Morgunblaðið - 01.11.2017, Page 40
40 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2017
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Fyrrverandi ráðgjafi Donalds Trump Banda-
ríkjaforseta í utanríkismálum, George Papado-
poulos, hefur játað að hafa logið að alríkis-
lögreglunni FBI í tengslum við rannsókn á
meintum afskiptum rússneskra stjórnvalda af
kosningabaráttunni vestanhafs í fyrra. Talið er
að þessi játning geti skaðað forsetann meira en
ákærurnar á hendur Paul Manafort, fyrrver-
andi kosningastjóra Trumps.
Manafort og samstarfsmaður hans, Richard
Gates, segjast vera saklausir af ásökunum um
samsæri gegn hagsmunum Bandaríkjanna,
peningaþvætti og fleiri lögbrot eftir að sér-
stakur saksóknari í málinu, Robert Mueller,
birti ákærur á hendur þeim. Saksóknarinn seg-
ir að Manafort hafi gerst sekur um peninga-
þvætti til að leyna greiðslum að andvirði 18
milljónir dala, jafnvirði 1,9 milljarða króna, sem
hann fékk frá bandamönnum rússneskra
stjórnvalda í Úkraínu.
Getur ekki tíst sig út úr klípunni
Í ákæruskjölunum kemur ekkert fram sem
bendir til þess að Manafort hafi verið í leyni-
makki við rússnesk stjórnvöld eftir að hann
varð kosningastjóri Donalds Trump. Forsetinn
benti á þetta í tístum á Twitter í fyrrakvöld og
sagði að meint lögbrot Manaforts hefðu verið
framin löngu áður en hann varð kosningastjóri.
Trump gerði síðan lítið úr rannsókninni og hélt
áfram að lýsa henni sem „nornaveiðum“ á
hendur sér og blekkingarleik sem væri runninn
undan rifjum demókrata og fjölmiðla.
Seinna var skýrt frá játningu Papadopoulos
sem er talin koma sér verr fyrir forsetann en
ákærurnar á hendur Manafort, að mati margra
stjórnmálaskýrenda. Þeir segja að Trump geti
ekki tíst sig út úr þeim vandræðum.
Komið hefur í ljós að Papadopoulos laug að
rannsóknarmönnum FBI þegar þeir yfirheyrðu
hann 27. janúar sl., viku eftir að Trump tók við
forsetaembættinu. Papadopoulos gekk til liðs
við Trump í kosningabaráttunni snemma í
mars á síðasta ári og nokkrum dögum síðar
ræddi hann við ónafngreindan „stjórnanda“
hennar sem sagði honum að eitt af meginmark-
miðum Trumps í utanríkismálum yrði að bæta
samskipti Bandaríkjanna og Rússlands. Viku
síðar fór Papadopoulos til Rómar þar sem hann
hitti „prófessor í ríkiserindrekstri“ sem sagt er
að sé í nánum tengslum við stjórnvöld í Kreml.
Þessi „prófessor“ mun vera Joseph Mifsud,
fyrrverandi stjórnarerindreki frá Möltu, að
sögn The Washington Post. FBI segir að „pró-
fessorinn“ hafi ekki sýnt neinn áhuga á að
koma Papadopoulos í tengsl við Rússa fyrr en
hann hafi komist að því að viðmælandinn var
ráðgjafi Trumps. Þá hafi hann sýnt því mikinn
áhuga. Hann hafi sagt Papadopoulos seint í
apríl 2016, mánuði eftir að hann hóf störf fyrir
Trump, að Rússar gætu veitt upplýsingar sem
myndu skaða Hillary Clinton í kosningabarátt-
unni.
Chris Cillizza, fréttaskýrandi CNN, segir
það undarlegt að Papadopoulos skuli hafa sagt
rannsóknarmönnum FBI ósatt þótt þeir hafi
varað hann við því að slíkt myndi hafa alvar-
legar afleiðingar fyrir hann. „Hvers vegna sá
hann sig knúinn til að setja sig í alvarlega, laga-
lega hættu með því að ljúga um hvenær hann
ræddi við „prófessorinn“ ef hann hafði ekkert
að fela varðandi tengsl sín við Rússa eða tilraun
sína til að koma á tengslum við þá?“
Jared Kushner
Sergej Gorkov
Tengdasonur
forsetans og einn
helstu ráðgjafa
hans
Elsti sonur
Donalds Trump
og ráðgjafi
hans þegar ráð-
herraefni voru valin
Lögfræðingur Kushners viðurkenndi
aðhonumhefðuorðið á „mistök“
þegar hann lét hjá líða að skýra frá
fundi hans með Gorkov og Kisljak
Skýrt hefur verið frá því
aðhannhafiboðið Kushner
og Flynn að komaá leynilegu
sambandimilli samstarfsmanna
TrumpsogRússa, að sögn
TheWashingtonPost
Viðurkenndi að
hannhefði átt
fundmeðSergej
Kísljak í fyrra þótt
hannhefði neitað
því í eiðsvarinni
yfirlýsingu aðhann
hefði rætt við
Rússa í kosninga-
baráttunni
Stjórnarformaður
VneshEconomBank,
rússnesks ríkisbanka
sem hefur sætt
refsiaðgerðum í
Bandaríkjunum frá
júlí 2014
Var kosningastjóri
Donalds Trump.
Paul Manafort
Símtöl og fundir sem komu upp úr kafinu
Heimildir: Hvíta húsið, bandarískir fjölmiðlar
Fundir og símtöl, sem ekki var sagt frá í fyrstu, en var seinna skýrt frá þegar meint afskipti rússneskra stjórnvalda
af kosningabaráttunni í Bandaríkjunum í fyrra voru rannsökuð
Sergej Kísljak
Sendiherra Rússlands
í Bandaríkjunum.
Rússneskur lögfræðingur
sem hefur barist gegn
refsiaðgerðum Bandaríkjanna
gegn Rússlandi. Hefur starfað
fyrir menn og fyrirtæki sem
talið er að tengist
rússneskum stjórnvöldum
Jeff Sessions
dómsmálaráðherra
Michael Flynn
Donald Trump yngri
Sagði af sér
sem þjóðar-
öryggisráðgjafi
Trumps eftir að í
ljós kom aðhann
laugumsímasamtöl
sín við Kísljak
Hefur viðurkennt
að hafa átt fund
í júní 2006 með
rússneskum lög-
fræðingi sem bauðst
til að veita upplýsingar
semmyndu skaða
Hillary Clinton,
forsetaefni
demókrata
í kosningunum
Trump yngri hafði fengið
tölvupóst um að á fundinum
með Natalíu Veselnítskaja
gæti hann fengið „viðkvæmar
upplýsingar“ sem væru „þáttur
í stuðningi ríkisstjórnar Rússlands
við Trump“
mágar
Trump yngri, Manafort
og Kushner voru á
fundinummeð
Veselnítskaja, að sögn
sonar forsetans
Natalía Veselnítskaja
Neyddist til að segja af
sér í ágúst 2016 eftir að
skýrt var frá því að hafin
væri rannsókn á upplýsingum
um að hann hefði þegið
leynilegar greiðslur
frá fyrrverandi forseta Úkraínu,
Viktor Janúkovítsj, sem naut
stuðnings Rússa
Kushner hefur sagt aðnokkrir fundir hans
með rússneskumembættismönnum
hafi verið „tilhlýðilegir“
„Ég var ekki í leynimakki við
Rússa og veit ekki um neinn
annan í kosningabaráttunni
sem var það“
Hvers vegna laug hann að FBI?
Játning George
Papadopoulos gæti
skaðað Donald Trump
Carles Puigdemont, sem spænska
stjórnin vék úr embætti forseta hér-
aðsstjórnar Katalóníu, kvaðst í gær
ætla að virða úrslit þingkosninga
sem eiga að fara fram í héraðinu í
desember.
Puigdemont sagði þetta á blaða-
mannafundi í Brussel þar sem hann
hefur dvalið síðustu daga eftir að
spænska stjórnin vék honum úr
embætti vegna þeirrar ákvörðunar
hans og þingsins í Katalóníu að lýsa
yfir sjálfstæði héraðsins. Hann
kvaðst ekki ætla að óska eftir hæli í
Belgíu eða dvelja þar til að reyna að
komast hjá því að verða saksóttur á
Spáni vegna sjálfstæðisyfirlýsingar-
innar.
Spænska stjórnin hefur boðað til
kosninga til nýs héraðsþings í Kata-
lóníu 21. desember eftir að hafa nýtt
stjórnarskrárákvæði sem heimilar
henni að leysa upp katalónska þingið
og víkja héraðsstjórninni frá.
Puigdemont kvaðst ætla að virða úr-
slit kosninganna og hvatti spænsk
stjórnvöld til að gera það einnig ef
aðskilnaðarsinnar fengju aftur
meirihluta sætanna á héraðsþinginu.
Ný skoðanakönnun bendir til þess að
48,7% Katalóna séu hlynnt sjálfstæði
en 43,6% andvíg.
AFP
Í útlegð? Carles Puigdemont (fyrir miðju) á blaðamannfundi í Brussel.
Hyggst virða úrslit
þingkosninganna
Puigdemont sækir ekki um hæli
Eyjasandi 2, 850 Hella - Víkurhvarfi 6, 203 Kópavogi, sími 488 9000 - samverk.is
MÁLAÐ GLER
Málað gler er falleg klæðning á veggi, innréttingar, skápa
og margt fleira innandyra.
ÞEKKING - GÆÐI - ÞJÓNUSTA
SÉRSMÍÐUM ÚR GLERI