Morgunblaðið - 13.10.2017, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 13.10.2017, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2017 Skál fyrir árveknı ÍS L E N S K A /S IA .I S /N AT 86 12 9 10 /1 7 „Við vorum búin að bóka að við vor- um ósátt við að búið væri að auglýsa Secret Solstice á næsta ári án þess að búið væri að ganga frá hefðbundnu umsagnarferli innan borgarkerfisins, m.a. hjá okkur, vegna hátíðarinnar í ár,“ segir Heiðar Ingi Svansson, for- maður hverfisráðs Laugardals. „Á fundi sem hverfisráðið hélt á mánudaginn sl. átti að afgreiða um- sögn frá hverfisráði Laugardals, á grundvelli gagna úr kerfinu, t.d. frá umhverfis- og skipulagsráði, slökkvi- liðinu, heilbrigðiseftirlitinu o.s.frv., en þau lágu ekki öll fyrir þar sem ekki voru allir búnir að skila gögnunum og þess vegna verður þetta tekið fyrir á næsta fundi og afgreitt þá,“ segir Heiðar Ingi. Söfnun gagnanna og umsagnirnar snúa að því að fara yfir það hvað fór úrskeiðis þegar hátíðin var haldin á þessu ári til að bæta megi úr því við skipulag Secret Solstice á næsta ári. „Við ætluðum að vinna vandaða og ítarlega umsögn og höfum skoðun á þessu. Það eru ýmsir hlutir sem við höfum áhyggjur af, t.d. lengdin, en fjórir dagar er svolítið langt inni í íbúðahverfi,“ segir hann og bendir á að áður hafi hátíðin verið 3 dagar. „Nú eru aðstandendur hátíðar- innar búnir að auglýsa hana í fjóra daga aftur. Reyndar er hátíðin með fimm ára samning við Reykjavíkur- borg en þar er ekkert tekið á þessum smáatriðum. Nú eru þeir bara búnir að auglýsa hátíðina einhliða,“ segir Heiðar Ingi og segir þau að öðru leyti ekki hafa haft neitt á móti hátíðinni. ernayr@mbl.is Hverfisráð ósátt við frumhlaup  Secret Solstice beið ekki umsagnar Morgunblaðið/Hanna Andrésdóttir Útihátíð Secret Solstice í sumar. Gísli Rúnar Gíslason gislirunar@mbl.is Greiðlega gekk að slökkva eld sem kom upp í byggingu á þaki Iceland- air hótels Reykjavík Natura í gær, en eldsupptök voru í gærkvöldi enn ókunn. Neyðarlínu barst tilkynning um eld í pítsuofni á hótelinu, en starfsmenn slökktu eldinn sjálfir. Að sögn Jóns Viðars Matthías- sonar, slökkviliðsstjóra á höfuð- borgarsvæðinu, er ekki vitað hvort eldurinn í pítsuofninum er orsök eldsins sem læsti sig í viðbyggingu á þaki hótelsins. „Það er í raun ekki vitað enn sem komið er, en það er hluti af því sem lögreglan er að rannsaka,“ segir Jón Viðar. Þá segir hann slökkvistarf hafa gengið vel. „Það fór enginn eldur eða vatn niður í hótelganginn og hefði í sjálfu sér verið nóg að loka einu eða tveimur herbergjum, en það var tekin ákvörðun, með öryggi gesta að leiðarljósi, um að loka 19 herbergjum sem eru innan við ákveðin brunahólf. Það er betra að hafa varann á og síðan er óþægilegt að vera nálægt þessu,“ segir hann. Vel gekk að slökkva eld í Hótel Natura Morgunblaðið/Golli Slökkvistarf Um tíma mátti sjá eld og reyk standa upp úr þaki hússins. Gylfi Ólafsson, heilsuhagfræð- ingur og aðstoð- armaður fjár- mála- og efna- hagsráðherra, leiðir lista Við- reisnar í Norð- vesturkjördæmi fyrir komandi al- þingiskosningar. Í öðru sæti er Lee Anna Maginnis lögfræðingur og í því þriðja er Haraldur Sæ- mundsson matreiðslumeistari. Gylfi leiðir Viðreisn í Norðvesturkjördæmi Gylfi Ólafsson Guðfinna Jó- hanna Guð- mundsdóttir, borgarfulltrúi og héraðsdóms- lögmaður, leiðir lista Miðflokks- ins í Reykjavík- urkjördæmi norður fyrir komandi alþing- iskosningar, en þær munu fara fram 28. október nk. Guðfinna Jóhanna hefur að und- anförnu setið í borgarráði og um- hverfis- og skipulagsráði Reykja- víkurborgar og lagt höfuðáherslu á húsnæðismál í Reykjavík og lausn húsnæðisvandans. Guðfinna leiðir lista Miðflokksins Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.