíðumíSeefeld Vetrarfrí á gönguskíðum í skemmtilegum félagsskap og fallegu umhverfi er sannkallaður draumur útivistarfólks. Vetrarólympíubærinn Seefeld býður upp á allt það besta til að gera skíðagönguferðina þína að ógleymanlegu ævintýri. Skíðabrautir svæðisins eru um 250 km langar í 1.200 - 1.550 m hæð yfir sjávarmáli og henta jafnt byrjendum sem lengra komnum. Gist verður á 4 stjörnu hóteli með heilsulind. Verð: 188.800 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! sp ör eh f. 3. - 10. febrúar gegn kynbundnum launamun. Kon- um hafi fjölgað í stjórnum fyrir- tækja í 80% af OECD-löndum á ár- unum 2013-’16. Þá hafi víða verið vitundarvakning um ofbeldi gagnvart konum og um helmingur OECD-ríkja hefur ýmist tekið upp kynjaða fjárlagagerð eða hyggst gera það. Ísland er eitt þeirra landa. bæði launuð og ólaunuð, þá er vinnu- dagur kvenna nokkuð lengri. Margt hefur lagast En staðan er ekki að öllu leyti slæm og í skýrslunni segir að fyllsta ástæða sé til bjartsýni. Til dæmis hafi launað fæðingarorlof karla nú verið tekið upp í mörgum löndum og þá hafi víða verið skorin upp herör Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Þetta verður örugglega mjög gaman. Ég bjó í London þegar ég var í námi en hef ekki komið hingað í fimm ár,“ segir Ari Eldjárn uppi- standari sem treður upp í Soho Theatre í London í kvöld. Þetta verður fyrsta sýning af þremur á Pardon My Icelandic, þeirri sömu og Ari sló í gegn með á Edinborgar- hátíðinni í sumar. „Þetta eru nú bara hægfara þreifingar,“ segir Ari þegar hann er spurður um frekari verkefni á erlendri grund. Eftir Edinborgar- hátíðina samdi hann við umboðs- skrifstofu Eddie Izzard, Mick Perr- in, og giggin í London eru þau fyrstu sem bókuð voru. „Þau seld- ust upp og það eru allir voða ánægðir,“ segir Ari og bætir við að góðar líkur séu á því að hann troði aftur upp í London innan tíðar. Honum hefur verið boðið á Mel- bourne Comedy Festival á næsta ári og aðra hátíð á Nýja-Sjálandi beint í kjölfarið en hefur ekki ákveðið hvort hann þiggur þau boð. Hann telur allar líkur á því að hann troði aftur upp á næstu Edinborgarhátíð. „Planið er að búa áfram á Íslandi en hafa nóg að gera í hinum ensku- mælandi heimi. Ég hef of sterkar rætur heima til að rífa mig og mína upp.“ „Hægfara þreif- ingar“ í útrás Ara  Uppselt á þrjár sýningar í London  Boðið til Nýja-Sjálands og Ástralíu Morgunblaðið/Eggert Útrás Ari Eldjárn hefur vakið at- hygli í hinum enskumælandi heimi. Farþegar með WOW air sem misstu af framhaldsflugi vegna seinkana hjá félaginu um mitt ár í fyrra og kröfðust skaðabóta urðu að sætta sig við ólík málalok samkvæmt tveimur nýlegum ákvörðunum Sam- göngustofu. Í öðru málinu voru bæt- ur ákveðnar en í hinu ekki. Fyrrnefnda málið snerist um far- þega sem á leið frá Keflavík 19. júní 2016 tafðist um 3 klukkustundir og 40 mínútur vegna þess að vél WOW air sem lenda átti í London kl. 10:30 lenti ekki fyrr en 14.10. Flugfélagið bar meðal annars fyrir sig aðgerðir í kjaradeilu flugumferðarstjóra sem leiddu til þess að ekki voru nægilega margir í flugturni til að öruggt væri að hefja flugið. Á móti benti Sam- göngustofa á að aðgerðirnar hefðu staðið yfir frá kl. 9-9.30, en flugið hefði átt að hefjast kl. 6.20. Farþeg- anum voru því ákvarðaðar bætur að upphæð 400 evrur, tæplega 50 þús- und íslenskar krónur. Bæturnar voru fyrir seinkunina en ekki vegna þess að hann missti af framhalds- fluginu. Segir Samgöngustofa að flugfélög beri eingöngu ábyrgð á eigin flugi en ekki annarra. Síðarnefnda málið snerist um fjöl- skyldu á leið frá Keflavík til Amst- erdam 11. júní 2016. Þau áttu bókað framhaldsflug til Ítalíu en vegna þess að flug WOW air tafðist um 1 klukkustund og 12 mínútur gátu þau ekki beðið eftir farangri sínum í Amsterdam og urðu að halda í fram- haldsflugið án hans. Farangurinn barst þeim til Ítalíu tveimur dögum seinna. Við ákvörðun í málinu horfði Samgöngustofa til þess að seinkunin var minni en 3 klukkustundir sem er lágmarksskilyrði ef greiða á bæt- ur. Tími ræður bótum  Flug þarf að tefjast um 3 klukkutíma að lágmarki til að far- þegar fái bætur  Engin tenging bóta og framhaldsflugs „Staðan hér á landi er vissulega góð að mörgu leyti, en á sumum sviðum erum við íhaldssamari en aðrar þjóð- ir,“ segir Tryggvi Hallgrímsson, sérfræðingur á Jafnréttisstofu, um skýrslu OECD og stöðu mála hér á landi. Þar á hann m.a. við að vinnumarkaður er talsvert kynskiptari hér á landi en víða annars staðar. „Þetta er praktískt mál fyrir vinnumarkaðinn, ef fleiri karlar væru í þessum störfum, þá væri væntanlega auðveldara að manna þau,“ segir Tryggvi. Hann segir að í þessu sam- bandi skipti jafnréttisfræðsla miklu máli og að börn al- ist upp við að bæði kyn sinni öllum störfum. Annað sem Tryggvi nefnir eru þau áhrif sem ólaunuð störf hafa á starfsframa og tekjumöguleika kvenna. „Afleiðingin eru lægri laun kvenna, sem hefur síðan áhrif á lífeyrisréttindi þeirra sem veldur svo auknu álagi á velferðarkerfið. Þetta er bara eitt dæmi um hvernig jafn- réttismálin ná til alls samfélagsins.“ Nær til alls samfélagsins STAÐAN GÓÐ, EN ENN GÆTIR ÍHALDSSEMI Á SUMUM SVIÐUM Tryggvi Hallgrímsson Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Konur eru innan við þriðjungur kjörinna þingmanna í löndum Efna- hags- og framfarastofnunarinnar, OECD, og kynbundinn launamunur er að meðaltali 15%, körlum í vil. Barneignir hafa miklu neikvæðari áhrif á starfsframa og launakjör kvenna en karla og það sama má segja um hækkandi aldur. Reyndar gætir kynjamisréttis á öllum sviðum samfélagsins í löndum OECD, burt- séð frá efnahag landanna, og minni framfarir en búist var við hafa orðið á þessu sviði undanfarin fimm ár. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri skýrslu stofnunar- innar um stöðu jafnréttismála á ýmsum sviðum samfélagsins í aðild- arlöndum hennar. Í skýrslunni, sem birt var í gær, segir að setja ætti jafnrétti kynjanna í forgang til að efla hagvöxt og sjálfbærni. Kynjakvótar öflugt verkfæri Að mati skýrsluhöfunda OECD eru kynjakvótar öflugt verkfæri til að brjóta glerþakið svokallaða til að fjölga konum bæði í stjórnmálum og í ábyrgðarstöðum á vinnumarkaði. Meðal annarra leiða sem nefndar eru til að draga úr misrétti eru greiðari aðgangur að dagvistun og sveigjanlegur vinnutími. Fleiri konur en karlar eru með grunnháskólagráðu eða meistara- próf í löndum OECD, en fleiri karlar eru með doktorspróf. Í skýrslunni segir að þó að námsárangur drengja mælist slakari en stúlkna við 15 ára aldur, hafi þeir náð þeim í lestri og tekið fram úr þeim í raungreinum við 27 ára aldurinn. Staðalmyndum kynjanna eru gerð skil í skýrslunni og þar segir að þær séu hindrun í átt að jafnrétti kynjanna. Fjölmiðlar gegni þar veigamiklu hlutverki og sú stað- reynd að minna sé fjallað um konur en karla og að umfjöllunin sé öðru- vísi viðhaldi þessum staðalmyndum. Konur voru 20% þeirra sem sátu í stjórnum fyrirtækja í löndum OECD og þær voru 4,8% forstjóra. Þá eru konur líklegri en karlar til að vera í hlutastarfi, viðvera karla á vinnustað er talsvert lengri en kvenna en þegar öll vinna er skoðuð, Morgunblaðið/Þorkell Jafnrétti Enn er langt í land að mati höfunda nýrrar skýrslu. Staða mála hér á landi er betri en víða annars staðar. Enn heldur glerþakið  Ný skýrsla OECD sýnir að margt er enn óunnið í jafnrétt- ismálum  Betri staða hér á landi  Staðalmyndir hindrun Staða kvenna í ríkjum OECD Heimild: OECD - The pursuit of gender equality Hlutfall af þingmönnum Útskrifast úr grunnháskólanámi Kynbundinn launamunur Hlutfall stjórnenda í atvinnulífinu OECD- meðaltal Ísland 30% 28,7% 15% 58% 9,9% 62,5% 38,2% 47,6% OECD- meðaltal Ísland OECD- meðaltal Ísland OECD- meðaltal Ísland „Það er þráður í þessum við- ræðum og menn eru bara að tala saman,“ sagði Jón Þór Þor- valdsson, for- maður samn- inganefndar Félags íslenskra atvinnuflug- manna, þegar Morgunblaðið leitaði fregna af kjaradeilu félagsins og Icelandair. Deilunni var vísað til ríkis- sáttasemjara 26. september og var fyrsti sáttafundurinn haldinn á mánudaginn. Næsti fundur er boðaður miðvikudaginn 11. októ- ber. Jón Þór taldi ekki tímabært að ræða stöðu deilunnar að öðru leyti eða hvort einhverjar aðgerðir væru í undirbúningi. Málið væri ekki á því stigi. „Menn eru bara að tala saman og vinna heimavinnuna sína,“ sagði hann. gudmundur@mbl.is „Það er þráður í viðræðunum“  Kjaradeila flugmanna hjá sáttasemjara Jón Þór Þorvaldsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.