Morgunblaðið - 05.10.2017, Page 20
20 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2017
Kaffisamsæti sem kallast prjónakaffi
ganga út á að konur og karlar hittast
með handavinnu yfir kaffibolla. Þetta
er notaleg samvera og oft eru kynn-
ingar tengdar handavinnu partur af
hugmyndinni. Í rúman áratug hefur
Heimilisiðnaðarfélag Íslands staðið
fyrir mánaðarlegu prjónakaffi og
undanfarin misseri hefur prjóna-
kaffið verið í Nethyl 2e í Reykjavík
fyrsta fimmtudagskvöld í mánuði.
Á prjónakaffi októbermánaðar í
kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20 ætlar
Hulda Brynjólfsdóttir að koma í
heimsókn og kynna UPPSPUNA, smá-
spunaverksmiðju sem nýlega hóf
starfsemi á Tyrfingsstöðum. Í verk-
smiðjunni er framleitt prjónaband úr
sérvalinni hreinni og fallegri íslenskri
ull. Kostir verksmiðjunnar eru þeir að
hægt er að spinna fjölbreytt prjóna-
band úr litlu magni af ull í einu sem
gefur möguleika á að framleiða band
af tilteknu sauðfjárbúi eða jafnvel til-
tekinni kind. Fyrstu afurðirnar eru
Hulduband og Dvergaband og verða
þær til sýnis og sölu á prjónakaffinu.
Aðgangur er ókeypis á prjónakaffi og
allir eru hjartanlega velkomnir.
Prjónakaffi í kvöld á vegum Heimilisiðnaðarfélagsins
Sérvalin, hrein
ull í prjónaband
Hulda Hún framleiðir prjónaband.
Ljósmyndir/Erla Þórey
Eintrjáningur Einhyrningur er meira fyrir að vera einn en með öðrum. Hann fer hvert sem hann vill.Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Einhyrningur hefur haft þaðharla gott síðan hann varsíðast í fjölmiðlum, enginstórtíðindi í lífi hans og ég
gleymi stundum alveg hvað hann er
frægur. Hann kemur vel undan
sumri og fór meira að segja á hrúta-
sýningu um daginn, hann fékk að
fara með hinum hrútunum til gam-
ans, en hann var ekki dæmdur. Fólki
leist bara ágætlega á hann, en flestir
höfðu þó séð hann áður, enda innan-
sveitarfólk á sýningunni,“ segir Erla
Þórey Ólafsdóttir, bóndi í Hraunkoti
í Landbroti og eigandi hins sérstaka
hrúts, Einhyrnings, sem komist í
heimsfréttirnar síðastliðið vor þegar
sagt var frá honum hér á þessum síð-
um. Fyrir sitt einstaka útlit, með
horn sín samvaxin sem eitt stórt upp
úr höfði, rataði hann á ekki ómerkari
miðla en BBC, Daily Mail, News
Week og Machable, sem og í mexí-
kóska og þýska fjölmiðla.
Mun hornið vaxa inn í bakið?
Erla segir að fólk hafi stungið
upp á því í framhaldi frægðarinnar
að þau létu Einhyrning vinna fyrir
sér með því að selja ferðamönnum
aðgang að honum, til að fá að berja
fyrirbærið augum.
„Nei, við gerðum það ekki. Við
leyfðum honum að lifa sínu hvers-
dagslega lífi, hann var hér í heima-
högum í sumar með hinum fullorðnu
hrútunum. En Einhyrningur samlag-
aðist hrútahópnum ekki mjög vel,
hann var þó nokkuð einn. Ég veit
ekki hvort hann hefur verið skilinn út
undan, kannski af því hann er öðru-
vísi, eða hvort hann hefur hreinlega
kosið einveruna sjálfur af ein-
hverjum ástæðum. Hann er því þó
nokkur eintrjáningur en hann náði að
ergja okkur svolítið í sumar, hann
reyndist vera girðingafantur og var
að stelast þó nokkuð í túnin. Hann
fór þar sem hann vildi fara, lét ekki
girðingar stoppa sig til að komast úr
úthaganum inn á ræktuð tún.“
Erla segir börnin sín þrjú ekki
hafa lagt sig neitt sérstaklega eftir
því að spekja Einhyrning, ekkert
meira en aðrar kindur. Hann sé því
ekki gæfur úti í haga, en rólyndis-
skepna þegar hann er inni í fjárhúsi.
Þegar Erla er spurð að því
hvernig Einhyrningi hafi gengið að
halda holdum, því hann var nokkuð
rýr í vor, þá segir hún hann vera
blómlegan og að honum virðist líða
vel, hornið sé honum ekki til trafala á
nokkurn hátt.
„Hornið hefur auðvitað vaxið
heilmikið og börnin mín hafa þó
nokkrar áhyggjur af því að það muni
á endanum vaxa inn í bakið á honum,
því það sveigist aftur og niður.“
Einhyrningur hefur verið
listafólki innblástur
Erla segir að hinir og þessir hafi
komið fram með ýmsar hugmyndir í
vor um hvað ætti að gera við Ein-
hyrning. Einhverjir stungu upp á að
hann yrði fluttur í Húsdýragarðinn í
Reykjavík, en það kom ekki til greina
því það er stranglega bannað að
flytja sauðfé frá heimahögum hrúts-
ins til höfuðborgarinnar. Þar fyrir ut-
an fellur það ekki að stefnu Húsdýra-
garðsins að hafa sérkennileg dýr eins
og Einhyrning til sýnis.
„Fólk hafði líka samband við
mig sem langaði að bjarga Einhyrn-
ingi frá dauða, þetta var vegan-fólk
sem langaði að stofna garð eða ein-
hverskonar friðarstað, en þau
þekktu ekki vel til reglugerða og
vissu ekki af sauðfjárveikivörnum
sem banna að sauðfé sé flutt lifandi
á milli varnarhólfa, svo það var
kannski sjálfhætt með hugmyndina.
Ég hef í það minnsta ekkert heyrt
frá þeim aftur. Ég gerði þeim líka
grein fyrir að þau þyrftu að sjá Ein-
hyrningi fyrir fóðri, það þyrfti að
heyja að sumri eða kaupa hey til að
eiga yfir veturinn til að gefa skepn-
unni,“ segir Erla og bætir við að
Einhyrningur hafi líka verið lista-
fólki innblástur, listakona norður á
Akureyri fékk leyfi til að nota hann
sem fyrirmynd í skúlptúr.
Annar Einhyrningur kom í
heiminn í sömu sveit
Þau hjónin í Hraunkoti, Erla og
Bjarni, hafa velt heilmikið fyrir sér
hvað þau ættu að gera við Einhyrn-
ing, og loksins komist að niðurstöðu.
„Við erum búin að ákveða fram-
tíð hans. Við höfum ákveðið að gefa
hann á uppboð sem er alltaf haldið
hérna í Skaftárhreppi í tengslum við
árlega uppskeruhátíð í byrjun nóv-
ember. Í tengslum við uppskeruhá-
tíðina eru margir viðburðir í sveitar-
félaginu. Ágóðinn af uppboðinu fer
svo í gott málefni hér innan sveitar.
Er þetta ekki bara góður endir
á þessu Einhyrningsævintýri?“ spyr
Erla og hlær. En ævintýrið heldur
kannski áfram annars staðar, því
Erla segir að síðastliðið vor hafi
fæðst í sveitinni annar hrútur með
samvaxin horn, rétt eins og Ein-
hyrningur þeirra. „Það var á bænum
Kirkjubæjarklaustri II, og vissulega
ástæða til að velta fyrir sér hvernig
á því standi að tveir svona hrútar
fæðist með stuttu millibili í sömu
sveit. Kannski er einhver skyldleiki
með fénu, að það beri í sér gen sem
valdi þessum samvexti hornanna?
Hver veit.“
Einhyrningur
heldur á
nýjar slóðir
Þau Erla og Bjarni veltu lengi fyrir sér hvað þau ættu
að gera við hrútinn sinn og fyrirbærið Einhyrning sem
vakti heimsathygli í vor. Fólk hafði ýmsar hugmyndir
um það, en nú hafa þau ákveðið að gefa hrútinn á upp-
boð sem haldið verður á uppskeruhátíð í Skaftárhreppi
í nóvember. Ágóðinn fer í gott málefni innan sveitar.
Sveitabörnin Heimasætan og litli bróðir saman í fjósinu að huga að kúnum.
Sérstakur Einhyrningur er hér einna líkastur geithafri og stingur vissu-
lega í stúf þar sem hann lætur sig hafa það að vera með hinum hrútunum.
Fjölskyldan Erla sá um að taka
mynd af manni sínum og börnum
þeirra, f.v. Bjarni Dagur, Bjarni,
Orri, Vilhjálmur og Ólöf Ósk.
Smart föt, fyrir smart konur
Holtasmári 1
201 Kópavogur
sími 571 5464
Str. 38-52
Edison Cabanlit ætlar að veita gest-
um innsýn í tungumál og menningu
Filippseyja á Café Lingua í dag,
fimmtudag í Bókasafninu í Kringlunni
kl. 17. Á Filippseyjum eru töluð 187
tungumál en Edison er Filippseyingur
og hefur búið á Íslandi s.l. ár. Hann
starfar sem kokkur í Reykjavík, móð-
urmál hans er bisaya, en hann talar
einnig tagalog og ensku og getur tjáð
sig á íslensku. Café Lingua viðburð-
urinn fer fram á ensku og eru allir
velkomnir.
Stefnumót við tungumál
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson
Gaman Á Café Lingua er líf og fjör.
187 tungumál