Morgunblaðið - 01.11.2017, Page 35

Morgunblaðið - 01.11.2017, Page 35
ákveðið að blanda olíunni saman við súkkulaði segir Málfríður að hún hafi áður búið til og selt líf- rænt súkkulaði og kunnað til verka. Með því að blanda kanna- bisolíunni saman við súkkulaði og móta úr því litla dropa sé hægt að tryggja að hver og einn innihaldi hæfilegan kannabisskammt. „Svo virkar þetta líka betur andlega fyrir sjúklingana. Þeim finnst þeir síður vera að gera eitthvað ólög- legt.“ Ekki gert í hagnaðarskyni Í kæru málsins kemur fram að hópurinn hafi selt kannabisolíu og kannabissúkkulaði á netinu fyrir 2,7 milljónir danskra króna (um 44 milljónir ISK) á árunum 2014-‘16. Spurð hvort þau hafi hagnast mik- ið á sölunni segir Málfríður svo ekki vera. „Nei, það gerðum við ekki. Enda var það ekki tilgangur- inn, heldur að hjálpa fólki. Við af- hentum lögreglu öll gögn um málið og földum ekkert. Það er allt uppi á yfirborðinu.“ Hverjir keyptu kannabissúkku- laðidropana af ykkur? „Ég sá að mestu um framleiðsluna og var lít- ið í sölumálunum eða samskiptum við kaupendur. En þetta var að- allega fólk með krabbamein, marg- ir sem voru í krabbameinsmeð- ferðum og notuðu kannabisolíuna til að slá á aukaverkanirnar og auka matarlystina. Þá var talsvert um MS-sjúklinga og fólk með gigt- arsjúkdóma og ég man eftir lög- reglumönnum sem keyptu af okk- ur, annaðhvort fyrir sjálfa sig eða aðstandendur. Það voru líka ein- hver börn. Til dæmis man ég eftir fimm ára stúlku í Álaborg sem hafði fengið krabbamein í móður- lífið og því fylgdi mikil vanlíðan. Súkkulaðidroparnir gjörbreyttu lífi hennar. Svona sögur skera mann í hjartað. Sögur af foreldrum, sem reyna allt sem þeir geta til að láta börnunum sínum líða betur, og þurfa að brjóta lög til þess.“ Málfríður segist hafa fundið fyr- ir talsverðum fordómum vegna að- ildar sinnar að málinu. Hún segist hafa reynt að láta það ekki á sig fá, en vissulega sé erfitt þegar fólk henni nákomið sé ekki tilbúið að veita henni stuðning. Áttu von á að fá dóm? „Hugs- anlega. En ég á ekki von á að hann verði þungur. Ég braut lögin upphaflega fyrir pabba minn, síðan til að hjálpa öðrum og ég er viss um að þetta endar allt saman vel.“ var“ Fjölmiðlar Málið hefur fengið gríðarlega mikla athygli í dönskum fjöl- miðlum, enda notkun kannabisefna í lækningaskyni mikið til umræðu þar. Ljósmynd/skjáskot af dr.dk Full búð af nýjum vörum Bláu húsin v/Faxafen Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena undirfataverslun FRÉTTIR 35Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2017 Notkun kannabisefna í lækningaskyni er lögleg í Danmörku hafi læknir skrifað upp á meðferðina. Það er aftur á móti ólöglegt að rækta eigið kanna- bis eða kaupa það af einkaaðilum í þessu skyni og með því athæfi er verið að brjóta bæði lyfja- og fíkniefnalög. Frá sjónarhorni laganna er ekki gerð- ur greinarmunur á því hvort einkaaðilar selja kannabis sem vímugjafa eða til lækninga. Um áramótin munu ný lög taka gildi í Dan- mörku sem kveða á um að næstu fjögur árin, fram til ársins 2022, verði tilteknum sjúklingahópum gefinn kostur á að fá kannabisolíu í lækningaskyni og verður grannt fylgst með framkvæmdinni og hvort tilefni sé til að fyrirkomulagið verði að varanlegum lögum. Nú hyggur Manu Sareen, fyrr- verandi jafnréttis- og kirkjumálaráðherra Dan- merkur, á málsókn þar sem hann vill láta reyna á lögmæti þess að fleiri hópum sjúklinga standi þessi valkostur til boða. Í viðtali við danska dagblaðið Politiken um síð- ustu helgi sagði Sareen að notkun kannabis í lækn- ingaskyni yrði líklega ekki lögleg fyrr en í fyrsta lagi árið 2024. „Ég er ekki tilbúinn til að bíða eftir því og heldur ekki danska þjóðin,“ sagði Sareen, sem sjálfur neytti kannabisefna í lækningaskyni í ráðherratíð sinni vegna alvarlegrar streitu. Í umfjöllun Politiken segir að þó að læknum hafi verið heimilt frá árinu 2011 að ávísa kannabis- efnum til MS-sjúklinga, þá sé það undir einstökum læknum komið hvort sú heimild sé nýtt. Sareen er nú í forsvari fyrir nýstofnuð samtök sjúklinga sem berjast fyrir lögleiðingu kannabisefna í lækninga- skyni Deilt um kannabis í lækningaskyni Ljósmynd/Johannes Jansson/norden.org Manu Sareen Hann er fyrrverandi ráðherra og hyggur á mál- sókn gegn danska ríkinu vegna kannabisefna í lækningaskyni. Málfríður, Claus og þrír aðrir eru ákærð fyrir brot á 191. grein dönsku hegningarlaganna sem kveður á um sölu á fíkniefnum. Þá eru þau líka ákærð fyrir brot á 7. grein dönsku læknalaganna fyrir að hafa selt og auglýst varning sem lyf án þess að hafa til þess leyfi. Í ákærunni kemur m.a. fram að þau hafi framleitt 6,7 lítra af kannabis- olíu og 51.659 súkkulaðidropa sem innihalda THC, sem er virka efnið í kannabis. Málfríður er einnig ákærð fyrir að hafa tekið við kannabisolíunni, nýtt hana til súkkulaðigerðar og síðan selt afraksturinn. Að auki er Nielsen ákærður fyrir að hafa haft barnaklám í tölvu sinni, en hann fullyrðir að hann hafi fengið það sent óumbeðið. Hann hefur aldrei dregið dul á að hann selji sjúklingum kannabisolíu, heldur þvert á móti verið fús til að ræða þessa iðju sína opinberlega og segir tilgang- inn aldei hafa verið að græða fé, enginn hagnist á þessu nema sjúklingarnir sem öðlist betri líðan og að það sé ekki tilgangur allra sem selja kannabis að gera fólk háð efninu og græða mikið af pen- ingum. Danska ríkisútvarpið, DR, hefur fylgst grannt með réttarhöldunum. Í frétt DR segir að Lise Frandsen saksóknari hafi greint frá því við rétt- arhöldin að lögreglu hafi fyrst borist veður af málinu þegar ábending barst á vefsíðu dönsku lögreglunnar um að Claus Nielsen seldi kannabis- olíu á Facebook. Skömmu síðar hafði talsmaður flutningafyrirtækisins GLS samband við lögregl- una og sagðist hafa tekið eftir tíðum pakkasend- ingum Nielsens til sömu viðtakenda og samkvæmt reglum fyrirtækisins var einn pakkanna opnaður. Hann innihélt einnota sprautur með kannabisolíu og kannabissúkkulaði. Í kjölfar hóf lögregla rannsókn á málinu sem leiddi til ákærunnar og síðar dómsmálsins. 51.659 kannabissúkkulaðidropar Málfríður Hún segist hafa fundið fyrir fordómum vegna að- ildar sinnar að málinu, en reynir að láta það ekki á sig fá. Við réttarhöldin í héraðsdómnum í Holbæk í gær báru sakborningar vitni og þar kom m.a. fram að á milli 6.000 og 10.000 manns hefðu keypt kannabisolíu og kannabissúkkulaði af þeim. Meðal annarra sem báru vitni í gær var danski læknirinn Tina Horsted, sem áður starfaði á Ríkissjúkrahúsinu í Kaupmannahöfn og veitti þar m.a. krabbameinssjúklingum kannabismeðferð. Nú rekur hún eigin læknastofu þar sem m.a. er boðð upp á meðhöndlun með virku efnunum úr kannabis og er hún einn þeirra u.þ.b. 70 lækna í Danmörku sem bjóða upp á slíkar meðferðir. Meðal þess sem saksóknari spurði hana að var hvort fólk kæmist í vímu af því að neyta kannabisefna. „Já,“ var svarið, en hún útskýrði síðan að það færi eftir því í hvaða formi efnisins væri neytt, mesta víman fengist við að reykja það. „En ef það er rétt skammt- að í læknisfræðilegum tilgangi fer fólk ekki í vímu,“ sagði Horsted. 6.000 - 10.000 viðskiptavinir FRÁ RÉTTARHÖLDUNUM Í GÆR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.