Morgunblaðið - 13.10.2017, Side 23
UMRÆÐAN 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2017
Það eru talin al-
kunn sannindi að
frelsi og sjálfstæði
mannsins er fólgið í
því að skulda ekki
neinum neitt og vera
á þann veg sjálfs sín
ráðandi. Þetta er mik-
il einföldun á fjár-
hagslegu sjálfstæði
því það er einnig hluti
af frelsi að geta tekið
að láni. Það er ætíð háð greiðslu-
getu hvers einstaklings og hverrar
þjóðar hvað hann eða hún getur
tekið að láni og takmarkað aðra
möguleika sína eða byggt upp til
framtíðar til að öðlast meira frelsi.
Þannig er með ungt fólk, að það
velur að taka lán þegar greiðslu-
geta er nokkur til að byggja sér
framtíðarheimili. Það að byggja
upp heimili skerðir frelsið um sinn
en eykur framtíðaröryggi.
Leigustefna eða séreignastefna
er val um frelsi nú og þvingun síð-
ar, eða öfugt. Því miður er það svo
að þegar starfsævi lýkur lækka
ráðstöfunartekjur svo mjög að
gott er að leigugjöld og húsnæð-
isskuldir skuli vera frá. Þá á frels-
ið að hafa tekið við.
Landsmenn eru flestir þeirrar
skoðunar að þeir ásælast ekki ann-
arra manna gróða og vilja ekki
þurfa að bera annarra manna töp.
Hvernig tengist þetta
almannatryggingum?
Þetta viðhorf tengist almanna-
tryggingum sem byggjast á nokkr-
um stoðum:
– Ein er lífeyris-
sjóðir.
– Önnur er sér-
eignasparnaður sem
tengist launatekjum.
– Sú þriðja er bæt-
ur frá Trygginga-
stofnun.
– Enn önnur er
frjáls sparnaður með
arðstekjum og vaxta-
tekjum.
– Að lokum er
sparnaður, sem felst í
eigin húsnæði.
Sú kvöð er lögð á alla launþega
að greiða hluta launa sinna í líf-
eyrissjóð til að greiða ellilífeyri og
örorkulífeyri ef til þess kemur.
Frjáls sparnaður
til að skapa frelsi
Umfram allt vill fólk frelsi til at-
hafna. Jón Hreggviðsson sagði að
sér væri sama hvort hann væri
sekur eða saklaus; hann vildi að-
eins hafa bátinn sinn í friði. Bát-
urinn var hin frjálsi sparnaður
Jóns.
Gluggaumslög með innheimtu-
bréfum eru merki um helsi. Sjálf-
stæðir menn fá varla sendibréf!
Því miður er það svo að allir
hvatar í þessu samfélagi, sér í lagi
skattalegir, eru til að auka skuld-
setningu og draga úr sparnaði.
Raunar er það svo að slíkir hvatar
leiða að lokum til erlendrar skuld-
setningar, greiðsluhalla við útlönd
og þeirra meina sem af slíkum
halla leiða, sem eru gengisfellingar
og kjaraskerðingar sem fylgja
gengisfellingum. Þeir sem vilja
draga úr peningalegum sparnaði
eru landsölumenn.
Öfugmælin eru þau að vaxta-
bætur hvetja til lántöku og fjár-
eignatekju-skattur dregur að öðru
jöfnu úr peningalegum sparnaði.
Sá er þetta ritar hefur lagt það í
vana sinn að stofna sparireikninga
fyrir nýfædd börn, sem hann telur
að standi sér nærri, til að hægt sé
að venja börn á sparnað frá fæð-
ingu. Sum börn hafa átt fyrir reið-
hjóli, bíl eða hluta af íbúð af þessu
nurli sínu og ættingja sinna, ferm-
ingargjöfum og þúsundköllum af
og til.
Annað afrek greinarhöfundar
var að verðtryggja orlofsfé verka-
fólks í Vestmannaeyjum í 30-130%
verðbólgu þegar Póstgíróstofa
bauð 4% vexti. Það var mikil
kjarabót á þeim tíma.
Raunar er það umhugsunarvert
hví ekki hefur tekist að koma því á
að fólk geti stofnað húsnæðis-
sparnaðarreikninga með skattaleg-
um hvötum. Það verður þó að vera
einhver trygging fyrir því að slík-
ur sparnaður haldi verðgildi sínu,
en verði ekki afétinn af þeim sem
taka skuldahvatningu.
Umræða um skattbreytingar
Nú um stund er nokkur umræða
um skattbreytingar. Þeir sem best
gengur á atkvæðaveiðum telja
fjáreignatekjuskattinn gott andlag
til að hækka. Það góða fólk virðist
hafa sérlegan áhuga á að ná til
fólks í Garðabæ.
Nú er það svo að 20% fjáreigna-
tekjuskattur af vöxtum og verð-
bótum, eins og hann er nú, miðað
við 2% raunávöxtun og 2% verð-
bólgu, er 39,6% raunskattur.
Sparnaður er aldrei hættulegur.
Sparnaður er forsenda framfara
og nýsköpunar. Í öllu tali um
skattlagningu fjáreigna er hvatinn
sá að gera útlendinga ríka. Auðvit-
að á markmiðið að vera að gera Ís-
lendinga frjálsa.
Önnur umræða er sú að með
tekjuskattsbreytingum virðist eiga
sérstaklega að hlífa almenningi.
Þá er spurning um hina. Með því
að skattleggja tekjur yfir 1,5 millj-
ónum króna á mánuði næst í tvær
sérlega hættulegar stéttir. Það eru
læknar og sjómenn í Neskaupstað.
Þeir eru vissulega tekjuháir!
Læknar njóta engrar samúðar
nema þegar fólk þarf á þeim að
halda. En sjómenn njóta samúðar
á sjómannadaginn.
Er þetta ætlan VG/Alþýðu-
bandalagsins? Verði þjóðinni að
góðu!
Tími til tvö hundruð og einnar
breytingar og endurskoðunar
Það eru um tvö hundruð skatt-
breytingar, sem leiðinlegasta rík-
isstjórn allra tíma kom í gegn. Af
þeim hefur ein runnið sitt skeið á
enda. Þá eru eftir hundrað og níu-
tíu breytingar sem þarf að taka til
endurskoðunar og snúa ofan af.
Þeim til viðbótar er skattlagn-
ing, sem síðasta ríkisstjórn kom í
gegn með stuðningi stjórnarand-
stöðu en með andstöðu eins þing-
manns. Það er skattur á skuldir
banka en það eru lántakendur sem
greiða þann skatt.
Að auki er ástæða til að afnema
svokallaðan sumarbústaðaskatt því
hann er mjög óréttlátur og er í
raun 20% eignarnám.
Af hverju þetta hjal
um frjálsan sparnað?
Það er nefnilega þannig að al-
mannatryggingakerfi sem hér hef-
ur verið byggt upp greiðir ein-
ungis lágmarksbætur. Til þess að
treysta það þurfa einstaklingar að
byggja upp sinn viðbótarlífeyris-
sparnað og eiga frjálsan sparnað
því til viðbótar. Til þess þarf að
vera hvati en ekki að sparnaðurinn
sé einungis skattandlag. Hinn
frjálsi sparnaður byggir upp vel-
ferð allra í samfélaginu, ekki að-
eins þeirra sem eiga, þótt þeir
njóti síðar.
Með þeirri aldursskiptingu sem
er með þjóðinni geta bætur al-
mannatrygginga aldrei orðið
grundvöllur ellilífeyris. Frjáls
sparnaður og hvatar hans geta
einungis bætt úr vanda almanna-
trygginga og lífeyriskerfis.
Hvað sagði Guðbjartur?
Að lokum er rétt að minna á orð
Guðbjarts í Sumarhúsum: Ég segi
fyrir mig, maður fer á mis við lífið
þángaðtil maður er orðinn sjálf-
stæður. Fólk sem ekki er sjálf-
stæðisfólk er ekki fólk.
Frjálst fólk með frjálsri þjóð!
Eftir Vilhjálm
Bjarnason »Öfugmælin eru þau
að vaxtabætur hvetja
til lántöku og fjáreigna-
tekjuskattur dregur að
öðru jöfnu úr peninga-
legum sparnaði.
Vilhjálmur Bjarnason
Höfundur er alþingismaður.
Frjáls sparnaður með frjálsri þjóð
Eftir kosningar,
verði Framsóknarflokk-
urinn í ríkisstjórn, mun
flokkurinn leggja
áherslu á að sérstakt
byggðaráðuneyti verði
sett á laggirnar til fjög-
urra ára. Ráðuneytið
verði eins konar að-
gerðahópur sem vinni
að landsbyggðarmálum
með öllum öðrum ráðu-
neytum og tryggi jafn-
ræði í þjónustu ríkisins. Markmiðið
er að styrkja landsbyggðina, því
samfélagið er sterkast þegar allir
búa við sama þjónustustig, óháð
búsetu.
Mörg verkefni tengjast byggðum
landsins. Forgangsmálin, sem
tímabundið byggðaráðuneyti þarf
að vinna með, eru heilbrigðisþjón-
usta, menntamál, samgöngur og at-
vinna, gagngert í þeim tilgangi að
styrkja samfélagið Ísland. Fram-
sókn leggur áherslu á að hefja
þurfi nú þegar markvissa uppbygg-
ingu grunnþjónustunnar.
Við viljum setja 20 milljarða
aukalega í málaflokkana, þar af 10
milljarða í heilbrigðiskerfið.
Velferðin
Þörfin fyrir heilbrigðisþjónustu
er mismikil eftir landshlutum. Á
síðasta þingvetri var samþykkt
þingsályktun okkar um heilbrigð-
isáætlun. Þar kemur fram að
greina þurfi þörfina á landsvísu.
Taka þurfi tillit til íbúafjölda, ald-
urssamsetningar, fjölda ferða-
manna, sumarhúsabyggða, fjar-
lægða, þjónustu sjúkrabíla og fleiri
slíkra þátta. Ríkisvaldið þarf síðan
að beina kröftum sínum og fjár-
magni þangað sem þörfin er mest.
Heilsugæslan verður hins vegar að
vera í forgrunni.
Áhersla okkar er á menntamálin,
til að undirbúa okkur undir um-
breytingatíma sem fram undan
eru. Við þurfum öfl-
ugt menntakerfi og
fjárfesta í hugverka-
og þekkingariðnaði
sem gerir okkur
kleift að mæta
tæknibyltingunni.
Hugtök eins og
gervigreind, sýnd-
arveruleiki og skýja-
lausnir eru að ryðja
sér til rúms og munu
umbylta hluta af
þeim störfum sem
við þekkjum í dag.
Betri vegir og tíðara flug
Vegakerfið er víða laskað. Gott
vegakerfi og tíðar flugsamgöngur
eru lykilatriði í að tryggja jafnræði
að þjónustu. Nýbygging vega og
viðhald hefur setið eftir í langan
tíma og því þurfa framkvæmdirnar
að vera markvissar á næstu árum.
Við viljum setja allt að 10 milljarða
á ári til viðbótar til að auðvelda
fólki að sækja vinnu og þjónustu
innan svæða. Taka þarf tillit til
umferðar, slysatíðni og samtímis
að horfa til þensluáhrifa. Við efl-
ingu á innanlandsflugi gætum við
horft til Skota sem hafa þróað
kerfi þar sem íbúum lengst frá
þjónustu er gert kleift að nýta sér
flugið á viðráðanlegu verði. Fyrstu
kostnaðaráætlanir sýna að slík við-
bót kosti um 600-700 milljónir.
Atvinnan
Við þurfum að huga að yngstu
atvinnugreinunum sem þurfa að
geta fest sig í sessi á landsbyggð-
inni. Lífhagkerfið, sem byggist á
nýsköpun í auðlindum til lands og
sjávar, verður þar stökkpallur.
Fyrirmyndirnar eru fyrir hendi,
samanber Verið á Sauðarkróki og
Codland í Grindavík og starfsemi
tengd háskólunum. Markmiðið er
fjölbreytt atvinnutækifæri fyrir
alla.
Sjávarútvegur og landbúnaður
eru traustar stoðir byggðanna.
Stöðugur rekstrargrundvöllur
stuðlar að sjálfbærum og öflugum
byggðum. Fjölbreytt atvinnulíf
tryggir sjálfbærni byggðanna þar
sem ein grein ber ekki alla ábyrgð
á farsæld samfélagsins. Því er
nauðsynlegt að tryggja rekstrar-
grundvöll sauðfjárbænda og hjálpa
þeim gegnum tímabundna erf-
iðleika. Framsókn er með skýra
sýn á hvað þarf að gera.
Framsókn leggst gegn því að
ferðaþjónustan sé færð upp í
hæsta þrep virðisaukaskatts. Við
erum í alþjóðlegri samkeppni um
ferðamenn og verðum að tryggja
samkeppnishæfni greinarinnar. Á
sama tíma verðum við að gefa
nýrri og smærri fyrirtækjum, ekki
síst á jaðarsvæðum ferðaþjónust-
unnar, tíma og tækifæri til að
koma undir sig fótunum. Margt
áhugavert er að gerast víða um
land, en fyrirtækin eru smá og
mörg hver í uppbyggingarfasa.
Mikil tækifæri eru í að byggja
ferðaþjónustuna betur upp á svæð-
um sem liggja lengst frá Leifsstöð.
Fiskeldi hefur vaxið einna mest
á svæðum þar sem atvinnulíf er fá-
brotið. Samfélagið hefur hag af því
að báðar greinarnar þrífist í sátt
og samlyndi. Við verðum að
tryggja möguleika til vaxtar en sá
vöxtur má ekki gerast á kostnað
villta laxastofnsins eða umhverf-
isins.
Gott samband
Til að hægt sé að segja að allir
landshlutar sitji við sama borð
þurfa fjarskipti að vera góð. Við
erum á góðri leið með að ljósleið-
aravæða allt landið. Verkefninu
lýkur á næstu 3-4 árum. Hins veg-
ar er afhendingaröryggi raforku
ótryggt en það er forsenda fyrir
frekari atvinnuuppbyggingu en um
leið eitt mikilvægasta verkefni okk-
ar í loftslagsmálum. Víða er pottur
brotinn og langt í land að almenn-
ingur og fyrirtæki geti gengið að
því vísu að fá nægt rafmagn. Spýta
þarf í lófana. Án þess er tómt mál
að tala um rafbílavæðingu landsins
alls eða að nægilegt rafmagn sé til
í höfnum landsins svo hægt sé að
losna við dísilvélakeyrslu fiski-,
kaup- og skemmtiferðaskipa.
Að taka á öllum þessum málum
og fleirum er að mati okkar í
Framsókn eitt mikilvægasta verk-
efnið í að gera landið okkar að heil-
brigðu og öflugu samfélagi þar sem
allir sitji við sama borð. Byggða-
málin verða því að fá aukna at-
hygli. Tímabundið byggðaráðuneyti
gæti því verið nauðsynlegt til að
kraftar allra nýtist sem best og all-
ir hafi sömu tækifæri.
Sameiginlegt stórátak
Eftir Sigurð Inga
Jóhannsson
Sigurður Ingi
Jóhannsson
» Áhersla okkar er
á menntamálin,
til að búa okkur undir
umbreytingatíma sem
fram undan eru.
Höfundur er formaður
Framsóknarflokksins.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Framsóknarflokkurinn Vill setja á stofn sérstakt byggðaráðuneyti til fjögurra ára. Myndin er frá Raufarhöfn.