Morgunblaðið - 05.10.2017, Page 76

Morgunblaðið - 05.10.2017, Page 76
76 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2017 13 vítamín og 16 steinefni · 18 aminósýrur · Blaðgræna · Omega GLA fitusýrur SOD eitt öflugasta andoxunarensím líkamans Hrein orka, eflir einbeitingu, eykur súrefnismettun, gefur heilbrigða næringaríka orku, gott allan daginn. Reynist vel við sleni og pirringi, auðugt af járni. Fyrir allan aldur, smábörn, unglinga og fullorðna. Nánari upplýsingar á www.celsus.is Fæst í apótekum, Hagkaup, Nettó, Heilsuhúsinu, og víðar | celsus.is Fjölvítamín náttúrunnar, hreint og ómengað Engin tilbúin næringaefni 18 ára VELGENGNI Á ÍSLANDI framboð af miðum, en ekki eins mik- il eftirspurn. Við áttum mjög þungt ár í fyrra, ætluðum þá að stækka hátíðina, enda hafði verið uppselt í mörg ár. Við töldum að hægt væri að fjölga gestum enn meira, settum okkur það markmið að ná tíu þúsund gest- um. Þegar upp var staðið voru gest- ir rétt undir níu þúsundum og við fundum það sterkt að það var þyngra yfir. Við fórum því strax í vinnu við að endurskipuleggja hátíð- ina til þess að tryggja að við gætum þolað erfiðan tíma, minnkuðum hana til þess að svara þessu og til að geta lifað af í einhver ár á meðan þetta gengur yfir,“ segir Grímur og bætir við að markmið Iceland Airwaves séu að mörgu leyti öðru- vísi en margra annarra tónlist- arhátíða, „við erum í þessu til að flytja góða tónlist og fjölga ferða- mönnum, en ekki beinlínis til að græða, þó hátíðin verði að standa undir sér“. Leitin að réttu blöndunni – Í upphafi var íslensk tónlist í miklum meirihluta á hátíðinni, en með tímanum hefur erlendum tón- listarmönnum fjölgað. Þegar litið er yfir dagskrána í ár eru hlutföllin aft- ur orðin svipuð því sem var forðum. „Við fækkuðum erlendum hljóm- sveitum um tuttugu á milli ára, en þetta er mikil kúnst. Fyrir íslenska tónlistaráhugamenn þá er það kannski ekkert sérstaklega áhuga- vekjandi að sjá íslenska hljómsveit á Airwaves sem var að spila á Hard Rock í gær. Það þarf að finna réttu blönduna, en við teljum að við séum með góða blöndu. Það koma fram 46 fjölbreytt erlend atriði og þau eru sum vissulega vel þekkt, en það er ákveðin breyting á áferð hátíðar- innar. Við þurfum líka alltaf að skoða til hvers Iceland Airwaves er og hvaða máli hátíðin skiptir. Senan er að breytast mjög mikið, eins og sjá má á því að hiphopið er sterkast hjá ungu fólki í dag. Við héldum Chron- ic-kvöld 2010 með mjög heitum böndum, en það komu á þau kannski 200 manns. Núna er bara hiphop á öllum vinsældalistum og það er öll músík sem streymt er á Spotify. Mammút gefur út plötu sem fær rosa dóma út um allan heim og er streymt tíu þúsund sinnum en svo koma sautján ára strákar úr Garða- bænum og gefa út plötu og það eru komin milljón streymi á þremur vik- um. Í því sambandi kviknar spurn- ingin hver er útflutningspælingin á þessu, hvað getum við gert? Banda- ríska hiphopið er allsráðandi á markaðnum úti og erfitt að finna flöt fyrir það íslenska, en það er partur af verkefni Iceland Airwaves.“ Vandræði með tónleikastaði – Það hefur mikið breyst í mið- bænum á undanförnum árum og meðal annars hafa ýmsir tónleika- staðir dottið út, en aðrir komið inn. Airwaves verður á kunnuglegum stöðum að þessu sinni, en það bæt- Tónlistarveisla framundan Morgunblaðið/Eggert Endurskipulagning Grímur Atlason segir að það sé kúnst að finna réttu blönduna af nýju og gömlu, íslensku og erlendu. Billy Bragg/Kris Krug Gamall Billy Bragg heimsækir Ísland í fyrsta sinn á fjörutíu ára ferli.  Iceland Airwaves tónlistarhátíðin verður haldin í byrjun nóvember  Ríflega 200 listamenn og hljómsveitir koma fram í Reykjavík og á Akureyri  Færri erlendir tónlistarmenn frá síðustu hátíð VIÐTAL Árni Matthíasson arnim@mbl.is Tónlistarhátíðin mikla Iceland Airwaves verður haldin eftir rétt tæpan mánuð, hefst miðvikudaginn 1. nóvember og stendur fram á sunnudaginn 5. nóvember. Í þeirri tónlistarveislu verða í boði tónleikar 203 listamanna eða hljómsveita, obbinn íslenskur, eða 157, og 46 er- lend tónlistaratriði. Tónleikahald verður í Listasafni Reykjavíkur, Gamla bíói, Húrra, Hard Rock Café, Iðnó og Fríkirkjunni, á Gauknum, í Hressingarskálanum, á Hverfis- barnum, í Þjóðleikhúsinu, Hörpu og Valsheimilinu. Einnig verður Air- waves-hátíð á Akureyri, haldin í Hofi, á Pósthúsbarnum og Græna hattinum. Endurskipulögð hátíð Árið 2017 hefur verið erfitt hjá ís- lenskum tónleikahöldurum, því þó ýmsir tónleikar hafi gengið prýði- lega þá hefur gengið verr að selja á marga aðra og má nefna að skammt er síðan hætt var við að fá hingað rapparann snjalla Future vegna dræmrar miðasölu. Skipuleggjendur Iceland Airwav- es, með Grím Atlason í broddi fylk- ingar, hafa brugðist við þessum samdrætti með því að velja aðra tón- leikastaði og fækka erlendum lista- mönnum, að sögn Gríms, sem segir að aðstandendur hátíðarinnar hafi byrjað á endurskipulagningu þegar eftir síðustu Airwaves-hátíð. „Þeir sem hafa verið í tónleika- bransanum á Íslandi þekkja það að það koma mjög djúpir dalir á milli þess sem það eru háir toppar. Í fyrra var einn af þessum toppum, en það var að verða mettun á mark- aðnum eins og við sjáum á þessu ári: Viðburðum hefur verið aflýst, tón- leikahátíðir hafa farið á hausinn og mjög margir bjóða upp á tveir fyrir einn tilboð – það er gríðarlega mikið

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.