Morgunblaðið - 05.10.2017, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 05.10.2017, Blaðsíða 34
34 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2017 BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Fólk sem skarar framúr á ein- hverju sviði fellur oft illa inn í hóp- inn. Það átti ekki við Guðmund. Hann var frábær bóndi og tók þátt í lífi og starfi fólksins í Hvítársíðu,“ segir Ingibjörg Daníelsdóttir, bóndi og kennari á Fróðastöðum, um sveitunga sinn, Guðmund Böðvars- son skáld á Kirkjubóli. Ingibjörg er formaður stjórnar Minningarsjóðs Guðmundar og konu hans Ingi- bjargar Sigurðardóttur. Sjóðurinn veitir ljóða- og menningarstyrki. Ingibjörg og Ragnar Sigurðsson ferðaþjónustubóndi á Kirkjubóli, sonarsonur skáldsins, hafa áhuga á að minnast hans með minnisvarða á Kirkjubóli. Ingibjörg segir að Borgfirðingar séu stoltir af því að hafa átt skáldið á Kirkjubóli og vilji halda minningu hans á lofti. Húsið stofn að minningarsjóði Minningarsjóðurinn var stofn- aður á árinu 1974, eftir lát Guð- mundar en Ingibjörg kona hans hafði dáið nokkrum árum fyrr. Erf- ingjar þeirra gáfu íbúðarhús þeirra á Kirkjubóli til sjóðsins og fyrir- tæki og stofnanir í héraðinu lögðu honum einnig lið. Að sjóðnum standa nokkur félagasamtök í hér- aðinu ásamt Rithöfundasambandi Íslands og afkomendum þeirra hjóna. Skáld og rithöfundar fengu afnot af „Húsi skáldsins“. Ingibjörg segir að aðsókn hafi verið góð fyrstu árin en síðan dregist saman. Það hafi leitt til þess að ákveðið var að selja húsið og setja andvirði þess í sjóð með það hlutverk að styrkja skáld og menningar- starfsemi. Vextir af höfuðstól hafa verið notaðir til úthlutunar á tveggja til þriggja ára fresti. Verðlaunin eru tvískipt, annars vegar ljóðaverðlaun og hins vegar menningarverðlaun. Einstaklingar, félög og tónlistar- hópar hafa fengið síðarnefndu verð- launin, Borgfirsku menningar- verðlaunin, síðustu tvo áratugina, síðast Þjóðlagasveitin / Fiðlusveitin Slitnir strengir á Akranesi. Nokkur af þekktustu skáldum landsins hafa fengið ljóðaverðlaunin, síðast Stein- unn Sigurðardóttir, rithöfundur og ljóðskáld. Minnisvarði í skóginum? Ingibjörg er ánægð með að hægt sé minnast Guðmundar með þess- um hætti en lýsir þeirri skoðun sinni að gaman væri að reisa minn- isvarða á Kirkjubóli eða minnast hans á einhvern annan hátt þar. Minningarsjóðurinn er tengdur nafni þeirra beggja, Guðmundar og Ingibjargar konu hans. Ingibjörg Daníelsdóttir segir að Ingibjörg hafi verið kletturinn í lífi Guð- mundar. Hún hafi skapað honum aðstæður til að sinna skáldskapnum þrátt fyrir annir í starfi bóndans. Ragnar Sigurðsson, ferðaþjón- ustubóndi á Kirkjubóli, hefur áhuga á að koma upp minnisvarða um afa sinn. Telur hann að vel færi á því að gera það í skógarreitnum sem Guðmundur kom upp. Ragnar hafði um tíma áform um að gera safn um ævi og störf Guðmundar í kjallara fjóssins sem hann hefur breytt í veitinga- og gistihús. Erfingjar þeirra hjóna gáfu ýmsa persónu- lega muni hans á Byggðasafn Borgarfjarðar. Ragnar vildi fá þessa muni lánaða sem stofn að safni en segist ekki hafa fengið undirtektir. Stærsti hluti viðskiptavina ferða- þjónustunnar á Kirkjubóli er er- lendir ferðamenn. Þó slæðast Ís- lendingar með og segir Ragnar að gestir úr innlendum hópum spyrji oft mikið um afa hans. Ferðaþjónustan gengur vel Ragnar byrjaði í ferðaþjónust- unni fyrir rúmum sex árum. Var með fjögur gistiherbergi fyrsta árið en tvöfaldaði framboðið á hverju ári í upphafi og er núna með 35 herbergi og gistingu fyrir um 80 manns. „Þetta hefur gengið vel, einkum í ár og á síðasta ári. Besta sumarið var í fyrra en ég held að varla sé hægt að gera ráð fyrir mikilli aukningu úr þessu,“ segir Ragnar. Hvítársíða er ekki við megin- leiðir ferðafólks en þar í nágrenn- inu eru náttúruundur eins og Hraunfossar og hellarnir í Hall- mundarhrauni. Gestirnir hafa margt að skoða og Ragnar segir að margir fari einnig í gönguferðir og stundi aðra útivist. Hann segir nokkuð um að gestir dvelji meira en eina nótt og geri þá út frá Kirkjubóli, til dæmis með ferðum um Borgarfjörð og á Snæfellsnes. Áhugi á að reisa minnisvarða um skáldið Kirkjuból Ragnar Sigurðsson hefur byggt upp ferðaþjónustu. Hann tekur á móti gestunum í fjósi og hlöðu sem breytt hefur verið í takti við nýja tíma. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Minningar Trjálundurinn stendur eftir þótt gamla íbúðarhúsið á Kirkjubóli hafi verið rifið. Ragnar Sigurðsson og Ingibjörg Daníelsdóttir rifja upp gamla tíma. Ingibjörg minnist Guðmundar Böðvarssonar sem góðs nágranna.  Minningarsjóður Guðmundar Böðvarssonar veitir reglulega borgfirsk menningarverðlaun og ljóðastyrki  Myndarleg ferðaþjónusta rekin á Kirkjubóli í Hvítársíðu og gestir spyrja um skáldið Það varð mikið áfall fyrir Guðmund Böðvarsson þegar hann barn að aldri missti móður sína enda leystist heim- ilið upp. Það varð þó ef til vill til þess að hæfileikar hans uppgötv- uðust. Guðmundur fæddist á Kirkju- bóli 1. september 1904 og ólst þar upp til 10 ára ald- urs. Þá dó móðir hans og heimilið leystist upp. Ingi- björg á Fróðastöðum segir að það hafi haft mikil áhrif á drenginn og vís- ar til sendibréfa hans sem Silja Að- alsteinsdóttir birtir í ævisögu Guð- mundar, „Skáldið sem sólin kyssti“. Þegar Guðmundur var á 16. ári réðst hann að Gilsbakka. Svo vildi til að kvöldið fyrir vistaskiptin slasaðist hann á hendi og var því óvinnufær fyrstu dagana á nýja staðnum. Þess vegna lét séra Magnús Andrésson á Gilsbakka hann lesa fyrir sig þar sem hann átti orðið erfitt með það sjálfur. Það varð til þess að Magnús áttaði sig á því að Guðmundur bjó yfir óvana- legum hæfileikum og næmi. Sá hann því til þess að Guðmundur hefði verð- ug viðfangsefni í frítíma sínum. Þar kynntist Guðmundur einnig börnum séra Magnúsar og gerðist Ragnheið- ur trúnaðarvinur hans. Í ævisögunni segir Silja að hún hafi gerst móðir hans, systir og listagyðja. Guðmundur gekk inn í búskapinn á Kirkjubóli með föður sínum og giftist Ingibjörgu Sigurðardóttur frá Hvammi. „Ljóð Guðmundar eru samofin náttúrunni og oft með djúpan und- irtón. Stundum tregablandin. Auðséð er að hann hefur átt í baráttu um það hvort hann ætti að velja bóndann eða skáldið,“ segir Ingibjörg. Hann orti mikið um sitt nánasta umhverfi, með- al annars Tvídægru en þar átti hann oft leið um í leitum og veiðiskap og Hvítá sem rennur við túnfótinn og brýtur miskunnarlaust úr bökkum sínum. Guðmundur gaf út tíu ljóðabækur, þá fyrstu 1936, Kyssti mig sól. Auk þess þýddi hann Tólf kviður úr gleði- leiknum guðdómlega eftir Dante og gaf út eina skáldsögu og þrjú sagna- söfn. Hann var virkur í pólitík og skrifaði fjölda blaðagreina, ekki síst gegn bandarískri hersetu á Íslandi. Þegar Sigurður sonur Guðmundar tók við búi á Kirkjubóli fluttu Guð- mundur og Ingibjörg til Reykjavíkur. Þar vann hann á Landsbókasafninu. En Hvítársíðan togaði í Guðmund og eftir þrjú ár fluttu þau aftur að Kirkjubóli þar sem þau byggðu sér íbúðarhúsið sem varð eftir þeirra dag stofn að minningarsjóði um þau hjón. Erfitt að velja á milli bóndans og skáldsins Guðmundur Böðvarsson U Listhúsinu við Engjateig, 105 Reykjavík, sími 551 2050 Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl. 11-15 50% afsláttur af völdum vörum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.