Morgunblaðið - 13.10.2017, Page 44
FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 286. DAGUR ÁRSINS 2017
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 581 KR. ÁSKRIFT 6.307 KR. HELGARÁSKRIFT 3.938 KR. PDF Á MBL.IS 5.594 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.594 KR.
1. Hvíta ekkjan látin
2. Viðbúnaður vegna elds …
3. Lætur lögmennina um …
4. Strætó vissi ekki af nýju hringtorgi
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Menningarhátíð Seltjarnarness
hófst í gær og verður mikið um að
vera á nesinu í dag og á morgun. Í
dag munu leikskólabörn syngja á Eið-
istorgi kl. 15 og á morgun kl. 21 halda
Pétur Ben og Lay Low tónleika í fé-
lagsheimili bæjarins og verður það í
fyrsta sinn sem þau koma saman á
sviði.
Pétur Ben og Lay
Low halda tónleika
Myndlistar-
tvíæringurinn Se-
quences stendur
nú sem hæst og í
dag verður boðið
upp á vídeó-
dagskrá frá kl.
17.30 til 20.30 í
Slippbíói á Hótel
Marina, Mýrar-
götu 2, þar sem sýnd verða verk
nokkurra þeirra listamanna sem taka
þátt í hátíðinni. Sýningarstjóri hátíð-
arinnar er Margot Norton.
Vídeódagskrá í Slipp-
bíói á Hótel Marina
20 ár eru liðin í dag frá útgáfu
barnaplötunnar Abbababb! með Dr.
Gunna og vinum hans og af því tilefni
fer fram afhending gullplötu í plötu-
búðinni Smekkleysu á
Laugavegi í dag þar
sem yfir 5.000 ein-
tök hafa verið seld
af plötunni. Viðburð-
urinn hefst kl. 16
og verða m.a.
leikin nokkur
lög af plöt-
unni.
Gullplata afhent á 20
ára útgáfuafmæli
Á laugardag Vestan og norðvestan 8-18 m/s, hvassast við N-
ströndina. Rigning eða slydda um landið norðanvert, en bjart með
köflum sunnantil. Hiti 1 til 8 stig, hlýjast á Suðausturlandi.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan og norðvestan 10-20 og talsverð
rigning N-lands, en úrkomulítið syðra. Áfram hvassast á Vest-
fjörðum, 13-23 í kvöld, hvassast á Ströndum. Hiti víða 3 til 10 stig.
VEÐUR
Gianni Infantino, forseti Al-
þjóða knattspyrnusam-
bandsins, FIFA, segir við
Morgunblaðið að hann sé
fullur tilhlökkunar að sjá ís-
lenska landsliðið og ís-
lensku stuðningsmennina á
HM í Rússlandi
næsta sumar.
Hann hefur hrif-
ist af ástríðu Íslendinga til
fótboltans og segir íslenska
fótboltaævintýrið vera fal-
lega staðreynd. » 1
Forseti FIFA hrífst
af Íslendingum
Freyr Alexandersson landsliðsþjálfari
tilkynnti liðsval sitt í gær fyrir leikina
mikilvægu gegn Þýskalandi og Tékk-
landi í undankeppni HM. Hann hélt
sig svo að segja við sama hóp og
vann Færeyjar 8:0 í
fyrsta leik undan-
keppninnar. Allir 18
leikmennirnir sem
voru í hópnum í
þeim leik eru í
20 manna hópn-
um sem Freyr
valdi nú. »1
Litlar breytingar eftir
sigurinn gegn Færeyjum
Ekki vantaði spennuna þegar Reykja-
víkurliðin Valur og ÍR tókust á í Olís-
deild karla í handbolta á Hlíðarenda í
gærkvöld. Valsmenn skoruðu skraut-
legt sigurmark á lokasekúndum
leiksins og tryggðu sér þannig eins
marks sigur, 24:23. Íslandsmeist-
ararnir í Val hafa unnið fyrstu fimm
leiki sína í deildinni, rétt eins og FH-
ingar hafa gert. »4
Skrautlegt sigurmark
Valsmanna gegn ÍR
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Loftslagsbreytingar og hærra hita-
stig valda því að undanhald þessara
stærstu jökla heimsins er hraðara nú
en nokkru sinni fyrr. Í rauninni er allt
að breytast á Grænlandi og því blasa
þar við ótrúleg myndefni,“ segir Ás-
geir Pétursson, en hann heldur í
tengslum við Arctic Circle, sem hefst
í Hörpu í dag, ljósmyndasýningu sem
ber yfirskriftina Icescapes.
Myndir á sýningunni sem eru 20 og
allar í stærra lagi sýna jökla sem eru
að hopa, ísjaka sem falla úr ísveggn-
um í sjó og loftsýn af jöklinum við
Ilulissat á vesturströnd Grænlands.
Þá eru einnig abstraktmyndir af ís,
hvar greina má með ímyndunarafli
allskonar forynjur, hallir, mannverur
og merki.
Hæfir hvergi betur
Það var Sigríður Blöndal, sem er
framkvæmdastjóri Norðurslóða-
ráðstefnunnar, sem bauð Ásgeiri að
halda sýninguna þar. Tækifærið segir
hann einstakt og hvergi hæfi betur að
sýna myndir af grænlenskum jöklum
en einmitt á Arctic Circle.
Ásgeir, sem er nemi á öðru ári í
Ljósmyndaskólanum, hefur dvalist
mikið á Grænlandi síðastliðin fjögur
ár. Þar búa foreldrar hans, þau Jó-
hanna Gunnarsdóttir og Pétur Ás-
geirsson sem er aðalræðismaður Ís-
lands í Nuuk. Pétur hefur beitt sér
fyrir auknum menningartengslum
milli Grænlands og Íslands með
gagnkvæmum heimsóknum og ýms-
um viðburðum. Og saman hafa feðg-
arnir ferðast um Grænland, siglt
meðfram ströndum þar sem jökl-
arnir, sem sífellt gefa eftir, blasa við.
„Ég hef unnið að þessu Græn-
landsverkefni frá 2014 og tekið þetta
stíft síðastliðna þrettán mánuði. Ég
hef eytt miklum tíma í ísfirðinum við
Nuuk og tekið loftmyndir við Ilul-
issat. Svo hafa ferðir okkar feðga ver-
ið einstakar. Í fyrra fórum við í tólf
daga ferð á sportbát frá Nuuk norður
til bæjarins Uummannaq sem er um
450 km norðan við heimskautsbaug.
Áður höfðum við svo siglt til Nanorta-
lik sem er nærri suðurodda Græn-
lands,“ segir Ásgeir og heldur áfram:
Í tengslum við náttúruna
„Það er áhugavert að hlusta á frá-
sagnir Grænlendinga sjálfra um
breytingar á náttúrunni, sem þeir eru
í sterkum tengslum við. Samgöngur á
ís eru að breytast, fæðuöflun dýra
breytist, sjómenn þurfa að róa á ný
mið og ísbreiðan á sunnanverðum
Grænlandsjökli þynnist hratt. Um-
skiptin eru mikil og þeim ætla ég að
fylgjast með og mynda. Ég held að
enginn þurfi að velkjast í vafa um að
loftslagsbreytingar og áhrif þeirra
séu til staðar – myndirnar af jöklum
tala sínu máli.“
Myndefnin eru á Grænlandi
Ásgeir sýnir
á Arctic Circle
Morgunblaðið/Golli
Sýning Umskiptin eru mikil og þeim ætla ég að fylgjast með, segir Ásgeir Pétursson um Grænlandsverkefni sitt.
Nú fyrir jólin kemur út bókin Á
norðurslóð – ferðasaga frá Græn-
landi eftir feðgana Ásgeir Pét-
ursson og Pétur Ásgeirsson. Bók-
in er 250 blaðsíður með 100
ljósmyndum eftir Ásgeir. Hryggj-
arstykkið í bókinni eru frásagnir
úr siglingum þeirra feðga með
vesturströnd Grænlands, við hin
bestu skilyrði í sumarblíðu. En
granninn í vestri á sér þó fleiri
svipi, svo sem á öðrum árstím-
um, eins og segir frá í texta bók-
arinnar sem
Pétur skrifar.
Þar greinir
hann einnig frá
ýmsu því sem
hann hefur
kynnst sem að-
alræðismaður
Íslands í Nuuk
frá 2013 og
landnemi ís-
lensku utanríkisþjónustunnar á
Grænlandi.
Ferðasögur af norðurslóðum
BÓK EFTIR FEÐGANA ER VÆNTANLEG FYRIR JÓLIN
Pétur
Ásgeirsson