Morgunblaðið - 13.10.2017, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 13.10.2017, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2017 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Eignasafn Seðlabanka Íslands (ESÍ) hefur selt fyrirtækið Salve Pharmacy í Úkraínu en fyrirtækið rekur hátt í 90 lyfjaverslanir í landinu. Fram kemur í ársreikningum ESÍ að Salve Pharmacy var að fullu í eigu þess. Morgunblaðið leitaði upplýsinga hjá Seðlabankanum um hver kaupandi að lyfjakeðjunni sé, en bankinn neit- ar að upplýsa um það. Segir í svari bankans að það sé ekki mögulegt „að svo stöddu“. Keypti félagið árið 2014 Upphaflega átti ESÍ lyfjaverslana- keðjuna í gegnum röð dótturfélaga. Þannig átti eignarhaldsfélagið M8, sem að fullu var í eigu ESÍ, annað eignarhaldsfélag sem vistað var á Bretlandi og nefndist það Ukrapteka LTD. Það félag var 100% eigandi að Salve Pharmacy. Áður en Ukrapteka LTD komst í eigu M8 hafði síðar- nefnda félagið eignast kröfur á hend- ur Ukrapteka en það virðist sam- kvæmt ársreikningum hafa gerst árið 2013. Það var hins vegar árið 2015, ári eftir að Salve Pharmacy komst í eigu dótturfélags ESÍ, sem ákveðið var að flytja eignarhlutinn beint undir eign- arhald ESÍ og var hann þar til fyrr á þessu ári færður í bækur þess undir liðnum „félög utan samstæðu“. Bankinn segir eignina ekki sjálfstæða fjárfestingu Einnig var Seðlabankinn inntur svara um hversu mikið uppsafnað tap ESÍ og annarra félaga í þess eigu væri af fjárfestingunni í Salve Phar- macy. „Það skal skýrt tekið fram að hér er ekki um að ræða sjálfstæða fjár- festingu. Eignarhluturinn var til- kominn vegna stuðnings við aðrar eignir ESÍ.“ Þessi fullyrðing bank- ans stangast hins vegar á við stað- festar upplýsingar þess efnis að eign- arhluturinn hafi verið keyptur árið 2014. Gefa ekki upp söluverðið Seðlabankinn neitar einnig að upp- lýsa hvert söluandvirði eignarinnar er. Morgunblaðið hafði í fyrra leitað svara hjá bankanum um hvert kaup- verð hlutarins var. Neituðu forsvars- menn bankans að svara því. Beindi blaðið þá fyrirspurninni, sem var í 19 liðum, til bankaráðs Seðlabankans. Samkvæmt svari Þórunnar Guð- mundsdóttur, formanns þess, kallaði bankaráðið eftir svörum við þeim frá forsvarsmönnum ESÍ. Fékk banka- ráðið svörin í hendur og fjallaði um þau. Í kjölfarið barst Morgunblaðinu eftirfarandi orðsending frá Þórunni: „Eftir þá umfjöllun er það niður- staða bankaráðs að það sé ekki í verkahring þess að svara svona fyr- irspurnum frá fjölmiðlum.“ Hefur átt í rekstrarerfiðleikum Í svari Seðlabankans kemur einn- ig fram að Haukur C. Benediktsson, framkvæmdastjóri ESÍ, hafi annast söluna og að hún hafi gengið í gegn með aðstoð „þarlendrar lögfræði- stofu“. Er þar væntanlega vísað til lögfræðistofu í Úkraínu. Eini stjórn- armaðurinn í M8 og Ukrapteka og sá Íslendingur sem hafði mest um málefni Salve Pharmacy að ræða meðan eignarhluturinn var hjá Seðlabankanum var Steinar Þór Guðgeirsson, lögmaður sem gegnt hefur fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir bankann á síðustu árum. Í lok síðasta árs hafði Morgun- blaðið flutt fréttir af því að birgjar sæktu hart að Salve Pharmacy vegna vanskila og einnig ætti fyrir- tækið í útistöðum við skattayfirvöld í Úkraínu. Þá sýna upplýsingar að á árunum 2014 og 2015 hafi ESÍ tapað 250 milljónum króna á rekstri lyfja- verslananna. Ekki liggur fyrir hvert tapið á síðasta ári var. Gefur ekki upp kaupandann Eign Seðlabanki Íslands var eigandi að nærri 90 lyfjaverslunum í Úkraínu.  Seðlabanki Íslands vill ekki gefa upp hver keypti lyfjaverslanakeðju af bankanum  Verslanakeðjan er starfrækt í Úkraínu  Söluandvirðið sagt vera trúnaðarmál umhverfismál í algjöran forgang, og eru að fjárfesta gríðarlega í málaflokknum. Ef Samtök atvinnu- lífsins eru ekki þess megnug að stíga þetta skref með fyrirtækj- unum þá erum við ekki að svara kalli tímans. Við finnum mikla kröfu frá okkar aðildarfyrirtækjum og aðildarsamtökum um að við tök- um forystu í þessum málum.“ Halldór segir að komið hafi á óvart sá mikli fjöldi fyrirtækja sem kom til álita vegna umhverfisverð- launanna. „Styrkur umsóknanna er að aukast mjög hratt frá ári til árs.“ tobj@mbl.is „Hlutverk Samtaka atvinnulífsins er að setja mál á dagskrá og fylgja þeim eftir. Það að við erum að setja umhverfismálin jafn rækilega á dagskrá og við erum að gera hér, gefur mjög skýrt til kynna í hvaða átt við viljum að íslenskt atvinnulíf þróist,“ segir Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, í samtali við Morgunblaðið. Í gær héldu samtökin umhverfis- dag atvinnulífsins hátíðlegan á Hilton hóteli, en þar var Icelandair hótel valið umhverfisfyrirtæki árs- ins. „Okkar félagsmenn eru að setja Umhverfismálin rækilega á dagskrá  Samtök atvinnulífsins svari kalli tímans Umhverfisverðlaun Icelandair hótel var valið umhverfisfyrirtæki ársins. ● Á árinu 2016 voru meðaltekjur eftir sveitarfélögum hæstar á Seltjarnar- nesi og næst hæstar í Garðabæ. Meðaltekjur í Garðabæ voru um 35% hærri en þær voru að meðaltali í landinu öllu, segir í Hagsjá Lands- bankans. Höfuðborgin komst ekki á lista 10 tekjuhæstu sveitarfélaga, en hún var í 12. sæti. Nokkur sveitarfélög með sterkan sjávarútveg eru í hópi þeirra sveitarfélaga þar sem tekjur eru hæstar. Íbúar Seltjarnarness og Garðabæjar eru með umtalsvert hærri tekjur en í öðrum bæjarfélögum. „Kópavogur kemur þar á eftir, en þar voru meðal- tekjur á árinu 2016 um 20% lægri en á Seltjarnarnesi,“ segir í Hagsjá. Hæstu tekjurnar á Sel- tjarnarnesi og Garðabæ 13. október 2017 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 104.73 105.23 104.98 Sterlingspund 138.18 138.86 138.52 Kanadadalur 83.63 84.11 83.87 Dönsk króna 16.618 16.716 16.667 Norsk króna 13.191 13.269 13.23 Sænsk króna 12.977 13.053 13.015 Svissn. franki 107.56 108.16 107.86 Japanskt jen 0.9327 0.9381 0.9354 SDR 147.92 148.8 148.36 Evra 123.7 124.4 124.05 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 151.3932 Hrávöruverð Gull 1294.45 ($/únsa) Ál 2123.0 ($/tonn) LME Hráolía 55.78 ($/fatið) Brent ● Konur eyða í heildina töluvert meiru á erlendum netverslunarsíðum en karl- ar, sem eyða þó meiru í hverjum við- skiptum að jafnaði. Þá er verulegur munur milli höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar. Þetta sýnir greining Íslandsbanka á kortaveltu hjá 25 stærstu erlendu net- verslunarsíðunum er sagt var frá á mbl.is. Tölur bankans ná ekki utan um allt umfang netkaupa Íslendinga en gefa þó góða mynd af hlutfallslegri skiptingu. Samtals eyða konur 20% meira í netverslun á erlendum síðum. Karlar eyða hinsvegar um 53% meira í hverj- um viðskiptum. Konur versla meira á netinu en karlar STUTT m æ t i r þ í n u m þ ö r f u m Aeg c u s t o m f l e x ® kæliskápAr lágmúla 8 · sími 530 2800

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.