Morgunblaðið - 05.10.2017, Síða 33
FRÉTTIR 33Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2017
al.is
Öflug þjónusta
við leigjendur
Langtímaleiga
Sveigjanleiki
24/7 Þjónusta
Samstarf Almenna leigufélagsins og
Securitas tekur til allra íbúa félagsins.
Almenna leigufélagið býður viðskiptavinum sínum
upp á hátt þjónustustig, langtímaleigu og sveigjanleika.
Þannig tökum við þátt í að byggja upp faglegan
og traustan leigumarkað.
úr austurbakka Eldvatns svo stöp-
ull brúarinnar við Eystri-Ása er
nánast í lausu lofti og hefur lítið
meira en táfestu í jarðvegi. Slíkt
skapar hættu og var brúin lokuð
talsverðan tíma eftir hlaupið, en
hefur síðan verið opin fyrir um-
ferð léttari bíla.
Ný brú yfir Eldvatn verður tví-
breið og 78 metra löng og nú í
vikunni var auglýst eftir tilboðum
í smíði brúarinnar sem á að kom-
ast í gagnið 1. nóvember á næsta
ári.
Þjóðarbrú á þurru
Árið 2009 urðu þær breytingar
á Skeiðarársandi að Skeiðará
færðist úr farvegi sínum og til
vesturs í Gígjukvísl. Má þetta
rekja til loftslagsbreytinga og
hærra hitastigs svo jöklar eru á
undanhaldi. Skeiðarárbrúin sem
er 880 metrar og hin lengsta á
landinu stóð þá eftir á þurru.
Austast á sandinum var Morsáin
sem fellur úr jökli fram stök eftir.
Með tilliti til þess að brúna löngu
þurfti að endurbæta verulega eftir
langa notkun og með tilliti til
nýrrar krafna kom betur út að
brúa Morsá og leggja nýjan akveg
um fyrrverandi farveg Skeiðarár.
Þau mannvirki voru tekin í notkun
í byrjun september síðastliðins.
Almennt er náttúra á þessum
slóðum mjög að breytast og land
að rísa, enda minnkar farg á því
þegar jöklar hopa. Þá er Skeiðar-
ársandur mjög að gróa upp og fal-
legir birkilundir dafna þar.
Óákveðið er hvað verður gert
við efnið úr Skeiðarárbrúnni
gömlu sem var tekin í gagnið
1974, til dæmis járnbita og timb-
ur, en á því herrans ári var efnt
til margvíslegra hátíðahalda og
verkefna í tilefni af 1100 ára af-
mæli Íslandsbyggðar. Eitt af þeim
var að opna hringveginn – og til
þess hafði þurft að brúa árnar á
Skeiðarársandi og var það var
fjármagnað með happdrætti. Ríkið
gaf út skuldabréf til tíu ára og sló
þannig lán hjá fólkinu í landinu
fyrir „þjóðarbrúnni“ sem svo
mætti kalla.
Bilið brúað við Steinavötn
Það nýjasta er Steinavötn sem
eru skammt austan við Hala í
Suðursveit. Brúin sem þar stendur
og hefur verið dæmd ónýt er ein-
breið, byggð 1965 og því komin á
tíma, ef svo mætti segja. Um
stundarsakir mun bráðabirgða-
mannvirki brúa bilið, í orðsins
fyllstu merkingu, en nýsmíði er
óhjákvæmilegt verkefni sem gæti
kostað 500-750 milljónir króna.
Múlakvísl Snör handtök við byggingu bráðabirgðabrúar sumarið 2011 vöktu athygli og aðdáun þjóðarinnar.
Skeiðará Rann í farveg Gígjukvísl-
ar. Lengsta brú Íslandsstóð á þurru.
Nú er ekið um spánýja Morsárbrú.
Brýr á Suðausturlandi eru í deiglunni
Höfn í
Hornafirði
Skaftafell
Vík
Kirkjubæjar-
klaustur
VATNAJÖKULL
Skeiðará Fór í farveg Gígjukvíslar.
Lengsta brú á Íslandi stendur á þurru.
Steinavötn
Brú frá 1965
eyðilagðist.
Bráðabirgðabrú
reist en ný brú
til framtíðar
verður byggð.
Múlakvísl Brú tók af í flóði
2011 og byggja þurfti nýja.
Eldvatn Flóð gróf
undan stöpli. Ný
brú væntanleg.