Morgunblaðið - 13.10.2017, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 13.10.2017, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2017 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Velta íslenskra greiðslukorta erlendis var 91,4 milljarðar króna fyrstu átta mánuði ársins og jókst um 16,3% milli ára. Veltan hefur aldrei verið jafn mikil og er til dæmis 58,5% meiri á núvirði en árið 2006. Þetta kemur fram í greiningu Rannsóknaseturs verslunarinnar á tölum Seðlabankans, sem unnin var fyrir Morgunblaðið. Við samanburð- inn hafa tölur fyrri ára verið færðar á verðlag nú. Samkvæmt þessari greiningu hef- ur velta íslenskra debetkorta erlendis aukist úr 14,35 milljörðum fyrstu átta mánuði ársins 2015 í 26,37 milljarða sömu mánuði í ár. Það er 83,8% aukn- ing. Til samanburðar jókst velta ís- lenskra kreditkorta erlendis úr 53,67 milljörðum í 64,99 milljarða á tíma- bilinu, eða um 21%. Velta íslenskra debetkorta erlendis hefur því aukist mun meira síðustu misseri. Nýir möguleikar debetkorta Árni Sverrir Hafsteinsson, hag- fræðingur hjá Rannsóknasetri versl- unarinnar, segir aukna veltu ís- lenskra debetkorta erlendis kunna að vitna um aukna netverslun. Síðustu misseri hafi enda sá möguleiki opnast að nota íslensk debetkort til að kaupa vörur á netinu. „Áður varð að nota kreditkort til að panta á netinu. Nú er hins vegar hægt að nota debetkort í mörgum tilvikum. Það kann að vera meginástæðan fyrir aukinni notkun íslenskra debetkorta erlendis.“ Þá bendir Árni Sverrir á að 14,3% fleiri Íslendingar hafi farið frá Leifs- stöð fyrstu sjö mánuði ársins en sömu mánuði í fyrra. Árið 2016 hafi aukn- ingin verið 21,4% á þessu tímabili en 12,8% árið 2015. Þar vitnar hann til talna Ferða- málastofu en á vef hennar hafa tölur fyrir ágúst ekki verið birtar. Við þennan samanburð ber að hafa í huga að kaupmáttur Íslendinga hef- ur aukist mikið síðustu ár. Til dæmis kostaði evran 144,7 krónur í lok ágúst 2015 en 124,35 krónur í lok ágúst í ár. Þá má geta þess að evran kostaði 179 krónur 31. ágúst 2009. Kaupmátturinn hefur aukist Neysla Íslendinga á vöru og þjón- ustu erlendis hefur því aukist meira en sem nemur aukningu í krónum. Samanlögð velta íslenskra debet- og kreditkorta erlendis hrundi milli ára 2008 og 2009, fór úr 66,36 millj- örðum í 37,52 milljarða á núvirði. Hún hefur síðan aukist á hverju ári í 91,37 milljarða. Er hér miðað við fyrstu átta mánuði hvers árs. Veltan þessa mán- uði var 143,5% meiri 2017 en á árinu 2009. Kortanotkunin erlendis aldrei meiri  Velta íslenskra debet- og kreditkorta erlendis var samtals 91,4 milljarðar fyrstu átta mánuði ársins  Velta debetkorta eykst hraðar en velta kreditkorta  Hagfræðingur tengir þá þróun við netverslun Kortanotkun Íslendinga erlendis Heildarvelta í janúar til ágúst 2006-17 áverðlagi nú ímilljónum Alls Kreditkort Debetkort ’06 ’07 ’08 ’09 ’10 ’11 ’12 ’13 ’14 ’15 ’16 ’17 43.917 57.640 29.213 8.305 37.518 13.723 64.994 26.373 91.367 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Skipulags- og umferðarnefnd Sel- tjarnarness hefur samþykkt að setja merkingar á nokkra staði á göngu- stígum í bænum. Þetta er gert til að freista þess að draga úr hraða hjólreiðamanna sem eiga leið um stíga á Nesinu og minna alla þá sem fara um stígana á að sýna öðrum vegfarendum til- litssemi. Þessi sam- þykkt er gerð að gefnu tilefni, að sögn Bjarna Torfa Álfþórssonar, bæjarfulltrúa á Seltjarnarnesi og formanns nefndarinnar. Borist hafa kvartarnir vegna þess að sumir hjól- reiðamenn, stundum saman í hóp, hafa hjólað ansi greitt á stígum þar sem umferð gangandi og hjólandi er ekki aðskilin. Þykkmálning á stígana Að sögn Bjarna stendur til að mála hvítar rendur á stígana með þykkmálningu, 10-15 sentimetra breiðar. Þrjár slíkar rendur verða málaðar á hverjum stað og munu þær spanna einn og hálfan metra. Þessar merkingar verða málaðar á stígana á völdum stöðum, til dæmis þar sem er blönduð umferð eða þar sem skokkandi og hjólandi koma inn á stíginn. Þetta verður gert fljótlega. „Ég hjóla mikið erlendis því ég hef verið leiðsögumaður í hjólaferðum hjá Bændaferðum. Ég var í Austur- ríki í sumar þar sem er mjög öflugt hjólakerfi, og þar sem er blönduð umferð gangandi og hjólandi er þetta mjög algengt,“ segir Bjarni. Nýlega var stígakerfið tvöfaldað frá bæjarmörkum Seltjarnarness og Reykjavíkur og alla leið vestur að Gróttu. Næsta skref verður að tvö- falda stígakerfið frá Gróttu meðfram Bakkatjörn að bílastæðum við golf- völl Ness. Það verk gæti jafnvel haf- ist í haust en í síðasta lagi næsta vor. Síðan verður stígakerfið tvöfaldað frá bílastæðunum að Lindarbraut. Þetta er mjög vinsæll göngu- og hjólahringur að sögn Bjarna og bæj- aryfirvöld telji það öryggismál að- skilja umferð gangandi og hjólandi. „Hjólastígurinn frá bæjarmörk- unum út í Gróttu kostaði á sjöunda tug milljóna og við viljum gjarnan að hjólreiðamenn nýti stíginn. En við viljum fyrst og fremst bæta öryggi allra sem leið eiga um Nesið,“ segir Bjarni. Dregið úr hjóla- hraða á stígum Morgunblaðið/ÞÖK Hjólreiðar Draga á úr hraðanum. Bjarni Torfi Álfþórsson Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is „Góðan dag, þetta er Þórólfur Guðna- son, sóttvarnalæknir á Íslandi. Í flug- vélinni í gær sátuð þið fyrir aftan mann sem greind- ist með mislinga.“ Einhvern veginn þannig gæti sam- tal Þórólfs við Ís- lendinga á ferða- lagi í Evrópu síðasta sumar hafa byrjað. Þeg- ar í ljós kemur að ferðalangur er með alvarlegan smitsjúkdóm fer í gang alþjóðlegt upplýsinga- og við- vörunarkerfi og var þetta samtal lið- ur í því. Þórólfur segir að sérstaklega sé fylgst með um 50 alvarlegum smit- sjúkdómum og eru mislingar þar á meðal, en hvert tilvik er vegið og met- ið. „Ef þessir sjúkdómar greinast fer svokölluð smitrakning af stað og eru þá ýmsir þættir kannaðir, meðal ann- ars hvar viðkomandi hefur verið og í tengslum við hverja,“ segir Þórólfur. „Ef vitað er að einhver sem er með mislinga hefur verið í flugi þá er yfir- leitt vitað hvar hann hefur setið og hverjir sátu næst honum. Þá er haft samband við þá farþega sem sátu ná- lægt viðkomandi í flugvélinni. Það er gert bæði til þess að heyra hvernig það fólk hefur það, hvort það hefur verið bólusett og vara það við ef það fær sjúkdómseinkenni.“ Farþegalistar og sætisnúmer Þórólfur segir að um sé að ræða al- þjóðlegt kerfi landa í Evrópu og Bandaríkjunum og í gegnum Al- þjóðaheilbrigðisstofnunina og al- þjóðlega samninga. Tengiliðir í lönd- unum hafi samband sín á milli ef svona lagað komi upp og séu fljótir að bregðast við, fá farþegalista og sæt- isnúmer hjá flugfélögum og hafa uppi á viðkomandi. Þórólfur tekur fram að í flugvélum sé þó ekki sérstaklega mikil smithætta. „Ég held að þetta kerfi virki ágæt- lega,“ segir Þórólfur. „Það kemur fyrir að við þurfum að taka upp sím- ann og segja fólki hver staðan sé og fá upplýsingar um bólusetningar og hvort líkur séu á smitun. Stundum verður fólki hverft við, en það er betra að fá smá kipp heldur en að veikjast og vita ekki af neinu. Ef upp koma tilvik hérlendis erum við sömu- leiðis með lista yfir tengiliði í öðrum löndum.“ Vaxandi áhyggjur af útbreiðslu Vaxandi áhyggjur eru af útbreiðslu mislinga og að sögn Þórólfs hafa á síðustu tólf mánuðum um 15 þúsund einstaklingar greinst með mislinga í Evrópu, flestir á Ítalíu og í Rúmeníu. Um 30 einstaklingar hafa dáið í Evr- ópu úr mislingum á þessu ári. Hérlendis hófst bólusetning gegn mislingum um 1976 og er bólusett við 18 mánaða og 12 ára aldur. Þátttaka hérlendis er yfir 90% og hefur Emb- ætti landlæknis ítrekað hvatt til enn meiri þátttöku því mislingar séu mjög smitandi og geti verið hættulegir. „Betra að fá smá kipp heldur en að veikjast“  Mikið kerfi í gang greinist ferðalangur með smitsjúkdóm Thinkstock Mislingar Sérstaklega er hvatt til bólusetningar gegn mislingum. Þórólfur Guðnason Charles D. Michel, aðmíráll og annar æðsti yfirmaður bandarísku strandgæslunnar, sæmdi í gærmorgun skipverja á hafrannsóknaskipinu Árna Friðrikssyni, áhöfn flugvélar Isavia og starfsmenn í stjórnstöð Land- helgisgæslu Ísands viðurkenningu fyrir þátt þeirra í að bjarga áhöfn bandarísku skútunnar Valiant sl. sumar. Morgunblaðið/Golli Viðurkenning veitt fyrir skútubjörgun LAUGAVEGI 24 - 101 REYKJAVÍK SÍMI: 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - 600 AKUREYRI SÍMI: 462 4646 GENUINE SINCE 1937

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.