Morgunblaðið - 13.10.2017, Side 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2017
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Í litum, sýning á verkum myndlist-
armannsins Þórs Vigfússonar, verð-
ur opnuð í Gallery GAMMA í dag kl.
17 og er hún yfirlitssýning eins og
margar aðrar sem haldnar hafa ver-
ið í galleríinu.
„Þór er einn af þeim listamönnum
sem koma í kjölfarið á SÚM-
hópnum, á þeim tíma þegar allt var
að opnast í vestrænni myndlist,“
segir Jón Proppé, annar af tveimur
sýningarstjórum sýningarinnar, en
hinn er Ari Alexander Ergis Magn-
ússon. „Það voru alls konar hug-
myndir í gangi og Þór er svolítið sér-
stakur að því leyti að hann tekur
þessa þrengstu mínimalísku línu, ef
svo má segja, að sjá hvað hann kæm-
ist upp með að gera lítið, eins og
hann hefur orðað það sjálfur, en
samt þannig að úr yrði myndlist. Og
það er eiginlega sú lína sem hann
hefur verið að fylgja æ síðan. Hann
hefur haldið ótal sýningar, bæði
einka- og samsýningar og alltaf ein-
beitt sér að þessu. Hann vinnur með
liti og form og svo efni og það eru
sérstaklega verk hans í gler sem
hafa vakið hvað mesta athygli. Hann
byrjaði á því að mála með vatnslitum
aftan á glerplötur og hefur síðan
beitt líka flóknari aðferðum.
En niðurstaðan fyrir okkur sem
horfum framan á glerið er kannski
svolítið svipuð, við sjáum djúpan lit
og oft pínulítið eins og reykmettaðan
í glerinu og svo sjáum við auðvitað
okkur sjálf og umhverfið á bakvið
okkur í sýningarsalnum. Við verðum
hluti af verkinu og það má segja að
það sé svolítið eðli þessarar mínimal-
ísku myndlistar sem Þór stendur
fyrir – og hann er einn af helstu boð-
berum þessarar hugmyndafræði í ís-
lenskri myndlist – að við stöndum
frammi fyrir einhverju sem er svo
einfalt og tært að okkur finnst eins
og við hefðum getað gert það sjálf en
um leið getur einfaldleikinn gripið
okkar hugsun og athygli og gert
rýmið í kringum okkur á einhvern
hátt aðeins magískara. Þetta er
kjarninn,“ segir Jón.
Ljóðræn taug
„Elsta verkið er frá 1979, nokkrir
kubbar á vegg málaðir í frumlitum
og einföldustu litum og snúið þannig
að úr verður athyglisverð heild og
það má raða þeim upp aftur og aftur,
horfa á þá frá ýmsum sjónarhornum.
Þetta eru einföldustu frumtæki
myndlistarinnar en samt sem áður
tekst honum að gera einhverja töfra
úr þeim og þetta er það sem þessi
sýning gengur í raun út á, töfra hins
einfalda og Þór hefur ræktað þetta í
næstum 50 ár á sinn ljóðræna hátt,“
segir Jón. Íslenskur mínimalismi sé
frábrugðinn mínimalisma í Banda-
ríkjunum og víðar að því leyti að í
honum megi greina ljóðræna taug.
„Það er einhvern veginn eins og við
losnum aldrei við hana, sama hvað
við reynum að gera.“
Í GAMMA Þór við eitt verka sinna á sýningunni í Gallery GAMMA sem er að Garðastræti 37 í Reykjavík.
Töfrar hins einfalda
Yfirlitssýning á verkum Þórs Vigfússonar verður opnuð
í Gallery GAMMA í dag Ljóðrænn og tær mínimalismi
Á morgun verður opnuð í sýning-
arsölum Charlottenborgar við Ný-
höfnina í Kaupmannahöfn vegleg
sýning á verkum Yoko Ono. Verk
listakonunnar, sem er heiðursborg-
ari Reykjavíkur, munu þó ekki bara
vera sýnileg þar næstu mánuði
heldur má segja að Yoko leggi Dan-
mörku undir sig á næstunni. Verk
eftir hana munu hljóma í útvarpi,
sjást í dagblöðum, á auglýsingum í
verslunum og á auglýsingaskiltum
og stætóskýlum út um landið, og þá
verða þau einnig gefin út á frí-
merkjum.
Sýningin nefnist Yoko Ono
Transmission og sýningarstjóri er
Jon Hendricks sem hefur um langt
árabil unnið með Yoko og meðal
annars sett upp sýningar með verk-
um listakonunnar hér á landi.
Sýnd á 900 rútuskýlum
Um yfirlitssýningu er að ræða og
getur að líta úrval verka allt síðan
snemma á sjöunda áratugnum er
þau vöktu fyrst athygli þegar Yoko
Ono starfaði og sýndi í tengslum við
Fluxus-listhreyfinguna. Sérstök
áhersla er þó á verk sem hún hefur
unnið sérstaklega fyrir fjölmiðla og
fyrir útgáfu, þar á meðal dagblöð
og bækur.
Í tilkynningu frá Charlottenborg
segir að ljósi verði varpað á prent-
verk listakonunnar í sem víðustum
skilningi, og hvernig hún hafi öðl-
ast útbreiðslu fyrir verkin „allt frá
lágværu hvísli að útbreiðslu í fjöl-
miðlum“. Í því ljósi hafi verið mik-
ilvægt fyrir listakonuna og Char-
lottenborg að útvíkka sýningar-
salina og færa úrval verka út meðal
fólksins.
Meðal annars verða sett upp um
900 veggspjöld á rútuskýli út um
Danmörku en á þeim verða orðin
„DREEM,“ „FEEL,“ „FLY“ og
„Open Window“. Í útvarpsauglýs-
ingum verða lesin fyrirmælaverk
úr bókinni Grapafruit og þá gefur
PostNord út yfir hálfa milljón frí-
merkja með verkum Yoko.
Verk Yoko Ono
víða í Danmörku
Morgunblaðið/Ómar
Listakonan Yoko Ono og verk
hennar munu sjást og heyrast víða.
Listahátíðin Sequences stendur að
opnum áheyrnarprufum í menning-
arhúsinu Mengi á morgun frá kl. 16
og er markmiðið að finna nýjustu
stjörnu Íslands sem mun taka þátt í
verki bresku listakonunnar Cally
Spooner. Hún mun svo stofna popp-
hljómsveit til að flytja lag samið
fyrir verkið „On False Tears and
Outsourcing“ sem í tilkynningu er
sagt sérhannað til vinsælda.
Í verki Spooner á Sequences sit-
ur hún með dómnefnd og fylgist
með þátttakendum í áheyrnar-
prufum en úr þeim hópi verða vald-
ir einn eða fleiri einstaklingar til að
flytja lagið „NAH NAH NAH!“ en
það er samið af alþjóðlegum hópi
tónlistarmanna og framleiðenda
með það að markmiði að ná efstu
sætum franskra vinsældalista á
næsta ári.
„NAH NAH NAH!“ er tilvonandi
smellur sem bíður réttra flytjenda
til að gera lagið vinsælt og er öllum
frjálst að sýna
dómnefndinni
hæfileika sína í
Mengi, eins og
segir í tilkynn-
ingu. Annað
kvöld kl. 20 fer
fram úrslitavið-
ureign og kemur
þá fram hverjir
verða popp-
stjörnur hljómsveitarinnar False
Tears og flytjendur lagsins „NAH
NAH NAH!“
Dómnefndina skipa Ragnar
Kjartansson myndlistarmaður,
Unnsteinn Manúel Stefánsson tón-
listarmaður, Erna Ómarsdóttir, list-
rænn stjórnandi Íslenska dans-
flokksins, GoGo Starr dragdrottn-
ing og Oliver Basciano, blaðamaður
ArtReview.
Allir eru velkomnir, bæði þátttak-
endur og gestir. Mengi er í Óðins-
götu 2.
Poppstjörnuleit í Mengi
Cally Spooner
SÝND KL. 6, 9.10SÝND KL. 8, 10.30
SÝND KL. 10SÝND KL. 4, 6, 8SÝND KL. 3.50, 5.50 SÝND KL. 3.50
Miðasala og nánari upplýsingar
5%