Morgunblaðið - 13.10.2017, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 13.10.2017, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2017 Halldór Benjamín Þorbergsson,framkvæmdastjóri SA, hrakti bábyljur um að ójöfnuður sé vanda- mál á Íslandi í grein sem hann rit- aði í Morgunblaðið í gær.    Þar benti hann áað tekjujöfn- uður væri meiri hér á landi en í nokkru af þeim löndum sem við berum okkur saman við, þ.e. í OECD löndunum, mælt með svokölluðum Gini-stuðli.    Hann benti líka á að ójöfnuðurtekna hefði ekki farið vaxandi heldur minnkandi á undanförnum árum.    Þá væri jöfnuður eigna hvergimeiri á Norðurlöndum en hér og ólíkt því sem haldið hefði verið fram hefði jöfnuðurinn aukist á liðnum árum. Árið 2010 hefði eignamesta tíund íslenskra heimila átt 86% eignanna en í fyrra hefði hlutfallið verið komið niður í 62%, sem væri undir meðaltali síðustu tveggja áratuga.    Það er hægt að skilja hversvegna stjórnmálamenn á vinstri kantinum og stuðningsmenn þeirra reyna að halda því fram að ójöfnuður sé mikill hér og fari vax- andi. Þeir telja að með slíkum öfug- mælum geti þeir sótt sér atkvæði.    En þó að skilja megi hvers vegnaþeir halda fram þessum ósannindum verður það seint talið þeim til hróss.    Almenningur á skilið að stjórn-málabaráttan sé málefnaleg og byggð á staðreyndum. Hann á ekki skilið að stjórnmálamenn segi ósatt. Halldór Benjamín Þorbergsson Tekjujöfnuður hvergi meiri STAKSTEINAR Veður víða um heim 12.10., kl. 18.00 Reykjavík 8 skýjað Bolungarvík 5 súld Akureyri 6 rigning Nuuk 2 léttskýjað Þórshöfn 9 skýjað Ósló 13 heiðskírt Kaupmannahöfn 11 skúrir Stokkhólmur 11 skúrir Helsinki 8 rigning Lúxemborg 16 léttskýjað Brussel 16 léttskýjað Dublin 15 skýjað Glasgow 13 skýjað London 16 skýjað París 19 skýjað Amsterdam 14 léttskýjað Hamborg 13 skúrir Berlín 14 léttskýjað Vín 19 heiðskírt Moskva 7 skýjað Algarve 24 heiðskírt Madríd 28 heiðskírt Barcelona 24 heiðskírt Mallorca 24 léttskýjað Róm 20 heiðskírt Aþena 21 heiðskírt Winnipeg 11 skýjað Montreal 12 heiðskírt New York 15 alskýjað Chicago 14 þoka Orlando 28 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 13. október Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 8:14 18:15 ÍSAFJÖRÐUR 8:24 18:15 SIGLUFJÖRÐUR 8:07 17:57 DJÚPIVOGUR 7:44 17:44 Veiðar verða leyfðar á 205 þús- und tonnum af loðnu í Barents- hafi á næsta ári, samkvæmt ráð- gjöf Alþjóða- hafrannsókna- ráðsins, ICES. Eftir er að ganga frá skiptingu milli Norðmanna og Rússa, en gert er ráð fyrir að 60% komi í hlut Norðmanna. Í leiðangri í haust varð vart við mikla loðnu í Barentshafi, sem er mikil breyting frá því fyrra, og góð mæling náðist í leiðanginum í ár. Við ráðgjöf ICES hefur verið tekið tillit til þorsksins, en loðna er mikilvæg fæða fyrir hann. Óvissa á Íslandsmiðum Mikil óvissa er hins vegar um loðnuveiðar hér við land næsta vetur og enginn upphafskvóti hefur verið gefinn út. Umfangsmiklum loðnu- leiðangri Hafrannsóknastofnunar lauk í vikunni og má búast við niður- stöðum hans í næstu viku. Í fyrra- vetur var endanlegur kvóti ekki gef- inn út fyrr en 14. febrúar þegar langt var liðið á vertíðina. Alls var heimilt að veiða um 300 þúsund tonn og þar af komu 196 þúsund tonn í hlut íslenskra skipa. aij@mbl.is Leyfa loðnu- veiðar í Bar- entshafi „Bæjarstjórn Akureyrar leggur áherslu á að Reykjavíkurflugvöllur verði áfram miðstöð innanlandsflugs og sjúkraflugs fyrir landið allt, þar til jafngóð eða betri lausn finnst.“ Þannig hljóðar upphaf bókunar sem samþykkt var á síðasta fundi bæjarstjórnar Akureyrar með 11 samhljóða atkvæðum. Bæjarstjórnin hefur oft ályktað um málið en nú skorar hún á stjórn- völd og ekki síst tilvonandi þing- menn að beita sér áfram í þessu máli og finna lausn til frambúðar. Í bókuninni segir að á undan- gengnum vikum hafi komið fram að það sé langtímaverkefni að finna jafngóða eða betri lausn en flugvöll í Vatnsmýri og það geti tekið tugi ára. Því sé óhjákvæmilegt að tryggja rekstur Reykjavíkurflugvallar þann- ig að hægt sé að ráðast í nauðsyn- legar framkvæmdir, s.s. að byggja nýja flugstöð og lagfæra útlit um- hverfis flugvöllinn svo sómi sé að. Þá ítrekar bæjarstjórn kröfu um að SV/NA-flugbrautin verði opnuð aftur svo tryggja megi að sjúkra- flugvélar geti lent þar. „Það gerðist ítrekað sl. vetur að ekki var hægt að lenda á vellinum vegna veðurs eftir lokun brautarinnar. Það er svo enn alvarlegra mál að slík flugbraut er ekki til á öllu SV-horni landsins, þar sem eina hátæknisjúkrahús landsins er.“ sisi@mbl.is Áskorun á tilvonandi þingmenn  Reykjavíkurflugvöllur verði áfram miðstöð innanlandsflugs og sjúkraflugs Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Reykjavík Áfram miðstöð flugsins. ÞÓR FH Opnunartími: Opið alla virka daga frá kl 9:00 - 18:00 Lokað um helgar Tölvuverslun - Reykjavík: Ármúla 11 108 Reykjavík Sími 568-1581 Vefsíða og netverslun: www.thor.is HÁGÆÐA PRENTARI fyrir litlar ogmeðalstórar skrifstofur WorkForce ProWF-6590DWF EPSON WorkForce Pro WF-6590 er öflugt, hagkvæmt og skrifstofur. Nettengdur/þráðlaus prentari með þægilegan snertiskjá. Prentar allt að 24 síður á mínútu og getur prentað báðum megin á blaðið. Skannar einnig blöð báðummegin í einni umferð. Auðvelt að skipta um blek. Hægt að prenta á umslög og þykkari pappír. EPSONWorkForce Pro er ný kynslóð umhverfisvænna bleksprautuprentara sem leysir af hólmi gömlu laserprentarana. Helstu kostir: • Hraðvirk hágæða prentun Allt að 20 síður á mínútu í svörtu eða lit. • Prentar, skannar, ljósritar og faxar. 4 tæki í 1 með og prentar beggja megin. • Miklir tengimöguleikar Þráðlaust net, WiFi Direct og venjul. nettenging. • Tvíhliða skönnun Skannar báðar hliðar blaðs í einni umferð. • Prentun beint úr síma Ókeypis app til að prenta beint úr síma. 24 ppm ISO 24 ppm

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.