Morgunblaðið - 05.10.2017, Side 72
72 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2017
Hugleikur Dagsson er þekktasti íslenski teiknarinn í dag, hefursent frá sér milli 25 og 30 bækur sem þýddar hafa verið á 15-20tungumál og rokseljast um allan heim, einkum í Finnlandi.
Hann hefur auk þess sinnt annarri myndlist, samið leikrit, verið með út-
varpsþætti og gert vídeómyndir. Hann fæddist á Akureyri fyrir 40 ár-
um: „Ég man fyrst eftir mér í Svarfaðardalnum og í Stokkhólmi í Sví-
þjóð, átti síðan heima í Vesturbænum í Reykjavík, var í Vesturbæjar-
skóla þar sem enginn þurfti að gera neitt og fór síðan í Hagaskóla. Það
var menningarsjokk því þar var skylduskóli – með aga inni í kennslu-
stofum og frumskóg á göngunum.“
Hvenær byrjaðir þú að teikna?
„Líklega fimm ára. Fyrsta teiknisaga mín með línulegri frásögn hét
Risaeðlueyjan – var um mann sem lenti á Risaeðlueyju, flúði stanslaust
undan risaeðlum og var svo étinn af þeim í lokin. Hún endaði illa.“
Hvað ætlarðu að gera á afmælisdaginn?
„Í fyrra var ég með svokallað „grill“ á Rósenberg. Vinir mínir, uppi-
standarar, komu á svið og rökkuðu mig niður fyrir alla mína galla. Síð-
an átti ég að svara með því að tala illa um þá. Þetta var rosaleg eldskírn.
En nú verð ég og ástralskur vinur minn, Jonathan Duffy, með net-
útvarpsþátt sem heitir „Icestralia“ og fjallar um sérkenni og muninn á
Íslendingum og Áströlum. Þessi þáttur verður í beinni útsendingu þeg-
ar ég breytist í miðaldra mann eftir miðnætti.“
Hugleikur Dagsson Alltaf svolítið feiminn eins og myndin sýnir.
Hugleikur breytist
í miðaldra í beinni
Hugleikur Dagsson er fertugur
H
ans Kristján fæddist í
Reykjavík 5.10. 1947
og ólst þar upp: „Afi
og amma áttu húsið á
Smáragötunni þar
sem ég fæddist, en ég ólst upp í
Norðurmýrinni til 10 ára aldurs, við
hliðina á Megasi, og komst fyrir vik-
ið í endurminningar hans: Sól í
Norðurmýri. Á unglingsárunum ól
ég manninn í einu af Samvinnuhús-
inum vestast á Ásvallagötu. Þegar
ég kom þangað fyrst tók á móti mér
heimasæta fjölskyldunnar sem var
að flytja út og sýndi mér herbergið
sitt sem ég var að flytja inn í. Þetta
var Vigdís Finnbogadóttir.“
Hans Kristján lauk stúdentsprófi
frá VÍ 1969, prófi í viðskiptafræði frá
HÍ 1973 og stundaði framhaldsnám í
viðskipta- og hagfræði við London
Business School 1973-75.
Hans Kristján var viðskiptafræð-
ingur hjá Sambandi veitinga- og
gistihúsaeigenda 1973, aðstoðar-
framkvæmdastjóri hjá SÍS 1975-78,
kennari við VÍ 1978-80, fram-
kvæmdastjóri Hans Eide hf. 1978-84
og Alþýðuleikhússins 1984-85, stofn-
andi, framkvæmdastjóri og stjórnar-
formaður Stöðvar 2 og í stjórn Ís-
lenska myndversins hf. 1985-90,
stundaði ráðgjöf og sinnti ýmsum
verkefnum frá 1991, starfrækti lista-
verkaverslunina DaDa ehf. í Kirkju-
hvoli um skeið, hefur stundað bóka-
útgáfu, er stofnandi og fram-
kvæmdastjóri Þjóðarhreyfingar-
innar og hefur gert um 30 heimildar-
myndir hérlendis og erlendis fyrir
sjónvarp.
Hans Kristján var skipaður vara-
ræðismaður Hollands á Íslandi 1979,
sat í stúdentaráði HÍ 1970-72, stjórn
Vöku 1971-72, í fjáröflunarnefnd
Rauða kross Íslands 1978, í stjórn
Hans Kristján Árnason lífskúnstner – 70 ára
Myndarleg stórfjölskylda Hans Kristján með systkinum, börnum sínum og þeirra, tengabörnum og barnabörnum.
Í heimi lista og viðskipta
Afmælisbarnið Glerfínn í lystigarð-
inum við Listasafn Einars Jónssonar.
Sara Sandra Smith og Alex-
andra Kristín Eiríksdóttir
héldu tombólu við Krónuna og
söfnuðu 2.356 kr. sem þær
færðu Rauða krossinum á
Íslandi að gjöf.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is