Morgunblaðið - 05.10.2017, Síða 60
60
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2017
alvöru grillaður kjúklingur
Grensásvegi 5 I Reykjavík I Sími 588 8585
Opið alla daga kl. 11-22
Hún er ötull talsmaður þess að
börn fái góða næringu og séu alin upp
við hollan lífsstíl en rödd hennar
heyrist víða, ekki síst þar sem unnusti
hennar er einn þekktasti útvarps-
maður Ítalíu og hefur hann verið
ófeiminn við að ræða opinskátt heim-
speki hennar. Nýjasta afurð hennar
er vefsíðan Motherspell en fjallað
hefur verið um verkefnið í öllum
helstu tímaritum Ítalíu og ljóst að
þarlendir fá ekki nóg af hinni atorku-
sömu Jóhönnu. Upphaflega fluttist
Jóhanna til New York í Pilates-
kennaranám. Rétt fyrir útskrift
hlotnaðist henni sá heiður að vera
boðið starf við skólann sem hún var
að útskrifast úr og þar starfaði hún
næstu átta ár og kenndi á þeim tíma
eingöngu í einkatímum. „Í kjölfarið
fékk ég mikla löngun til að læra
meira varðandi heilsu, gott hugarfar
og mataræði og því skellti ég mér á
allskyns námskeið með það að mark-
miði að víkka sjóndeildarhringinn
sem mest og auka þekkinguna. Svo
vildi þannig til að maðurinn minn var
mikið að ræða það í útvarpinu hvað
ég eldaði hollan og góðan mat fyrir
okkur og börnin og hvað hann fyndi
mikinn mun á líðan sinni eftir að mat-
aræðið breyttist. Í beinu framhaldi
fara síðan að berast áskoranir frá
hlustendum um að ég færi að halda
úti bloggi eða einhverju þvíumlíku,“
segir Jóhanna um tildrög þess að hún
fluttist úr landi og hvernig Mother-
spell kom til sögunnar. „Ég hef mikla
þörf fyrir að deila góðum boðskap
þegar kemur að móðurhlutverkinu og
bara sem kona almennt, þannig að
þetta vatt mjög fljótt upp á sig. Í dag
erum við með stóran lesendahóp sem
er auðvitað frábært en fyrir mig var
eins og það hefði kviknað á peru við
að feta þessa braut.“
Grænmetisfæði er uppáhald Jó-
hönnu og henni þykir skemmtilegast
að elda það. „Það er yndislegt að
versla í matinn bæði á Ítalíu og í New
York því hráefnið er yndislegt. Svo
hef ég sérlega gaman af því að prófa
mig áfram með nýjar uppskriftir.
Hollur matur og þá sérlega góðar og
matarmiklar súpur eru mitt uppáhald
og mér líður alltaf svo vel þegar ég
borða gott grænmetisfæði. Svo eru
pitsur líka í uppáhaldi, svona spari,“
bætir hún við.
Það getur þó reynst þrautin þyngri
fyrir foreldra að koma grænmeti ofan
í börnin sín þrátt fyrir að það sé auð-
vitað misjafnt. Þar lumar Jóhanna þó
á góðum ráðum og hvetur foreldra til
að gefast ekki upp. „Fyrstu árin eru
svo mikilvæg og grunnurinn skiptir
máli. Það kostar líka minna að græja
matinn sjálfur og það er miklu minna
mál en maður heldur. Það þarf bara
að koma sér af stað. Ég forðast allan
sykur og unna matvöru eins og heitan
eld og hvet foreldra til að lesa sér til
og kynna sér af hverju þetta skiptir
máli.“
Sjálf segist Jóhanna elska að gufu-
sjóða grænmeti, skera það smátt og
setja vel af kókosolíu og túrmerik yf-
ir. Þetta borði hún með skeið upp úr
stórri skál og sé hin fullkomna haust-
fæða. Aðspurð hvernig gangi að sam-
eina hollt mataræði og ítalskan mat
segir hún að það sé ekkert mál. „Hér
snýst allt um gæði matarins frekar en
skammtastæðir. Þannig elda ég ein-
göngu hollan og góðan mat heima en
þá er líka svo gott að fá sér gott pasta
eða pitsu endrum og eins. Fyrir mér
er hollur matur forréttindi og lífið er
svo dýrmætt að okkur ber að njóta
þess og fara vel með sjálf okkur og
börnin okkar. Það má því segja að
hollur matur sé dekur.“
Heilhveitivefjur
Heilhveitivefjur (ég nota helst glúten-
lausar)
Túnfiskur (það er líka til vegan-
túnfiskur fyrir áhugasama)
Avókadó
Sólheima-pesto
Tómatar
Gúrka
Grænkál
Basil
Ég stappa saman túnfisk og avó-
kadó. Hita vefjurnar í 1-4 mínútur.
Raða svo öllu hráefninu á miðja vefj-
una og rúlla svo þétt saman. Full-
komið sem hollt og gott nesti í vinn-
una eða skólann. Það er líka hægt að
bera þær fram með bökuðum gulrót-
um og sætum kartöflum sem kvöld-
verð.
Bláberja- og krækiberja-smoothie
1 msk. chia-fræ
1 pera
1 bolli íslensk krækiber og bláber
Leggið eina matskeið af chia-
fræjum í vatn yfir nótt.
Morguninn eftir skal setja chia-
fræin í blandara ásamt perunni. Sjálf
tek ég hýðið af eða skola mjög vel.
Berið fram með berjunum, hamp-
fræjum og kryddið með kanil eftir
smekk.
Gott er að fá sér gott sykurlaust
múslí með.
Morgunblaðið/Eggert
Með 100 þúsund fylgjendur á Instagram
Jóhanna Maggý Hauksdóttir hefur undanfarin misseri orðið einn aðsóps-
mesti Íslendingurinn á samfélagsmiðlum. Fylgjendur hennar eru þó fæstir
íslenskir enda hafa Ítalir heillast af þessari mögnuðu konu sem boðar bætta
heilsu með hugarfari og mataræði.
Heilsugúrú Jóhanna
Maggý er sérlega
áhugasöm um heil-
brigðan lífsstíl og
þykir áhrifamikil
fyrirmynd.
Í öll mál Vefjurnar eru
sérlega snjallar því þær
er bæði hægt að nýta
sem nesti og líka sem
kvöldverð.
Hollustusprengja Þessi
smoothie er sérdeilis góð-
ur og hollur eins og við
var að búast. Hann er með
íslenskum berjum en Jó-
hanna reynir að eyða sem
mestum tíma hér á landi.