Morgunblaðið - 13.10.2017, Qupperneq 1
MÁTTURINN
EÐA DÝRÐIN
» 16-19
Sunna Ósk Logadóttir
sunna@mbl.is
Ekkert liggur „rosalega á“ að
byggja fyrirhugaða Hvammsvirkjun
í neðri hluta Þjórsár, að mati odd-
vita Skeiða- og Gnúpverjahrepps.
Stefnt var að því að hefja útboðs-
ferli á þessu ári og framkvæmdir
fljótlega eftir það. Að sögn Harðar
Arnarsonar, forstjóra Landsvirkj-
unar, er enn útlit fyrir að Hvamms-
virkjun verði næsta virkjun fyrir-
tækisins „en það er ekki þannig að
þetta sé alveg að bresta á“. Ekki sé
búið að taka ákvörðun um nákvæm-
lega hvenær ráðist yrði í byggingu
hennar og „ljóst er að ekki verður
farið í framkvæmdir á næsta ári“.
Engar tekjur – engin störf
Áhrifasvæði Hvammsvirkjunar
yrði í tveimur sveitarfélögum;
Skeiða- og Gnúpverjahreppi og
Rangárþingi ytra. „Við lítum á
þetta sem fórn. Það er alveg klárt
mál,“ segir Björgvin Skafti Bjarna-
son oddviti, spurður hvers vegna
Skeiða- og Gnúpverjahreppur ætti
að samþykkja Hvammsvirkjun sem
myndi engin störf skapa í hreppn-
um og engar beinar tekjur. Hann
segir að ákvörðunin þurfi að byggj-
ast á þjóðhagslegri hagkvæmni. „Ef
það er þörf á virkjun þá virkjum
við, ef það er ekki þörf þá virkjum
við ekki. Svo er það matsatriði hvað
er þörf.“
Hann segir fyrir sitt leyti að lík-
ur séu á að Hvammsvirkjun verði
byggð einhvern daginn „en við
hljótum að gera þá kröfu að raf-
magnið sé notað í eitthvað sem fari
á okkar svæði, að minnsta kosti að
hluta, og að starfsemin sé sjálfbær,
umhverfisvæn og þjóðhagslega hag-
kvæm“.
Landsvirkjun er nú í fyrsta sinn
með tvær virkjanir í byggingu í
einu; Þeistareyki og Búrfell II.
„Þarf að reisa Hvammsvirkjun?
Einhvers staðar verðum við að
draga mörkin,“ segir Anna Sigríður
Valdimarsdóttir, íbúi á Stóra-Núpi
við Þjórsá. Með inntakslóni
Hvammsvirkjunar færu flúðir og
hólmar á kaf og árniðurinn við
heimili Önnu myndi hljóðna.
Í nýlegri þingsályktunartillögu
rammaáætlunar er lagt til að tvær
virkjanir til viðbótar í neðanverðri
Þjórsá fari í orkunýtingarflokk;
Holtavirkjun og Urriðafossvirkjun.
Mikil andstaða var við þessa virkj-
anaþrennu fyrir nokkrum árum.
Liggur „ekkert rosa-
lega á“ Hvammsvirkjun
Heimamenn gera kröfu um að rafmagnið fari í umhverfisvæna starfsemi
Morgunblaðið/Golli
Sveitalíf Edda Pálsdóttir læknir segir að Hvammsvirkjun myndi sennilega
breyta áformum hennar um að setjast að á jörðinni Hamarsheiði við Þjórsá.
F Ö S T U D A G U R 1 3. O K T Ó B E R 2 0 1 7
Stofnað 1913 241. tölublað 105. árgangur
„Það sem hingað til hefur staðið ferðaþjónustu á norðurslóðum
fyrir þrifum er skortur á innviðum en til þess að laða hinn hefð-
bundna ferðamann að þurfa nútímainnviðir að vera til staðar.
Þá er ég að tala um öflugt rafkerfi, aðgang að háhraða fjar-
skiptaneti og síðast en ekki síst þurfa samgöngur að vera í lagi;
ferðamenn þurfa að geta komist flug- eða sjóleiðis til norð-
urslóða og geta ferðast á milli staða.“
Þetta segir Heiðar Guðjónsson, hagfræðingur og fjárfestir, í
blaðauka um norðurslóðir sem fylgir Morgunblaðinu í dag. Í
blaðinu er einnig rætt við Árna Gunnarsson, framkvæmdastjóra
Air Iceland Connect og grænlenska hagfræðinginn Svend Hard-
enberg, sem eru með Heiðari á myndinni, og ýmsa fleiri.
Skortur á innviðum háir ferðaþjónustu á norðurslóðum
Morgunblaðið/RAX
Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra
segir að það hafi verið ákveðinn
styrkleiki Bjartrar framtíðar að
flokkurinn hefur verið tilbúinn til
þess að axla ábyrgð á erfiðum verk-
efnum og málaflokkum. „Við höfum
verið tilbúin til þess að stökkva í
djúpu laugina og leggjum mikið
upp úr því. Kannski þess vegna höf-
um við sveiflast fram og til baka í
skoðanakönnunum og höfum lært
að taka því með hæfilegri auðmýkt
og ró,“ segir Óttarr í viðtali við
Morgunblaðið.
Hann segir að íslensk stjórnmál
snúist of oft um einstök mál eða
persónur og vill að málin séu hugs-
uð til lengri tíma. Þá segir Óttarr
að stjórnarslitin endurspegli
kannski helst þann mun sem hafi
verið á flokkunum sem mynduðu
síðustu ríkisstjórn. »11
Vilja axla
ábyrgð
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Viðtal Óttarr Proppé formaður BF.
SAMDI TEXTANA
Í FUGLAKABAR-
ETTINUM LISTAMENN SJÖ LANDA
SENDIHERRA
SÞ FYRIR
NORÐURPÓLINN
HAFNARHÚSIÐ 38 SÉGOLÈNE ROYAL 10HJÖRLEIFUR HJARTARSON 12