Morgunblaðið - 13.10.2017, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 13.10.2017, Blaðsíða 11
11 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2017 Stjórn Viðreisnar hefur staðfest framboðslista flokksins í Suður- kjördæmi fyrir komandi þing- kosningar. Jóna Sólveig Elínar- dóttir, þingmað- ur og varafor- maður Við- reisnar, leiðir listann, sem er fléttaður konum og körlum til jafns. Í öðru sæti er Arnar Páll Guðmundsson viðskiptafræð- ingur, Stefanía Sigurðardóttir, list- rænn viðburðastjóri, er í þriðja sæti og Sigurjón Njarðarson lögfræð- ingur í því fjórða. Jóna leiðir Viðreisn í Suðurkjördæmi Jóna Sólveig Elínardóttir Erna Lína Örnu- dóttir, 19 ára há- skólanemi í Hafnarfirði, er efst hjá Alþýðu- fylkingunni í Suðvestur- kjördæmi fyrir komandi kosn- ingar. Í öðru sæti er Þorvarður Bergmann Kjart- ansson, tölvunarfræðingur í Garða- bæ, og Guðmundur Smári Sig- hvatsson, byggingarfræðingur í Reykjanesbæ, í þriðja sæti. Erna efst hjá Alþýðufylkingu í SV Erna Lína Örnudóttir frjálslyndur grænn flokkur sem vilji hugsa til langs tíma. Hann segir að stjórnarslitin og til- efni þeirra sýni kannski helst þann mun sem sé á flokkunum sem mynduðu stjórnina og bendir á að Björt framtíð hafi lagt sitt af mörkum eft- ir síðustu kosningar til þess að mynda starf- hæfa ríkisstjórn. „Það var krefjandi að ná þessum ólíku flokkum saman. Við lögðum mik- ið undir og vissum að þetta gæti orkað tvímæl- is og orðið óvinsælt. Við gerðum það í því trausti að það væri hlutverk okkar að axla ábyrgð í þeirri ríkisstjórn og vinna vel í henni. En síðan kemur í ljós hægt og bítandi að það traust sem þarf til að svona erfitt samstarf geti gengið upp var ekki fyrir hendi og okkur var ekki sætt lengur,“ segir Óttarr. Þrátt fyrir að Björt framtíð sé ung að árum hefur flokkurinn haft mikil ítök á stuttri starfsævi. Aðspurður hvort flokkurinn hafi kannski færst of mikið í fang svarar Óttarr neitandi. „Það má segja að miðað við ungan aldur flokksins höfum við komist til talsverðra áhrifa. En ég legg mikla áherslu á það að áhrif eða völd eru í raun ekkert annað en hin hliðin á þeirri ábyrgð sem stjórnmálamenn takast á hendur.“ Óttarr segir að stjórnmálamaðurinn verði að vera fulltrúi kjósenda sinna og almennings, frekar en sinna eigin hagsmuna. „Við höfum lagt mikið upp úr því að við viljum gera gagn og axla ábyrgð þótt það sé erfitt.“ Hann segir að það geti alveg verið tilhneiging í stjórn- málum að forðast erfið mál eða mál sem lítt eru fallin til vinsælda. „Mér finnst það ábyrgð- arlaust og legg mikið upp úr því að það að taka á erfiðum verkefnum sé mikilvægara en það hvernig mér eða mínum flokki vegnar pólitískt í vinsældakosningum.“ Megináhersla á vinnubrögð Hvaða mál myndir þú setja á oddinn í stjórnarmyndunarviðræðum? „Nú erum við í þeirri stöðu að hafa reynslu af ríkisstjórnar- setu í fyrsta sinn í sögu flokksins og reynslu af því að hafa slitið slíku samstarfi, þannig að það myndi örugglega lita afstöðu okkar. Það eru mörg ef þarna, en við myndum leggja megin- áherslu á það hvernig við ætluðum að vinna, hvernig því samstarfi yrði háttað,“ segir Ótt- arr. Það yrði að vera skýrt frá upphafi að sam- eiginlegur skilningur væri á milli flokkanna um opin vinnubrögð. Óttarr segir að Björt framtíð myndi einnig leggja áherslu á langtímahugsun í nokkrum málaflokkum eins og til dæmis efnahags- málum, með það að markmiði að draga úr þeim sveiflum sem einkenna íslenskt stjórnmálalíf. „Það er gaman þegar sveiflan er upp á við, en við þekkjum líka niðursveifluna, og við þekkjum hvað það er að búa við óstöðugan gjaldmiðil, erfitt vaxtastig og svo framvegis, þannig að í efnahagsmálum höfum við talað fyrir meiri stöðugleika.“ Björt framtíð sé Evr- ópusinnaður flokkur sem vilji vinna í gjaldeyr- ismálunum. Umhverfismál verði einnig æ mikilvægari málaflokkur. „Náttúra Íslands er að mörgu leyti sjálfsmynd okkar Íslendinga og hún er líka orðin að grundvellinum að okkar stærsta atvinnuvegi, ferðaþjónustunni. Og þó ekki væri nema í því samhengi er það stærra og stærra verkefni fyrir okkur að standa vörð um íslenska náttúru og þá af meiri langtíma- hugsun en áður.“ Að lokum nefnir Óttarr skapandi greinar, sem tengist í raun öllu öðru sífellt meir, þar sem samfélagið þróist mjög hratt. „Það er mjög mikilvægt fyrir Ísland að vera gildandi skapandi samfélag. Okkur hefur að mörgu leyti tekist þetta vel og stundum þrátt fyrir að stjórnmálin hafi ekki staðið í stykkinu við að bjóða upp á stöðugleika og stuðning við þessar greinar. Þetta eru framtíðarverkefni sem snerta á öllum þáttum, heilbrigðiskerfið þarf til dæmis skapandi hugsun og sterkt vísinda- starf til þess að íslenskir heilbrigðisstarfs- menn séu í fremstu röð og vilji starfa í íslensku heilbrigðiskerfi af því að þar sé frjór starfs- vettvangur.“ Óttarr bendir á að Ísland verði að vera ákjósanlegur staður fyrir kynslóðir fram- tíðarinnar að búa á, því að þær geti hæglega flust annað. Umhverfið sem stjórnmálin geti búið til skipti þar höfuðmáli. „Ef Ísland á ekki að verða aukaatriði þurfum við að hlaupa að- eins hraðar og vera aðeins sniðugri en hinir. Við höfum verið lunkin við að bjarga okkur við erfiðar aðstæður, en það hefur verið erfiðara að halda skipulagi þegar við erum ekki í lífs- háska. Þetta eru hættulegir tímar nú í upp- sveiflunni, því þá er auðvelt að láta eins og enginn sé morgundagurinn, en hann kemur alltaf á endanum.“ Verðum að hugsa til framtíðar  Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar, vill að stjórnmálin fari að huga meira að því hvernig samfélagið eigi að þróast til lengri tíma litið  Flokkurinn hefur verið óhræddur við að axla ábyrgð Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Björt framtíð Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar, vill að hugsað verði til lengri tíma í íslenskum stjórnmálum. Hann segir að flokkurinn hafi ekki verið feiminn við erfið verkefni. VIÐTAL Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Óttarr Proppé, heilbrigðisráðherra og formað- ur Bjartrar framtíðar, segist eiginlega hafa byrjað óvart í stjórnmálum fyrir tilstilli æsku- vinar síns, Jóns Gnarrs, þegar hann stofnaði Besta flokkinn. „Það var sennilega af því að við þekktumst vel og hann vissi að ég hafði áhuga á þjóðmálum og stjórnmálum almennt. Ég spurði hann hvort þetta yrði bara „flipp“ eða alvara og þegar hann sagði að sér væri full al- vara sló ég til, en grunaði þó ekki að ég væri að fara út í stjórnmál beinlínis,“ segir Óttarr. „En síðan eru liðin sjö ár og ég er búinn að vera á kafi í stjórnmálunum síðan og þá áttar maður sig kannski á því eftir á að þetta lá kannski betur fyrir manni en maður hélt upphaflega.“ Óttarr rifjar upp að hann hafi snert á stjórn- málastarfi á unglingsárum og líkað illa. „Mér fannst stjórnmálin þá eitthvað svo leiðinleg og lokuð og vinnubrögðin svo skrýtin að ég hrökklaðist í burtu eins og svo margir.“ Hann hafi þó alltaf haft brennandi áhuga og skoðanir á stjórnmálum og verið forvitinn um sam- félagið. „Þannig að þetta var kannski eðlileg þróun að ég endaði í stjórnmálunum.“ Óttarr segir það skemmtilegt við stjórn- málin að menn læri mikið á þeim þar sem þeir komi sífellt að nýjum málaflokkum. „Þetta er svipað og að vera í endalausu háskólanámi. Ég segi stundum í gríni og alvöru að ég sé nörd og kynni mér jafnvel hluti eins og frárennsli eða rekstur hjúkrunarheimila eða umferðarmann- virki í Reykjavík, sem mig hefði ekki grunað að ég hefði sérstakan áhuga á, en þegar maður fær tækifæri til þess að kynna sér það og ber ábyrgð á því að hafa eitthvað um það að segja, þá horfa hlutirnir öðruvísi við,“ segir Óttarr. Stjórnmál eiga að snúast um framtíðina Óttarr segir að fyrir sér snúist stjórnmál fyrst og fremst um framtíðina. Sér hafi oft fundist skortur á framtíðarhugsun í íslenskum stjórnmálum. „Þau detta of gjarnan í eins- málspólitík eða fara að snúast um menn frekar en málefni. Það er mjög margt jákvætt í ís- lensku samfélagi, en margt af því hefur gerst stefnulaust og jafnvel óvart, og sama má segja um þau áföll sem við höfum lent í.“ Óttarr segir að áhersla Bjartrar framtíðar endurspeglist þannig í nafni flokksins; hann sé Kringlunni 4c – Sími 568 4900 FULL BÚÐ AF GLÆSILEGUM VETRAR ÚLPUM Á ALLAR DÖMUR Verð 21.990.- Verð19.990.- Verð 29.990.- Bæjarlind 6, sími 554 7030 Við erum á facebook Kr. 7.990 Str. 38-52 Litir: Blátt og svart Nýjar skyrtur frá DNY KOSNINGAR 2017 Bílar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.