Morgunblaðið - 13.10.2017, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 13.10.2017, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2017 Fuglasöngur Hér er Hilmar Örn að stjórna Söngfjelaginu þar sem það söng um kabarett fuglanna í Iðnó s.l vor. Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Ég hef verið þónokkuðutan í fuglum undan-farin ár, í tengslum viðverkefnisstjórn mína í kringum fuglafriðland hér í Svarf- aðardal. Fyrir vikið voru fuglarnir nærtækir sem efniviður þegar Sig- rún Magna, stjórnandi barnakórs Akureyrarkirkju, bað okkur Daní- el Þorsteinsson um að semja verk fyrir barnakórinn fyrir nokkrum árum. Úr varð Fuglakabarett sem við Daníel endurbættum fyrir flutning Söngfjelagsins í Iðnó í vor og á Dalvík í sumar,“ segir Svarfdælingurinn Hjörleifur Hjartarson sem var staddur úti í rigningunni fyrir norðan þegar blaðamaður náði tali af honum. Fyrir augu hans hafði þar borið gulendur á fleygiferð eftir Svarf- aðardalsá. Hjörleifur kemur suður um helgina til að syngja með Söng- fjelaginu Fuglakabarettinn í Lækningaminjasafninu á Seltjarn- arnesi, en hann er höfundur allra textanna sem þar verða sungnir. „Fuglar eru afar skemmtilegt viðfangsefni og nóg er til af áhugaverðum karakterum þeirra á meðal. Ég tók þá fyrir í hópum, en þeir fá vissulega ekki allir jafn mikið vægi. Lóan fékk sitt eigið lag og líka krummi og snjótittling- arnir, af því þeir eru svo mikil hörkutól sem þreyja þorrann og góuna. Ég samdi Evrópufuglasöng og Afríkufuglasöng fyrir farfugl- ana okkar, þeir bera jú með sér strauma frá þeim slóðum. Afríkufuglarnir eru lausari í lið- unum en Evrópufuglarnir, það er meira „sving“ í þeim og dans, óhjákvæmilega, komandi frá takt- mikilli Afríku. Evrópufuglarnir eru jarðbundnari og þeirra söngur endar á Evrópustefi Beethovens,“ segir Hjörleifur og grípur til söngs máli sínu til stuðnings. Rasismi og fuglar „Þetta verk er sett upp sem kabarett og hugmyndin er sú að Ísland er stærsti skemmtistaður í heimi og fuglarnir koma í þessa miklu veislu sem íslenska sumarið er. Í lokasöngnum segir: „Nú er að byrja ballið góða, í boði náttúru norðurslóða.“ Hrafninn er vertinn á staðnum og hann tekur á móti þessum langt að komnu gestum að sunnan sem eru á leið í þetta mikla teiti, og smátt og smátt fjölgar í hópnum,“ segir Hjörleifur og bætir við að þegar ákveðið hafi verið að Söngfjelagið tæki að sér að syngja Fuglakabarettinn þá hafi þeir Daníel bætt við tveimur fuglum. „Ég ákvað að gefa sílamávin- um sérstakan söng, af því enginn yrkir um hann. Lagið um hann fjallar einmitt um það, enda er mikill rasismi í sambandi við fugla á Íslandi, sumum er hampað meira en öðrum. En nú á sílamáv- urinn sinn eigin söng. Hinn fugl- inn sem við bættum við og fannst ástæða til að minna á, er hvera- fugl. Hverafuglar eru sérstakir fuglar, þeir þrífast aðeins í mjög heitum hverum. Sumir segja að þeir séu útskúfaðar sálir og séu í Hrafninn er vertinn í veislunni stóru Ísland er stærsti skemmtistaður í heimi í Fugla- kabarett Hjörleifs og Daníels. Þar bregður m.a. fyrir hverafuglum, hinum úskúfuðu sálum í neðra. Morgunblaðið/Eggert Hrafnsvartur Krummi er kúnstugur fugl og klár. Hér sérlega bláeygur. Hverafugl Hann er sagður dökkur og líkjast lítilli önd. Morgunblaðið/Eggert Hjörleifur Semur texta um fugla. Ég leiði oft hugann skýjum ofar. Við stöndum nefnilega á yfir- borði reikistjörnu sem er á fleygi- ferð um tómarúm geimsins, og hef- ur verið það án afláts í rúma fjóra milljarða ára. Og samt, á einhvern undarlegan hátt, getum við fundið ástæðu til að berja í stýrið og blóta þegar einhver á Miklubrautinni keyrir of hægt á undan okkur á leiðinni í vinnuna. Á sama tíma, hundruðum kílómetra fyrir ofan okkur, handan dökkgráu skýjanna og bláa himins- ins, er kolniðamyrkur og fimbul- kuldi. Þar skiptir Miklabrautin engu máli. Ekki heldur neins stað- ar annars staðar. Útreikningar vísindamanna gera ráð fyrir að fjöldi þeirra stjarna sem prýða himinhvolfin sé meiri en þeirra sandkorna sem finna má hér á jörðu. Í raun bendir allt til þess að þær séu hér um bil tíu sinnum fleiri. Samt er það á þessum agnarsmáa hnetti sem ótal margir einræðisherrar, hryðjuverkamenn og alls kyns ómenni telja sig þurfa að drepa tugi, hund- ruð, þúsundir eða jafnvel milljónir manna, til þess eins að ljá mál- stað sínum meira vægi eða til að færa út landamæri sín um eins og nokkur hundruð kílómetra. Fáeinum árum síðar, eða varla sekúndubroti í samhengi við sögu jarðar í heild, hafa þeir kvatt þetta jarðlíf og sjást aldrei meir. Ekki frekar en þær saklausu mann- eskjur sem eftir þá liggja í valnum. Þessir sömu menn gáfu sér ef- laust ekki tíma til að anda djúpt og átta sig á því að þeir voru bara litl- ir rykmaurar, fljótandi um á ryk- kúlu þar sem ekkert skiptir í raun máli á endanum. Auðvitað er skiljanlegt að við hugsum ekki um það held- ur. Það er þægilegra að láta sig dreyma um nýju, hlýju vetr- arlínuna frá IKEA en að hugsa um fjarlægar og kaldar vetrar- brautir. Og í stað þess að beina sjón- um að Óríonbeltinu bíðum við spennt eftir að sjá nýja gull- jólaóróa Georg Jen- sen (engill í ár!). »Það er þægilegra að láta sig dreyma um nýju, hlýju vetrarlínuna frá IKEA en að hugsa um fjarlægar og kaldar vetrarbrautir. Heimur Skúla Skúli Halldórsson sh@mbl.is Þar hverafuglar sífellt eru sullandi, í grængolandi brennihverum bullandi. Því hverafuglar vilja vatnið sjóðandi sem engum skepnum öðrum þætti bjóðandi. Menn heyra þeirra ámátlega eymdarsöng sem ærir menn og kvelur eyrun kveldin löng. Þeir þvarga þar í stækjunni og steypa sér beint ofan í hylinn þar sem heitast er. Menn trúa í þeim flökti sálir fordæmdar sem útskúfaðar engjast þar til eilífðar og ætla að úr fögrum sveitum Suðurlands syndi þær um undirgöng til andskotans. Ærandi eymdarsöngur BROT ÚR TEXTA HJÖRLEIFS UM HVERAFUGLA Keilulegur Flans- og búkkalegur Hjólalegusett Nála- og línulegur LEGUR Í BÍLA OG TÆKI Það borgar sig að nota það besta! TRAUSTAR VÖRUR ...sem þola álagið Dalvegi 10–14 • 201 Kópavogi • Sími: 540 7000 • www.falkinn.is Kúlu- og rúllulegur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.