Morgunblaðið - 05.10.2017, Síða 40
40 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2017
30% afsláttur
af peysum og buxum
fimmtudag, föstudag og langan laugardag
Laugavegi 47 – Sími 552 9122 Laugavegi 47 – Sími 551 7575
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Héraðsstjórnin í Katalóníu hyggst
lýsa yfir sjálfstæði héraðsins frá
Spáni á næstu dögum, þrátt fyrir að
Filippus Spánarkonungur hafi sagt í
ávarpi sínu í fyrrakvöld að stöðug-
leiki landsins væri í húfi. Fordæmdi
hann jafnframt sjálfstæðisbaráttu
Katalóníuhéraðs og sagði hana
brjóta í bága við landslög.
Samkvæmt heimildum AFP-
fréttastofunnar innan úr héraðs-
stjórninni var talið líklegt að sjálf-
stæðisyfirlýsingin yrði samþykkt á
mánudaginn, þegar héraðsþing
Katalóníu kemur saman til þess að
ræða atkvæðagreiðsluna á sunnu-
daginn, þar sem 90% þeirra sem
greiddu atkvæði sögðust samþykkir
sjálfstæði héraðsins. Atkvæða-
greiðslan hefur verið lýst ólögleg af
spænskum stjórnvöldum, sem heita
því að þau muni koma í veg fyrir
sjálfstæðisyfirlýsinguna með öllum
ráðum.
Evrópuþingið fundaði í gær um
málið. Hvöttu forvígismenn sam-
bandsins þar Spánarstjórn og Kata-
lóníumenn til þess að hefja viðræður
um málin í stað þess að stíga skref
sem myndu hella olíu á eldinn. Sagði
Frans Timmermans, varaforseti
framkvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins að það væri kominn „tími
til að tala saman og finna leiðir út úr
ógöngunum, innan þess ramma sem
stjórnarskrá Spánar heimilar.“
Timmermans varði þó jafnframt
rétt Spánarstjórnar til þess að beita
„hóflegu lögregluvaldi“ til þess að
varðveita friðinn, en spænsk stjórn-
völd hafa verið gagnrýnd fyrir fram-
göngu lögreglunnar á sunnudaginn.
Belgíski Evrópuþingmaðurinn
Philippe Lamberts, sem leiðir
Græningja á þinginu sagði í umræð-
unum að Katalóníumálið væri meiri
ógn við stöðugleika Evrópusam-
bandsins en fyrirhuguð útganga
Breta.
Nokkurt tap á markaði
Óróinn hafði einnig áhrif á hluta-
bréfamörkuðum á Spáni og féll
IBEX 35-vísitalan um meira en þrjú
prósent í gær. Nokkrir af helstu
bönkum Katalóníuhéraðs féllu einn-
ig, sumir um meira en fimm prósent.
Í sjónvarpsávarpi sínu í fyrrinótt
varaði Filippus VI. Spánarkonungur
við því að efnahagur Spánar og
Katalóníu gæti fallið ef leiðtogar
héraðsins héldu áfram að hegða sér
á „óábyrgan hátt“. Sagði konungur-
inn jafnframt mikilvægt að lög og
regla væru virt í landinu, og að sú
ábyrgð hvíldi á stjórnvöldum að
tryggja það.
Jordi Turull, talsmaður Katalón-
íuhéraðs, sagði að ræða konungsins
hefði eingöngu „hellt olíu á eldinn“.
Það bætti ekki úr skák að dómstólar
úrskurðuðu að Josep Lluis Trapero,
lögreglustjóri Katalóníu, skyldi sæta
rannsókn ásamt þremur öðrum
vegna gruns um að hann hefði hvatt
til liðhlaups með framgöngu sinni á
sunnudaginn.
Hunsa tilmæli konungs
Katalónía mun hugsanlega lýsa yfir sjálfstæði á mánudag Filippus Spánar-
konungur sagði sjálfstæðisbaráttuna ólöglega ESB hvetur til viðræðna
AFP
Ávarp konungs Filippus VI. Spánarkonungur ávarpaði þjóð sína í sjónvarpi í fyrrinótt. Sagði hann þar skyldu
stjórnvalda að varðveita lög og reglu á Spáni. Talsmenn Katalóníuhéraðs sögðu ávarpið hafa „hellt olíu á eldinn“.
Katalóníumálið
» Filippus VI. studdi við bak
stjórnvalda í Madríd í sjónvörp-
uðu ávarpi í fyrrinótt og sagði
að virða yrði lög og reglu
» Líklegt er talið að Katalón-
íuhérað muni lýsa yfir sjálf-
stæði á mánudaginn
» Varaforseti framkvæmda-
stjórnar ESB hvatti til þess að
viðræður hæfust á milli fylk-
inganna sem fyrst
Donald Trump Bandaríkjaforseti
heimsótti Las Vegas í gær og hitti
þar fólk sem lifði af hina mannskæðu
skotárás aðfaranótt mánudags. Ma-
rilou Danley, sambýliskona Stephens
Paddocks, sneri aftur til Bandaríkj-
anna í gær og var tekin til yfirheyrslu
af bandarísku alríkislögreglunni
FBI. Ekki er þó talið að Danley teng-
ist voðaverkinu á nokkurn hátt.
Trump hrósaði lögreglunni í Las
Vegas fyrir skjót viðbrögð sín, sem
hefðu komið í veg fyrir enn meiri
harmleik, en 59 manns voru sagðir
látnir í fyrradag og 527 særðir.
„Þetta er mikill sorgardagur fyrir
mig persónulega,“ sagði forsetinn áð-
ur en hann steig um borð í forseta-
flugvél sína, Air Force One.
Varpar vonandi ljósi á málið
Hin 62 ára gamla Marilou Danley
var í fríi á Filippseyjum þegar voða-
verkið var framið. Danley er ættuð
frá Ástralíu, en hefur búið og starfað
í Las Vegas í tuttugu ár. Ástralskir
fjölmiðlar hermdu að skilríki hennar
hefðu verið notuð til þess að bóka
hótelherbergið þaðan sem Paddock
framdi árás sína.
Vonuðust lögregluyfirvöld til þess
að Danley gæti varpað einhverju
ljósi á það hvers vegna Paddock lét
til skarar skríða, en rannsókn máls-
ins hefur ekki leitt neitt í ljós um það.
Þá vildi lögreglan vita, hvers vegna
Paddock hefði lagt 100.000 Banda-
ríkjadali inn á reikning hennar stuttu
fyrir árásina.
Þingmaðurinn Richard Burr, sem
er yfir leyniþjónustunefnd öldunga-
deildarinnar, sagði hins vegar í gær
að svo virtist sem búið væri að úti-
loka það að Paddock hefði tengst
nokkrum hryðjuverkasamtökum.
Ríki íslams sendi frá sér yfirlýsingu á
mánudaginn um að Paddock hefði
verið „hermaður“ samtakanna og
hefði snúist til íslamstrúar nýlega.
Ekkert hefur hins vegar komið fram
sem bendir til þess að sú hafi verið
raunin.
Lögreglan í Las Vegas lýsti því
hins vegar yfir í gær, að árásin hefði
augljóslega verið skipulögð í þaula.
Höfðu lögreglumenn til dæmis fund-
ið þrjár upptökuvélar, sem Paddock
hafði sett upp á hótelinu, en þær
leyfðu honum að fylgjast með því
hvenær lögreglan myndi reyna að
komast inn til hans. Náði Paddock
þannig að særa einn öryggisvörð,
sem reyndi að opna dyrnar að her-
bergi hans. Þegar víkingasveit Las
Vegas-lögreglunnar braut sér leið
þar í gegn var Paddock hins vegar
búinn að ráða sér sjálfum bana.
Hrósaði lögreglunni fyrir
snör og skjót viðbrögð
Trump Banda-
ríkjaforseti heim-
sótti Las Vegas
AFP
Sorgardagur Forsetahjónin við komuna til Las Vegas. Trump þakkaði lög-
regluliði borgarinnar fyrir að hafa komið í veg fyrir enn meiri harmleik.
Tyrkneskur
dómstóll dæmdi í
gær 34 manns í
lífstíðarfangelsi
fyrir að hafa
tekið þátt í sam-
særi um að
myrða Recep Ta-
yyip Erdogan
Tyrklands-
forseta, þar sem hann dvaldi á
hóteli við Eyjahaf, í sama mund
og tyrkneski herinn reyndi valda-
rán í júlí í fyrra. Einn af 35 sak-
borningum var hins vegar sýkn-
aður.
Sakborningarnir, sem allir voru
háttsettir liðsforingjar í hernum,
fengu fjórfaldan lífstíðardóm hver
fyrir sig fyrir brot sín. Þetta er
fyrsti dómurinn sem fellur í máli
tengdu valdaráninu sem beinist að
höfuðpaurum þess, en ýmsir af
lægra settum þátttakendum hafa
áður fengið dóm.
TYRKLAND
34 dæmdir í fang-
elsi fyrir lífstíð
Vísindamennirnir Jacques Dubo-
chet, Joachim Frank og Richard
Henderson fengu í gær Nóbels-
verðlaunin í efnafræði fyrir að
hafa þróað nýja og byltingar-
kennda smásjá, sem vinnur með
rafeindir á lágum hita.
Með lághitarafeindasmásjánni
hefur til að mynda tekist að skoða
Zika-veiruna nánar en áður.
Smásjáin notar rafeindageisla til
þess að skoða minnstu smáatriði í
frumum, og geta vísindamenn nú
fryst lífrænar sameindir í miðju
ferli og þannig kortlagt hreyf-
ingar og þróun þeirra á nánari
hátt en áður. Tæknin hefur þegar
nýst vel, til dæmis við þróun nýrra
lyfja.
SVÍÞJÓÐ
Rafeindasmásjá
fékk nóbelinn