Morgunblaðið - 13.10.2017, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2017
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Baughús 28, Reykjavík, fnr. 204-1079, þingl. eig. Stekkjafjall ehf,
gerðarbeiðendur Orkuveita Reykjavíkur-vatns sf., Reykjavíkurborg,
Landsbankinn hf. og Birta lífeyrissjóður, þriðjudaginn 17. október nk.
kl. 11:00.
Brekkutangi 5, Mosfellsbær, fnr. 208-3180, þingl. eig. þb.Sigurður H.
Ívarsson og þb.Ásdís Stefanía Jónsdóttir , gerðarbeiðendur þb.
Sigurður Helgi Ívarsson og þb.Ásdís Stefanía Jónsdóttir, þriðjudaginn
17. október nk. kl. 11:30.
Hraunbær 160, Reykjavík, fnr. 204-5210, þingl. eig. Jóhannes Ásbjörn
Kolbeinsson og Rebekka Jóhannsdóttir, gerðarbeiðendur Reykjavíkur-
borg og Orkuveita Reykjavíkur-vatns sf., þriðjudaginn 17. október nk.
kl. 14:00.
Hraunbær 180, Reykjavík, fnr. 204-5309, þingl. eig. Bryndís Ósk
Sigfúsdóttir og Jakob Ingvar Magnússon, gerðarbeiðendur Orkuveita
Reykjavíkur-vatns sf., Reykjavíkurborg, Landsbankinn hf.,Tollstjóri og
Lífeyrissj.starfsm.rík. B-deild, þriðjudaginn 17. október nk. kl. 14:30.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
12. október 2017
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Dagurinn byrjar á opinni vinnustofu kl. 9 og endar á
okkar vinsæla bingói kl. 13.30. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest!
Árskógar 4 Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-
16. Botsía með Guðmundi kl. 9.30. Opið hús kl. 13-16. Bókabíllinn
kemur við Árskóga 6-8 kl. 16.15-17. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur
kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. S. 535-2700.
Boðinn Föstudagur: Vatnsleikfimi í sundlaug Boðans kl. 9. Línudans
fyrir byrjendur og lengra komna kl. 15.15.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10-
10.30. Lífssögur kl. 10.40-11.10, allir velkomnir í lífssöguhópinn. Leik-
fimi kl. 12.50-13.30. U3A- kynning kl. 13.40, Kristján Guðmundsson
kynnir samtökin U3A Reykjavík og starf þeirra, allir velkomnir. Opið
kaffihús 14.30-15.30.
Dalbraut 18-20 Stólaleikfimi með Rósu kl. 10.15.
Dalbraut 27 vinnustofa kl. 8, upplestur úr dagblöðum vikunnar kl.
10, bíó kl. 13.30.
Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Leikfimi kl. 13.45. Kaffiveitingar kl.
14.30. Allir velkomnir.
Garðabær Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga frá kl.
9.30-16. Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10. Félagsvist FEBG í Jónshúsi
kl. 13. Bíll fer frá Litlakoti kl. 12.20, Hleinum kl. 12.30 og frá Garðatorgi
7. kl. 12.40 og til baka að lokinni félagsvist ef óskað er. Smiðjan í
Kirkjuhvoli er opin kl. 13–16. Allir velkomnir
Geruberg Föstudagur: Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Glervinnu-
stofa með leiðbeinanda kl. 9-12. Prjónakaffi kl. 10-12. Leikfimi göngu-
hóps kl. 10-10.20. Gönguhópur um hverfið kl. 10.30-. Bókband með
leiðbeinanda kl. 13-16. Kóræfing kl. 13-15.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9.10 botsía, kl. 9.30 postulínsmálun, kl.
13 tréskurður, kl. 13.30 léttgönguhópur (frjáls mæting).
Gullsmari Föstudagur: Handavinna kl. 9, leikfimi / ganga kl. 10, flugu-
hnýtingar kl. 13, Gleðigjafarnir kl. 14.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Opin handavinna kl. 9–12. Útskurður kl. 9, verkfæri á staðnum og
nýliðar velkomnir. Morgunleikfimi kl. 9.45. Botsía kl. 10-11. Hádegis-
matur kl. 11.30. Pálínuboð kl. 14 í tilefni af bleikum föstudegi. Boðið
verður upp á frítt kaffi og heitt súkkulaði, gestir leggja eitthvað smá-
vegis á veisluborð og allir njóta saman.
Hvassaleiti 56-5 8 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og
spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, jóga kl. 9, 10 og 11,
morgunleikfimi kl. 9.45, hádegismatur kl. 11.30. Brids kl. 13, bingó kl.
13.15, kaffisala í hléi allir velkomnir
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnar kl. 8.50, við hringborðið kl.
8.50, listasmiðjan kl. 8.50-11, thai chi kl. 9, botsía kl. 10.15, myndlistar-
námskeið hjá Margréti Zophoníasdóttur kl. 12.30, kvikmyndasýning
kl. 13. síðdegiskaffi kl. 14.30, allir velkomnir, nánar í síma 411-2790.
Korpúlfar Hugleiðsla og jóga kl. 9, bridshópur Korpúlfa kl. 12.30.
Hannyrðahópur kl. 12.30, tréútskurður kl. 13 á Korpúlfsstöðum og
sundleikfimi kl. 13.30 í Grafarvogssundlaug. Haustfagnaður Korpúlfa í
kvöld í Borgum, húsið opnað kl. 18, borðhald kl. 19. skemmtiatriði,
dans og glæsilegir happadrættisvinningar. Ath. taka þarf drykkjarföng
með sér í veisluna.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, listasmiðja
með leiðbeinanda kl. 9-12, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl. 11,
bingó kl. 14, ganga með starfsmanni kl. 14. Uppl. í s. 411-2760.
Selið, Sléttuvegi 11-13 Selið er opið frá kl. 10-14. Upp úr kl. 10 er
boðið upp á kaffi og gaman að koma í spjall og kíkja í blöðin, hádegis-
verður kl. 11.30-12.30. Allir eru hjartanlega velkomnir í Selið. Nánari
upplýsingar hjá Maríu í síma 568-2586.
Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Jóga/hláturjóga í saln-
um á Skólabraut kl. 11. Syngjum saman í salnum á Skólabraut í dag
undir stjórn Friðriks Vignis kl. 13. Spilað í króknum Skólabraut kl.
13.30. Brids í Eiðismýri kl. 13.30. Félags- og tómstundastarf eldri
bæjarbúa tekur þátt í menningardögum Seltjarnarness með því að
bjóða íbúum á ofangreina viðburði og eru allir hjartanlega velkomnir.
Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Íslendingasögur – Sögur úr Eyja-
firði og nágrenni, námskeið kl. 13, kennari Baldur Hafstað. Borgara-
fundur í Háskólabíói laugardaginn 14. október kl. 13, Um málefni eldri
borgara með fulltrúum stjórnmálaflokkanna sem bjóða fram á lands-
vísu í Alþingiskosningunum 28. október nk., MÆTUM ÖLL. Dansað
sunnudagskvöld kl. 20-23, Hljómsveit hússins leikur fyrir dansi.
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
Lok á heita potta og hitaveitu-
skeljar
Stærðir í cm: 200x200, 210x210,
220x220, 235x235, 235x217,
217x174, 8 hyrnd lok. Lokin þola 1000
kg jafnaðarþunga af snjó. Vel ein-
angruð og koma með 10 cm svuntu.
Sterkustu lokin á markaðnum. Litir:
Brúnt eða grátt. Opnarar til þess að
auðvelda opnun á loki.
www.heitirpottar.is
Sími 777 2000 Haffi
og 777 2001 Grétar
Ýmislegt
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur fyrir
veturinn,
ryðbletta þök og tek
að mér ýmis smærri
verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
✝ Málhildur ÞóraAngantýsdótt-
ir, sjúkraliði, fædd-
ist í Reykjavík 2.
júlí 1938. Hún lést á
heimili sínu 1. októ-
ber 2017.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin Ang-
antýr Guðjónsson,
verkstjóri í Reykja-
vík, f. í Reykjavík
22. maí 1917, d. 6.
ágúst 1961, og Dóra Sigríður
Halldórsdóttir, húsmóðir, f. í
Reykjavík 9. september 1911, d.
24. september 2007. Albróðir
Málhildar er Sigurður Ang-
antýsson, f. 11. september 1940.
Systkini sammæðra eru Svan-
hildur Magnúsdóttir, f. 6. apríl
1933, Hilmar Magnússon, f. 10.
október 1934, og Ólöf Magn-
úsdóttir, f. 19. maí 1936, d. 2. jan-
úar 2016.
Málhildur giftist 4. október
1958 Sigurði Hallvarðssyni, f. 9.
maí 1937, d. 9. nóvember 2006.
Foreldrar hans voru Hallvarður
Sigurðsson, verkamaður í
Vestmannaeyjum, f. 14. maí
1902, d. 5. ágúst 1967, og Sigríð-
ur Guðjónsdóttir, húsmóðir, f.
27. júlí 1910, d. 10. febrúar 1995.
Börn Málhildar og Sigurðar
eru:
a) Angantýr, tæknifræðingur í
Reykjavík, f. í Vestmannaeyjum
sen. c) Elín Fríða, viðskiptafræð-
ingur á Hvolsvelli, f. í Reykjavík
11. janúar 1966, gift Davíð Þór
Óskarssyni, bifreiðastjóra, f. í
Skipagerði í Landeyjum 4. sept-
ember 1967. Börn þeirra eru: 1)
Hildur Þóra Þorvaldsdóttir (fað-
ir Þorvaldur Birgisson), f. 23.
mars 1986, gift Geir Sigurðssyni
Waage og eiga þau þrjú börn,
Söru Jóhönnu (móðir Emilía
Valdimarsdóttir), Elínu Fríðu og
Sigurð Ingvar, 2) Óskar Þór
(móðir Þorbjörg Pálsdóttir), f.
30. nóvember 1987, kvæntur
Hafdísi Guðrúnu Benidikts-
dóttur og eiga þau fjögur börn,
Gabríel Snæ, Díönu Lóu, Sig-
rúnu Björk og Karen Lind, og 3)
Sigurjón Þór, f. 1. október 1995.
Málhildur ólst upp í Reykjavík
og lauk landsprófi frá Gagn-
fræðaskóla Austurbæjar. Hún og
Sigurður hófu sinn búskap í
Vestmannaeyjum 1958 en flutt-
ust svo til Reykjavíkur 1962. Mál-
hildur lauk sjúkraliðaprófi frá
St. Jósefsspítala 1972, starfaði
lengst af sem sjúkraliði á Landa-
koti. Hún tók virkan þátt í
margskonar félagsstöfum, s.s.
trúnaðarmaður sjúkraliða á
Landakoti, í stjórn Sjúkraliða-
félags Íslands og í ýmsum trún-
aðarstöfum í þágu stéttar sinnar.
Auk þess gegndi hún fjölmörg-
um pólitískum trúnaðarstöfum
sem fulltrúi launþega innan
Sjálfstæðisflokksins, varaborg-
arfulltrúi og í stjórn málfunda-
félagsins Óðins.
Útför Málhildar fer fram frá
Bústaðakirkju í dag, 13. október
2017, og hefst athöfnin klukkan
11.
10. janúar 1959,
kvæntur Erlu Björk
Gunnarsdóttur, líf-
eindafræðingi, f. í
Reykjavík 29. ágúst
1960. Börn þeirra:
1) Heiða María, f. 7.
september 1988,
unnusti hennar er
Jón Þór Skaftason
og eiga þau tvö
börn, Breka Stein
og Heklu Brá, 2)
Stefán Már, f. 12. mars 1991,
unnusta hans er Ragnhildur Erla
Þorgeirsdóttir og á hann einn
son Aron Mána (móðir Dagný
Margrét Gunnarsdóttir) og 3)
Ágúst Hrafn, f. 19. mars 1998. b)
Hallvarður, rafvirki í Noregi, f. í
Reykjavík 11. september 1959,
kvæntur Önnu Margréti Ingólfs-
dóttur, fulltrúa, f. í Reykjavík 11.
febrúar 1958. Börn þeirra eru: 1)
Hreimur Örn (faðir Heimir
Bergmann), f. 1. júlí 1978, giftur
Þorbjörgu Sif Þorsteinsdóttur
og eiga þrjú börn, Emblu Mar-
gréti, Þorstein Heiðar og Kára
Frey, 2) Sigurður, f. 7. desember
1982, giftur Ósk Hjartardóttur
og eiga þau þrjú börn, Hjört Jó-
hann, Jóhönnu Kristrúnu og
Hallvarð Hinrik, 3) Inga Þóra, f.
6. september 1993, og á hún dótt-
urina Johanne, og 4) Guðjón
Heiðar, f. 11. apríl 1995, unnusta
hans er Iromie Stephany Torger-
Í dag kveðjum við frænku
mína, Möllu.
Malla var skemmtileg og að-
sópsmikil kona. Ég á svo margar
góðar minningar um hana, bæði
frá uppvaxtarárum mínum og
fullorðinsárum sem búsett í Nor-
egi.
Hvert sinn sem Malla kom til
Noregs reyndum við að hittast og
mér eru minnisstæðar skemmti-
legar stundir á veitingahúsum í
Ósló, matarboðum heima hjá
okkur hjónum og núna síðast
heimsóknir í frístundahús okkar í
fjöllunum. Minningarnar eru
margar og góðar, og það er gott
að eiga þessar minningar þegar
við kveðjum Möllu.
Ég fel í forsjá þína,
Guð faðir, sálu mína,
því nú er komin nótt.
Um ljósið lát mig dreyma
og ljúfa engla geyma
öll börnin þín, svo blundi rótt.
(Matthías Jochumsson)
Kær kveðja,
Dóra Soffía.
Látin er á heimili sínu kær vin-
kona Málhildur, sem var kölluð
Malla af vinum og ættingjum. Við
Malla höfum þekkst frá unglings-
árunum.
Hún átti heima í Miðstræti og
ég í Þingholtsstræti þegar við
vorum börn og unglingar. Geng-
um saman í Miðbæjarskólann frá
12 ára aldri og þangað til leiðir
skildu og ég fór í Verslunarskóla
Íslands, en hún fór í landspróf í
Austurbæjarskólanum. Við fór-
um oft í sunnudagaskóla KFUK
og stundum á kvöldsamkomur
þar.
Það voru mörg börn í miðbæ
Reykjavíkur á uppvaxtarárum
okkar. Leikir okkar fóru mest
fram á götunni, sem var þá mal-
argata. Þar voru stundaðir alls
konar útileikir og nefni ég
brennibolta, sem var vinsæll, en
auðvitað voru leikirnir fleiri. Við
fermdumst saman í Dómkirkj-
unni í mjög stórum hópi. Dagur-
inn var okkur eftirminnilegur.
Það var mikill undirbúningur fyr-
ir ferminguna. Við fermdumst í
síðum hvítum kjólum með hvíta
hanska og svo fengum við svo-
kallaðan eftirfermingarkjól, skó,
tösku og nýja kápu. Það var mik-
ið umstang í kringum ferm-
inguna, en veisluhöld voru ekki
eins fyrirferðarmikil og í dag.
Eftir ferminguna töldum við
okkur vera orðnar fullorðnar og
fórum að punta okkur og fara í
göngutúra um miðbæinn og í bíó.
Leiðir skildu þegar leið á ung-
lingsárin, enda gengum við ekki í
sama skólann. Hún fór til Sví-
þjóðar og dvaldi um tíma þar og
lærði síðan til sjúkraliða og starf-
aði á Landakoti og Borgarspít-
alanum. Hún giftist manni frá
Vestmannaeyjum, Sigurði Hall-
varðssyni, og eignuðust þau þrjú
börn. Þau bjuggu fyrstu árin sín
saman í Eyjum en fluttu svo upp
á land og bjuggu lengst af á Bú-
staðaveginum, en fluttu síðan
upp í Grafarholt. Hún missti
mann sinn fyrir nokkrum árum
og var það henni mikið áfall.
Hún var alltaf hress og kát.
Um árabil tók hún þátt í félags-
og stjórnmálum. Hún lá ekki á
skoðunum sínum.
Við vorum alltaf í sambandi
þegar færi gafst og nú síðustu ár
höfum við haft mikil samskipti og
átt margar góðar stundir saman.
Fórum saman á tónleika hjá
Karlakór Reykjavíkur tvisvar á
ári og nutum vel. Hún stóð fyrir
þessu þar sem sonur hennar
Angantýr er í kórnum. Að tón-
leikum loknum fórum við alltaf út
að borða. Nú í sumar fór hún
ásamt dóttur sinni Elínu Fríðu til
Portúgal og naut þess og hún var
nýkomin heim frá Noregi, en
annar sonur hennar Hallvarður
býr þar ásamt fjölskyldu, einnig
býr barnabarn hennar Hildur þar
og dvaldi hún hjá henni, en þær
voru mjög nánar.
Henni voru börnin, barna-
börnin og langömmubörnin ákaf-
lega kær og hún naut þess að
vera samvistum við þau og gladd-
ist við hvern endurfund.
Hún á þrjú eftirlifandi systk-
ini, sem sjá nú á eftir systur sinni.
Ég votta börnum, systkinum og
fjölskyldum innilega samúð
mína. Hennar verður sárt sakn-
að.
Blessuð sé minning hennar.
Sigríður Bjarnadóttir.
Blessuð vertu baugalín.
Blíður Jesú gæti þín,
elskulega móðir mín;
mælir það hún dóttir þín.
(Ágústína J. Eyjólfsdóttir)
Það er komið að því að kveðja
þig. Þér leiddist aldrei að ferðast,
í júlí fórum við bara tvær til Beni-
dorm, áttum saman yndislega
viku. Fórum út að borða, skrupp-
um í búðir og fórum á ströndina.
Fyrir þremur vikum varst þú ný-
komin úr þinni annarri ferð til
Noregs á þessu ári. Þegar ég fór
með þig út á flugvöll, sáum við að
ferðataskan þín var orðin slitin
og þú baðst mig um að kaupa
nýja fyrir næstu ferð. Núna ertu
farin í ferðalag sem krefst engrar
ferðatösku, ég átti ekki von á því
að þú færir í þetta ferðalag nærri
því strax.
Virðing og þakklæti eru þau
orð sem koma fyrst upp í hugann
þegar ég hugsa til þín. Þú varst
alltaf til staðar, þegar ég þurfti á
þér að halda. Fyrir börnin mín
hafðir þú alltaf tíma og skjól.
Um leið og ég kveð þig, þakka
ég þér fyrir allar stundirnar sem
við áttum saman, og vona að þú
og pabbi sitjið nú saman og horfið
út á sjóinn.
Þín dóttir,
Elín Fríða Sigurðardóttir.
Málhildur Þóra
Angantýsdóttir
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og
viðeigandi liður, „Senda inn
minningargrein,“ valinn úr felli-
glugganum. Einnig er hægt að
slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt
að senda lengri grein. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á
vefnum. Hægt er að senda ör-
stutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur.
Minningargreinar